Dagur - 09.06.1948, Blaðsíða 1

Dagur - 09.06.1948, Blaðsíða 1
Fimmta síðan: Getið nýrra bóka. Rabbað um þjóðfélags- vandamál. Dagur F orustugreinm: Orðheldni kalla kommún- istar óþarfa „viðkvæmni“. Þeir vilja „linika til“ samningum. XXXI. árg. Akurcyri, miðvikudaginn 9. júní 1948 23. tbl. Furðulegur skrípaleikur kommúoisfa í sambandi við Saka aðra flokka iim aS hafa svikið samninginn, en láta bóka, að þeir fái ekjki skilið viðkvæmni bæjarfulltrú- aena fyrir bókstaf samnmgsatriða! Sjálfir berjast þeir fyrir því, að fyrst grein bæjarmálasamningsins verði ekki framkvæmd Kommúnistar í bæjarstjóm hér hafa að undanförnu sett á svið furðulegan skrípaleik í sambandi við framkvæmd málefnasamnings flokkanna, sem gerður var upp úr síðustu bæjarstjórnarkosningum. Á bæjarstjórnarfundi fyrir nolckru lýstu fulltrúar kommúnista því yfir, að þeir teldu sig ekki lengur bundna við málefnasamninginn, vegna vanefnda annarra flokka. Leitað kaupa á 10 nýjum togurum Ríkisstjórnin hefir tilkynnt að hún eigi í samningum við brezkar skipasmíðastöðvar um að smíða 10 togara til viðbótar þeim, sem pantaðir voru af fyrrv. stjórn. — Togarar þessir eiga að verða með svipuðu sniði og hinir fyrri, en þó verði á þeim gerðar nokkrar breytingar. Samningar þessir standa nú yfir og eru taldar lílcur til að þeir takizt. Afgreiðslutími skipanna á að vera á árabilinu 1949—1951. Ungur Breti að skrifa bók um ísland Hér í bænum er staddur um þessar mundir ungur, brezkur rithöfundur, Alan Moray Willi- ams. Er hann nýlega kominn hingað til lands og hefir ferðast allvíða. Hýggst hann dvelja hér fram til loka júlímánaðar. Mr. Williams kom hingað í apríl með íslenzkum togara. Dvaldi hann fyi'st í Reykjavík og austur í Skaftafellssýslu. Kom síðan hingað til bæjarins, en hélt héðan til Grímseyjar og hefir dvalið þar undangenginn hálfan mánuð, ásamt systur sinni, Bar- böru Moray Árnason listmálara og manni hennar Magnúsi Á. Árnasyni listmálara, en þau hjón dvelja þar enn og mála. Hyggjast þau halda sýningu hér á Akur- eyri í júlí. Dagur kom að máli við Mr. Williams nýlega og ræddi við hann um dvölina hér. Erindi hans til landsins er að viða að sér efni í bók um land og þjóð, sem hann mun gefa út á næsta ári. Mr. Williams hefir þegar rit- að nokkrar bækur, sem athygli hafa vakið og hefur þar að auki ritað nokkuð í brezka vikuritið „Tribune" Þótt kalt hafi verið að undanförnu, hefur honum lit- ist vel á sig. Iiann ber Grímsey- ingum vel söguna, segir þá vera gestrisna og hjálpsama. Undi hann sér vel í Grímsey og hyggst helga eynni kafla í hók sinni. Yfirleitt lætur hann vel af dvöl sinni hér, og mun bera okkur vel söguna. Mr. Williams er ungur maður. Hann var í brezka hernum á stríðsárunum, var m. a. í Norður- Noregi með herjum bandamanna árið 1940. Skógarliótelið opnað um helgina Hótel Brúarlundur í Vagla- skógi mun taka til starfa 12. þ. m. Forstjóri er nú, eins og í fyrra, Ragnar Jónsson veitingamaður. Tvö af skipum Fisksölu- samlagsns selja í Þýzkalandi Um þessar mundii' eru tvö af flutningaskipum þeim, sem í för- um eru með bátafisk héðan að selja í Þýzkalandi. Eru það Snæ- fell og Eldborg, sem bæði flytja fullfermi. Vegna ótryggs markaðs í Bretlandi í s. 1. viku, var báðum skipunum snúið til Þýzkalands- ferðar. Síðustu sölur Fisksölu- samlagsins í Bretlandi voru, sem hér segir: Pólstjarnan seldi 3799 kitt í Hull fyrir 8925 pund. Straumey seldi 3405 kit fyrir 8471 pund. Hvort tveggja sölurnar eru neðan við hámarksverð: Pól- stjaman flytur koksfarm til landsins en Straumey koláfarm. Gróðursetning trjáplantna hafin á skemmtistað F ramsóknarmanna Fyrra þriðjudag fór hópur manna úr Framsóknarfélögunum hér til starfa við gróðursetningu trjáplantna í hinn afgirta reit Framsóknarfélaganna í Hrafna- gilslandi. Voru gróðursettar 500 birkiplöntur frá Vöglum og að auki 90 fjögra ára plöntur, sem Þorst. Davíðsson verksmiðjustjóri gaf félögunum. Félagsstjórnin hefir beðið blaðið að bera gefand- anum þakkir félagsmanna, svo og þeim, er unnu að gróðursetning- unni. Ætlunin er að halda gróð- ursetningu áfram og rækta skóg- arlund á þessum skemmtistað. Á sunnudaginn fer hér fram prestskosning. Nýtt presísem- bætti var stofnað hér með lögiun frá síðasta Alþingi. Umsækjand- inn er aðeins einn, séra Pétur Sigurgeirsson. Til þess að hann verði löglega kosinn hér þarf helmingur bæjarmanna að mæta á kjörstað og a. m. k. helmingur þeirra að greiða honum atkvæði. Kosningin hefst kl. 10 árdegis í Samkomuhúsi bæjarins. Er þess eindregið vænst, að bæjarmenn sæki kosninguna vel og kjósi snemma. Allir alþingiskjósendur eru á kjörskrá. Þeir, sem ekki geta verið í bænum á sunnudag- inn, geta kosið hjá bæjarfógeta á föstudag og laugardag. Séra Pétur Sigurgeirsson er öllum bæjar- mönnum að góðu kunnur fyrir störf sín hér að undanförnu. Mun flestum þykja hann hafa verð- Yilja senda hermenn til Þalestínu I tileini af sáttaumleitunumsátta- semjara S. Þ. í Palestínudeilumii og beiðni hans um hernaðarfull- trúa tii þess að líta eftir fram- kvæmd vopnalilés, tilkynnti Gromyko fulltrúi Rússa í Orygg- isráðinu, að rússneska stjórnin sé fús að senda hernaðarfulltrúa á vettvang. Talið er að þeir mundu litlir aufúsugestir í Palestínu í augum Vesturveldanna. Mynd- irnar eru af Gromyko og Molotoff Barnaveiki vart í Reykjavík Þrjú tilfélli af barnaveiki hafa komið fyrir í Reykjavík síðustu daga og mun bólusetning þar hafin. — Héraðslæknir hefir tjáð blaðinu, að veikinnar hafi ekki orðið vart hér. Verðhækkmi á mjólk Framleiðsluráð landbúnaðarins hefir nýlega ákveðið 2 aura verðhækkun á mjólk vegna auk- ins kostnaðar við vinnslu og dreifingu mjólkurinnar. skuldað að verða löglega kosinn hér á sunnudaginn. Til þess þurfa bæjarmenn að sækja kosninguna vel. Eyjólfm* Eyíeld æíir með landsliðinn Knattspyrnuráð íslands hefir samþykkt að gefa einum knatt- spyrnumanni frá Akureyri, Eyj- ólfi Eyfeld, kost á a'ð æfa með landsliðinu í Rvík. Mun það vera samkv tillögu þjálfarans Joe Di- vine, sem horfði hér á meistara- flokksleikinn 25. maí. Ráðgert er að Eyólfur fai'i suð- ur um næstu helgi og munu mai'gir Akureyringar óska hon- um góðrar ferðar suður og heim- komu aftur. Eyólfur mun með vinsælustu leikmönum ó knatt- spyrnuvelli hér. í sambandi við bókun, sem einn af bæjarfulltrúum Alþýðu- flokksins lét gera út af þessari staðhæfingu kommúnista ,létu þeir bóka fui'ðulega yfirlýsingu í f undarbók bæ j ar st j ómarinnar, þar sem þeir afturkalla í orði kveðnu þá staðhæfingu að þeir telji sig ekki lengur bundna af málefnasamningnum, en taka hins vegar skýrt fram, að þeir ætli sér sjálfir að svíkja ákvæði samningsins um fyrirkomulag togaraútgerðarinnar og segja í sambandi, að þeir skilji ekki „viðkvæmni“ annarra fulltrúa „fyrir bókstaf þessa samnings- atriðis“! Jafnframt drótta þeir svikum að öðrum flokkum og saka þá um vanefndir á öðrum atriðum samningsins. Þessar staðhæfingar kommúnista sýna glögglega, hvernig _ þeir líta á samninga. Ef þeim þykir ekki henta að standa við einhver ákvæði, þá finnst þeim óþarfleg „viðkvæmni“ af öðrum að fást um það. Bókstaf samningsatrið- anna láta sig' þeir engu skipta. Mórallinn í þessu er augljós og í fullu samræmi við þjóðmálabar- áttu kommúnistaflokksins. Gamla Jesúítareglan, að tilgangurinn helgi meðalið, er leiðarsteinn á stjórnmálaskútu kommúnista. Greinargerð Framsóknarmanna. Þar sem kommúnistar höfðu látið færa hinar furðulegu full- yrðingar sínar og ályktanir í fundarbók bæjarstjórnarinnar, töldu Framsóknarmenn nauðsyn- legt að gera við þær nokkrar at- hugasemdir og á síðasta bæjar- stjórnarfundi var bókuð svofelld athugasemd frá þeim: „Ut af bókun fulltrúa Sósísal- istaflokksins á bæjarstjórnar- i'undi 11. þ. m., óska fúlltrúar Framsóknarflokksins, að fá bók- að eftirfarandi athugasemdir: 1. Fulltrúar Framsóknarflokks- ins hafa haft forgöngu um og stutt eindregið þær hafnarfram- kvæmdir, sem gerðai' hafa verið á Oddeyrartanga. Hafnargarðinum þar er þegar það langt komið, að hafizt hefir verið handa um bygg- ingu dráttai'brautar þar og er nú unnið að því í fullu samræmi við málefnasamninginn. Má óhætt fullyrða, að þar hefir sízt notið aðstoðar eða fylgis fulltrúa sósí- alista í hafnarnefnd. Ef hægt væri að ásaka einhvern einn flokk, sem fulltrúa á í hafnar- nefnd, um sérstakt áhugaleysi í þeim málum, væri það áreiðan- lega fyrst og fremst Sósíalista- flokkurinn. 2. Um stækkun Torfunefs- bryggjunnar gat aldrei verið að ræða fyrr en dráttarbrautin væri farin þaðan sem hún nú er. — í málefnasamningnum er greini- lega fram tekið, að framkvæmdir skuli hefjast strax og dráttar- brautin væri flutt. — Enn hefir því ekki verið mögulegt að fram- livæma þennan lið samningsins og vitum vér ekki annað en að allii' flokkar háfi verið sammála um það. 3. 1 umræddri bókun sósíalista (Framhald á 8 síðu). Skemmtiferðaskipið kom ekki í gær Búizt var viö því, að 'brezka skemmtiferðaskipið Granton Glen kæmi til Reykjavíkur 4. þ. m. og hingað í gær. Úr þessu varð ekki. — Útgerð skipsins tilkynnti á síðustu stundu, að fyrsta ferð skipsins félli niSur. Mun það ekki væntanlegt hingað fyrr en um mánaðamót. Veð’ri hefir ver- ið svo háttað hér að undanförnu, að segja má að skemmtiferða- menn hefðu átt hingað lítil er- indi, og er því e. t. v. bezt að ferð þessi féll niður. Prestskösningin hefst kl. 10 árdegis á sunmidagmn Allir al|>iiigiskjóse!ííhir á kjörskrá

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.