Dagur - 28.04.1948, Síða 12
12
Miðvikudaginn 28. apríl 1948.
Nývirkjun við Laxá talin kosta
20 milijónir króna *
Virkjunin áætluð 11.400 hestöfl
Aukin vörusðla Kaupféfags
Þingeymga
Félagið hefur nieð höndum merkilegar fram-
kvæmdir - Frá aðalfmidi K. Þ. í Húsavík
Á sameiginlegum íundi bæjar-
ráðs og rafveiUmefndar Akureyr-
ar nú fyrir skemmstu, var lagt
fram yfirlit yfir raimsóknir og
áætlanir, sem gerðar hafa verið
um virkjun neðra fallsins svo-
kallaða í Laxá. Samkvæmt nið-
urstöðum þessa yfirlits og tillög-
um raforkumálastjóra, er gert
ráð fyrir að virkjuð verði 29
metra fallhæð í neðra fossinum
við Brúar, og er aflið áætlað
11.400 hestöfl, en heildarkostnað-
ur um 20 milljónir króna, að
meðtaldri spennistöð hér í hæn-
um og háspennulínu frá Brúum
til Akureyrar.
Á fundi þessum var þessi til-
högun samþykkt af hálfu Akur-
eyi'arbæjar, enda haldi bærinn
fullum rétti til þess að fullvirkja
efra fallið síðar ef henta þykir.
Gcngið fram hjá Akurcyrarhæ?
f bréfi, sem raforkumálastjóri
ritaði ríkisstjórninni 19. þ. m., og
lagt var fram á þessum fundi, fer
hann fram á heimild til þess að
mega fela Rafmagnsveitum ríkis-
ins að hefja framkvæmd viðbót-
arvirkjunarinnar við Laxá sam-
kvæmt þessum tillögum, enda
hafi Rafmagnsveiturnar samráð
við raforkumálastjóra og ríkis-
stjórnina um framkvæmdina.
Með bréfi, dags. 20. apríl hefir
ráðherra samþykkt þessar tillög-
ur raforkumálastjóra og falið
honum að athuga útvegun á föst-
um lánum til greiðslu á innlend-
um kostnaði við virkjunina. í
þessum bréfaskiptum raforku-
málastjóra og ráðherra virðist
hvergi gert ráð fyrir hlutdeild
Akureyrar í virkjuninni. Stingur
þetta ailmjög í stúf við það, sem
áður var ráðgert. Hefir alla tið
Revyan
,Taktu það rólega!'
sýnd í næstu viku
Gerist á Akureyri
og í Vaglaskógi
Leikfélag Akureyrar hefur að
undanförnu æft nýja Akureyrar-
revyu, sem ncfnist „Taktu það
rólega“. Verður frumsýning að
forfallalausu í næstu viku. Sam-
kvæmt upplýsingum, sem blaðið
hefur aflað sér er hér um revyu
úr bæjarlífinu að ræða. Gerizt
hún ýmist hér í bænum eða í
Hrossalundi í Vaglaskógi, þar
sem aðalpersónurnar, Kobbi Krús
veitingamaður (Þórir Guðjóns-
son) og Brasína kona hans (frú
Svava Jónsdóttir), ráða ríkjum.
Margir bragir eru í leiknum og
mikið sungið. Leikendur eru
margir, bæði gamalkunnir leik-
endur Leikfélagsins og nýliðar.
Iiöfundar leiksins láta ekki nafna
sinna getið.
verið gert ráð fyrir því hér, að
Akureyrarbær mundi hafa fram-
kvæmd verksins með höndum, í
samráði við raforkumálastjóra,
enda hefir bærinn lagt fram fé til
virkjunarinnar með það fyrir
augum. Á fundi bæjarráðs og raf-
veitunefndar var samþykkt að
óska þess við ráðherra, að bærinn
ráði vei-kamenn og iðnaðarmenn
til fyrirhugaðra framkvæmda á
þessu sumri og hafi hlutdeild í
öðrum framkvæmdum meðan
eklcii er tekin ákvörðun um hver
Verði eigandi virkjunarinnar, en
viðræðum og ísamningúm um það
atriði, í milli bæjarins og ríkisins,
var frestað fyrir nokkru að til-
lögu ráðherra.
Virðast síðustu ráðstafanir hans
og raforkumálastjóra í fyrr-
greindum bréfúm 'ekki í samræmi
við það, sem áður hefir farið í
milli ríkisvaldsiris og bæjarins
um þessi mál. Engin svör munu
enn hafa borizt við þessari síð-
ustu orðsendingu bæjaryfirvald-
anna hér.
Bakarasveinafélag Reykjavík-
ur sagði fyrir nokkru upp samn-
ingum um kaup og kjör bakara-
sveina í brauðgerðum þar. Gildir
uppsögn þessi einnig fyrir brauð-
gerðarhús hér, þar sem bakara-
sveinar hér cru meðlimir í sunn-
lenzka félaginu, en hafa ekki sér-
stakt félag mcð sér hér.
Viðræður hafa farið fram í
Reykjavík, en samningar ekki
tekizt enn. Krefjast bakasveinar
nokkurrar kauphækkunar. — Þá
hefir Iðja, félag verksmiðjufólks
hér, einnig sagt upp samningum
frá 1. maí. Hafa Viðræður í milli
samninganefndar félagsins og
verksmiðjueigenda hér strandað,
og málinu vísað til sáttasemjara.
Iðja í Reykjavík framlengdi ný-
lega samninga sína óbreytta frá
1. apríl, að því undanskildu. að
eins mánaðar uppsagnarfrestur
er áskilinn nú, í stað þriggja mán-
aðá uppsagnarfrests áður. Hér
krefst félagið kjara, sem eru
hærri en kjör iðnaðarverkafólks
syðra. Sömu kjör hafa gilt hér og
í Reykjavík, að undanskildu því,
að vinnutími hér er hálfri klst.
lengri en þar en í staðinn er sum-
arfrí hér lengra og veikindafor-
fallafríðindi meiri. Hefir þetta
verið lagt að jöfnu hingað til. Nú
er krafizt 30 kr. hærra grunn-
kaups en greitt er í Reykjavík,
áukinna veikindafríðinda, jafns
vinnutíma og í Reykjavík. —
Mundi þetta allt nema 10—20%
Merk samviiinukona
látin
Nýlátin er í New York frú
Emmy Freundiich forseti al-
þjóðabandalags kvennagilda (Int-
ernational Cooiierative Womens
Guild). — Frú Frcundiich sem
var austurrísk að þjóðerni, var
rnikil liugsjónakona og mjög
þekkt og dáð af samvinnumöim-
um og konum um víða veröld. —
Ilún var 72 ára er hún lézt.
AUKIÐ FLUGÖRYGGI.
Norðmenn eru nú að koma upp
„radar-beacons“ — litlum radar-
vitum — meðfram norsku strönd-
inni til afnota fyrir flugvélar á
innanlandsleiðum. — Telja þeir
hærra kaupi hér, en greitt er
syðra.
Verksmiðjueigendur hér, sem
eiga við erfiðari aðstöðu að búa
I
um hráefnainnflutning og afsetn-
ingu framleiðslunnar en reyk-
vískir verksmiðjueigendur, munu
telja fi-amtíð iðnaðarins hér stefnt
í hættu með kröfum þessum og
eru ófúsir að ganga inn á hærri
kjör en í Rvík. Er þessi afstaða
þeirra eðlileg. Verður ekki séð, að
iðnaðurinn hér hafi nokkra
möguleika til þess að standa und-
ir hærri tilkostnaði en iðnaður-
inn í Reykjavík. Munu menn
vænta þess, að Iðjufólk skilji
nauðsyn þess að iðnaðurinn hér
búi ekki við mun lakari aðstöðu
en keppinautar hans í Rvík.
„Hvassaf ell“ á leið
til Norðuilands
með semeíitsfarm
M/s. Hvassafell er um þessar
mundir í London og tekur se-
mentsfarm, er það flytur til
ýmsra hafna hér á Norðurlandi.
Hvassafell kom til London 9. þ.
m. og varð þá fyrir því óhappi í
Thamesármynni, að árekstur
varð í milli þess og brezks flutn-
ingaskips í dimmviðri. Skemmd-
ust þrjár plötur í Hvassafelli við
áreksturinn og fór viðgerð
skemmdanna fram í London.
Aðalfundur Kaupfélags Þing-
eyinga var settur í samkomuhús-
inu í Húsavík þriðjudaginn 2Ö.
þ. m. og stóð yfir í tvo daga.
Fundinn sátu 80 fulltrúar, auk
félagsstjórnar, framkvæmda-
stjóra og endurskoðenda.
Framkvæmdastjóri flutti þar
sína venjulegu ársskýrslu yfir
rekstur og hag félagsins á árinu,
sem var þökkuð af fulltrúum og
fundargestum með almennu lófa-
taki.
Vörusala félagsins var 7.358.-
034.29 og hafði hún aukist á árinu
um 2.224.712.69.
Samþykkt var að greiða til fé-
lagsmanna 5% arð af ágóða-
skyldri úttekt þeirra.
Fyrir fundinum láu engin stór
mál, því að í fyrra samþykkti að-
alfundur miklar framkvæmdir,
sem nú standa yfir. Nýtt brauð-
gerðarhús tekui' til starfa í vor.
haldið verður áfram með verzl-
unarhúsbyggingu, sem hafin var
í fyrra og hafinn verðui' bygging
í sumar á stóru hraðfrystihúsi,
sem félagið á stóran hlut í.
í mörg ár hefur Björn Sig-
tryggsson bóndi á Brún verið fé-
lagsstjórnarformaður, en á þess-
um fundi mætti hann ekki, vegna
langvarandi veikinda, og hafði
hann lýst því yfir, að hann tæki
ekki endurkosningu. í hans stað
vor kosinn í stjórnina Ulfur Ind-
riðason bóndi á Héðinshöfða, sem
búinn var að vera varamaður í
allmörg ár. Karl Kristjánsson,
oddviti Húsavík, var kjörinn íor-
maður félagsins.
Tveir nýir menn voru kosnir
í varastjórn, þeir Steingrímur
Baldvinsson bóndi í Nesi og
Tryggvi Sigtryggsson bóndi á
Laugabóli.
Skemmtikvöld fyrir félagsmenn.
Eins og að undanförnu hafði
Síðastl. mánudag var formlega
gengið frá stofnun Fisksölusam-
lags Eylfirðinga .Er þess vænzt að
allir eyfirzkir útgerðarmenn
verði þátttakendur í samlaginu,
ásamt eigendum fiskflutninga-
skipa og skipshöfnum á veiði-
skipum.
Ennþá hefir ekki borizt endan-
leg svör frá Fiskábyrgðarnefnd
um framkvæmd fiskábyrgðar-
heimildarinnar gagnvart fisk-
flutningaskipum héðan, en út-
vegsmenn hér fóru fram á, að
greidd yrði hámarksuppbót, 25
aurar á kg., svo sem greint var
kaupfélagið tvö skemmtikvöld
fyrir fulltrúa og gesti þeirra.
Fyrra kvöldið var kvöldvaka,
sem skemmtinefnd félagsins stóð
fyrir. Hófst hún með því að
kirkjukór Aðaldæla söng undir
stjórn Jónasar Guðmundssonar
bónda í Fagranesi.
Þá komu fram 20 ungir menn
úr Mývatnssveit og sýndu ís-
lenzka glímu. Mátti sjá, meðan á
glímunni stóð, marga gamla
glímukappa gráhærða, titrandi af
glímuskjálfta, svo hreif þessi
fagra og gamla íþrótt þá ennþá.
Kjartan Bergmann glímukenn-
ari sýndi íþróttakvikmyndir. Pét-
ur Jónsson í Reynihlíð, formaður
skemmtinefndar, las erindi eftir
Jónas Baldursson. Jón Haralds-
son bóndi á Einarsstöðum og Þór-
ólfur Jónasson bóndi á Hraun-
koti fluttu kvæði.
Seinna kvöldið sýndi leikflokk-
ur í Húsavík sjónleikinn „Syndir
annarra."
Bæði kvöldin var húsfyllir.
Handbók fyiir sveitar-
stjórnir
Félagsmálaráðuneytið hefur
_gefið út kosningahandbók fyrir
sveitarstjórnir. Flytur bókin lög
um sveitarstjórnarkosningar, lög
um kosningsp' til Alþingis, skrá
um bæjarstjórnir í kauþstöðum
og hreppsnefndir í sveitum og
þorpum, skrá um sýslunefndir,
heildaryfirlit kosninga í kaup-
stöðum og kauptúnum og yfirlit
Alþingiskosninga.
Jónas Guðmundsson skrif-
stofustjóri hefur tekið bókina
saman. Mun hún fást í bóka-
verzlunum um land allt.
frá í síðasta blaði.
Togbátar hefja veiðar.
Togbátarnir héðan munu fara
á veiðar nú í vikunni og má gera
ráð fyrir að siglingar á Biet-
landsmarkað hefjist innan
skamms. Ekki er búið Etð ákveða,
hvaða skip verða í förum, en lík-
legt má telja, að það verði stærstu
og hraðskreiðustu skip veiðiflot-
ans hér.
Stjórn hins nýstofnaða samlags
skipa þeir Hreinn Pálsson, Gísli
Konráðsson, Tryggvi Helgason,
Valtýr Þorsteinsson og Egill
Júlíusson.
stóraukið öryggi að þessu.
„Iðja“ og bakarasveinar hafa sagt upp
samniugum frá 1. maí n. k.
Fisksölusamlig Eyfirðinga sfofnað
Togbátar hef ja veiðar nú í vikunni - Fiskflutn-
ingar á Bretlandsmarkað væntanlega
innan skamms