Dagur - 18.08.1948, Page 1
Forustugreinin:
Ræddar orsakir þess, að
vandi verzlunarmálanna
er enn óleystur.
Dagur
Fiinmta síðan:
Jón á Laxamýri ritar um
bændadag og uppskeru-
hátíð.
XXXI. árg.
Akureyri, miðviltudaginn 18. ágúst 1948
32. tbl.
Verða þeir enn sendir út á blóðvöllinn?
Enn skálma hersveitir stórveldanna gráar fyrir jámuni um götur
höfuðborganna, en margir óttast, að ekki inuni líða á löngu — eins
og útlitið er nú í hciminum — að stríðsguðinn sigi Heim enn á ný
út á vígvellina til þátttöku í stríði, sem e. t. v. táknar endalok
allrar menningar.
75 ára á morgun
r
Eg er stoltor af því a§ hafa verið
óhvikull fiðsmaður samvinnu-
hreyfingarinnar
öll mín manndómsár
- sagði Ágúst á Sílastöðum,
þegar fréttamaður blaðsins kom að máli við hann i fyrradag í tilefni
75 ára aðmælis hans, sem er á morgun. Gamii maðurinn stóð þá,
bjartur og liýr á svip »ð vanda, á verði við hliðið á sauðfjárveiki-
varnagirðingunni úti við Lónsbrú, en bá varðstöðu hefir hann ann-
azt af mikilli trúmennsku og árveluú síðustu árin, cða frá því
skömmu eftir að hann brá búi og fluttist hingað til bæjarins með
Þórumii dótur sinni og manni hcnnar, Eggert Þorkelssyni frá
Flatatimgu, en f jölskyldan á nú heima að Helgamagrastræti 19 hér
í bæ. — Þessi hrekklausi og drengilegi bændaöldungur þekkir að
vonum lítt til klækja blaðamannanna og grunar því sízt, að livert
hans orð kunni að verða látið „á brykk út ganga“, begar hann fylgir
mér á leið, léttari í spori og snarari í snúningum en margur sá, sem
er honuni aldarfjórðungnum yngri að árum.
i; Vísvitandi skemmda-ii
i; starfsemi framin á
Itrjágróðri hér
í bænum i;
J Garðyrkjuráðunautur bæj-
!! arins hefir skýrt blaðinu svo
1; frá, að íalsvert hafi að undan- J;
2 förnu borið á spjöllum á trjá- 'J;
i; gróðri hér í bænum, bæði á 1;
!; svæðum þeim, sem bærinn ;!
!; hefir prýtt meðtrjáplöntum,og '1
;i einnig í görðum einstakra
manna. Mest hefir ennþá !j
;J kveðið að þessu við andakíl-
i; inn í Laugarskarði, enþarji
!; hafa tré og runnar verið stór- ;i
J; skemmdir, t. d. með því að ;i
J; brjóta toppinn af stofnum og <i
;i greinum og einnig með því að !i
;i fletta berkinum af trjánum.!;
;i Tclur ráðunauturinn fullvíst, J;
!; að hér sé um beina og vísvit- J;
!; andi skemmdarstarfsemi ó-
!; hlutvandra manna og óknytta-
J; stráka að ræða, og er það þá !j
!; enn á ný mikið furðuefni öll- !;
;! um sæmileguin mönnum, að 1;
;! einstaklingar á svo lágu;;
!i þroska- og vitsmunastigi, sein ;i
!; verk á borð við þetta bera ljóst;!
!; vitni um, skuli dyljast í hópi
J; annarra borgara og sleppa við
;; setu í hegningarhúsum eða !;
;! geðveikraspítölum. ;;
Verð á líflömbum
ákveðið 4 kr. kg.
Verðlagsnefnd landbúnaðaraf-
urða hefir nú ákveðið verð á líf-
lömbum, sem seld verða á næst-
unni og í haust til fjárskipta-
svæðanna. Verða lömbm aðallega
eða eingöngu keypt á Vestfjörð-
um.
Er verði^S ákveðið fjórar krón-
ur fyrir hvert kg. í lifandi lambi,
án tillits til þess hvort um væn
lömb eða rýr sé að ræða. Það er
að segja, að aðeins verður um
einn verðflokk að ræða.
Barnaleikvöllurinn
í innbænum verður
senn fullgerður
Unnið hefir verið að því að
undanförnu að skipuleggja, jafna
og girða með steingirðingu fyrir-
hugaðan barnaleikvöll norðan við
Búðargil í innbænum. Verkið
hefir verið unnið undir yfirum-
sjón Finns Árnasonar, garðyrkju-
ráðunauts bæjarins, og er því nú
senn lokið. Verður þetta hið
prýðilegasta svæði til þessarra
hluta, en ekki telur ráðunautur-
inn sennilegt ,að varzla verði tek-
in þar upp fyrr en á næsta ári,
þótt ekki hafi hins vegar verið við
því amazt, að böm hæfu þar strax
leiki sína í hinum eftirsóttu sand-
kössum, sem eru svo sem kunn-
ugt er eftirlætisleikvangur yngstu
bamanna á öllum slíkum stöðum.
Vel hefir það reynzt þér, vega-
nestið, sem þú lagðir með út á
æfileiðina fyrir þremur aldar-
fjórðungum.
Ojá. Ekki væri rétt að van-
þakka það. Forsjónin hefir verið
mér góð. Eg hefi alltaf örugglega
treyst æðri handleiðslu, og hún
hefir heldur aldrei brugðizt mér.
— En af þvi veganesti. sem sam-
ferðamennirnir hafa gefið mér,
held eg, að heilræði iósturföður
míns, Sigurðar bónda Jóhannes-
sonar frá Torfufelli, hafi enzt mér
bezt, enda minnist eg Iians ávallt,
er eg heyi'i góðs manns getið. —
„Vertu glaður og trúr“, sagði
hann, og þeim ráðum hans hefi
eg reynt að fylgja síðan. Hann og
kona hans, Helga Páisdóttir frá
Kolgrímustöðum, bjuggu lengi á
Jórunnarstöðum í Saurbæjar-
hreppi, og þar fæddist eg í þeirra
húsum og ólst upp hjá þeim
ágætu myndarhjónum til fullorð-
insaldurs. Þau höfðu flutzt bú-
ferlum að Hrafnagili nokkrum
(Framhald á 8 síðu).
N iður suðu verksraið j an
í Ólafsfirði tekin
til starfa
Niðursuðuverksmiðjan nýja í
Ólafsfirði tólc til starfa sl. föstu-
dag. Mun hún geta soðið niður í
30 þús. dósir á dag, þegar fullum
afköstum er náð.
Vélsmiðjan Héðinn annaðist
niðursetningu véla í verksmiðju
þessa, og eru þær sagðar mjög
fullkomnar.
Verksmiðjan tekur síld til nið-
ursuðu þessa dagana, ef eitthvað
veiðist.
Frá Hóladegi og prestastefnu Hólastiptis:
Verður Hólabiskups-
dæmi endurreist?
Hugmyndin rædd á ,,Hóladeginum“ síðastliðinn
sunnudag og á miklu íylgi að fagna meðal presta
og lokmanna í Norðlendingafjórðungi
Fjársöfnun til minnisvarða }óns biskups Arasonar
gengur að óskum
Allmikið fjölmenni var saman-
komið á Hóhim urn síðustu helgi
vegna „Hóladagsins" og presta-
stefnu Iiólastiptis, er þar var þá
haldin. Má þó telja víst, að hin
fjölsótta héraðshátíð, er skag-
firzkir framsóknarmenr. efndu til
þennan dag, hafi dregið verulega
úr aðsókninni „heim að Hólum“
og e. t. v. sömuleiðis samkoma
sjálfstæðismanna, er haldin var
þá um daginn á Blönduósi.
14 prestar úr Hólastipti sóttu
prestastefnuna, og höfðu þó
fundarboð til presta vestan
Vatnskarðs — og e. t. v. vill víð-
ar — misfarizt.
í erindi því, er séra Óskar Þor-
láksson, prestur á Siglufirði, hélt
við þetta tækifæri, læddi hann
allýtarlega þá hugmynd, að Hóla-
stipti verði gert að sérstöku og
sjálfstæðu biskupsdæmi með
biskupsstóli annað hvort hér á
Akureyri eða á Hólum. Var
uppástungu þessari vísað til hinna
grlegu héraðsfunda einstakra
prófastsdæma í fjórðungnum til
nánari athugunar.
Það er að vísu ekki í fyrsta
skipti, að tillaga þessi kemur op-
inberlega fram. Séra Gunnar
Árnason á Æsustöðum í Langa-
dal mun einna fyrstur manna
hafa hreyft henni á prestafundi
árið 1929, en Magnús prófessor
Jónsson alþm. mun hafa flutt
hana í frumvarpsformi á Alþingi
1937, en hún dagað þar uppi í það
sinn. En sennilegt er, að Norð,-
lendingar muni ekki sætta sig við
annað í framtíðinni en að ekki
aðeins skóli heldur einnig stóll
Hólabiskupsdæmis hins forna
verði endurheimtur mn í fjórð-
unginn, og kemur þá til athugun-
ar, hvort ekki væri rétt, að Aust-
firðingafjórðungur ætti aðild að
þeim biskupsdómi fremur en til
Reykjavíkur.
Minnismcrki og ártíð Jóns
Arasonar.
Frá því var skýrt á Hólafund-
inum, að fjársöfnun í því skyni að
reisa Jóni biskupi Arasyni og
sonum hans veglegt minnismerki
á Hólastað, gengur mjög að ósk-
um. Hinn árlegi merkjasöludagur
í þessum tilgangi, 7. nóvember,
hefir gefið sjóðnum ágætar tekj-
ur, og mun hann nú eiga röskar
80 þús. kr. handbærar. Sigurður
Guðmundsson húsameistari í
Rvík hefir gert uppdrátt að
minnisvarðanum, er viðkomandi
forráðamenn hafa samþykkt. —
Verður reistur í kirkjugarðinum
20 m. hár turn í 10 m. fjarlægð
frá dómkirkjunni og tengdur við
kirkjuna með yíirbyggðum
göngum og verður það hið veg-
legasta mannvirki. Skortir nú
ekkert til þess, að framkvæmdir
geti hafizt, annað en nauðsynlegt
fjárfestingarleyfi, og skoraði
Hólafundurinn á viðkomandi yf-
irvöld að veita það hið bráðasta,
svo að minnisvarðinn geti orðið
afhjúpaður á 400 ára ártíð Jóns
biskups, 1950, svo sem ávallt hefir
verið til ætlazt af forgöngumönn-
um þessa máls.
Aska Steingríms læknis
jarðsett að viðstöddu
fjölmenni
Siðastliðinn fimmtudag var aska
Steingríms Matthíassonar jarðsett
í leiði foreldra hans í kirkjugarð-
inum hér. Áður var haldin minn-
ingarathöfn í kirkjunni að við-
stöddu fjölmenni. Flutti séra
Friðrik Rafnar, vigslubiskup,
minningarræðu, en kirkjukórinn
söng. Fánar blöktu í hálfa stöng
um gervallan bæinn, og verzlun-
um og' skrifstofum var lokaðmeð-
an á minningarathöfninni stóð.
V erzluna r jöf nuður-
inn hagstæður um
10,5 millj. kr. í júlí,
en 1,8 millj. kr., það
sem af er árinu
Samkvæmt upplýsingum Ilag-
stofunnar nam útflutningurinn
í júli alls 39.1 millj. króna, cn
innflutningurinn 28.6 millj. kr.
og var verzlunarjöfnuður því
hagstæður um 10.5 millj. kr. í
þessum mánuði.
Alls nam útflutningurinn
það sem af er árinu (til júlí-
loka) 237.9 millj. kr„ en inn-
flutningur á sama tíma 236.1
millj. kr. Er verzlunarjörfnuð-
ur hagstæður um 1.8 millj. kr.
á þessu ári.