Dagur - 01.09.1948, Síða 1

Dagur - 01.09.1948, Síða 1
Forustugreinin: Skýrsla um starfshætti finnsku lögreglunnar undir stjórn kommúnista. Fimmta síðan: Haukur Snorrason bregð- ur upp skyndimyndum úr Finnlandsferð. XXXI. árg. Akureyri, miðvikudaginn 1. september 1948 Krossanes fengið fæp 12000 mál - 43000 mál á sama tíma í fyrra Verksmiðjan getur nú brætt 3500 mál á sólarhring í gær höfðu borizt samtals 11.789 mál síldar til Krossaness- verksmiðjunnar og 100 mál af ufsa. Á sama tíma í fyrra, en þá voru vertíðarlok, hafði verk- smiðjan fengið samtals 43.526 mál. Þar að auki var síldin í fyrra miklu feitari en sú síld, sem nú hefir veiðzt. Fengust þá að að meðaltali 27 kg. af lýsi úr síldar- máli, en nú ekki nema 20 kg., að því er Hallgrímur Björnsson verksmiðjustjóri sagði í viðtali við blaðið í gær. Endurbætur verksmiðjunnar hafa reynst vel. Verksmiðjustjórinn sagði, að | Mjölskemman mikla ] | endurbyggð { í Járn til endurbygg- =; i ingarinnar vegur nær I 600 smálestir i ] Vinna er fyrir nokkru hafin : I við endurbyggingu mjöl- i i skemmunnar miklu í Siglu- i i firði, sem hrundi í fyrravetur. i i Er það Hamar h.f. í Reykjavík i 1 sem sér um verkið fyrir Síld- i i arverksmiðjur ríkisins. Efni til i I endurbyggingarinnar er kom- i i ið til Siglufjarðar og er það i i geysimikið, t. d. vcgur járnið i i á sjötta hundrað smálestir. i i Revnt er að ganga tryggilega i ] frá undirstöðum skemmunnar, i i en hún er, sem kunnugt er, i i byggð á fúamýri, cins og lýsis- j i geymarnir, sem reistir voru í i i sambandi við „nýsköpunina“. i i Vinnan hófst með því að i i rammaðir voru niður staurar : i undir máttarstoðirnar. Voru i ] reknir niður fjórir 9 m. langir i i staurar, 30—40 cm. í þvermál, ] i undir hverja súlu og síðan i i steypt járnbent undirstaða um i i IV2 m. á dýpt, 2 m. breið og 3 i ] m. löng. Máttarstoðirnar voru i i síðan reistar, en þær eru 24 ] ] þuml. í þvermál og vega rúm ] ] tvö tonn hver. Þessum nýju ] ] burðarsúlum, ásamt grind og i ] sperrum, er ætlað að bera alla i i áreynslu vinda og vcðráttu. ] ] Aliur þcssi. umbúnaður er i i stórum tryggilegri en sá, sem ] ] flaustrað var upp um árið í i i „nýsköpunar“ óðagotinu, enda ] I lirundi mannvirkið, sem kunn- : i ugt er. Hafa Síldarverksmiðj- i ] ur ríkisins orðið fyrir mill- \ i jónatjóni af þessum fram- i i kvæmdum öllum. miklum mun betur gengi rní að bræða síldina en í fyrra. Eins og kunnugt er lét verksmiðjustjórn- in gera allmiklar endurbætur á verksmiðjunni í vetur og hefir það verk allt reynst ágætlega í sumar og verksmiðjan var þess megnuð að bræða miklu meira síldarmagn nú en nokkru sinni fyrr. Verksmiðjustjórinn sagði að afköstin á einni vaktinni í gær hefðu jafngilt 3600 mála bræðslu á sólarhring og taldi hann vanda- laust að bræða að jafnaði 3500 mál á sólarhring. í fyrra mun verksmiðjan aldrei hafa afkastað meiru en 3000 málum á sólar- hring. Síðustu dagana hafa þessi skip landað í Krossanesi: 28/8, Auður 315 mál. 29/8, Pólstjarnan 870 mál, Snæfell 36 mál (afg. frá söltun). 30/8, Kristján 317 mál. 31/8, Straumey 605 mál og Pól- stjarnan 526 mál. í gær var bræla á miðunum og höfðu verksmiðj- unni ekki borizt fregnir um síld er blaðið átti tal við verksmiðju- stjórann síðdegis í gær. Vænar kindur Á sláturhúsi KEA hér á Akur- eyri var 27. f. m. lógað tvílembdri á ásamt lömbum hennar og reyndust þau öll þrjú óvanalega frálagsgóð, sérstaklega þegar miðað er við að um þrjár vikur eru til gangna. Kjötþungi þeirra var: ærin 32'/2 kg.,þyngralambið, hrútur, 24 kg. og hitt, gimbur, 22 kg. Mör var tæplega eins mikill miðað við kjötþunga, 9 kg., enda aðal mörsöfnunaj-tími þeii'ra eft- ir. Eigandi kindanna var Bene- dikt Júlíusson bóndi í Iivassafelli í Saurbæjarhreppi. Maður verður úti á Holtavörðuheiði Sviplegt slys varð um helgina á Holtavörðuheiði, er Jón Jónsson stúdent úr Reykjavík varð úti á heiðinni eftir að hafa villzt í þoku. Tildrög slyssins eru þau, að Jón og kunningi hans frá Hvammstanga fóru að veiða á vatni á heiðinni. Á laugardaginn skall á niðaþoka og villtist Jón þá frá félaga sínum. Var þegar hafin leit og fannst Jón daginn eftir í mýrarfláka á heiðinni og var þá meðvitundarlaus og nokkuð skaddaðux'. Var hann fluttur til Hvamsstanga, en þar andaðist hann nokkru síðar. Eigi er Ijóst með hverjum hætti slys þetta hefir orðið, því að veður var milt þótt dimmt væri. egar framkvæmdir I þorpunum á Ausfurlands Laugt komið að teygja akvega- kerfið hriíigiun í kring um íandið Golfmeistari 1948 Meistaramót Akureyrar í golfi er nýlokið. Keppendur voru átta. — Akureyrarmeistari 1948 — eftir harða keppni við Tryggva Júlíus- son rakara og Jóhann Þorkelsson lækni — varð Jón Egils kaupm. Minningarsjóður stofnaður við Möðruvallakirkju Síðastliðinn sunnudag vai' kirkjunni á Möðruvöllum í Hörg- árdal færð myndarleg minningar- gjöf. Var það sjóður, að upphæð kr. 6000.00 — sex þúsund — til eflingar kii'kjusöngnum þar á staðnum, gefin af bi'æðrunum Ól- afi Tr. Ólafssyni, bónda í Dag- verðartungu, og Jóm Ólafssyni, bifreiðaeftii'litsmanni í Rvík til minningar um föður þeirra, Ólaf Tr. Ólafsson, fyrsta oxganista kix-kjunnar, og Gísla Ólafsson, oi'ganista, sem lézt á unga aldx-i fyrir tæpum tveim árum. Vax- sjóðui'inn stofnaður í tilefni af aldarafmæli Ólafs, en hann var fæddui 30. ágúst 1848 og tók viö organistastai'fi á Möðruvöllum haustið 1875. Ungi píanósnill- ingurinn leikur hér í kvöld Þórunn litla Jóhannsdóttir, píanósnillingurinn ungi, sem vak- ið hefir svo mikla hrifningu í höf- uðstaðnum að undanförnu, er nú komin hingað norður og mun halda hér tvenna.hljómleika. — Hinir fyrri verða í kvöld í Nýja- Bíó, kl. 6.30 e .h. Eru þeir fyrir meðlimi Tónlistai'félagsins og geta þeir vitjað aðgöngumiða í Hljóðfæraverzlun Akureyrar í dag'. Þar verða ennfremur seldir aðgöngumiðar að þessurn hljórn- leikum meðan húsrúm leyfir. — Síðari hljómleikai'nir vei'ða fyrir almenning anuað kvökl, á sama stað, kl. 9 e. h. Þórunn litla mun ekki halda flciri hljómleika hér að sinni. Eftir EIRÍK SIGURÐSSON. Ritstjóri „Dags“ hefir farið þess á leit við mig að segja blaðinu eitthvað úr ferð, er eg fór nýlega um Austurland. Eg vil ekki með öllu skorast undan þessu, þótt eg viti vel, að heimsóknii' á gamlar æskuslóðir, til ættingja og vina, er þess eðlis, að ekki verður skýrt frá þeim í blaðagrein. Þetta vei'ð- ur því engin ferðasaga, heldur að- eins ofui'lítið, almennt rabb um ýmislegt, sem fyrir augun bar á þessu fei'ðalagi. Samgöngur. í sveitunum frá Álftafirði til Fáski’úðsfjarðar hafa til skamms tírna aðalsamgöngur vei'ið á sjó, en slæmar samgöngur á landi. Nú hef eg ekki komið á þessar slóðir í 20 ár, og fannst mér margt hafa breytzt, þar á meðal samgöng- urnar. Nú er kominn akvegur úr Ski-iðdalnum yfir Breiðdalsheiði og um Breiðdalinn suður á Beru- fjarðarströnd. Og svo aftur frá Djúpavogi inn fyrir Hamrsfjörð urn Álftafjörð og suður í Lón. Það vantar því aðeins akveg í kringum Berufjöi'ðinn, og hefir þó vei'ið farið með jeppa þá leið í sumar. Mikil áherzla er lögð á það af þeim ,sem þarna búa, að flýta þessari vegagei’ð, og heyrði eg sagt, að einstaklingar hefðu jafnvel lagt fram fé x því skyni. Vei'ður veguiinn sennilega kom- inn inn með firðinum norðan megin inn að Berufirði í haust. Upphaflega hafði vei'ið gert ráð fyrir að hafa bílferju á Berufirð- inum, en nú mun vera horfið frá því í'áði. Akvegur liefir verið ruddur inn á innstu bæi í þessum sveitum, t. d. að Kambseli í Geitbellnadal og Hamai'seli í Hamai-sdal, og er það mikill hægðarauki fyi'ir þá, sem þar búa, að þurfa nú ekki lengur að flytja að sér á hestum. Hins vegar eru Vestuihús, innsti bær í Ilamarsdal, nýlega komin í eyði, þó að hús séu þar enn öll uppi- standandi, en þangað er mjþg erf- itt að leggja veg. Síðasti bóndinn á Vesturhúsum. Snjólfui' Stef- ánsson, liafði búið þar í 38 ár og komið þar upp sex mannvænleg'- um börnum. Nú er mest ferðast á bílum og jeppum urn þessar sveitir, en hestar lítið notaðir. Stöðvarfjörður er hins vegar enn alveg einangraður, lxvað snertir sanxgöngur á landi. Þar er sjórinn því aðalsamgönguleiðin eins og fyi'i'. En verið er að leggja veg þangað sunnan megin Fáskrúðsfjarðai', þótt þar sé enn mikið óunnið. Fáskrúðsfjörður er í vegai'sambandi, því að bíll gengur þaðan norður í Hafranes, og þaðan bátur til Reyðai'fjarðar. En vei-ið er að ryðja veg út ströndina sunnan megin Reyðar- fjai'ðar. Aukin*jarðrækt og vélavinna. Víða hefur fólki faekkað mjög á sveitabæjum, og víðast hvar eru það aðeins hjón með börn sín. En ýmsar framfarir í búnaðarháttum gera það að verkunx, að hægt er að komast af með fæx-ra fólki en áður. Þeir bændur, sem hafa vél- tæk tún, og hafi þeim tekist að eignast sláttuvél og rakstravél, þá er heyskapui'imx hjá þeim nxiklu auðveldari en áður var. En því nxiður gengur bændur erfiðlega að fá þessar nauðsyxxlegu vélar. Þá hefir mikið verið ræktað með vélavinnu hin síðari ár, og eru bæixdur nú að byi'ja að njóta ávaxtanna af þessum nýræktum sínum. Dráttarvélar og jeppar, sem bændur hafa fengið, veita þeim ómetanlega hjálp og eru að gjöi'breyta öllum vinnubröðum í sveitunum. Þeir hafa bara of lítið af þessum tækjum. Jepparnir, sem áttu að réttu lagi að fara í sveitirnar til hjálpar við fram- leiðslustöi'fin, eru margir hverjir í bæjunum, án þess að þeirra sé þar nokkur brýn þörf. Á einum sveitabæ sá eg drátarvél, sláttu- vél, rakstrai'vél og heysleða standa í-étt við bæinn á renni- sléttu túni. Ekki verður heyskap- urixxxx erfiður þar, e£ sæmilega gengur að þurrka heyið. En oft gengur það erfiðlega í þessum sveitum, og' var júlímánuður í sumar mjög óþui'rkasamui'. Og enn er súgþurrkunixx skammt á veg komin, en þeir fyi'stu að reyna hana. Eix mig uixdrar, hve lítið bændur hafa af súi'heys- gi yfjum, og skil ekki hvers vegna því er þannig fai'ið. (Framhald á 7. síðu). Reykvíkingar íslands- meistarar í knattspyrnu í II. flokki. Nýlega er lokið hér íslands- meistaramóti í knattspyrnu í II. flokki. Keppendur voru Reykvík- ingar, Akueryrixxgar og Siglfirð- ingar. Urslit ux'ðu þau, að Reyk- víkiixgar sigruðu, hlutu 4 stig, ÍBA 2 stig og K. S. 0 stig. Nánar verður greint frá mótinu í íþi'óttaþætti, í næsta blaði.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.