Dagur - 02.06.1948, Side 1

Dagur - 02.06.1948, Side 1
Fimmta síðan: Síðari grein Snorra Sig- fússonar um skólamál þjóðarinnar. Forustugreinin: Skrif Mbl. um félags- mannaskrár kaupfélag- anna eru fávísleg. XXXI. árg. Akureyri, miðvikudaginn 2, júní 1948 22. tbl. Brezkt fiskiveiðiblað ræðst á ísienzka landhelgisgæzlu og dómstóla Gefur villandi upplýsingar um landhelgi íslands Gjaldeyrisleyfi fyrir 6,3 millj. til kaupa á landbúnaðarvélum á þessu ári Þar af 1,3 millj. nú fyrir nokkrum dögurn til kaupa á heyvimiuvélum Ilið víðlcsna, brezka fiskiveiði- blað, „Fishing News“, sem gefið cr út í Aberdeen, flutti hinn 15. maí sl. ritstjórnargrein, þar sem ráðist er harkalega að landhelgis- gæzlu íslands og íslenzkum dóm- stólum. Kallar blaðið sektir þær. sem brezkir togarar hafa orðið að þola fyrir landhelgisveiðar ofsa- legar eða villimannlegar (savage) og landhelgismörk íslendinga „býsna furðuleg“ (somewhat fantastic). Tilefni þessai'ar greinar mun vera það, að skozkur togari var fyrir nokkru tekinn í landhelgi við Suðurland og sektaður, eins og lög stóðu til, um 12000 gull- krónur eða 28000 ísl. krónur, að viðbættum 300%, sem er nýlegt ákv-æði. Togari þessi var staðinn að veiðum á svæði, sem óumdeil- anlega er landhelgi íslands og þessi landhelgi er, eins og Bret- um æti að vera manna bezt kunn- ugt um, 3 mílur frá yztu annesj- um, en ekki, eins og blaðið held- ur fram, að landhelgin „sé ekki ströng þriggja mílna mörk, eins og vér þekkjum við strendur vor- ar, heldur heilir flóar og sund, mælt frá nesi til ness, sem inni- fela hundruð mílna góðra fiska- miða, sem mundu vera heimil til veiða fyrir alla í öðrum löndum.“ Þessi lýsing blaðsins á landhelg- ismálum íslands er algjörlega villandi og furðulegt að slíkt Sr. Fétur Sigurgeirsson eini iimsækjandinn um nyja prestsembættið Umsóknarfrestur um hi'ð nýja prestsembætti hér, skv. lögum frá síðasta Alþingi, var útrunn- inn 31. maí. Aðeins einn umsækj- andi er um embættið, séra Pétur Sigurgeirsson, sem verið hefur aðstoðaprestur hér að undan- förnu. Kosning hefur verið á- kveðin hinn 13. júní n. k. Þótt umsækjandi sé aðeins einn, þarf kosning eigi að síður aðfarafram. Til þess að prestur sé löglega kos- inn þarf hann að fá rösklega 25% atkvæða á kjörskrá, þ. e. a. s. helmingur þeirra, sem á kjörskrá eru, þurfa að kjósa og hann að fá helming greiddra atkvæða. I Akureyrarsókn og Lögmanns- hlíðarsókn eru samtals 4252 menn á kjörskrá og þarf séra Pétur því að fá a. m. k. 1064 atkv. hinn 13. júní til þess að vera löglega kos- inn prestur hér. skuli birtast í ábyrgu, brezku fiskiveiðiblaði. Hlutdrægni dróttað að dómstólum. Þá er látið liggja að því, að ís- lenzkir dómstólar séu hlutdrægir ef íslenzk skip eiga i hlut. Segir blaðið að „ekki sé vitað“, hvað gert sé við íslenzka fiskimenn, sem brjóti landhelgislögin. Loks kvartar bláðið yfir því, að nauð- syn sé að koma fastara skipulagi á landhelgismál þjóðanna ,því að á sama tíma og Bandaríkin og fleiri þjóðir færi út landhelgi sína stórlega, og íslendingar og Norðmenn túlki landhelgi sína með reglunni „frá nesi til ness“, þ. e. með innilokun stórra flóa, geti hver, sem er, veitt fisk við strendur Bretlands. Landhelgismál rædd í ýmsum tóntegundum. Eins og áður er tekið fram, er þessi túlkun blaðsins á landhelgi íslands mjög villandi. Það er ekkert „furðulegt“ við landhelg- islínu íslands. Núverandi land- helgi var afmörkuð með samn- ingi Stóra Bretlands og Dan- merkur löngu áður en íslending- ar fengu sjálfir þar um nokkru að ráða, og þessi samningur er ekki þannig úr garði gerður, að sjálfstætt ísland geti unað við hann til frambúðar. Umráðasvæði íslands er þar SKERT meira en sanngjarnt er. Allt tal um furðu- lega stóra landhelgi íslands nú, er út í bláinn og mjög villandi. Það er eftirtektarvert, að þetta brezka blað virðist ræða land- helgismál þjóðanna með ýmsum tóntegundum, eftir því, hver í hlut á. Nýlega gi-eindi það frá fyrirætlunum Ástralíustjói'nar um að færa út landhelgi sína með lagasetningu til verndar fiski- veiðum landsins og fiskistofnin- um. Engar athugasemdir voru við ■ það gerðar af blaðsins hálfu. En þegar smáþjóð á í hlut, er reynt að gera núverandi landhelgi hennar tortryggilega. Sú spurn- ing hlýtur að vakna, hver til- gangurinn sé. Er hann sá, að tor- velda fyrirfram skilning brezkra fiskimanna á nauðsyn íslands fyrir rýmkaða landhelgi? Hvern- ig, sem á grein þessari stendur, hljóta menn hér að harma það. að ábyí-gt, brezkt blað, skuli birta grein um þessi mál, byggða á jafn röngum forsendúm og litlum skilningi og nefnd grein í „Fish- ing News, hinn 15. maí síðastl.. Arabaleiðtogar Þcssir tveir þjóðhöfðingjar Araba cru lielztu forvígismennirnir í innrás Arabaríkjanna í Palestínu, auk Abdullah Transjórdaníukon- ungs. Þeir eru Farouk Egypta- landslconungur (t. h.) og Ibn- Saud, lconungur Saudi-Arabíu. Umdæmisþmg lialdið á Akureyri Annað umdæmisþing Rótary- klúbbanna íslenzku verður hald- ið hér á Akureyvi dagana 3.—6. þ. m. — og munu sækja það full- trúar frá öllum Idúbbum lands- ins, en þeir eru núi 8 talsins. — Er ísland sérstakt Rótaryum- dæmi (74. umdæmi) og hefir svo verið í 3 ár, en áður heyrðu ís- lenzku klúbbarnir undir Dan- merkurumboðið. Rótaryfélagsskapurinn er ekki gamall, aðeins rúmlega fertugur. Var fyrsti klúbburinn stofnaður í Chicago í Bandaríkjunum 23. fe- brúar 1905. — Nú eru yfir 6 þús. klúbbar í heiminum, og er fé- lagatala þeirra komin nokkuð yf- ír 300 þúsundir, — svo ör hefir vöxturinn verið. Rótaryklúbbarnir eru félags- skapur hinna ýmsu starfsgreina í þjóðfélaginu og telur aðeins einn fulltrúa fyrir hverja starfsgrein. Er aðaltilgangurinn að vinna að kynningu og þróun þeirra og efla frið, og bræðralag manna á með- al. Dr. Helgi Tómasson hefir verið umdæmisstjóri frá því íslenzka umboðið var stofnað, en nú standa umdæmisstjóraskifti fyrir dyrum og hefir séra Oskar Þor- láksson, Siglufjarðarprestur, ver- ið kjörinn eftirmaður dr. Helga. Mikill afli í Húsavík Frá fréttaritara blaðsins: Mjög góður afli var á línubáta í s 1. viku. Er mikil fiskigengd á smábátamiðum á flóanum og er langt um liðið síðan önnur eins aflahrota hefur lcomið hér. Fisk- urinn er saltaður og hraðfrystur. Tíð hefur verið köld hér að und- anförnu og hafa bændur átt í miklum erfiðleikum með lambfé vegna kuldanna. Landbúnaðarráðherrann, Bjarni Ásgeirsson, sagði í viðtali við blaðið í gær, að á þessu ári væri búið að veita gjaldeyrisleyfi til lcaupa á landbúnaðarvélum fyrir samtals 6,3 millj. króna og skortir því ekki nema 200 þúsund lcrónur á að veitt séu leyfi fyrir allri þeirri upphæð, sem áætluð var til þessara nota í innflutningsáætl- un Fjárhagsráðs. Af þessari upphæð voru veitt- ar 1,3 millj. króna nú fyrir nokkr- um dögum til kaupa á heyvinnu- vélum frá Bandaríkjunum og Svíþjóð. Taldi ráðherrann að sæmilega hefði rætzt úr um öflun þessara tækja og gjaldeyrisyfir- færslur til kaupa á þeim og mætti vænta þess, að eitthvað rættist úr heyvinnuvélaskortinum, þegar búið væri að flytja tælci til lands- Fyrsti brezki íercfamamialiópiir- inn kemur 8. jiiní Eins og áður er greint frá hér í blaðinu, heldur brezka Culliford- línan uppi skemmtisiglingum hingað til lands í sumar á skipinu „Granton Glen“. Mun skipið fara alls fimm ferðir og er það vænt- anlegt til Reykjavíkur hinn 4. þ. m. og hingað 8. þ. m. Hér mun ferðafólkið dvelja í röskan sól- arhring. Mun það ferðast um ná- grenni bæjarins og austur til Mývatns. Ferðaskrifstofa ríkisins annast móttöku þess hér. Útibú Ferðaskrif- stofu ríkisins mun starfa Iiér í sinnar Ferðaskrifstofa ríkisins mun starfrækja útibú hér í sumar og er skrifstofan nýlega tekin til starfa. Stjórnar Jón Egils henni. Ákveðið hefir verið að auka starfsemina hér frá því sem verið hefir. Skrifstofan annast af- greiðslu bifreiða, skipuleggur hópferðir, útvegar ferðamönnum herbergi og annast hvers konar fyrirgreiðslu. Skrifstofan er í Strandg. 5 og er opin alla daga fiá 9—6 og 8—9 e. h. Félög, er hvggja á hópferðir og þurfa á stórum bílum að halda. geta snúið sér til skrifstofnnnar; hefir hún ráð á stórum bílum. ins fyrir fyrrgreindar 1,3 millj. kr. lcróna. Ráðherrann gaf þessar upplýsingar í tilefni af gagnrýni, sem birtist hér í blaðinu í sl. viku, þar sem deilt var á stjórnarvöldin fyrir að takmarka um of gjald- eyrisleyfisveitingar fyrir jarð- yrkjuvélum. Með síðustu leyfis- veitingum, 1,3 millj. kr., til kaupa á heyvinnuvélum, má segja að verulega hafi rætzt úr. Áburðarskorturinn ekki vegna. gjaldeyrisvandræðanna. Þá upplýsti ráðherrann, að það væri ranghermt, að hinn tilfinn- anlegi áburðarskortur í sveitun- um væri af völdum gjaldeyrisyf- irvaldanna. Ekki hefði staðið á gjaldeyri til kaupa á því áburð- armagni sem fáanlegt var. Al- þjóðalandbúnaðarstofnunin FAO stjórnar áburðarúthlutuninni og ákveður það magn, sem hver þjóð fær. Ætlunin var að skera hlut íslands niður á þessu ári, en fyrir atbeina Landbúnaðarráðuneytis- ins og sendiráðs íslands í Was- hington fékkst hingað sami skammtur og árið á undan. Þótt það væri hvergi nærri nóg, væri vöntunin óviðráðanleg íslenzk- um stjói-narvöldum eins og ástandið væri. Ráðherrann upp- lýsti ennfremur, að gjaldeyrisyf- irvöldin hefðu mjög greitt fyrir yfirfærslum vegna áburðarkaup- anna, en þær varð þó að gera meðan gjaldeyrisástandið var mjög erfitt og stóð á yfirfærzlum fyrir margs konar nauðsynja- varningi. Ný myndasaga hefst í dag Fvloist með frá j o byrjun! Með þessu tbl. lclcur Dagur aftur að birta hinar vinsælu myndasögur, og mun frani- haid þessarar sögu birtast í blaðinu í sumar. Nýja sagan heitir „Kjölfar Rauða drek- ans“ og er spennandi sjóferða- og ævintýrasaga eftir anier- íska rithöfundinn Garland Ro- ark. Teikningarnar með sög- unni cru eftir ameríska lista- manninn F. R. Gruger. Blaföð væntir þess, að þessi nýja saga hljóti vinsældir lesendanna. — Fylgist með frá byrjun!

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.