Dagur - 21.07.1948, Síða 1
Forustugreinin:
Síldveiðarnar, aflabrestur-
inn og landhelgismálin.
Dagur
Vegna suniarleyfa í prent-
smiðjunni fást aðeins 4 síðar
af Degi í þetta sinn. — Útgáfa
blaðsins getur af þeim sökum
ekki færzt í venjulegt horf
fyrr en í næstu viku.
XXXI. árg.
Akureyri, miðvikudagmn 21. júlí 1948
28. tbl.
Utfiutningur íslenzkra afurða aidrei meiri en fyrstu
sex mánuði þessa árs
Verzlunarjöfnuðurinn þó óhagstæður
um 9,5 millj. kr. á sama tíma
Hagstofa íslands hefir nú reikn-
að út vöruskiptajöfnuðinn fyrir
júní. Innflutningur okkar nam
52,2 millj. kr., en útflutningurinn
43,6 millj. kr.
Vöruskiptajöfnuður íslands fyr-
ir fyrri helming þessa árs er því
óhagstæður um 9,5 millj. króna,
því að á tímabilinu 1. jan. til 30.
júní nam innflutningurinn 208,5
millj. króna, en útflutningurinn
nam 199,0 millj. kr. Hér er þess þó
að gæta, að mikið af innflutn-
ingnum, eða 43 millj. kr., eru skip,
sem eru mest megnis á nýbygg-
ingareikningi, svo að raunveru-
lega er jöfnuðurinn hagstæður.
Margir togarar, Goðafoss, Trölla-
foss, Herðubreið, Skjaldbreið og
fleiri skip eru öll flutt inn á fyrri
hluta þessa árs, og eru á nýbygg-
ingareikningi.
Það er athugandi í þessu sam-
bandi, að aldrei fyrr hefir út-
flutningur verið eins mikill á
fyrri hluta árs, sem hann var í ár.
Stafar þetta mest af Hvalfjarðar-
síldinni og áður óseldum síldar-
afurðum. Síldarafurðirnar seldar
í júní nema 21 millj. kr.
Til samanburðar vöruskipta-
jöfnuðinum í ár má geta þess að
í fyrra nam innflutningur okkar
1. jan. til 30. júní, 231 millj. kr.
Útflutningur á samá tíma var 100
millj. kr. í júní í fyrra nam inn-
flutningurinn 38,9 millj. kr. og
útflutningurinn 19,5 millj kr.
Nú fer mikill hluti ísfisks til
Þýzkalands. í júní seldum við t.
d. ísfisk til Þýzkalands fyrir 7,7
millj. kr., en til Bretlands aðeins
fyrir 1,9 millj. kr.
Niðurjöfnun útsvara nýlokið
á Húsavík
Afli á fiskibáta sæmilegur
HÚSAVÍKURBRÉF, 18. Þ. MÁN.
Málverkasýning
Hin kunnu listahjón frú Bar-
bara og Magnús A. Árnason hafa
málverkasýningu opna alla næstu
viku hér í Gagnfræðaskólanum.
Um 80 málverk, bæði vatnslita-
myndir og olíumálverk, verða á
sýningu þessari. Um helmingur
listaverkanna er frá Grímsey, en
þar hafa hjónin dvalið síðan í vor
og láta hið bezta yfir dvöl sinni
þar. Þetta er 4. sýningin, sem þau
hjón halda hér á Akureyri, enda
eru þau kunn og vinsæl meðal
listavina hér.
Talsmaður Araba
Þótt Bernadotte greiía hafi tek-
izt að koma á vopnahléi í Pale-
stínu nú í bili, óttast menn þó, að
Arabar og Gyðingar eigi enn eft-
ir að láta sverfa til stáls út af
ágreiningsmálum sínum, og mikið
hlóð muni fljóta, áður en þau eru
að fullu jöfnuð. — Myndin er af
Azzan Bey, ritara arabíska
bandalagsins, er nú keinur mikið
við sögu heimsmálanna.
Nýlega er lokið hér við að jafna niður útsvörum, og var útsvars-
skráin lögð fram 16. þ. in. Jafnað var niður kr. 686113 á 465 gjald-
endur. — Fara hér á eftir nöfn þeirra, sem bera fjörgur þúsund
krónur og meira.
Kaupfélag Þingeyinga 66118*
kr. — Júlíus Havsteen sýslum.
10515 kr. — Sigtr. Pétursson bak-
ari 8555 kr. — Helgi Hálfdánar-
son lyfsali 8460 kr. — Jóhann
Sigvaldason trésm. 8065 kr —
Barði h/f. 7140 kr. — Björn Jós-
efsson læknir 7000 kr. — Þórar-
inn Stefánsson hreppstjóri 7000
kr. — Stefán Pétursson útgerðar-
maður 5656 kr. — Steinsteypa h/f.
5500 kr. — Hákon Maríusson sjó-
maður 5370 kr. — Þór Pétursson
útgerðarmaður 4970 kr. — Þórð-
ur Guðjóhnsen kaupm. 4874 kr. —
Karl Kristjánsson oddviti 4870 kr.
— Hjalti Illugason hótelhaldari
4825 kr. — Kristinn Bjarnason
húsasm. 4815 kr. — Friðrik A.
Friðriksson prófastur 4800 kr. —
Jóhann Björnsson smiðúr 4795
kr. — Einar J. Reynis pípulagn-
ingam. <1585 kr.
Töluverðar breytingar urðu hér
á útsvörum frá því í fyrra. Hækk-
uðu þau allverulega á einstaka
mönnum, en lækkuðu á mörgum.
Eignakönnunin leiddi í ljós, að
upp úr mörgum vösum, sem tald-
ir voru tómir, komu gildir sjóðir.
Var með því skapaður betri og
réttlátari grundvöllur til að
byggja á útsvarsálagningu.
Nokkrir smábátar róa héðan í
fisk og er afli sæmilegur. Fiskur-
inn er bæði hraðfrystur og salt-
aður. Þrír bátar eru gerðir héðan
út á síld. Túnasláttur er nú al-
merrnt að hefjast hér, en ekkert
hefir ennþá náðzt inn af töðu
vegna óþurrka, sem hér eru nú.
Grasspretta mun vera í meðallagi
eða vel það á túnum, en aftur á
móti er útengi allt talið mjög lé-
legt.
Ekkert lán tekið
enn í Ameríku
En unnið að lántöku samkvæmt
heimild síðast alþingis.
í tilefni af fregn, sem Þjóðvilj-
inn birti um „Marshalllán", sem
ísland ætti að vera búið að fá, gaf
fjármálaráðuneytið út svofellda
tilkynningu:
„Vegna fregna um að ísland
hafi fengið Marshalllán að upp-
hæð 2.300.000 dollará, vill fjár-
málaráðuneytið taka það fram,
að undanfarna mánuði hefir verið
unnið að lánsútvegun í Banda-
ríkjunum sem þessari upphæð
nemur, samkvæmt heimild í lög-
um frá síðasta alþingi.
Lán þetta hefir samt enn ekki
verið tekið vegna þess, að ekki
hefir gengið saman um skilmála,
og er erin verið að vinna að mál-
inu.“
Stefán íslandi,
hinn þjóðkunni og vinsæli
óperusöngvari er nú staddur hér
í bænum og heldur söngskemmt-
un í Nýja-Bíó í kvöld, kl. 8,30. —
Við hljóðfærið.: Fritz Weishappel.
Aðgöngumiðar verða seldir á
miðvikudaginn í bókaverzlun
Axels Kristjánssonar h/f. (áður
bókaverzlun Þorst. Thorlacius)
og við innganginn. Væntanlega
endurtekur óperusöngvarinn
söngskemmtun sína á föstudag-
inn á sama stað og tíma.
Mikið starf Skógræktar-
félags Eyfirðinga á
þessu vori
Skógræktarfélag Eyfirðinga
hefur gróðursett í vor um 19000
plöntur og auk þess útvegað ein-
stökum félagsmönnum og öðrum
um 2000 plöntur til gróðursetn-
ingar. Hafa því alls farið til út-
plöntunar á vegum félagsins
21000 plöntur, þar af á annað
þúsund barrviðarplöntur.
Mest var gróðursett í hið upp-
vaxandi skóglendi félagsins í
Vaðlaheiði gengt Akureyrarbæ,
eða um 11000 plöntur, þar sem
uppeldisstöð félagsins er í landi
Kjarna sunnan við Akureyri voru
gróðursettar á 7. þúsund plöntur
og ennfi’emur var gróðursett í
Garðsórgili, Kvígsstaðahálsi í
Skíðadal og reit félagsins í Ak-
ureyrarbrekku, sem er rétt sunn-
an við kirkjuna.
Gróðursetningin fór að mestu
fram í sjálfboðavinnu, og unnu að
henni rúmlega 140 manns, minnst
tvær og mest 15 stundir hver.
Unnið var þrjú kvöld í viku í
tveimur flokkum, 2 klst. á kvöldi
hvor flokkur eða 4 klst. alls. Nam
sjálfboðavinnan samtals um 40
dagsverkum í uppeldisstöð fé-
lagsins var sáð birkifræi í 80 fer-
metra og gróðursett nokkuð af
plöntum til uppeldis.
Vegna vox-kulda og þuri'ka hef-
ir lítil framför vei'ið á trjágróðri
sem öðrum gróðri til þessa, en
mest af því birki sem gróðursett
hefur verið, er þó farið að laufg-
ast. Mikill áhugi virðist nú vera
fyrir skógrækt í héraðinu, en
skoi'tur á girðingarefni og trjá-
plöntum hefur mjög tafið fyrir
framkvæmdum.
•■■imn iii iiiiii 111111111111 tiiiiiiiimiiHiiiiiuiii iii 1111111«"*
íRússneskt og norsktj
| veiðiskip tekin í land-1
{ helgi og flutt hingað |
| til Akureyrar í gær |
í Um kl. 3 í gærdag kom varð- I
jj skipið Ægir með rússneska i
j síldveiðiskipið LANGUST og =
í norska skipið SOLÖY hingað |
i til Akureyrar. Höfðu þau bæði i
É verið tekin fyrir brot á land- 1
i helgislöggjöfinni. Mál skip- i
= anna eru nú í rannsókn og \
i verður að svo stöddu ekkert i
Í nánar sagt um sekt þeirra. En i
Í þar eð Sovétborgarar eru i
= þannig komnir í nágrenni við i
Í okkur Akureyringa með svo \
i óvæntum hætti ,skal aðdáend- i
i um hins austræna stjórnarfars \
i bent á, að nú gefst þeim sjálf- i
Í sagt tækifæri til að komast i
Í með áþreifanlegu móti í nán- i
i ari kynni og samskipti við i
Í þessa samlanda hjarta síns en i
i þeir hafa flestir haft tök á \
Í fram að þessu. Og vafalaust i
Í verður þeim veitt viðtaka um \
\ borð í skipinu með mikilli i
Í gestrisni og opinskárri einurð. i
§ í
7llimimmimmmmimmmiiimmmiiiiiiiimmmm»
Drengjamóti Akureyrar
lauk á mánudagskvöldið. Meðal
keppenda voru þrír „gestir“ frá
Húsavík. Einn þeii’ra, Vilhjálmur
Pólsson, kastaði spjótinu yfir 50
m. og kúlunni yfir 14 m. Hörður
Jörundsson K. A. kastaði ki-inglu
yfir 42 m. Baldur Jónsson Þór
vann þi'íþrautina með 1964 stig-
um: 100 m. hlaup, kúluvai'p,
langstökk. Hljóp sprettinn á 11.6
sek. — Nánar skýrt fx-á mótinu í
næsta blaði.
„Hekla *, stærsta farþegaskip í eigu
Islendinga, lagði í fyrsta sinn að
bryggju hér í bænum í gærkveldi
Hið nýja farþegaskip Skipaút-
gerðar ríkisins, Hekla, hlaut veg-
legai', opinberar móttökur við
komu sína til Reykjavíkur 12. þ.
mán. Mikill mannfjöldi hafði
safnazt saman á hafnarbryggj-
unni, er skipið lagði að henni, og
fögnuðu samgöngumálaráðherra
og forstjóri Skipaútgerðarinnar
hinu glæsilega skipi með ræðum.
Rúmir 180 farþegar komu með
skipinu frá Kaupmannahöfn. —
Smóvægileg vélabilun vai'ð í
skipinu á leiðinni, og tafðist það
um hríð af þeim ástæðum, en
reyndist að öðru leyti hið bezta í
fei’ðinni.
Á fyrstu för sinni vestur og
noi'ður um land hefir skipið einn-
ig hlotið ágætar viðtökur, svo
sem á Patreksfix'ði. Þegar þessar
línur eru ritaðar, lVz klst. áður
en afgreiðsla skipsins gerir ráð
fyrir að skipið leggist að bryggju,
fást hins vegar engar upplýsing-
ar um, hvort nokkuð sé hugsað
fyrir opinberum móttökum hér
eða ekki. En sé svo, að í'áðamenn
bæjai'ins hafi hugsað sér ein-
hvex-ja slíka athöfn, fara þeir
býsna dult með þá fyrirætlun, því
að hvorki afgreiðsla skipsins né
ski-ifstofa bæjai-stjóra hafa talið
sig geta gefið nokkrar upplýsing-
ar um þetta, er blaðið hrhigdi til
þeirra í þessari andránni;
Þar eð blaðið er um það bil að
fara í pressuna, verður því ekkert
nánar um þetta sagt að sinni, en
fyrirfram er það þó vitað, að
margir bæjarbúar munu leggja
leið sína á bryggjuna i þessu til-
efni og fagna með sjálfum sér
þeirri miklu bót á strandsigling-
armálum okkar „útskæklamann-
anna“, sem tilkorria þessa hins
mikla og veglega skips væntanl-
ega boðar.