Dagur


Dagur - 10.11.1948, Qupperneq 1

Dagur - 10.11.1948, Qupperneq 1
F orustugr einin: Fiórlagafrumvarpið: aukinn kostnaður við embættis- mennskuna, minni framlög til framkvæmda. AGUR * ...... ■1 1 - 11 1 Fimmta síðan: Merkileg grein um stjórnar- skrármálið eftir Erlend Björnsson bæjarstjóra í Seyðisfirði. XXXI. árg. Akureyri, miðvikudaginn 10. nóvember 1948. Heildarmiiflutniiiffur yefuaðarvöru er mikiIL eu saiut er ] Miklar jarðabófifrarakvæmdir r a sumar Sknrðgrafa Ræktunarsambands Svalbarðs- strandar og Grýtubakkahrepps hefur grafið 50-60 þúsund teningsmetra HiiitdeiW héraðanna af heildarinn- flutningimm allt of lítill - Nanosyn- legt a§ lialda fast fram kmfimum nm aukið viðskiptafrelsi Á'umræðuíundi Framsóknarfélags Akureyrar um verzlunarmálin sl. fimmtudagskvöld, kom fram sú skoðun, að helzta viðfangsefni landsmanna nú í sambandi við verzlunarmálin, ætti að vera að lialda fast fram kröfum sínum um aukið réttlæti í skiptingu inn- flutningsins í milli landsfjórðunganna og höfuðborgarinnar og að krefjast þess, að landsmenn sjálfir fengju að ráða því, hvaða aðilar annast innflutningsverzlunina fyrir þá. Dalvíkurbátur í hrakningum f fyrrinótt og gærmorgun var tekið að óttast um vélbát- inn Gunnar Pálsson frá Dal- vík, sem fór í róður á sunnu- dagskvöld og lagði línu sína á fremra Skagagrunni. Um miðjan dag á mánudag var báturinn búinn að draga lín- una og mun afli hafa verið ágætur. Seimii part mánudags gerði afspyrnu austan rok. Höfðu bátverjar samband við land í gegn um talstöð sína og létu illa af veðrinu. Er kom fram á kvöldið rofnaði sam- band við bátinn og heyrðist ekki til hans fyrr en í gær- morgun, er talstöðin í Héð- insfirði náði sambandi við hann. Var báturinn þá áleið íil lands og væntanlegur til Dalvíkur seinni partinn í gær. Mun hann hafa náð þangað heilu og höldnu. Gunnar Páls- son es 20 snjál. bátur, formað- ur er Stefán Gunníaugsson, skipverjar samtals 4. Veður- spá á sunnudagskvöldið var allsæmilcg, en síðari hluta mánudagsins gerði ofsaveður af austri, sem stóð fram á þiiðjudagsmorgun. Aðrir Dal- víkurbátar, sem reru á sunnu- dagskvöld, munu ekki hafa sótt eins langt og Gunnar Pálsson og náðu þeir allir landi þegar á mánudagskvöld. Góð aflasala í Bretlandi í sl .viku seldu tvö skip báta- fisk í Bretlandi, á vegum Fisk- sölusamlags Eyfirðinga. M/s. Auður seldi í Fleetwood 3. nóv., 1030 kit, fyrir 4201 sterlingspund, og m/s. Ingvar Guðjónsson seldi 4. nóv. 2138 kit fyrir 8048 sterl- / ingspund. M/s. Straumey mun selja í Bretlandi í dag'. „Súlan“ fór áleiðis til Bretlands í fyrradag með fullfermi fiskjar og m/s. Akraborg tekur nú fisk hér í firðinum. Flugfélögin segja upp starfsfólki Bæði flugfélögin íslenzku hafa sagt upp starfsfólki sínu öðru en flugmönnum millilandavéla, frá n. k. áramótum, vegna uppsagnar flugvélavirkja á samningum og fyrirsjáanlegrar vinnudeilu, að því er Vísir skýrir frá Snemma á s.l. vori tókst Rækt- unarsambandi Svalbarðsstrandar og Grýtubakkahrepps að fá keypta skurðgröfu og þar með hefja stórvirka jarðabótafrain- kvæmdir á ræktunarsvæðinur Skurðgrafan tók til starfa hér um miðjan maímánuð s. 1. og hefur unnið sleitulaust í allt sumar. Dagur snéri sér nýlega til for- manns Ræktunarsambandsins, Sverris Guðmundssonar bónda á„ Lómatjörn og spurði hann frétta af framkvæmdum. Sverrir sagði að svo hefði verið um samið að unnið yrði með skurðgröfunni að framræslu og þurrkun lands þhnnig, að hún hæfi starf syðst á ræktunarsvæð- þ. e. innarlega á Svalbarðsströnd og héldi svo út eftir, til Höfða- hverfis. Samkvæmt þessu hófust framkvæmdirnar á Veigastöð- um á Svalbarðsströnd um miðjan maí. Hefur verið lialdið út ströndina eftir því sem lokið hefur verið verkinu og mun nú eftir vinna á tveimur bæjum á ströndinni. Er svo ætlað að skurðgrafan byrji í Grýtubakka- hreppi í vor, en þar eru mikil verkefni fyi'ir hendi. Sverrir sagði að vinnsla skurð- gröfunnar hefði gengið vel í sumar og vélin reynst vel. Tveir menn úr Svarfaðardal hafa stjórnað greftrinum, þeir Vil- helm Þórarinsson og Hjálmar Jónsson. Taldi hann mikið happ fyrir Ræktunarsambandið að hafa fengið svo duglega og vana menn til starfsins. Búið er að grafa skurði samtals 50—60 þús. teningsmetra í sumar. Ekki kvað Sverrir hægt að segja að svo stöddu hvað hver teningsmetri kostaði, eða ekki fyrr en reikn- ingar verða uppgerðir, um ára- mót n. k. Onnur ræktunarsam- bönd hér í héraðinu hafa einnig verið athafnasöm. Mun blaðið reyna að fá fregnir af starfi þeirra innan skamms. • íslenzknr togari á Grænlaiidsmiðnm Síðastl. miðvikudag lagði tog- arinn „Marz“ frá Reykjavík af stað þaðan til Vestur-Grænlands. Er ætlun útgerðarinnar að skipiS reyni fyrir sér þar um veiðar, þar sem afli á miðian togaranna hér viS land hefir reynst mjög litill síðustu vikumar. Miklar fregnir hafa að undanförnu gengið um fiskmergð við Grænland. Til fundarins var boðað til þess að ræða verzlunarmálin almennt og tillögur Framsóknarmanna, sem nýlega hafa verið lagðar fram í frumvarpsformi á Alþingi. Flutti dr. Kristinn Guðmundsson ýtarlegt framsöguerindi um verzlunarmálin almennt og fyr- irkomulag þeirra hér á landi síð- ustu áratugina og rakti síðan ýt- arlega hið nýja frúmvarp Fram- sóknarmanna. Fjörugar umræður urðu á fundinum og kom þar m. a. fram hörð gagnrýni á skömmtunarfyr- irkomulaginu og þeim órétti, sem landsfjórðungarnir eru nú beittir í skiptingu innflutningsins. Vefnaðai'vöruinnflutningur fyrir 20 inilljónir. Á fundinum benti Jakob Frí- mannsson framkvæmdastj. á þá staðreynd, að í sumar hefði Við- skiptanefndin gefið blöðunum þær upplýsingar, að þá hefði ver- ið búið að veita leyfi fyrir vefn- aðarvörum fyrir 19 milljónum. Ætla mætti eftir þessu, að leyfis- veitingar til ágústloka hefðu numið a. m. k. 20 milljónum. Þetta væri í rauninni mikill inn- flutningur, en hann væri ekki í neinu samræmi við það vöru- magn, sem verzlanir úti um land fá. Ef þessum leyfisveitingum hefði verið skipt á landsfjórð- unga og héruð, svo sem ætlast er til í tillögum kaupstaðaráðstefn- únnar og Framsóknarmanna. hefði t. d. mátt gera ráð fyr- ir, að Akureyri, og það verzl- unarhérað, sem bænum er tengt, hefði fengið a. m. k. 8% af þessu vörumagni, eða vefnaðarvörur fyrir 1,6—2 millj. króna. Staðreyndin væri hins vegar sú, að á öllu þessu ári mundi vefnaðar- vöruskammtur verzlunar- héraðsins aðeins nerna nokk- ur hundruð þúsundum króna, eða langtum minna magni, en hæfilegt væri mið- að við hcildai'innflutninginn. Spurningin væri þá sú, hvað hefði orðið af þessum vefnaðar- vörum. Skýringin lægi að nokkru leyti í því, að búið væri að, koma þeirri skipan á, að húsmóðirin gæti ekki lengur fengið sængur- veraefni í búðunum, heldur þyrfti að kaupa þau frá sængur- veragerð í Reykjavík. Allar þess- ar „gerðir“ — koddaveragerðir, axlabandagerðir, sokkabanda- gerðh’, vinnufatagerðir, sauma- stofur o. s. frv. o. s. frv. tæku til sín mikinn hluta vefnaðarvöru- innflutningsins og landsmenn al- mennt væru neyddir til þess að kaupa þessar vörur frá fram- leiðslufyrirtækjum Reykvíkinga, í stað þess, að geta ráðið því sjálfir hvort þeir keyptu þær af þeim, eða létu búa þær til heima eða á eigin verkstæðum. Ef kröf- um kaupstaðaráðstefnunnar í fyrra væi'i fylgt eftir og sú breyt- ing, sem þar var gert ráð fyrir, viðtekin af ríkisvaldinu, , væri komið í veg fyrir þennan órétt og (Framhald á 11. síðu). Enn gleymdi póststjórnin að auglýsa! Um mánaðarmótin fækkaði póststjórnin ferðum á leiðinni Akureyri-Reykjavík úr dagleg- um ferðum í 2 á viku. Hvergi var þessi breyting auglýst og hefur póststjórninni því enn láðst að gera almenningi viðunandi grein fyrir fyrirkomulagi ferða sinna, svo sem sérleyfishafar almennt gera þó. Þá virðist það og all- undarleg ráðstöfun að halda uppi dagleg'um ferðum allan október en fækka þeim í tvær á viku í nóvember. Eðlilegast virðist að halda ferðum áfram a. m. k. 5—6 sinnum í viku, meðan heiðar eru færar. Var sú venjan hér áður en póststjórnin og ríkisvaldið tóku þennan rekstur í sína um- sjá.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.