Dagur - 02.06.1948, Blaðsíða 7

Dagur - 02.06.1948, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 2. júní 1948 DAGUR 7 | Ljósavél Höfum til 5 kw. jafnstraums ljósasamstæðu, | 220 Volt. 1 Einnig SPENNUBREYTA, 220-32 Volt. i Viktor & Snorri. r«iii*i**ii**iii*'|ii*iii*f|i*,*|iiip****"i*,">i***i*****i|*iiii*iitii*iiiiiiitii«i,*iiiii*iiliiiiiii**i**i>****iiiii*******iii***iii***iii* .....................immmimmiim......... Vefnaðarvörudeild. '"iiiimimmmimimmimiimmmmmmmiiimmmmmimmmimimimmmmmmiimmmmmmmimii •iiiiiini...........................mmmmmmmmmim. | Aðvörun \ Framvegis veitum vér eigi móttöku \ vörum á laugardögum. i Framleiðendur eru því aðvaraðir urn i að senda ekki egg, smjör né kjöt til imrleggs á laugardögum. I Ekki svarað í síma á iaugardögum. | Kjötbúð KEA. Hafnarstræti 98. — Sími 271. I — Gróandi jörð É (Framhald af 2. síðu). | þurfa að taka upp fræðslu í frumatriðum jarðyrkjunnar og I hafa með höndum útbreiðslustarfsemi fyrir landbúnaðinn með l kvikmyndum og fyrirlestrastarfsemi. Þetta er stórmikið atriði i fyrir landbúnaðinn og leyfi eg mér að skora á alla þá, sem hér I eiga hlut að máli, að taka þctta til rækilegrar athugunar og i frámkvæmda. Ef skólar hessir losa um fólkið í sveitinni — sem I margir tclja — verður að haida að þeir verki öfugt við tilgang- i inn og er það óþolandi. Alþýðuskólar kaupstaðanna ættu og i að taka þetta líka til athugunar. Æskulýðurinn þarf að efla Í fagurt hugsjónalíf, en drepa bað ekki með of miklum „for- | múlu“-lærdómi. — Ungdómurinn í kaupstöðunum þarf að Í þróa hjá sér sem réttastar hugmyndir um gróður jarðar og | dýrmæti hans, því að vel geta sveitirnar tckið á móti ungu : fólki þaðan til starfs og búsetu við landbúnaðinn. Ef hægt yrði = með þjóðarvakningu að bcina starfskröftum æskunnar í land- i inu að jarðyrkju og eflingu sveitanna, þar sem æskan næði Í að finna hugsjónum sínum svalað við aukinn gróður jarðar og ’ fegurð hinnar lífrænu náttúru, þá rís hér ný öld í atvinnu- og I menningarlífi bjóðarinnar er miðaði henni til mikillar far- i sældar. Þetta er álitlegt málefni, er sem flestir verða að styðja | og barf á engan hátt að rýra aðra nauðsynlega atvinnuvegi i þjóðarinnar, nema síður sé. Kaupstaðirnir mega alvarlega vara i sig á því, að æskulýður þcirra verði ekki úti, verði ekki hug- | sjónalaus í nauðsynjamálunum og skilningssljór á meginatriði i menningarinnar, þeirrar, sem eflir manngildið og um leið = styrkara þjóðlíf. ; 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 Maísdúft Kartöflumjöl FErísmjöl Hrísgrjón í pk., 3 teg. Soyjamjöl Hveitiklíð ★ Hrökkbrauð, ísl. Blandað kex í pk. Matarkex * Kúrenur -- — . . c uxsic. unaJB^aEKcriKMRv^surJM. . ★ Púðursykur Flórsykur Molasykur Strásykur Hveiti í smápokum Grænar baunir í lausri i’igt og pökkum. Matbaunir, hálfbaunir Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvömdeild og útibú Tilboð óskast í Jeppa, módel 46, yfirbyggðan, í góðu ásigkomulasii. Til sýnis á milli kl. 18—20 þann 2. og 3. þ. m., við Ægis- götu 19. — Tilboðum sé skilað fyrir kl. 12 þann 4. þ. m. — Áskil mér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Kristinn Kristjánsson, Ægisgötu 19. o o mitt er: Biti áftan hægra og tvístvft aftan vinstra. — Brenni- mark: Gunnl. Tr. Gunnlaugur Tryggvason, Þorsteinsstöðum, Svarfaðardal. Lítil trilla óskast til kaups. — Tilboð, merkt: Trilla, óskást lögð inn á afgreiðslu Dags fyrir 5. j úní. Skjaldborgar-Bíó......" [ Aðalmynd vikunnar: I NÁMAN (Hungry Hiil) i Stórfengleg ensk mynd eftir : frægri skáldsögu rithöfund- i arins Daphne du Maurier \ (höfund Rebekku, Máfsins = o. fl.). — Þessi saga hefur \ birzt í Alþýðublaðinu i Aðalhlutverk: Margaret Lockivood i Dennis Price • Cecil Parker Dermot Walsh. i (Bönnuð yngri en 12 ára) ÚR RÆ OG BYGGÐ Kirkjan. Messað á Akureyri n.k. sunnudag kl. 11 f. h. (Sjómanna- messa). Séra Friðrik J. Rafnar predikar. Glerárþorp kl. 2 e. h. Guðsþjónustur í Grundar- ringaprestakalli: — Kaupangi sunnudaginn 13. júní kl. 2 e. h. Heklumótið. — Móttökunefnd vegna Heklamótsins hefir skrif- stofu í Lóni mótsdagana, en Ing- ólfur Kristinsson er skrifstofustj. móttökunefndarinnar, símar 448 eða 88. Sérstakur maður annast móttöku hvers kórs og geta þeir bæjarmenn, sem hugsa sér að taka á móti einhverjum gestum, snúið sér til þeirra, en þeir eru þessir: Viktor Aðalsteinsson fyr- ir „Þrym“, Jónas Jónsson fyrir Karlakór Reykdæla, Guðm. Mikaelsson fyrir Karlakór Mý- vatnssveitar, Hjörtur Gísiason fyrir Karlakór Bólstaðarhlíðar og Valdemar Jónsson fyrir Heimi, Skagaf. — Stjórn Heklu skipa: Hermann Stefánsson, séra Friðrik A. Friðriksson, Páll H. Jónsson, Jón Björnsson og Gísli Konráðs- son. Sundkennsla hefst við sundlaug U. M. F. „Framtíð“ að Hrafnagili mánudaginn 7. júní næstk. Nám skeiðið mun standa um 3ja vikna skeið. Kennari verður Sverrir Magnússon. Leiðrétting. í fi-ásögn af Hús- mæðraskóla Akureyrar í síðasta tbl. féll niður nafn eins kennar- ans, er kennaralið skólans var talið upp. Frk Elísabet Eiríks- dóttir kennir íslenzku í skólan- um. Um áramótin næstu má búast við því ao togari sá, sem Akur- eyrarbær á í pöntun í Bret- landi, verði afgreiddur. AI- mcnnt níhn búizt við því að Út- gerðarféiagi Akureyringa h.f. verði gefinn kostur á að kaupa togarann og reka hann með sama sniði og Kaldbak. Munu flestir bæjarmenn telja það eðlilegas.í En þótt togarinn sé enn all langt undan,-eru margir farnir að velta því fyrir sér, hvað hann eigi að heita. Nafn- valið á Kaldbak tókst sérlega vel. Þyrfti hitt nafnið einnig að vera gott. Væri gaman að heyra tillögur bæjarmanna um nafn á hinu nýja skipi. Kaldbakur kom úr annarri Þýzkalandsferð sinni á sunnu- daginn. Seldi skipið 295.800 kg. fiskjar. Aflann fékk skipið á rúmlega 9 sólarhringum. Gjöf til Elliheimilisins í Skjald- arvík frá Líknarsjóði íslands kr. 5000,00. — Hjartans þakkir. Stefán Jónsson. Silfurbrúðkaup, Hinn 25. maí sl. áttu þau, frú Hólmfríður Páls- dóttir og Ketill Guðjónsson á Finnastöðum, tuttugu og fimm ára hjúskaparafmæli. Um sama leyti áttu þau einnig tuttugu og fimm ára búskaparafmæli. í til- efni af þessum merkilegu tíma- mótum höfðu þau hjón boð inni hjá sér að Finnastöðum þennan dag, þar sem við það tækifæri voru skírð tvö barna-börn þeirra, er hlutu nöfn silfurbrúðhjónanna, ömmu og afa. Var hóf þetta hið ánægjuleg- asta. Veitt var af hinni mestu raysn, ræður fluttar, rabbað sam- an og sungið. Finnastaðahjónin, Hólmfríður og Ketill, byrjuðu búskap sinn árið 1923, þá rúmlega tvítug að aldri ,með harla lítið fjármuna- legt veganesti, en þeim mun meira af glæsilegum manndómi og eldlegum starfsáhuga. Hefir Dað veganesti enzt þeim svo vel, að nú, eftir aldarfjórðung hafa þau breytt koti í höfuðból að húsum og jarðrækt og þannig gert garðinn frægan. Verður starfssaga þeirra hjóna ekki nán- ar rakin að þessu sinni, þótt merkileg sé, enda, að því er séð verður, hvergi nærri lokið enn. Maímánuðiu- leið svo, að ekki var lagað til á grasblettinum á Ráðhústorgi. Hvað skyldi verða komið langt fram í júní, þegar hafizt verður handa um þetta stórvirki? Sundæfingar K. A. verða á mánudögum og föstudögum kl. S —9 é. h. Gjafir til nýja sjúkrahússins. Frá Kristjáni heitnum Bene- diktssyni kr. 1456.00. — Áheit frá konu kr. 30.00. — Gjöf frá Arn- björgu Sigurðardóttur kr. 100.00. Með þökkum móttekið. G. Karl Pétursson. Samsöngur. Sl. sunnudag efndi Slysavarnadeild kvenna á Akur- eyri til samsöngs í Nýja-Bíó. Á s.öngskrá voru mörg lög, eftir innlend og erlend tónskáld. Ás- kell Snorrason hefir æft kórinn og stjórnað honum. Frú Þyri Ey- dal annaðist píanóundirleik. Ein- söngvari kórsins var frú Petrína Eldjárn. Þetta er í fyrsta sinn sem kór Slysavarnadeildarinnar efnir til opinberra hljómleika. Áheyr- endur tóku söngnum vel og varð kórinn að endurtaka mörg lögin. Hópferðir. Fjölmargt skólafólk hefir heimsótt bæinn að undan- förnu. Nemendur Gagnfræða- skóla Reykjavíkur voru hér á ferð í sl '.viku. Gagnfræðaskóla- némendur af Akranesi voru í bænum í gær, sömuleiðis nem- endur 5. bekkjar Menntaskólans í Reykjavík. f dag koma hingað 150 skólabörn úr Reykjavík. Nemendur Gagnfræðaskólans á ísafii'ði komu með Esju fyrir helgina og fóru héðan suður. Væntanlegur er í dag nemenda- hópur úr Gagnfræðaskóla Reykjavíkur. Hjónaband. Nýlega voru gefin saman í hjónaband vestur í Cali- foi-níu Sína Dói'a Thoi'dai'son; dóttir Steins Þói'ðarsonar i-af- magnsfræðings frá Hnjúki í Svarfaðardal, sem margir hér heima kannast við, og Ewan Warren Guðmundsson, ungur háskólamaður af íslenzkum ætt- um. Þess er getið í amerískum blöðum, sem út eru gefin þar á staðnum, að í brúðkaupi þessu, er haldið var með mikilli viðhö.fn, hafi ungur, íslenzkur söngvari, Svei'i'ir Runólfsson frá Reykja- vík, sungið brúðkaupsljóðin v.ið ágætar undii'tektir veizlugesta. Glíman við freistarann

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.