Dagur - 13.10.1948, Síða 1
Foruslugreinin:
„Beinverkir eyðslunnar",
ástandið í dag mótast af
stjórnarháttum fyrri ára.
Fimmta síðan:
Jón H. Þorbergsson ræðir
þingmannakjör í dreifbýl-
inu. íþróttaþáttur.
XXXI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 13. október 1948
40. tbl.
i milli HérðSsvatna og varnargirSinga í
-------:----------------•-
Alþingi var sett
á máiiudaginn
Alþingi var kvatc saman til
fundar sl. mánudag. Lýsti forseti
íslands yfir þingsetningu eftir að
þingmenn höfðu hlýtt messu í
dómkirkjunni. Á fundinum á
mánudaginn var aldursforseti,
Björn Kristjánsson, þingmaður
Norður-Þingeyinga, í forsæti og
minntist hann við það tækifæri
þingmanna, er látist höfðu á ár-
inu, þeirra Péturs Magnússonar,
1. þm. Reykvíkinga, og fyrrv. al-
þingismanna Magnúsar Torfa-
sonar og Héðins Valdimarssonar.
í gær voru kosnir forseti Sam-
einaðs Alþingis og forsetar
deilda. Blaðið hafði ekki fregnir
af kosningunni í gær, en líklegt
var talið að sömu menn yrðu
valdir og sl. ár, þ. e. Jón Pálma-
son, forseti Sameinaðs þings,
Bernh. Stefánsson, forseti Efri
deildar og Barði Guðmundsson,
forseti Neðri deildar.
Bygging minnisvarða
Jóns Arasonar bundin
Hvalf jarðarsíldinni!
í erindi um daginn og veginn í
útvarpinu .á mánudagskvöldið
upplýsti Árni Eylands stjórnar-
ráðsfulltrúi, að Fjárhagsráð hefði
gefið vilyrði fyrir því að v.eita
ijárfestingarleyfi til byggingar
hins fyrirhugaða minningarturns
Jóns Arnasonar og sona hans að
Hólum, ef útflutningsverðmæti
þessa árs færi yfir 425 millj. kr.,
eða m. ö. o., ef síldarvertíðin í
Faxaflóa gengi vel. Eins og
lcunnugt er hefir lengi verið ráð-
gert að koma upp minnisvarða að
Hólum á 400 ára dánarafmæli
þeirra Hólafeðga, eða eftir tvö ár.
Með því að heita þannig á Jón
biskup á sambandi við síldveið-
arnar hefir Fjárhagsráð þó vissu-
lega stefnt málinu í nokkra ó-
vissu og dregið nafn biskups inn
í atburði líðandi stundar á
ósmekklegan hátt. í sama erindi
upplýsti Árni Eylands, að Hóla-
kirkja þyrfli bráðra umbóta við,
t. d. væri þak hennar ónýtt og
hurðir ónothæfar. Ilefði Alþingi
veitt 90 þús. kr. til viðgerðar á
kirkjunni í fyrra, en ekki hefði
verið hafizt handa um að setja
nýtt þak á kirkjuna, þrátt fyrir
það. Hins vegar hefði múrari
verið sendur norður til þess að
forskala og hylja hina fornu
veggi! Þótti ræðumanni þessi
viðgerð furðuleg að vonum.
Þing Aljjjóðasambands samvinnumanna:
Átök vesturs og austurs settu
höfuðsvip á þingið
Norðurlandsmeistarar í knattspyrnu
Á knattspyrnumóti Norðurlands fyrir skömmu, sigraði íþróttafélagið
Þór, Akureyri. Myndin er af knattspyrnuflokki félagsins: Talið frá
vinstri: Standandi, Guðjón Einarsson, dómari mótsins, Jóhann Eg-
ilsson, Björn Halldórsson, Árni Ingólfsson, Júl. B. Magnússon,
Hreinn Oskarsson, Guttormur Berg, Sig. Samúelsson, Gísli Eyland.
Fremri röð: Gunnar Oskarss., Baldur Arngrímss., Sverrir Georgss.
Rússar og fylgihnettir þeirra héldu uppi áróðri
gegn vestrænu lýðræðisþjóðunum á þinginu
en voru í stórum minnihluta
Stutt samtal við Takob Frímannsson
Jakob Frímannsson framkv.stj.
Kaupfélags Eyfirðinga kom hing-
að til bæjarins í gær frá alþjóða-
þingi samvinnumanna, sem hald-
ið var í Prag í septeniberiok, en
Jakob var einn af þremur full-
trúum íslands á þinginu. Hinir
fulltrúarnir voru þeir Viihjálm-
ur Þór forstjóri SÍS og Erlendur
Einarsson framkvæmdastj. Sam-
vinnutrygginga. Dagur átti í gær
stutt samtal við Jakob Frímanns-
son um þetta alþjóðaþing sam-
vinnumanna.
Jakob sagði, að þetta þing
hefði orðið fulltrúum vestrænu
þjóðanna til nokkurra vonbrigða
og hefði það afrekað miklu minna
en þingið í Zúrich árið 1946. Þá
fór sæmilega á með fulltrúum
Rússa og lýðræðisríkjanna, en nú
var þinghaldið með allt öðrum
svip. Átök austurs og vesturs
settu höfuðsvipmót á þinghald-
ið. Þessi átök hófust þegar fyrsta
daginn, er Sidoroff aðalfulltrúi
Rússa, hélt aðalræðu sína. Hélt
hann uppi áróðri gegn vestrænu
lýðræðisþjóðunum með svipuðu
sniði og menn þekkja nú orðið frá
öðrum alþjóðaþingum, er.komm-
únistar eiga sæti á. Austur-Ev-
rópufulltrúarnir tóku strax í
sama strenginn og hélzt þetta
reiptog þingið út. Greiddu Rúss-
ar og fylgihnettir þeirra atkvæði
gegn öllum málum þingsins, en
voru jafnan í miklum minnihluta,
höfðu um 470 atkvæði að jafnaði
gegn 550 atkvæðum lýðræðis-
ríkjanna. Rússar greiddu meira
að segja atkvæði gegn samþykkt
skýrslu stjórnar ICA, sem þeir
eiga þó sæti í. Rusholme lávarð-
ur, formaður stjórnarinnar, var
forseti þingsins.
Um móttökurnar Tékkóslóva-
kíu sagði Jakob Frímannsson, að
þær hefðu verið góðar. Hefðu
stjórnarvöldin búið vel að þing-
(Framhald á 8. síðu).
Gjaldeyrisáðstaða
bankanna batnar
í lok septembermánaðar sl. nam
inneign bankanna erlendis 55,3
millj. króna, að frádreginni
þeirri upphæð, sem bundin er
vegna togarakaupa. Ábyrgðar-
skuldbindingar bankanna námu
á sama tíma 33,3 millj. kr. Nettó-
inneign var því röskar 20 nillj.
króna, Hafði aðstaðan batnað frá
því í ágústlol: um 7,2 millj. kr.
Fulltrúafundur á Akureyri mælir með
niðurskurði alls sauðfjár á svæðinu
og innflutningi nýs stofns frá
Yestfjörðum
Garnaveiki í sauðfé orsök þessara fyrirætlana
Síðasctliðinn laugardag ltoinu saman liér á Akureyri 5G fulltrúar
hreppa og bæiarfélaga á svæðinu frá Héraðsvötnum til varnargirð-
inga saugfjárveikivarnanna liér í Eyjafirði, til bess að ræða og taka
ákvörðun um niðurskurð á öllu sauðfé á bessu svæði haustið 1949
og innflutning fiárstofns frá Vestfiörðum og víðar að.
Til fundarins var efnt að tilhlut-
un Sauðfjársjúkdómanefndar
ríkisins. Hafði nefndin ritað
sýslumönnum Eyjafjarðar- og
Skagaf jarðarsýslna og * bæjarfó-
getum kaupstaðanna bréf í ágúst
sl., þar sem mælst var til þess að
þcir beittu sér fyrir því að full-
trúar yrðu kjörnir í hverjum
hreppi til þessa fundar. Hrepps-
nefndir og bæjarstjórnir beitt sér
síðan fyrir fundum fjáreigenda
og kusu þeir fulltrúa til þess að
mæta á fundinum hér. Mættu 27
fulltrúar úr Eyjafjarðarsýslu, 24
úr Skagafjarðarsýslu, 3 frá Siglu-
firði og 2 frá Ólafsfirði. Auk
þeirra sátu fundinn þeir Sigurð-
ur Sigurðsson sýslumaður Skag-
firðinga, Friðjón Skarphéðinsson,
sýslumaður Eyjafjarðarsýslu og
Sæmundur Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Sauðfjársjúk-
dómanefndar ríkisins.
Niðurskurður samþykktur.
Á fundinum kom fram frum-
varp um f járskiptin og er svæðið
tilgreint þannig, að það nær yfir
eftirtalda hreppa og hreppshluta:
Holts-, Haganes-, Fells-, Hofs-,
Hofsós-, Hóla-, Viðvíkur- og
Akrahreppa í Skagafjarðarsýslu,
Saurbæjarhrepp, tvo bæi í Öng-
ulsstaðahreppi, 4 úr Hrafnagils-
hreppi, Glæsibæjarhrepp norð-
an varnargirðingar, ennfrem-
ur Öxnadals-, Skriðu-, Arnar-
ness-, Ái’skógs-, Svarfaðardals-,
Dalvíkur- og Hríseyjarhrepps í
Eyjafjarðarsýslu, Ólafsfjörð og
lögsagnarumdæmi Siglufjarðar.
Er gert ráð fyrir útrýmingu alls
sauðfjár á svæðinu haustið 1949
og innflutningur fjárstofns, aðal-
lega frá Vestfjörðum. Fari skipt-
in fram skv. lögum frá 9. maí
1947 um fjárskipti. Fimm menn
skulu skipa framkvæmdanefnd
íjárskiptanna, og fimm menn
í kjörstjórn til þess að sjá um al-r
menna atkvæðagreiðslu fjáreig-
enda um frumvarpið.
Eftir allmiklar umræður urðu
úrslit á fundinum þau, að
frumvarpið var samþykkt með
47 atkv. gegn 9. Greiddu allir
fulltrúar Skriðuhrepps atkv.
gegn málinu ,einn fulltrúi úr
Sltagafirði, einn úr Svarfaðar-
dal, einn úr Hrísey og allir
fulltrúar Siglufjarðar.
Málið mun því fara til al-
mennrar atkvæðagreiðslu fjár-
eigenda, og þurfa 2/3 þeirra að
greiða atkvæði og 2/3 þeirra að
samþykkja frumvarpið til þess að
ákvæðum landslaga sé fullnægt. í
kjörstjórn þeirri, sem á að sjá um
atkvæðagreiðsluna eru þessir
menn: Gísli Sigurðsson, Víðivöll-
(Framhald á 8. síðu).
Er síldargengd }
| í Eyjafirði? }
I Að undanförnu hafa Dal- j
i víkingar haft lagnet til síld- :
j veiða úti á víkinni og aflað að j
; jafnaði um V-> tunnu síldar í i
I lögn, 2 net. Bendir þetta ein- |
i dregið til þess að nokkur síld- i
[ argengd sé hér i firðinum, en |
i það mál er þó órannsakað i
; með öllu og ekki hefir frétzl :
I um að síldarleitarskipin muni j
I koma hingað og leita í firðin- :
i um með dýptarmælum. Virð- |
j ist það mál þó vel athugandi. j
j Síldarleitarskipin, Fanney og [
j Særún leita nú í fsafjarðar- j
j djúpi og í Steingrímsfirði. — j
j Særún hefir fengið nokkur -
I hundruð mál í Steingrhnsfirði j
j og orðið vör við allmikla síld j
j þar, pn Fanney hcfir enga síld j
j fundið í ísafjarðardjúpi. Síld- j
j veiðin þar hófst um þetta leyti |
i í fyrra. Ekki hefir heldur orð- j
1 ið síldar vart í Faxaflóa enn j
j svo nokkru nerni, en mikill j
i viðbúnaður er syðra til veið- i
j anna. Hafa verið flutt inn j
i veiðarfæri fyrir háar upphæð- j
j ir og stækkun verksmiðja og j
i annar slíkur úndirbúningur í i
f landi kostar þegar margar j
i milljónir. Er mikið í húfi fyrir j
i þjóðarbúskapinn, að aflasælt |
j verði í Faxaflóa í liaust og j
i vetur. :