Dagur


Dagur - 11.08.1948, Qupperneq 1

Dagur - 11.08.1948, Qupperneq 1
Foruslugreinin: Þegar síldveiðarnar bregð- azt. — Happdrætti, sem ekki má verða eina bjarg- ráð þjóðarbúsins. Dagur Fimmta síðan: Prófessor Richard Beck skrifar um hina nýju ljóða- i bók Davíðs Stefánssonar. XXXI. árg. Akureyri, miðvikudaginn 11. ágúst 1948 31. tbl. Íslands tekur aftur upp til Siafsia ufan Rvíkur Sigliugar Eimskipafélagsskipanna og afgreiðsla á vörur til dreifbýlisins færist loks að nokkru í svipað horf og á friðartímum, enda full þrjú ár liðin frá stríðslokum Svo sem kunnugt er, liafa skip Eimskipafélags fs- lands þótt alltof sjaldséðir gestir á höfnum úti um land síðan í byrjun síðustu heimsstyrjaldar og til þessa dags. Þetta hefir að sjálfsögðu valdið miklum óþægindum, ogekki hefir það heldur bætt úr skák, Aska Steingríms heitins Matthíassonar hefir, sam- kvæmt ósk hans sjálfs, verið flutt hingað til Akureyrar og verður lögð í leiði foreldra hans í kirkjugarðinum hér á morgun, fimmtudaginn 12. ágúsí. Að tilhlutun bæjar- stjórnar Akureyrar verður haldin minningarathöfn í kirkjunni hér klukkan 2 þá um daginn, áður en jarðsetn- ing jarðneskra leifa hins mik- ilsvirta læknis og ástkæra borgara fer fram í leiði þjóð- skáldsins og konu lians. Dóttir Steingríms heitins, frú Anna, og maður hennar, Árni Kristjánsson píanóleilt- ari, fluttu ösku hans norður liingað. Málarinn vill, að Akureyrarbær komi sér upp listasafni Gefur sjálfur fagurt málverk í því skyni Magnús Á. Árnason, íistmálari, hefir sýna Akureyrarbæ þann höfðingsskap að afhenda honum að gjöf stærsta og eitt athyglis- verðasta málverk sitt, sem var á sýningu þeirri, er hjónin, Bar- bara og Magnús Árnason, héldu hér á Akureyri síðustu dagana í júlí. Með gjöf þessai’i íylgdi bréf frá gefanda (dagsett 30. júlí) og segir þar meðal annars: „Leyfi mér hér með að tilkynna yður, að eg hef ákveðið að gefa Akureyrarbæ eitt af málverkum þeim, sem er á sýningu þeirri, sem við nú höldum í Gagnfræðaskólan- um — sem fyrsta vísi til listasafns á Akureyri. Myndin heitir Stokka- lækjargil (á Rangárvöllum). — Ástæðan er m. a. sú, að við höfum nú haldið fjórar sýningar hér, og alltaf verið tekið fádæma vel, en einkum þó atvik, sem kom fyrir í gær. (Bréfið er dags. 30. júlí. -—• Ritstj.). Tvær alþýðuk.onur komu á sýninguna og greiddu aðgangs- eyri, eins og lög gera ráð fyrir, en þegar þær fóru út, heimtuðu þær að fá að borga aftur vegna þess, að þær hefðu skemmt sér svo vel! Þar sem alþýða manna hugsar þannig, finnst mér að hún ætti að hafa skilyrði til að njóta listar betur en nú er, bæði hér á Akureyri og annars staðar á landinu Það er von mín, að þessi litli vísir geti orðið til þess, að Akureyrarbær sjái sér fært að aulca við safmð smátt og smátt eftir því sem tímar líða. Sé nokkuð að þakka, þá megið þér þakka þessum tveim fátæku kon- um fyrir myndina----■“ Æskan á næsta leikl Þessi litla slúlka er ein af niutiu Ixörnum, sem lóku þdtt í smábarnaleikfimi FrœÖslu- deildar KEA siðastliðinrv vet- ur. Neðst í Ijorninu til hcegri sjdið þið fleiri falleg og glað- leg andlit og hrausllega lik- ama, gcedda yndisþokka og æskuþrótti, úr þessarri sigur- sveit framtiðarinnar. Undanfarið hefir verið unnið að því á vegum Siglufjarðarbæj- ar og flugmálastjórnarinnar að byggja bráðabirgða lendingar- bi-aut fyrir sjóflugvélar í víkinni norðan Skútugranda. Er þetta merkilegur áfangi á sviði flug- málanna norður þar, pví eins og kunnugt er, er tafsamt og oft erf- itt að afgreiða flugvélar af sjó. Ennfremur getur oft verið nauð- synlegt að taka flugvélar á land, t. d. ef eitthvað verður að veðri, svo að ekki er hægt að komast á brott ,ef gera þarf við eitthvað o. s. frv. Umboðsmenn Flugfélags ís- lands og Loftleiða á Siglufirði, Jón Kjartansson og Alfons Jóns- son, hófu máls á því við flug- málastjórnina í vor, að komið yiði þar upp lendingarbraut fyrir flugvélar. Voru sendir þangað sérfræðingar frá Akureyri og Reykjavík til að kynna sér stað- hætti, og féllust þeir á, að brautin yiði byggð á áðurnefndum stað. Var síðan leitað til bæjarstjórnar um fjárframlag til þessa mann- virkis, og samþykkti hún að greiða alla vinnu við fram- kvæmdirnar úr bæjarsjóði, en ríkið lagði til efni. Er brautin gerð úr járnplötum, sams konar og þeim, sem notaðar voru í styrj- öldinni til byggingar bráða- biigðaflugvalla og lendingar- brauta fyrir sjóflugvélar. Hefir jarðýta verið notuð 1 il að jafna undir plöturnar. Er kostnaðurinn við framkvæmdir þessar. tiltölu- lega lítill. Landkynningarferðir Ferðáskrifs tofu n nar Starfsfólk Keflavíkurflugvall- arins kom nýlega með Katalínu- flugbát hingað til Akureyrar á vegum Ferðaskrifstofu ríkisins. Gisti ferðafólkið hér í bænum, en síðan var ekið í bifreið norður í Mývatnssveit og til baka og kom- ið til Reykjavíkur að kveldi ann- ars dags. Þessi ferð tókst ágæt- lega í hvívetna og pantaði starfs- fólk Keflavíkurflugvallarins þeg- ar aðra sams konar ferð. Seinna mun Ferðaskrifstofan gefa ís- lendingum kost á slíkum ferðum um helgar. Flugvallarhótelið í Reykjavík rúmar 80 næturgesti, en getur auk þess látið í té leigupláss fyrir fólk, sem hefir með sér svefnpoka. Hægt verður að taka tvær flug- vélar á land í brautinni. Eins og áður var minnzt á, er mikil bót að þessari braut, og væntanlega verður þess ekki langt að bíða, að komið verði upp á Siglufirði fullkominni lending- arbraut og skýli fyrir flugvélar, sem gætu þá haft þar fast aðset- ur. — Þyrftu þau mannvirki að vera einhvers staðar nær bænum, því oft er ófært austur fyrir fjörðinn sökum snjóa. Þá er bíl- vegurinn að lendingarbrautinni á kafla nærri því ófær bílum, og því brýn nauðsyn, að hann verði lag- aður hið fyrsta. ið birt um ferðir skipanna með- fram strandlengjunni, og virðast þær oftast hafa verið ákveðnar eftir dúk og disk og þá jafnan verið auglýstar með litlum fyrir- vara og þá langofíast aðeins í Reykjavík, og hafa því aðrir landsmenn tíðum fátt um þær vitað fyrr en í ótíma. Var þetta e. t. v. eðlilegt og óhjákvæmilegt á stríðsárunum, en virðist hafa færzt mun seinna í eðlilegt horf en æskilegt og eðli- legt mætti virðast. Nú hefir félagið hins vegar tek- ið rögg á sig og birt heildaráætl- un um ferðir þriggja skipa sinna frá júlíbyrjun (!) til næstu ára- móta. Eru það skipin „Fjallfoss“, „Lagarfoss og „Reykjafoss“, sem áætlun þessi nær til. Má geta þess hér, að „Fjallfoss" er ætlað að koma þrem sinnum hingað til Akureyrar á þessu tímabili, „Reykjafoss" í önnur þrjú skipti, en „Lagarfoss“ aldrei, enda verð- ur hann í strandsiglingum frá Reykjavík austur um land til út- landa og þaðan til Rvíkur aftur. Svo sem þegar er getið, er áætl- un þessi aðeins um ferðir þriggja skipa félagsins, og er, að því er segir í greinargerð félagsstjórn- arinnar, samin með það fyrir augum, að verða við óskum þeim, sem fram hafa komið um reglubundnar áætlunarferðir frá útlöndum til hafna úti um land, þannig að flytja megi vörurnar beint á ákvörðunai-staðinn án umhleðslu. Áætlun er ekki hægt að gera (Framhald á 8 síðu). Bæjarbrum í Húnaþingi Bæjarhruni varð i Húnavatns- sýslu sfðari hluta vikunnar sem leið. Kom upp eldur í bænum Þver- árdal í Laxárdal árla dags á fimmtudag, og varð ekki ráðið við hann ,svo að bærinn brann til grunna. Hefir tjón bóndans orðið mikið, því að verðmæti var lítið vátryggt, eins og víða er um sveitir. Telpnaflokkur á fimleikanámskeiðinu. Þriggja mdnaða námskeið, sem Fraðsludeild KEA hélt hér i bœnum siðastliðinn vetur, var fjölsótt og bar ágœtan árángur. Þátttakendur voru d aldrinum 4—7 ára. Kennari var frk. Anna S. Snorradóttir, en frk. Rósa Gisladóttir annaðist undirleik og aðstoðaði áýmsan hátt. Lendingarbraut fyrir sjóflugvélar byggð á Siglufirði

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.