Dagur - 11.08.1948, Blaðsíða 1
Foruslugreinin:
Þegar síldveiðarnar bregð-
azt. — Happdrætti, sem
ekki má verða eina bjarg-
ráð þjóðarbúsins.
Dagur
Fimmta síðan:
Prófessor Richard Beck
skrifar um hina nýju ljóða-
i bók Davíðs Stefánssonar.
XXXI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 11. ágúst 1948
31. tbl.
Íslands tekur aftur upp
til Siafsia ufan Rvíkur
Sigliugar Eimskipafélagsskipanna og
afgreiðsla á vörur til dreifbýlisins
færist loks að nokkru í svipað horf
og á friðartímum, enda full þrjú ár
liðin frá stríðslokum
Svo sem kunnugt er, liafa skip Eimskipafélags fs-
lands þótt alltof sjaldséðir gestir á höfnum úti um
land síðan í byrjun síðustu heimsstyrjaldar og til
þessa dags. Þetta hefir að sjálfsögðu valdið miklum
óþægindum, ogekki hefir það heldur bætt úr skák,
Aska Steingríms heitins
Matthíassonar hefir, sam-
kvæmt ósk hans sjálfs, verið
flutt hingað til Akureyrar og
verður lögð í leiði foreldra
hans í kirkjugarðinum hér á
morgun, fimmtudaginn 12.
ágúsí. Að tilhlutun bæjar-
stjórnar Akureyrar verður
haldin minningarathöfn í
kirkjunni hér klukkan 2 þá
um daginn, áður en jarðsetn-
ing jarðneskra leifa hins mik-
ilsvirta læknis og ástkæra
borgara fer fram í leiði þjóð-
skáldsins og konu lians.
Dóttir Steingríms heitins,
frú Anna, og maður hennar,
Árni Kristjánsson píanóleilt-
ari, fluttu ösku hans norður
liingað.
Málarinn vill, að
Akureyrarbær
komi sér upp
listasafni
Gefur sjálfur fagurt
málverk í því skyni
Magnús Á. Árnason, íistmálari,
hefir sýna Akureyrarbæ þann
höfðingsskap að afhenda honum
að gjöf stærsta og eitt athyglis-
verðasta málverk sitt, sem var á
sýningu þeirri, er hjónin, Bar-
bara og Magnús Árnason, héldu
hér á Akureyri síðustu dagana í
júlí. Með gjöf þessai’i íylgdi bréf
frá gefanda (dagsett 30. júlí) og
segir þar meðal annars:
„Leyfi mér hér með að tilkynna
yður, að eg hef ákveðið að gefa
Akureyrarbæ eitt af málverkum
þeim, sem er á sýningu þeirri, sem
við nú höldum í Gagnfræðaskólan-
um — sem fyrsta vísi til listasafns
á Akureyri. Myndin heitir Stokka-
lækjargil (á Rangárvöllum). —
Ástæðan er m. a. sú, að við höfum
nú haldið fjórar sýningar hér, og
alltaf verið tekið fádæma vel, en
einkum þó atvik, sem kom fyrir í
gær. (Bréfið er dags. 30. júlí. -—•
Ritstj.). Tvær alþýðuk.onur komu
á sýninguna og greiddu aðgangs-
eyri, eins og lög gera ráð fyrir, en
þegar þær fóru út, heimtuðu þær
að fá að borga aftur vegna þess, að
þær hefðu skemmt sér svo vel! Þar
sem alþýða manna hugsar þannig,
finnst mér að hún ætti að hafa
skilyrði til að njóta listar betur en
nú er, bæði hér á Akureyri og
annars staðar á landinu Það er von
mín, að þessi litli vísir geti orðið
til þess, að Akureyrarbær sjái sér
fært að aulca við safmð smátt og
smátt eftir því sem tímar líða. Sé
nokkuð að þakka, þá megið þér
þakka þessum tveim fátæku kon-
um fyrir myndina----■“
Æskan á næsta leikl
Þessi litla slúlka er ein af
niutiu Ixörnum, sem lóku þdtt
í smábarnaleikfimi FrœÖslu-
deildar KEA siðastliðinrv vet-
ur. Neðst í Ijorninu til hcegri
sjdið þið fleiri falleg og glað-
leg andlit og hrausllega lik-
ama, gcedda yndisþokka og
æskuþrótti, úr þessarri sigur-
sveit framtiðarinnar.
Undanfarið hefir verið unnið
að því á vegum Siglufjarðarbæj-
ar og flugmálastjórnarinnar að
byggja bráðabirgða lendingar-
bi-aut fyrir sjóflugvélar í víkinni
norðan Skútugranda. Er þetta
merkilegur áfangi á sviði flug-
málanna norður þar, pví eins og
kunnugt er, er tafsamt og oft erf-
itt að afgreiða flugvélar af sjó.
Ennfremur getur oft verið nauð-
synlegt að taka flugvélar á land,
t. d. ef eitthvað verður að veðri,
svo að ekki er hægt að komast á
brott ,ef gera þarf við eitthvað
o. s. frv.
Umboðsmenn Flugfélags ís-
lands og Loftleiða á Siglufirði,
Jón Kjartansson og Alfons Jóns-
son, hófu máls á því við flug-
málastjórnina í vor, að komið
yiði þar upp lendingarbraut fyrir
flugvélar. Voru sendir þangað
sérfræðingar frá Akureyri og
Reykjavík til að kynna sér stað-
hætti, og féllust þeir á, að brautin
yiði byggð á áðurnefndum stað.
Var síðan leitað til bæjarstjórnar
um fjárframlag til þessa mann-
virkis, og samþykkti hún að
greiða alla vinnu við fram-
kvæmdirnar úr bæjarsjóði, en
ríkið lagði til efni. Er brautin gerð
úr járnplötum, sams konar og
þeim, sem notaðar voru í styrj-
öldinni til byggingar bráða-
biigðaflugvalla og lendingar-
brauta fyrir sjóflugvélar. Hefir
jarðýta verið notuð 1 il að jafna
undir plöturnar. Er kostnaðurinn
við framkvæmdir þessar. tiltölu-
lega lítill.
Landkynningarferðir
Ferðáskrifs tofu n nar
Starfsfólk Keflavíkurflugvall-
arins kom nýlega með Katalínu-
flugbát hingað til Akureyrar á
vegum Ferðaskrifstofu ríkisins.
Gisti ferðafólkið hér í bænum, en
síðan var ekið í bifreið norður í
Mývatnssveit og til baka og kom-
ið til Reykjavíkur að kveldi ann-
ars dags. Þessi ferð tókst ágæt-
lega í hvívetna og pantaði starfs-
fólk Keflavíkurflugvallarins þeg-
ar aðra sams konar ferð. Seinna
mun Ferðaskrifstofan gefa ís-
lendingum kost á slíkum ferðum
um helgar.
Flugvallarhótelið í Reykjavík
rúmar 80 næturgesti, en getur
auk þess látið í té leigupláss fyrir
fólk, sem hefir með sér svefnpoka.
Hægt verður að taka tvær flug-
vélar á land í brautinni.
Eins og áður var minnzt á, er
mikil bót að þessari braut, og
væntanlega verður þess ekki
langt að bíða, að komið verði upp
á Siglufirði fullkominni lending-
arbraut og skýli fyrir flugvélar,
sem gætu þá haft þar fast aðset-
ur. — Þyrftu þau mannvirki að
vera einhvers staðar nær bænum,
því oft er ófært austur fyrir
fjörðinn sökum snjóa. Þá er bíl-
vegurinn að lendingarbrautinni á
kafla nærri því ófær bílum, og því
brýn nauðsyn, að hann verði lag-
aður hið fyrsta.
ið birt um ferðir skipanna með-
fram strandlengjunni, og virðast
þær oftast hafa verið ákveðnar
eftir dúk og disk og þá jafnan
verið auglýstar með litlum fyrir-
vara og þá langofíast aðeins í
Reykjavík, og hafa því aðrir
landsmenn tíðum fátt um þær
vitað fyrr en í ótíma.
Var þetta e. t. v. eðlilegt og
óhjákvæmilegt á stríðsárunum,
en virðist hafa færzt mun seinna
í eðlilegt horf en æskilegt og eðli-
legt mætti virðast.
Nú hefir félagið hins vegar tek-
ið rögg á sig og birt heildaráætl-
un um ferðir þriggja skipa sinna
frá júlíbyrjun (!) til næstu ára-
móta. Eru það skipin „Fjallfoss“,
„Lagarfoss og „Reykjafoss“, sem
áætlun þessi nær til. Má geta þess
hér, að „Fjallfoss" er ætlað að
koma þrem sinnum hingað til
Akureyrar á þessu tímabili,
„Reykjafoss" í önnur þrjú skipti,
en „Lagarfoss“ aldrei, enda verð-
ur hann í strandsiglingum frá
Reykjavík austur um land til út-
landa og þaðan til Rvíkur aftur.
Svo sem þegar er getið, er áætl-
un þessi aðeins um ferðir þriggja
skipa félagsins, og er, að því er
segir í greinargerð félagsstjórn-
arinnar, samin með það fyrir
augum, að verða við óskum
þeim, sem fram hafa komið um
reglubundnar áætlunarferðir frá
útlöndum til hafna úti um land,
þannig að flytja megi vörurnar
beint á ákvörðunai-staðinn án
umhleðslu.
Áætlun er ekki hægt að gera
(Framhald á 8 síðu).
Bæjarbrum í
Húnaþingi
Bæjarhruni varð i Húnavatns-
sýslu sfðari hluta vikunnar sem
leið.
Kom upp eldur í bænum Þver-
árdal í Laxárdal árla dags á
fimmtudag, og varð ekki ráðið
við hann ,svo að bærinn brann til
grunna. Hefir tjón bóndans orðið
mikið, því að verðmæti var lítið
vátryggt, eins og víða er um
sveitir.
Telpnaflokkur á fimleikanámskeiðinu.
Þriggja mdnaða námskeið, sem Fraðsludeild KEA hélt hér i bœnum siðastliðinn vetur, var
fjölsótt og bar ágœtan árángur. Þátttakendur voru d aldrinum 4—7 ára. Kennari var frk.
Anna S. Snorradóttir, en frk. Rósa Gisladóttir annaðist undirleik og aðstoðaði áýmsan hátt.
Lendingarbraut fyrir sjóflugvélar
byggð á Siglufirði