Dagur - 10.08.1949, Side 1
Forustugreinin:
Tillögur verklýðsfélaganna
í dýrtíðarmálunum.
Fiminta síðan:
Hin nýja breiðfylking Al-
þýðuflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins.
XXXII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 10. ágúst 1949
32. tbl.
Brezki laxveiðisnilling-
urinn hrifinn af Laxá í
Aðaldal
Brezki laxveiðisnillingurinn
Cap. T. L. Edwards hefir dvalið
hér á landi undanfarnar vikur á
vegum Stangaveiðifélags Reykja-
vikur, farið víða urn og veitt í
ntörgum ám. í viðtali við Vísi nú
fyrir nokkru mdögum, lét hann
svo ummælt, að ísland væri bezta
laxveiðilandið, sem hann hefði
heimsótt.
Sérstaklega var hann hrifinn af
Laxá í Aðaldal. „Laxá í Þingeyj-
arsýslu er einhver sú allra
skemmtilegasta veiðiá, sem eg
hefi nokkurn tíma komið í,“ sagði
hann. „Hún er sérstaklega góð
hvað það snertir að prýðilegir
veiðistaðir eru hver við annan á
stóru svæði. Auk þess er varla
hægt að hugsa sér betri á til þess
að veiða með „spinning“.‘‘ Capt.
Edwards veiddi mjög vel í Laxá.
Meðalþungi þeirra laxa, sem hann
veiddi þar, var 16 pund. Edwards
á met í fluguköstum, hefir kastað
77 metra. Á sýningum við Elliða-
árnar í Reykjavík hefir hann
kastað um 60 metra.
Sami „dauðinn“
á síldarmiðunum
Engin teljandi síldveiði hefir
verið þessa síðustu daga, enda
hefir veður verið óhagstætt mest
af. í gær mátti heita komið sæmi-
legt veiðiveður og varð þá síldar
vart sunnan við Langanes, en lít-
ið var það. Yfirleitt ríkir sami
„dauðinn“ á miðunum og minnka
vonirnar u mað úr rætist óðfluga.
Mun síldarflotinn naumast halda
inikið lengur áfram leitinni, ef
ekki rætist úr nú alveg næstu
daga.
Fullvísf falið ðS Alþingiskosningar fari fram í haust
Dr
/1 i.i *
Mikill mannfjöldi á héraðsháfíð
Framsóknarmanna á Hrafnagili
i
Vaxandi þróttur í starfi Framsóknarfélaganna
Þrátt fyrir óhagstætt veður á sunnudaginn var, sótti fjöldi manna
héraðshátíð Framsóknarmanna, sem haldin var að Hrafnagili síðastl.
sunnudag. Voru hátíðargestir bæði úr Eyjafjarðarsýslu og úr bæn-
um. Vegna kalsaveðurs og rigningar annað slagið, var horfið frá þvi
ráði að hafa samkoniuna í reit félaganna í Hrafnagilslandi, og fór
sanikoman fram í samkomuskálanum að Hrafnagili. Eru húsakynni
þar mikil og góð til slíkra fundahalda.
Framboð Framsóknarflokksins hér ó Akureyri við næstu Alþing-
iskosningar hefir nú verið ákveðið. Verður dr. Kristinn Guðmunds-
sori skattstjóri í kjöri. Var framboð hans einrónia samþykkt á ijöl-
mennum fulltrúafundi Framsóknarfélaganna hér b ænunt í sl. viku.
við héraðsskólann á Núpi, en las
síðan til stúdentsprófs oglauk því
árið 1920. Hann sigldi til fram-
haldsnáms og las hagfræði við há-
skólann í Kiel og Berlín. Lauk
hann doktorsprófi í hagfræði við
Kielarháskóla árið 1926. Árið
1929 varð hann kennari . við
Menntaskólann á Akureyri og
gegndi því starfi til ársins 1944, er
hann var skipaður skattstjóri á
Akureyri. Því embættrhefiriianh
gegnt síðan. - -
Ðr. Kristinn hefir auk þessara
starfa gegnt fjölda trúnaðarstarfa
fyrir ríki og bæ. Hefir lengi setið
í niðurjöfnunarnefnd, fasteigna-
matsnefnd, verið endurskoðandi
hjá sýslumönnum auk fjölda ann-
arra trúnaðarstarfa. Hann á sæti
í framtalsnefnd eignakönnunar.
Dr. Kristinn er glæsimenni í
framkomu, hann er mjög vinsæll
og mikilsvirtur embættismaður
og sökum mannkosta sinna,
þekkingar og reynslu prýðilega
hæfur til þingmennsku. Væri það
vissulega sómi fyrir Akureyi-inga,
að senda svo fjölhæfan ágætis-
mann á þing.
Eins og kunnugt er var Fram-
sóknarflokkurinn næst stærsti
flokkur bæjarins í Alþingiskosn-
ingunum 1946. Mikill áhugi er
meðal flokksmanna og annarra
frjálslyndra borgará í bænum að
efla svo gengi flokksins í næstu
kosningum, að dr. Kristinn verði
fulltrúi bæjarins á Alþingi næsta
kjörtímabil. Sterkar líkur eru og
fyrir því, að það megi takast.
Eins og kunnugt er var Þor-
steinn M. Jónsson skólastjóri í
kjöri af hólfu Framsóknarmanna
í síðustu Alþingiskosningar. Var
það einhuga álit Framsóknar-
manna að fara þess á leit við
hann, að hann væri aftur í fram-
boði fyrir flokkinn. Þorsteinn
hafði óður lýst því yfir að hann
mundi ekki gefa kost á sér til
framboðs aftur ög varð þeirri
ákvörðun ekki breytt. Studdi
Þorsteinn eindregið að því að dr.
Kristinn yrði í kjöri hér. Þótti
öðrum flokksmönnum og einsætt
að leita til hans, að Þorsteini frá-
gengnum. Varð það síðan að sam-
komulagi að dr. Kristinn dró sig
í hlé við framboð í Eyjafjarðar-
sýslu, en þar skipaði hann 2. sæti
á lista Framsóknarmanna í síð-
ustu kosningum, og tók einróma
áskorun fulltrúaráðs Framsókn-
arfélaganna um að verða í kjöri
hér.
Dr. Ki'istinn er bæjarmönnum
öllum kunnur og óþarft að kynna
hann hér í löngu máli. Hann er
fæddur árið 1897 að Króki á
Rauðasandi, stundaði fyrst nám
Hátíðin hófst laust eftir kl. 3.
Bernharð Stefánsson alþingis-
maður setti mótið meo ræðu og
stýrði því síðan. Aðalræðuna
flutti Eysteinn Jónsson mennta-
málaráðherra. Flutti hann ýtar-
legt og snjallt erindi um stjórn-
málaviðburði síðustu ára, horf-
urnar nú og líkurnar fyrir því, að
landsmenn verði að fella dóm um
stefnur flokkanna í almennum
kosningum í haust. Þá fluttu Jó-
hann Elíasson lögfræðmgur og dr.
Kristinn Guðmundsson snjallar
ræður, Jóhann Konráðsson söng
nokkur íslenzk lög með aðstoð
Jakobs Tryggvasonar og var hon-
um ágætlega fagnað. Pétur Jóns-
son frá Hallgilsstöðum skemmti
(Framhald á 8. síðu).
Templarar sækja um
lóð fyrir samkomuhús
og bíó
Fyrir síðasta bæjarstjórnar-
fundi var erindi frá Góðtemplara-
reglunni á Akureyri um lóð fyrir
væntanlegt samkomuhús og bíó,
sem reglan hyggst að byggja
sunnan Gránufélagsgötu, austan
fyrirhugaðs áíramhalds Hóla-
brautar. Bæjarráð hafði fyrir sitt
leyti samþykkt þá skipulags-
breytingu, sem til þess þarf að
byggt verði slíkt hús á þessum
stað, en benti hins vegar á að
Góðtemplarar hafi aðeins bróða-
birgðaleyfi til bíóreksturs í húsi
sínu Skjaldborg.
Senilegt, að st jómin segi af sér í þessari viku.
Stöðugir viðræðufundir í stjórnmálaflokkunum
þessa síðustu daga.
Fréttaritari blaðsins í Reykjavík símaði blaðinu í gær, að fullvísl
sé nú talið í höfuðborginni að Albingiskosningar fari fram í haust,
scnnilega um miðjan október. Eins og kunnugt er gerði Framsókn-
arflokkurinn kröfu til þess á sl. vori, að flokkarnir, sem að ríkis-
stjórninni standa, gerðu það upp nú í sumar, hvort þeir gætu staðið
saman að ráðstöfunum til þess að minnka dýrtíðina og koma at-
vinnurekstri landsmanna aftur á arðbæran grundvöll. Framsóknar-
menn hafa fyrir alllöngu Iagt tillögur í þessum inálum fyrir sam-
starfsflokka sína í ríkisstjórninni og hafa leitað eftir svörum um
hvort hinir flokkarnir vildu sainþykkja þær eða flytja gagntillögur,
sem mögulegt reyndist að ná samkomulagi um.
Fram til þessa hafa Alþýðu-
flokkurinn og Sjálfstæðisflokkur-
inn hvorugt gert, svarað mála-
leitun Framsóknarmanna eða
flutt gagntillögur um nauðsyn-
legar ráðstafanir. Munu Fram-
sóknarmenn því nú næstu daga
fylgja eftir samþykktum mið-
stjórnar og héraðsfunda flokksins
á þessu sumri, og hverfa úr ríkis-
stjórninni, nerna hinir flokkarnir
taki upp breytta stefnu.
Viðræðufundir síðustu daga.
Nú upp úr helginni hafa verið
viðræðufundir innan stjórnmála-
flokkanna og innan ríkisstjórnar-
innar, og herma fregnir úr Rvík,
að l.ítil líkindi séu á samkomulagi
og megi fullvíst telja, að kosning-
ar verði ákveðnar í október í
haust. Hins vegar ríkir nokkur
óvissa um það, hvernig stjórn
landsins verði háttað fram til
kosninga. — Framsóknarmenn
leggja til að stjórnin biðjist
öll lausnar og flokkai'nir skjóti
ágreiningi sínum til þjóðarinnar.
Hins vegar vinna sterk öfl í hin-
um flokkunum að því, að hin
bróðurlega eining, sem verið
hefir með Sjálfstæðisflokknum og
Alþýðuflokknum, haldist áfram
þessir flokkar sitji áfram í stjórn-
inni, þótt ráðherrar Framsóknar-
flokksins hverfi úr henni. Var
ekki vitað í gær, hvað yrði ofan á
í Alþýðuflokknum í þessu máli.
Nin samvinna.
Af skrifum blaða Alþýðuflokks-
ins og Sjálfstæðisflokksins er svo
að sjá, sem ekkert lát sé á sam-
starfi foringjaliðs þessara flokka.
Vinna málgögn beggja flokkanna
ósleitilega að því að rægja tillög-
ur Framsóknarmanna í dýrtíðar-
málunum (þ. á. m. tillögur, sem
ganga mjög í sömu átt og tillögur
þær, sem Alþýðusamband íslands
bar fram við ríkisstjórnina á sl.
vori, en ráðamenn þessara flokka
vildu ekki sinna þar, sbr. frásögn
á bls. 5) og reyna að telja lands-
mönnum trú um, að það sá óheið-
arlegt af Framsóknarflokknum að
vilja láta kjósendur fella dóm um
þann mikla ágreining, sem nú er
uppi meðal borgaraflokkanna um
starfshætti í ríkisstjórninni. —
Landsmenn sjá þó gjörla í gegn-
um þennan blekkingavef. Engum
skyni bornum manni blandast
hugur um það lengur, að bráð
nauðsyn er að gei;a sem allra
fyrst róttækar ráðstafanir til þess
að rétta við fjárhag landsins og
atvinnuveganna. Réttinætt er og
sjálfsagt að kjósendur felli dóm
sinn um stefnur flokkanna í þeim
málum. Framsóknarflokkurinn
krefst þessara aðgerða, hinir
flokkarnir telja þær enga nauð-
syn og er svo að sjá af blöðum
þeirra, sem þeir telji þeirra enga
þörf. Þegar málum er svo komið,
væri óheiðarlegt af stjórnmála-
flokkunum og ríkisstjórninni að
halda áfram málamyndasam-
starfi, sem ekki gæti falið í sér
neina lausn á vandamálum þjóð-
arbúskaparins. Kosningar í haust
eru því réttmætar og sjólfsagðar.
Þá segir þjóðin sjálf til um það,
hvort hún vill ábyrga stjórnar-
stefnu, sem vinnur heiðarlega að
því að uppræta meinsemdirnar úr
fjárhagsmálum þjóðarinnar, eða
hvort hún vill halda þeirri ráð-
leysisstefnu, sem einnkennt hefir
stjórnarfarið nú síðustu vikurnar,
síðan bandalag Alþýðuflokksins
og Sjálfstæðisflokksins komst í
algleyming.
SÍS-skip á Akureyri
Hér er um þessar mundir norskt
skip ó vegum SÍS og losar se-
ment. Skipið hefir losað sement
á Austfjörðum og fer til fleiri
hafna hér nyrðra. Hvassafell er
nýlega komið með timburfaiTn
frá Finnlandi. Kom skipið til
Austurlandsins og losaði á höfn-
um þar og losar nú á höfnum fyr-
ir norðan og vestan. Þá kom í
gær kolaskip á vegum SÍS.
Framboð ákveðin
Akveðið hefir verið að Ásgeir
Bjarnason bóndi í Ásgarði verði í
kjöri fyrir Framsóknarflokkinn í
Dalasýslu og Hafsteinn Pétursson
bóndi á Gunnsteinsstöðum í
Austur-Húnavatnssýslu.