Dagur - 03.11.1948, Qupperneq 1
Önnur síðan:
Blekkingum fsl. um skatt-
greiðslur samvinnufélaga
svarað.
Fimmta síðan:
Deilt um frjálsíþróttamót.
Jónas Jónsson og Marteinn i
Friðriksson.
XXXI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 3. nóvember 1948
42. tbl.
Ríkið fellur frá óaðgengilegusfu skilyrSum sínum vi
Byggingar Sambandsins við Glerá
Nýlega var varpað fram þeirri spurningu í fslendingi, hvað sam
vinnufélögin hefðu gert fyrir þennan bæ. Ekki var henni svarað. Á
þessari mynd má sjó eitt svarið við þessari spurningu. Myndin sýnir
nokkuð af nýbyggingum Sambandsins á Geíjurs, sem nú standa yfir.
Hin nýja Gefjun verður eitt allra stærsta verksmiðjuhús landsins,
og þar verður komið fyrir nýtízku vélum til ullarvinnslu. Það er
stiU'f samvinnufélaganna, sem hefir gert þessar framkvæmdir hér á
Akureyri mögulegar. Þarf ekki að leiða-rök að því hversu geysilega
þýðingu það hefir fyrir atvinnulíf bæjarins, að iniðstöð ullariðnað-
arins í landinu verður hér við Glerrá.
Halli á rekstri Krossanessverk-
smiðjunnar í sumar
Verksmiðjan fær 500 þús. kr. lán, sem greiðist á
tveimur árum af verksmiðjunni eða bænum
Raforkumálastjóri hefur gert nýtt
fmmvarp um nývirkjun Laxár
Gert ráð fyrir að AkUreyrarbær standi fyrir aukn-
ingu þeirri, sem nú er undirbúin
Síld í Eyjafirði!
Fyrir nokkru var skýrt frá j
síldveiðum Daivíkinga hér íj
blaðinu og þess getið, að
órannsakað væri með öSIu
hvort veruleg síldargengd
væri í Eyjafirði, en margt
benti til þess að svo væri. í sl.
viku kom síldarleitarskipið j
Særún hingað og varð síldar j
vart hér í Oddeyrarál. Köst-
uðu skipverjar og fengu um
20 tunnur af síld, frekar
smárri, en 17% feitri. Nót Sæ- j
rúnar var svo stórriðin, að j
erfitt var að veiða þessa síld í
hana. Um helgina fóru skip-
! verjar af m.s. Akraborg hér út
1 í álinn með handlóð og leituðu
•! síldar. Fundu þeir.stóra torfu
hér á svipuðum slóðum og
Særún. Er ætlunin að Akra-
borg fari með smáriðna herpi-
nót til veiða nú í dag eða
morgun, og e. t. v. reyna fieiri
skip síldveiðaf hér. Sjómenn:
hér úí með firðinum segja að | .
mjög líflegt sé í sjónum um j
þessar mundir, mikið æti,
njergð af fugli og mikið af
hnísu. Telja margir Jíklegt ,að
allvcruleg síldargengd sé hér í
firðinnm. Mun mega vænta
þess, að það mál verði rann-
; sakað nú næstu daga.
Akraborg leitaði síldar í
j gærmorgun hér á Pollinum og
í Oddeyrarál, með dýpíar-
mæli, og fundu skipverjar
nokkrar torfur á Pollinum. —
Mun skipið fara til veiða í dag.
M/s. Narfi leitaði einnig síld-
j ar í gær, utar í firðinum, en
blaðið haíði ekki fréttir af ár-
I angrinum er það fór í press-
j una. Skipverjar á Akraborg
í telja allmikla síld í firðinum.
--'------------:---------->
Matreiðslunáraskeið
Fræðsludeildar KEA
Matreiðslunámskeið Fræðslu-
deildar KEA hafa að undanförnu
verið haldin i félagsdeildum hér
út með firðinum og í gærkvöldi
hófst fyrsta námskeiðið í Ólafs-
firði. Er það fullsetið. Nómskeið
þessi hófust áftur á félagssvæð-
inu um miðjan september sl. og
voru fjögur haldin á Dalvík fyrir
konur þar og úr Svarfaðardal,
með 86 þátttakendum. Tvö nám-
skeið voru haldin í Hrísey og
þátttakendur þar voru 40—50
konur. Að afloknum Ólafsfjarð-
arnámskeiðunum er ætlunin að
halda námskeið fyrir félagskonur
í Grenivík og Höfðahverfi. Smá-
harp.aleikf imi F ræðsludeildar-
innar hófst aftur í haust. Eru
þátttakendur um 60.
Á fundi bæjarráðs nú fyrir
skemmstu gaf i'ormaður stjórnar-
nef ndar Krossanessverksmið j -
unnar, Guðmundur Guðlaugsson,
skýrslu um afkomu verksmiðj-
unnar sl. sumar. Eftir það upp-
gjör, sem nú liggur fyrir, nemur
tap verksmiðjnunar á rckstrinum
í sumar inn 550 þúsund krónum.
Nýbyggingar þær og endur-
bætur, sem gerðar voru á verk-
stniðjunni á sl. vetri og vori,
revndust 400 þús. kr: dýrari en
upphaflega var ráðgert og vantar
verksmiðjuna því um 1 milljón
króna til þess að greiða ósamn-
ingsbundnar skuldir. Verk-
smiðjustjómin hefir leitað eftir
viðbótarláni í Landsbanka ís-
lands og hefir bankinn samþykkt
að lána 500 þúsund krónur gegn
því skilyrði að það lán greiðist
upp á næstu tveimur árum af
bænum, svo framarlega að verk-
smiðjan geti ekki greitt það af
eigin ramlei.k. Verði 250 þúsund
krónur teknar á fjárhagsóætlun
hvort ár, 1949 og 1950.
Á fundi bæjarráðs var sam-
þykkt að sæta þessu lánstilboði
og að taka á fjárhagsáætlun bæj-
arins framlög. til greiðslu á lán-
inu.
Fram til þessa hafa kaup og
endurbætur Krossanessverk-
smiðjunnar verið gerð fyrir láns-
fé, en bærinn sjálfur hefir ekki
lagt fé til verksmiðjunnar. í fyrra
gaf rekstur verksmiðjunnar all-
góða raun, þótt síldarleysisár
væri, en í ár barst verksmiðj-
unni hér mjög lítil síld, sem
kunnugt er, og er það vitaskuld
t
skýringin ó tapi hennar í ár. í
sæmilegri síldarvertíð mun verk-
smiðjan sjálf ekki getað staðið
undir öllum skuldbindingum.
Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á henni og stendur hún
þó í lágu verði miðað við aðrar
síldarverksmiðjur. Er naumast á-
stæða til svartsýni vegna verk-
smiðjunnar þótt hið mikla síldar-
leysisár í sumar skapi nú nokkra
fjárhagsörðugleika.
Eins og fyrr er frágreint hér í
blaðinu, strönduðu samningaum-
leitanir í milli raforkumáiastjóra
ríkisins og rafveitunefndar hér
um fyrirkomulag á sameign ríkis
og bæjar ó iyrirhugaðri aukningu
V
Laxárvirkjunarinnar.
Var svo ráðgert í frumvarpi
því, er raforkumálastjóri lagði
fyrir rafveitunefnd og bæjar-
stjórn á s. 1. vori, að ríki og bær
gerðu með sér samning um sam-
eiginlega framkvæmd nývirkjuíi-
arinnar, sem yrði sameign ríkis
og bæjar. Skyldi Akureyrarbær
leggja fyrri virkjun sína til fyrir-
tækisins með kostnaðarverði, en
hlutúr ríkisins í allri virkjuninni
aukast eftir því sem rafmagns-
notkun frá henni ykist utan Ak-
ureyrarbæjav. Var þá gert ráð
fyrir, að ríkið eignaðist smátt og
smátt helming vii'kjunarinnar
eða meil-a og þar með gömlu
virkjun Akureyrarbæjar með
fyrirstríðsverði. Að þessum kost-
um vildi Akureyrarbær ekki
ganga var samningum um þetta
atriði slegið á frest að tillögu at-
vinnumálaráðunejúisins á s. 1.
vori.
í sl. mánuði barst nýtt.frum-
varpsuppkast frá raforkumála-
stjóra, þar sem gengið er nokkuð
til móts við kröfur Akureyraf-
bæjar. Frumvarp þetta hefir nú
verið til umræðu nokkrum sinn-
um á sameiginlegum fundum
bæjarrráðs og rafveitunefndar og
munu nefndimar samþykkar
meginatriðum þess, en hafa þó
gert nokkrar breytingartillögur.
Matsverð cn ekki kostnaðarverð.
Veigamesta breytingin er sú, að
ríkisstjórnin getur, samkv. hinu
nýja uppkasti, gerzt meðeigandi
að Laxárvirkjuninni með því að
kaupa helming mannvirkja
hennar, en það þó fyrst þegar
auka þarf virkjunina fram yfir
það að fallið í gljúfrunum við
Brúar sé virkjað til hálfs, enda er
þá miðað við að allt afl þess sé
18000 kw , en kaupverðið getur
ríkisstjórnin innt af liendi með
því að taka á sig ábyrgð á til-
svarandi hluta lána og annarra
greiðsluskuldbindinga fyrirtæk-
isins. Kaupverð mannvirkja. sem
fyrir eru nú, skal, ef samkomulag
næst ekki, ákveðið mað mati
samkvæml Iögum um eignarnám
(í fyrra uppkasti var gert ráð
fyrir kostnaðarverði), en kaup-
verð þeirra mannvirkja, sem hafa
verið gei'ð eftir að lög þessi hafa
verið sett, skal vera kostnaðar-
verð, að frádreginni eðlilegri
fvrningu.
í meðförum bæjarráðs og raf-
veitunefndar hefir vevið gerð sú
breytingartillaga við þessi
ákvæði, að í stað þess að hlut-
deild ríkisins komi til er auka
þarf virkjunina fram yfir hálf-
virkjun fallsins í gljúfrunuitl,
komi það ákvæði, að þegar hafin
verður virkjun, næst eftir þeirri,
sem nú er í undh'búningi, geti
ríkið gerzt meðeigandi Laxár-
virkjunar.
20 milijón króna lón.
í frumvarpi raforkumála-
stjóra er gert ráð fyrir heimild
til ríkisstjórnarinnar um allt að
17 millj. króna ábyrgðarheimild
á láni, er bærinn tekur til ný-
virkjunarinnar, en í breytingar-
tillögu bæjarins er gert ráð fyrir
20 millj. kr. láni, þó eigi yfir
85%. af kostnaðai’verði mann-
virkisins.
Gera má ráð fyrir, að samning-
ar takist milli ríkis og bæjar í
aðalatriðum á grundvelli þessa
frumvarpsuppkasts og að bærinn
standi fyrir vii'kjun þeirri, sem
nú er undirbúin.
Framkvæmdirnar í sumar.
Á fundi rafveitunefndar fyrir
skemmstu var skýrt frá fram-
kvæmdum við Laxá í sumar. Eru
þær þessar: Reistui' hefur verið
svefnskáli fyrir 60 manns, reistur
geymsluskáli fyrir trésmíðavélar
og steypt íbúðarhús, sem nú er
orðið fokhelt. Gert er ráð fyrir
að 3—-4 smiðir vinni við innrétt-
ingu skálanna og hússins fram
eftir vetri.
Danskt sementskip
skemmdi hlifðarranann
á Torfunefi
Nú rétt fyrir mánaðamótin kom
hingað danskt skip með sement.
Þegar skipið var að leggjast að
bryggju, 28. f. m., rakst það á
hlífðarranann, sem er norður úr
Torfunefsbryggjunni og laskaði
hann. Rani þessi var byggður á
sl. ári með ærnum kostnaði og er
ætlaður til hlífðar skipakvínni.
Bærinn mun hafa óskað mats á
skemmdunum.
F ramsóknarmenn
ræða verzlunarmálin
Framsóknarfélag Akureyrar
hefir umræðufund um verzlunar-
málín annað kvöld í Gildaskála
KÉA. Umræðuefni eru verzlun-
armálin og hið nýja frumvarp
nokkurra þingmanha flokksins.
Frummælandi er dr. Kristinn
Guðmundsson.