Dagur - 10.08.1949, Side 8
8
Bagitk
Miðvikudagitin 10. ágúst 1049
Fór ufan með sauðaskipi 1910 -
kom heim eftir 40 ára útivist
Stutt samtal við Halldór Bjarnason
frá Hliðarhaga
I sl. viku kom hingað til bæjar-
ins 66 ára gamall Eyfirðingur, í
fyrstu heimsókn sína síðan 1910.
Þetta er Halldór Bjarnason frá
Hlíðarhaga í Eyjafirði. Hann fór
utan héðan frá Akureyri, með
sauðaskipi til Belgíu 1910, hélt
síð'an til Danmerkur og þar hefir
hann dvalið síðan, fyrst á Jót-
landi, en síðan 1014 í bænum
Horsens og þai- er heimili hans.
Halldór hefir stundað ýms störf
í Danmörku, m. a. landnám á
Jótlandi, en er nú hættur störf-
um fyrir aldurs sakir þótt hann sé
kvikur á fæti og unglegur mjög,
og lagði nú leið sína hingað heim
til þess að eyða hér 2—3 mánuð-
um og heimsækja ættingja og
vini.
Dagur ræddi stutta stund við
Halldór nú á dögunum. Hann
talar því sem næst lýtalausa ís-
lenzku þrátt fyrir þessi löngu
útivist og þykir nú gott að vera
kominn heim til stuttrar dvalar,
en hann kvað sem sér hefði þá
fyrst fundizt hann vera kominn
heim er hann kom hingað til Ak-
ureyrar. Náttúran er hin sama,
sagði hann, en bærinn sjálfur er
orðinn nær því óþekkjanlegur.
Heil stór bæjarhverfi hafa risið
upp síðan sauðaskipið lagði hér
úr höfninni, hin eiginlega Akur-
eyri, sem þá var kölluð — inn-
bærinn — er horfin í skuggann og
nýr bær risinn upp á Torfunefi,
Oddeyri og á brekkúnum.
Hvernig atvikaðist það, að þú
hvarfst af landi burt?
Eg gekk á Hólaskóla árin 1905
—1906 og að því loknu langaði
mig til frekara landbúnaðarnáms
erlendis, helzt í Noregi. Þetta
barst til eyrna Tuliniusi og svo
samdist um með okkur, að eg færi
á hans vegum með sauðaskipi til
Belgíu haústið 1910. Var flutt fé
á fæti héðan úr Eyjafirði og aust-
an af landi. Frá Belgíu hélt eg til
Danmerkur og það atvikaðist svo
að eg réðist til landbúnaðarvinnu
þar og að landnámi á Jótlandi.
Svo kom stríðið 1914 og erfitt var
um siglingar heim, það ár flúttist
eg til Horsens og ílendizt svo þar
og hefi átt þar heimili síðan. Og
hefir líkað vistin þar vel.
Hvernig finnst þér svo umhorfs
hér heima eftir 40 ára fjarveru?
Framfarirnar, dugnaðurinn og
krafturinn í þjóðinni við upp-
bygginguna, virðist mér undra-
vert og eg undrast það því meira,
sem eg hugsa meira um það. Mig
undrar að þjóðin skuli hafa haft
fjármagn og kraft til þess að afla
sér allra þeirra nýju tækja og
véla, sem maður sér hvarvetna og
eg undrast vegakerfið. Við fyrstu
sýn fannst mér það ófullkomið,
en við nánari athugun sé eg hví-
h'kt þrekvirki það hefir verið að
koma þessu vegakerfi um þetta
stóra og erfiða land. Túnin eru
orðin margfallt stæni en áður
var, ný hús eru risin af grunni á
sveitabýlunum, þar er góður
vélakostur o. s. frv. Breytingin
er gífurleg. Og svo hefi eg séð öll
þægindin, sem heimilin hafa yfir
að ráða, t. d. til þess að létta störf
húsmóðurinnar. Rafmagnstæki,
sem þau er hér tíðkast, eru óal-
geng meðal almennings í Dan-
mörku.
En hvað finnst þér þá helzt á
skorta, hvað sérð þú, sem betur
mætti fara?
Um það mætti auðvitað margt
segja líka, það sem eg t. d. rak
augun í hér á Akureyri er það, að
mér finnst áberandi að götur og
hús bera svip hins hálfgerða, en
ekki hins fullgerða og frágengna.
Veit ekki af hverju það stafar,
hvort það er af völdum efnis-
skorts eða af því að hratt
hefir verið unnið. En bær-
inn mundi fallegri ef úr þessu
yrði bætt.
Halldór Bjarnason mun dvelja
hér í bænúm og hjá ættingjum
sínum hér i Eyjafirði nú næstu
vikurnar.
Þróttmikil flokksstarf-
semi á Snæfellsnesi
Nýlega var stofnað Félag ungra
Framsóknarmanna á Snæfells-
nesi. Voru stofnendur 160 talsins.
Formaður félagsins er Alexander
Stefánsson í Ólafsvík. Þá var og
nýlega haldin flokkshótíð á Snæ-
fellsnesi og sóttu hana um 500
manns. Ræðumenn þar voru m. a.
Hermann Jónasson, formaður
flokksins, og Lúðvík Kristjáns-
son, ritstjóri, frambjóðandiFram-
sóknarflokksins við næstu Al-
þingiskosningar.
- Mótið á Hrafnagili
(Framhald af 1. síðu).
með eftirhermum. Loks lék
Lúðrasveit Akureyrar vinsæl
lög undir stjórn Jakobs Tryggva-
sonar. Um kvöldið var dansað í
hinum stóra samkomuskála og
var þar mikill mannfjöldi.
Kvenfélagið í Öngulsstaða-
hreppi hafði tekið að sér að sjá
um kaffiveitingar og voru þær
með miklum myndarbrag.
Héraðsmót þetta fór í alla staði
vel fram og varð til mikillar
ánægju fyrir mótsgesti. Hin ágæta
aðsókn í óhagstæðu veðri sýnir
vaxandi áhuga fyrir starfi flokks-
ins og aukinn þrótt í starfi Fram-
sóknarfélaganna í sýslu og bæ.
Fær meira fé til
umráða
Öldungadeild Bandaríkjaþings
samþykkti nú í vikunni 3600
milljón dollara framlag til Mars-
hall-áætlunarinnar í Vestur-Ev-
rópu Myndin er af Paul Hofman,
framkvæmdastjóra Marshall-
hjálparinnar. Hoffman mælti
eindregið gegn niðurskurði á
fjárframlögum.
Kuldar og úrkomur
síðustu vikurnar
Síðan 24. júní má heita að stöð-
ugir óþurrkar hafi verið hér um
slóðír og hefir heyskapur gengið
erfiðlega síðan. Síðustu dagana
hefir verið mjög kalt og um sl.
helgi snjóaði í fjöll. Voru vestur-
fjöllin hér hvít niður í miðjar
hlíðar á mánudagsmorguninn.
Verður hætt að hafa
dansskemmtanir í
Samkomuhúsinu?
Vorþing Umdæmisstúkunnar
nr. 5, sem haldið var hér í sumar,
sendi bæjarstjórn erindi, þar sem
skorað var á bæjaryfirvöldin að
banna með öllu dansleiki í Sam-
komuhúsinu nema settum skil-
yrðum með eftirliti sé framfylgt.
Á fundi sínum 14. júlí sl. sam-
þykkti bæjarráð að verða við
þessari áskorun og láta setja upp
fasta bekki í sal hússins. Þessi
samþykkt hefir orðið til þess að
forráðamenn 23 félaga og félaga-
samtaka í bænum, hafa sent bæj-
arstjórn erindi, þar sem skorað
er á bæjarstjórnina að setja eigi
upp fasta bekki í húsinu og leyfa
áfram danssamkomur í húsinu,
enda séu þar um skýrar reglur og
ölvaðir menn útilokaðir og beri
félög þau, er húsið hefðu til af-
nota ábyrgð á að sett skilyrði séu
haldin. Er þessi beiðni félaganna
rökstudd með ýtarlegri greinar-
gerð. Mál þetta var til afgreiðslu
á bæjarstjórnarfundi í gær.
Skemmtileg ferð á vegum Ferðafélags Akureyrar
Farið um Kjöl og Kaldadal
Eins og undanfarin sumur hef-
ir Ferðafélag Akureyrar haldið
uppi hópferðum um byggðir og
öræfi landsins.
Fyrsta öræfaferðin var ekki
farin fyrr en um helgina 31. júlí,
en þá var ó áætlun félagsins hóp-
ferð frá Akureyri um Blönduós,
Kjalveg og að sæluhúsi F. F. í.
við Hvítárvatn, en það er sunn-
arlega á Kili, og átti að fara aust-
an Blöndu um Skagafjörð til
baka.
Fregnir, sem bárust um Kjal-
veg, áður en þesSi ferð var farin,
voru allar á einn veg, að hann
væri með öllu ófær sökum klaka
í jörðu og vatnsaga. Hafði F. F. í.
hætt við áætlunarferð sína upp
að Hvítárvatni um þessa helgi,
eftir að leiðin hafði verið könnuð.
Hópurinn, sem lagði af stað frá
Akureyri í þessa áætlunarferð
F. F. A., laugardagsmorguninn
30. júlí, gerði því fastlega ráð fyr-
ir að mega snúa við, ef Kjalveg-
ur reyndist ófær. En sú varð
raunin, að þessum leiðangri tókst
að komast hringferð til -suður-
lands, um Kjöl og Kaldadal á
tæpum þrem sólarhringum.
Ferðafélögum F. F. A. mun
aldrei hafa gefizt tækifæri til
að kanna fjölbreyttari og stór-
'fenglegari slóðir eða eins marga
sögufræga staði eins og í þessari
ferð. Og þrátt fyrir hraða ferð,
vannst töluverður tími til þess að
sjá og njóta þess, sem íyrir augu
bar. Fararstjóri þessarar ferðar
var Þorsteinn Þorsteinsson. Var
haldið af stað frá Akureyri kl. 8
laugardagsmorguninn 30. júlí í
bifreið F. F. A. og tveim jeppum.
Ökuþórar vóru Stefán Sigurðs-
son, Helgi Pálsson og Björn Guð-
mundsson. — í hópnum voru
einnig: Ólafur Jónsson ráðunaut-
ur og Hjörtur Eldjárn, en þeir
skildu við þennan leiðangur á
Hveravöllum og munu hafa lagt
leið sína yfir Langjökul til Kal-
mannstungu efst í Borgarfirði.
Frá Blönduósi var farið kl. 2
eftir hódegi, en þar bættist Pálmi
Hannesson rektor við í hópinn
með fararskjóta sinn og þótti öll-
um það mikill fengur.
Þaðan var haldið sem leið lá
um Ása og Sléttárdal og upp að
Fx-iðmundarvötnum. Voru þá
fyrir stafni Krákur á Sandi,
Kerlingai-fjöll og jöklarnir þrír,
Hofsjökull, Langjökull og Eiríks-
jökull. Má segja að fei-ðin hafi
sótzt greiðlega utan að á þessum
slóðum þurfti að draga
vörubifreið upp úr svaði, sem
stjóinendur hennar, laxveiði-
menn úr Reykjavík, höfðu ekki
verið nógu forsjálir til að sneiða
hjá.
Upp hjá Sandá ,sem er hliðar-
kvísl Blöndu, sló yfir þoku og
nokkru síðar myrkri og hélzt það
til þess er komið var á Hvera-
velli laust eftir miðnætti. Eftir
að hafa gist i hinu ágæta sælú-
húsi F. F. í. og skoðað hverirta
og ból Eyvindar á Hvei'avöllum,
var haldið suður til Hvítái-vatns
nokkru fyrir hádegi daginn eftir.
Létti þá þokunni og fékkst hið
ákjósanlegasta skyggni. En á
Kili er svo margt að sjá fyrir þá,
sem vilja kynnast öræfunum, að
ekki er gott að vita, hvar á að
byi'ja og hvar á að enda. En við
Hvítárvatn kom fararstjórinn
með þá tillögu, að áætluninni
yi-ði breytt og haldið suður af og
fai'ið Kaldadal til baka. Var því
tekið með hinum mesta fögnuði
og var þá haldið um Bláfellsháls
og niður að Gullfossi. Eftir að
hafa skoðað hann var beygt upp
í Haukadal að Geysi og að lokum
tjaldað að Laugarvatni, en þá var
liðið fast að miðnætti. —
Klukkan níu morguninn eftir
lá leiðin niður undir Þrastalund
í Grímsnesi, en þaðan á Þingvöll.
Var þingstaðurinn og vellii'nir
skoðaðir í sólskini og bezta
veði'i. Eftir tveggja til þriggjaklst.
töf var svo lagt á Kaldadal, sem
gefur Kili ekkert eftir um
hx-ikaleik og liti. — Eftir að
hafa dvalið nokkra stund í Reyk-
holti lagði hópurinn inn á þjóð-
brautin neðst í Norðurárdal, og
til Akureyrar kom hann aftur kl.
4,30 á þriðjudagsnótt. —
B.
Akureyri leggur til
laiifl undir flugvöll í
Eyjafjarðarárhólmum
Flugráð ríkisins, sem var hér á
ferð fyrir nokkru, mætti á bæjar-
í-áðsfundi 28. júlí sl. og ræddi
flugvallarmál við bæjarráðs-
menn. Á fundinum samþykkti
bæjarráðið að Akureyrai'bær gefi
ríkinu afsal fyrir landi undir og
umhvei'fis væntanlegan flugvöll í
Eyjafjarðarárhólmum og leyfði
efnistöku til flugvallarins í landi
bæjarins, án endui'gjalds. Fari
svo, að ríkið noti ekki landið und-
ir flugvöll .skuldbindi það sig til
þess að afsala því aftur til bæjar-
ins án endurgjalds. Þá lagði bæj-
arráð til að Rafveita Akureyrar
leggi fram 100 þús. kr. til bi'eyt-
ingar á háspennulínu Laxáx'virkj-
unar, vegna vallarins.
Bæjarráð hefir samþykkt, að
leggja til að öll vatnsgjöld sam-
kvæmt reglugei'ð Vatnsveitu
bæjarins hækki um 50% fi'á því
sem nú er.