Dagur - 16.06.1948, Blaðsíða 1
Forusíugrcinin:
Skrif Alþýðumannsins um
kaupfélögin sprottin af ill-
vilja.
Fimnita síðan:
Athyglisvert erindi Þorst.
M. Jónssonar á Rotary-
þinginu í fyrri viku.
XXXI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 16. júní
1948
24. tbl.
„Fishing Hews" heidur áfram
villandi frétfaflutningi af land-
helgismálum Islendinga
Telur heppilegt að beita refsiaðgerðum gegn
fiskútflutningi landsmanna
Brezka fiskveiðablaðið „Fishing Ne\vs“ heldur áfram að birta
greinar, þar sem ráðist er að landhelgisgæzlu íslendinga og dómstól-
um beirra. Fyrir tveimur vikum var skýrt frá bví hér í blaðinu, að
rit þetta hefði þá fyrir skömmu birt mjög villandi upplýsingar um
landhelgi íslendinga og talið scktir þær, er brezkir landhelgisbrjótar
liljóta, ósanngjarnar úr hófi fram.
læjarstjórn samþykkir að fram-
selja Ötgerðarfélaginu bygginga-
samning nýja togarans
Bærinn mun leggja fram allt að 50%
af Iilntafé félagsins
Litlu síðar áréttaði blaðið þess-
ar hugleiðingar með grein frá
fréttamanni sínum í Hull. Er þar
ráðist að íslendingum og Norð-
mönnum á óviðurkvæmilegan
hátt og talið heppilegt, að Bretar
beiti refsiaðgerðum gegn þessum
þjóðum vegna dóma í landhelgis-
málum og setji skorður við fisk-
útflutningi þeii'ra til Bretlands.
Greinin frá Hull.
Fréttamaður þessi hefur mál
sitt með því að telja hina fyrri
grein ritsins um landhelgismálin
hina þörfustu hugvekju, sem ætti
að hvetja brezk stjórnarvöld til
athafna. Segir síðan, að harkaleg
meðferð brezkra togara sé ekki
eingöngu við íslands, heldur séu
Norðmenn þar litlir eftirbátar. —
Segir fréttamaður síðan sögu af
togara nokkrum, sem þurft hafi í
flýti að leita til hafnar í Noregi
með slasaðan mann og því ekki
gefist tími til að ganga frá veið-
arfærum á löglegan hátt áður en
komið var inn fyrir landhelgi.
Togarinn hafi verið tekinn og
sektaður þunglega fyrir ólöglegan
útbúnað veiðarfæra í landhelgi.
Rétt er áð benda á það hér, að
heimildarmenn blaðs þessa um
meðferð togara hér og við Noreg,
virðast eingöngu vera togaraskip-
stjórar þeir, sem lent hafa í kasti
við löggæzlu landanna. Mun
flestum réttsýnum mönnum
þykja vitnisburður þeirra harla
vafasamur til þess að byggja á
harkalegar ásakanir.
Síðan segir blaðið: „Berið svo
saman sektir þessar og þær lítil-
fjörlegu sektir, sem dæmdar eru
af brezkum dómstólum fyrir
Aðalfimdur SÍS
hefst á mámi-
daginn
Aðalfundur Sambands ísl sam-
vinnufélaga hefst í Samkomuhúsi
bæjarins hér kl. 10 árdegis næstk.
mánudag. Fundinn munu sækja
fulltrúar kaupfélaganna í öllum
byggðum landsins.
landhelgisbrot." Blaðinu er ekki
kunnugt um, hverjar þær sektir
eru, en hitt veit það, að íslenzk
fiskiskip brjóta ekki brezk land-
helgislög og greiða þar af leið-
andi engar sektir. Er spurning
þessi því næsta fávísleg og slíkur
samanburður engin sönnun í máli
þessu. Brezka blaðið heldur því
enn fram, að íslendingar loki
heilum flóum fyrir togveiðum án
heimildar og geti brezkir togara-
skipstjórar því ekki gjörla vitað,
hvort þeir séu í landhelgi eða
ekkii Þessi fullyrðing hefir enga
stoð í veruleikanum. Landhelgi
íslands er augljós hverjum þeim,
sem hana vill virða.
Refsiaðgerðir.
Enn segir hið brezka blað:
„Þessi eigingjarna afstaða þessara
landa er á engan hátt í samræmi
við alþjóðalög eins og þau eru
prentuð og við skiljum þau. Eg er
hræddur um, að brezka venjan
um „sanngjarna meðferð allra“
(„fair treatment for all“), sé
komin út í öfgar og þessi skoðun
hefir verið ríkjandi hér (þ. e. í
Hull) í mörg ár. Hefjast þyrfti
handa með skerðingu á magni
innflutts fiskjar frá þeim þjóðum,
sem virðast fá fé til fiskveiða
sinna á kostnað Bretlands. Slíkt
væri aðeins sanngjarnt gagnvart
okkar eigin fiskimönnum." Á öðr-
um staci í grein þessari segir svo:
„Viðurkenna ber, að líftaug þess-
ara landa er fiskur, en þessar
þjóðir ættu þó að gera sér grein
fyrir því, að ef fiskur er ekki
fluttur út, getur þessi líftaug
þeirra orðið mjög veik.“ Þessar
hótanir og aðdróttanir verða ekki
misskildar. Árásir blaðs þessa
virðast komnar á það stig, að
ástæða sé til þess fyrir íslenzk
stjórnarvöld að vekja athygli
þess, og brezkra stjórnarvalda, á
rangfærslum þess. Með þessum
skrifum er að tilefnislausu og á
ómaklegan hátt, verið að spilla
Sambúð brezkra og íslenzkra
fiskimanna og útgerðarmanna og
gefa brezkum almenningi al-
ranga hugmynd um landhelgis-
mál íslands og nauðsyn íslenzku
þjóðarinnar á því, að landhelgin
sé virt af erlendum fiskimönnum.
„Refurinn af Trans-
jórdaníu“
Þetta er Abdullah konungur,
stundum nefndur „refurinn af
Transjórdaníu“. Hin fræga her-
sveit „Arab Legion“ lýtur yfir-
stjórn hans. Það var þessi her,
sem barðist við Gyðinga í Jerú-
salem. Abdullah lióf feril sinn í
fyrra heimsstríði með ráðabruggi
gegn Tyrkjum, var vinur Arabíu-
Lawrence og bandamaður Breta,
sem síðar gerðu hann að Emír í
Transjórdan, og árið 1946 að
konungi Transjórdaníu.
Agnes Sigurðsson:
Píanóleikar
á föstudagskvöldið
Vesturíslenzki píanóleikarinn
Agnes Sigurðsson er væntanleg
hingað og mun halda opinbera
hljómleika í Nýja-Bíó á föstu-
dagskvöldið kemur. Ungfrúin
hefir nýlega haldið hljómleika í
Revkjavík við hina lofsamlegustu
dóma gagnrýnenda og ágætar
viðtökur áheyrenda. Ungfrú
Agnes hóf ung píanóleik og vakti
snemma athygli á sér. Hún út-
skrifaðist úr tónlistarskólanum í
Winnipeg árið 1940, stundaði síð-
an framhaldsnám í New York og
hyggst nú dvelja um sinn í París
við framhaldsnám. Iiún hefir
haldið hljómleika í Bandaríkjun-
um og Kanada og hvarvetna vak-
ið athygli. Hljómleikarnir hér
verða ekki endurteknir, þar sem
ungfrúin er á förum af landi burt.
Verður þetta því eina tækifærið
til þess að hlusta á hana hér. —
Aðgöngumiðar eru seldir í Sport-
vöru- og hljóðfæraverzl. Akur-
eyrar, Ráðhústorgi.
Fjórða þing Sambands ungra
Framsóknarmanna verður sett í
Samkomuhúsi bæjarins kl. 10 ár-
degis í dag og mun þingið standa
í dag og á föstudaginn og verða
slitið laugardaginn 19. þ. m. —
Þingið mun ræða ýms þjóðmál,
m. a. stjórnarskrármálið. Her-
mann Jónasson, form. flokksins,
Á bæjarstjórnarfundi í gær var
endanlega samþykkt að framselja
Útgerðarfelagi Akureyringa h.f.
byggingasamning togara þess,
sem bærinn á í pöntun í Bret-
landi og væntanlegur er hingað
upp úr næstk. áramótum.
Pétur Sigurgeirsson
löglega kjörinn
prestur hér
Kjörsókn við prestskosninguna
hér á sunnudaginn var mjög mik-
il. Hér á Akureyri kusu 2060 af
3094 á kjörskrá, eða meira en
50%, sem til þurfti til þess að
kosning væri lögleg. í Lögmanns-
hlíðarsókn kusu 194 af 384 á kjör-
skrá. Talning atkvæða fer fram í
skrifstofu biskups, líklega á
föstudag. Kærufrestur út af kosn-
ingunni er útrunninn í kvöld.
Fullvíst má telja að séra Pétur
Sigurgeirsson hafi verið löglega
kjörinn prestur hér. Ber hin til-
tölulega góða kjörsókn vitni um
vinsældir þær, sem hann hefir
áunnið sér með störfum sínum
hér að undanförnu.
Leikið tveimur
skjöldum
Fyrir síðasta bæjarstjórnar-
fundi lá m. a. erindi Utgerðarfé-
lags Akureyringa h.f. um að fé-
lagið gangi inn í byggingasamn-
ing seinni togarans, sem bærinn á
að fá frá Bretlandi. Undir beiðn-
ina ritar öll stjórn félagsins, þ. á.
m. Tryggvi Helgason bæjarfull-
trúi. Fyrir sama fundi lá bókun
Tryggva Helgasonar bæjarfulltr.
frá bæjarráðsfundi, þar sem sami
maður leggur til að Utgerðarfé-
laginu verði meinað að fá togar-
ann keyptan og efnt verði til bæj -
arútgerðar. Mun bæjarmönnum
þykja furðulegur skrípaleikur
kommúnista í máli þessu.
og Eysteinn Jónsson, ráðherra,
munu ávarpa þingfulltrúana. Bú-
izt er við góðri þátttöku. Þingið
mun hafa opna skrifstofu í Rot-
arysal Hótels KEA þingdagana og
verða aðkomufulltrúum veittar
þar upplýsingar varðandi tilhög-
un þingsins.
Jafnframt var ákveðið að bær-
inn skyldi leggja fram allt að 50%
af hlutafé félagsins, þó ekki
minna en 400 þús. kr. af hluta-
fjáraukningu þeirri, sem verða
mun í sambandi við þessi togara-
kaup.
Með þessari samþykht er fram-
fylgt fyrstu .aðalgrein bæjarmál-
efnasamningsins frá því í byrjun
kjöi-tímabilsins, og bundinn endir
á langvinnar deilur innan bæjar-
stjórnarinnar. Eins og kunnugt er
hafa kommúnistar lagt til að
ákvæði málefnasamningsins væri
að engu haft og bærinn efndi til
bæjarútgerðar með togara þess-
um. Hafa kommúnistar kallað
þetta „að hnika til“ samnings-
atriðum. í samræmi við þetta
flutti Tryggvi Helgason, fulltrúi
kommúnista í bæjarráði, tillögu,
þar um að efna til bæjarútgerðar
(sami maður hafði undirritað
beiðni Utgerðarfélagsins um að fá
að kaupa togarann, sem stjórnar-
meðlimur þar!) Fulltrúar Al-
þýðuflokksins lýstu því hins veg-
ar yfir í fundinum í gær, að þótt
þeir teldu bæjarútgerðarfyrir-
komulagið heppilegast, teldu þeir
sig bundna af gerðum samning-
um og hefðu í hyggju að standa
við þá. Fulltrúar Framsóknar-
manna og Sjálfstæðismanna
höfðu áður lýst yfir því, að þeir
mundu að sjálfsögðu afgreiða mál
þetta í samræmi við bæjarmál-
efnasamninginn, þ. e. að gefa Út-
gerðarfélaginu kost á að kaupa
skipið. Höfðu Jakob Frímannsson
og Jón G. Sólnes flutt tillögu þess
efnis og skyldi bærinn þá jafn-
framt auka hlutafé sitt um 400.
þús. kr., þ. e. það fé, sem lagt hef-
ir verið til hliðar að undanförnu
til togarakaupa. Á bæjarstjórnar-
fundinum í gær fluttu fulltrúar
Framsóknarflokksins og Alþýðu-
(Framhald á 8. síðu).
Hátiðahöldin 17. júní
Hátíðahöldiu á morgun —
þjóðhátíðardaginn — hefjast
kl. 1,15 e. h. á Ráðhústorgi með
Ieik Lúðrasveitar Akureyrar.
Um kl. 1,30 hefst skrúðganga
bæjarmanna frá torginu til
hátíðasvæðisins. — Lýðveld-
isræðuna flytur séra Pétur
Sigurgeirsson. Kórar syngja
og íþróttir verða sýndar. Margt
fleira verður til liátíðabrigð-
is. Hátíðanefnd bæjarins aug-
lýsir í blaðinu í dag nánara
ara fyrirkomulag hátiðaliald-
anna. Fjölmennið í skrúð-
gönguna og til hátíðahaldanna
á hátíðasvæðinu!
í'jórða þing Sambands ungra Fram-
sóknarmamia liáð hér í þessari viku