Dagur - 21.04.1948, Blaðsíða 1
DAGUR
óskar lesendum sinum
nœr og jjcer
gleðilegs s u m a r s!
F orustugreinin:
Mannfjölgunin í Reykjavík
1946 og 1947 samsvarar því
að allir íbúar Akureyrar /
hefðu flutt þang'að á 2 árum! j
XXXI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 21. apríl 1948
16. tbl.
Heilffarvörusála KEAI öllum síarfsgreinum varð 68 milljónir kr.
Þannig á ekki að afgreiða mál:
Neitað um gjaideyri tii smávægi-
legrar endurnýjunar á hitunar-
tækjum elliheimilis
AtNugið ttfrlngkri>gr afttut i tW'ta.
Umsókn um gjaldeymis- og innflutningsleyfi.
Fi-, )»•«] VfeQtecw# K.k>«i u,ÍB»a»r \ ttak» ujfrtin
tJ.S.A. p 1.000:-- \ Z \
\ ■ ;; \
E
..V
-
Hf fl»taiOö»g)íit'líS 4 58 grci\rsl twr t bndi t ntatukum jr-mi
jrú umtahfanc
í ’rllícelntjVf.ið#. í.
Tv« «ls«5»nt í úvark*t 11 tUise! SlH.f lr.# f KXÍ* 4
et þiiá \ái4 fi t*tA í*u nr. Sotlllf.ir. er nu *le#rl«E* •rullr.atgjaijtli XXI upjv
nltwMr 4 clllhttisillr.u í *ltclu« kulcu*. «4 #r pví *lkil muiayn a úr
v«r#l t»tt hl4 fclltu /frsl#.
il.UJMimUnw í 5iO«l«iarvík ftÍ/X2tU?
Til ViO«klj><ai*áðKln6,
Keykjavik.
3kjal«l*rvfk, EyjafJorJaJtýaXM
Umsóki^ sem send er í desember,
svarað í apríl!
Á s. 1. vetri eyðilögðust tvö ele-
ment í miðstöðvarkatli elliheim-
ilisins í Skjaldarvík og var ekki
hægt að hita upp heimilið nægi-
lega í niiklum kuldum þar sem
varahlutir voru engir til. EIIi-
heimilið sótti því hinn 23. des-
ember um innflutnings- og gjald-
eyrisleyfi til kaupa á nýjum ele-
mentum, að upphæð kr. 1000.00.
Janúar-, febrúar og marzmán-
uðir liðu og ekkert svar barst frá
gjaldeyrisyfirvöldunum. Það hef-
ur ekki þótt mikið við það að at-
huga í upphituðum skrifstofunum
í Reykjavík, þótt gamalmenni
norður í Skjaldarvík þyrftu að
búa við ófulnægjandi upphitun.
Það hefir ekki virzt ástæða þar til
þess að hraða afgreiðslunni. Það
er ekki fyrr en komið er vor, eða
í þessum mánuði, að þetta stór-
vægilega erindi er tekið til af-
greiðslu. Hinn 8. apríl s. 1. stimpl-
ar embættismaður Viðskipta-
nefndarinnar á umsóknareyðu-
blaðið, að umsókninni sé synjað,
og póstleggur það síðan í Reykja-
vík til umsækjanda. Tit sönnun-
ar því, að hér sé rétt frá skýrt,
fylgir mynd af plaggi þessu. Um-
sóknin dags. 23. des. 1947. Svarið
dags. í Reykjavík 8. apríl 1948.
Munu flestir samdóma um, að
þannig eigi ekki að afgreiða mál.
Þessi erindislok elliheimilisins í
Skjaldarvík minna á, að „það
er löng leiðin til keisarans“, að
embættismannavaldið í Reykja-
vík hagar sér stundum eins og
það búi á annarri stjörnu. Allir
þeir sem eitthvað þekkja til inn-
flutningsmálanna vita mæta vel,
að á þessum rösku þremur mán-
uðum, sem liðnir eru síðan um-
sókn þessi var send, hefur margt
verið flutt til landsins, sem ó-
þarfara er en varahlutir í mið-
stöðvarketil elliheimilisins í
Skjaldarvík. Heimili þetta er hin
þarfasta stofnun. Stefán Jónsson,
sem hefir komið því upp, hefir
sýnt mikla fórnfýsi með starfi
sínu þar, og varið til þess bæði
miklum fjármunum og tíma. Það
er von-að mönnum blöskri, þegar
slík stofnun og slíkur maður fær
slíkt svar „frá keisaranum“.
Þannig hlynnir embættismennsk-
an að þessum þjóðfélagsþegn og
því menningar- og líknarstarfi,
sem hann hefir með höndum fyr-
ir þennan bæ og þetta hérað.
Aðalfimdur Kaup-
félags verkamanna
Aðalfundur Kaupfélags Verka-
manna hér í bænum var haldinn
sl. fimmtudag. — Samkvæmt
skýrslu framkvæmdastjórans,
Erlings Friðjónssonar, varð vöru-
sala félagsins á árinu 1947 kr.
1.206.719.07 og hafði aukist um
29% að krónutali á árinu. Sam-
þykkt var að greiða félagsmönn-
um 10% arð. Stjórn félagsins
skipa: Halldór Friðjónsson, for-
maður, Jón Austfjörð, Jón M.
Árnason, Júníus Jónsson og Sig-
urður ■ Sölvason.
Skagfield vel fagn-
að á hljómleikum
í fyrrakvöld
Sigurði Skagfield óperu-
söngvara var ágætlega fagnað af
fullu húsi áheyrenda, er hann lét
til sín heyra liér í fyrsta sinn í
mörg ár í Nýja-Bíó á mánudags-
kvöldiö.
Bárust honum fögur blóm og
var hann ákaft hylltur Varð hann
að endurtaka mörg lögin á söng-
skránni.
Operuaríurnar settu aðalsvip á
efnisskrána. Þar voru aríur úr
Skæruliðunum eftir Weber,
Tosca og Manon Lescaut eftir
Puccini, Cavaleria Rusticana eft-
ir Mascagni, Fidelio eftir Beet-
hoven og Carmen eftir Bizet.
Auk þess 7 ljóðræn lög eftir inn-
lenda og' el'lenda höfunda. Hin
bjarta og þróttmikla rödd Skag-
fields naut sín án efa bezt í
óperuaríuriurh. Fór þar saman
hrífandi söngur og skemVntiIeg
frámkoma.
En yfirleitt má um þessa hljóm-
leika segja, að þeir hafi verið
mjög glæsilegir. Fritz Weis-
shappel lék undir af smekkvísi.
Hljómleikar þessir voru á vegum
Tónlistarfélagsins og voru endur-
teknir í gærkveldi.
íbáar Reykjavík-
nr nærri 54 þús.
íbúunum í Reykjavík hefir
fjölgað um rúmlega 5650 á síðast-
liðnum tveim árum, þar af um
rösklega 2 þúsund 1946 og um
tæp 3 þúsund sl. ár.
Við síðasta manntal voru íbú-
arnir í Reykjavík samtals um
53.840. Eru þar með taldir allir
þeir, sem skráðir voru í bænum
við manntalið sl. haust, einnig
fólk, sem telm- sig eiga lögheim
ili annars staðar.
Haustið 1946 voru íbúar Rvík
ur skráðir 51.011, en árið áður
48.186.
Skemmtikvöld
F ramsóknarmaitna
n. k, sunnudag
Framsóknarfélag Akureyrar
hefir skemmtikvöld að Hotel
KEA sunnudaginn 25. þ. m. — Til
skemmtunar verður: Framsókn-
arvist, erindi og dans. Skemmt-
unin hefst kl. 8.30 síðd. stundvís-
lega. Síðasta sinn sem Framsókn-
arvist verður spiluð að þessu
Áðalfimdur samþykkir 4 % arðs-
úthlutun - Astæður félagsmanna
hafa enn batnað verulega
Rætt um ýmsar nýjungar á aðalfundi
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga var settur í Nýja-Bíó kl. 10
árdegis á mánudaginn og lauk honum í gær. Fundinn sóttu 234 full-
trúar frá 24 félagsdeildum, í umboði 4656 félagsmanna. Hafði félags-
mönnurn fjölgað um 118 á árinu. Þá sátu og fundinn stjórn félagsins,
framkvæmdastjóri, endurskoðendur og margir gestir Fundarstjóri
var kjörinn Hólmgeir Þorsteinsson á Hrafnagili.
Þórarinn Kr. Eldjárn, hinn ný-
kjörni formaður félagsins, flutti
skýrslu stjórnarinnar. í fundar-
byrjun minntizt- hann Einars
Árnasonar á Eyrarlandi, sem
andaðist í nóvember sl., rakti
störf hans fyrir félagið og giftu
þá, sem jafnan hefði fylgt störf-
um hans. Risu fundarmenn úr
sætum í virðingarskyni við hinn
látna samvinnuleiðtoga. í skýrslu
þeirri, er Þórarinn Kr. Eldjái'n
flutti af hálfu stjórnarinar, um
helztu framkvæmdir á sl. ári,
voru þessi atriði helzt: Keypt var
bíláverkstæði í Dalvík til þess að
annast vélaviðgerðir fyrir félags-
menn í Dalvík og Svarfaðardal.
Keypt hálf jörðin Sjáland í
Grímsey ásamt íbúðarhúsi fyrir
útibússtjóra félagsins þar. Keypt-
ir olíukynntir katlar úr Hvalfirði
fyrir ketilhús Mjólkursamlagsins,
sem ákveðið er að reisa í Grófar-
gili. Hafin viðbótarbygging fyrir
Skipasmíðastöð félagsins á Odd-
eyrartanga og húsrúm ætlað þar
fyrir málmhúðunarverkstæðiþað,
sem félagið hyggst koma á fót.
Haldið áfram byggingu verzlun-
arhússins við Hafnarstræti og
hraðfrystihúsa í Dalvík og Hrís-
ey. í skýrslu sinni um rekstur
og hag félagsins rakti Jakob Frí-
mannson framkvæmlastjóri mjög
ýtarlega starfrækslu einstakra
deilda félagsins skýrði frá hag
þeirra á árinu og las upp reikn-
inga þeirra. Af skýrslu hans kom
í Ijós, að heildarsala allra starfs-
greina félagsins á innlendum og
erlendum afurðum varð um 68
millj. króna og er það hæsta upp-
hæðin í sögu félagsins. Vegna
lækkaðrar álagningar og aukins
tilkostnaðar varð heildarafkoma
félagsins ekki eins góð og áður.
Rekstursafgangur til ráðstöfun-
ar fyrir aðalfund af almennri, á-
góðaskyldri úttekt varð 271.588,72
og lagði stjórnin til að greiddur
yrði 4% arður. Ennfremur að
brauðgerðin greiddi 5% arð og
lyfjabúðin 5% arð. Samkvæmt
skýrslunni voru innstæður fé-
lagsmanna í innlánsdeildum,
stofnsjóðum og viðskiptareikn-
ingum kr. 19.747.108,14 en skuld-
ir þeirra kr. 337.458,50. Höfðu
ástæður félaganna gagnvart fé-
laginu batnað á árinu um kr.
2.004.584.89. Innstæðan í stofn-
sjóði var í árslok kr 3.324.584.89
og hafði aukist um 294.279.73.
— Útborgað úr - stofnsjóði
á árinu samtals kr. 102.745,70.
Innstæður félagsmanna í innláns-
deild námu kr. 10.805.685,74 og
höfðu aukist um kr. 1.329.189,18
á árinu. Árið 1947 greiddi félag-
ið um' 450 þús. kr. til félagsmanna,
sem arð af viðskiptum ársins
1946, fyrir utan arð af lyfjabúðar-
og brauðgerðarvörum. í skýrslu
framkvæmdastjóra og endur-
skoðenda, kom fram, að eignir fé-
lagsins eru varlega metnar og
l'járhagur þess mjög traustur.
Byggingamál sveitanna.
Á fundinum urðu allmiklar
umræður um byggingamál sveit-
anna í tilefni af tillögu frá stjórn
félagsins. Er tillaga þessi svo-
hljóðandi:
„AðaKundur KEA felur stjórn
félagsins að gangast fyrir stofnun
hlutafélags til að annast bygg-
ingaframkvæmdir fyrir félags-
menn.“
Ætlunin er að þátttakendur í
félagi þessu verði, auk kaupfé-
lagsins, byggingamenn og verka-
menn og taki það að sér bygg-
ingaframkvæmdir. Munu menn
gera sér vonir um, að með þess-
um hætti muni e.‘ t. v. takast að
greiða úr þeim erfiðleikum, sem
á því eru að fá fagmenn til vinnu
við byggingar í sveitum.
(Framhald á 8. síðu).
Á aðalfundi KEA í gær, báru
27 fulhrúar úr ýmsum deild-
urn félagsins fram svohljóð-
andi tillögu:
„Aðalfundur KEA, haldinn
á Akureyri 19. og 20. apríl
1948, skorar eindregið á ríkis-
stjórnina að fresta fyrst um
sinn framkvæmd þess ákvæð-
is hinna nýju fræðslulaga, að
gagnfræðadeild skuli lögð nið-
ur við Menntaskólann á Ak-
ureyri. Telur fundurinn að af-
nám deildarinnar yrði til mik-
ils óhagræðis fyrir Akureyrar-
bæ og þó einkum nærliggjandi
hérúð.“
Steingrímur Jónsson, fyrrv.
bæjaríógeti hafði framsögu í
málinu. Var tillagan samþykkt
í einu hljóði.