Dagur - 02.11.1949, Side 1
Forustugreinin:
Kommúnistar senda þjóð-
inni tóninn eftir ósigur-
inn.
Fimmta síðan:
Sjávarútvegur í Norðlend-
ingafjórðungi.
Spjall um tíma og peninga.
AXXII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 2. nóvember 1949
46. tbL
Jðfnaðarmenn hér segjast ekki
vilja stjórnarsamsfarf við
Eýðræðisflokkana
Vilja græða sár sín
emangrun
Alþýðumaðurinn, málgagn Al-
þýðuflokksins hér og málsvari
forsætisráðherrans í nýafstöðn-
um kosningum, skýrir frá því í
gær ,að Alþýðuflokkurinn muni
ekki fáanlegur til þess að taka
þátt í stjórnarsamstarfi með liin-
um lýðræðisflokkunum.
Segir blaðið svo, eftir að hafa
spáð því að íormanni Framsókn-
arílokksins verði falið að mynda
ríkisstjórn:
„Sennilega leitar formaður
Framsóknarflokksins einnig til
Alþýðuflokksins, en mun fara
þaðan bónleiður til búðar.... Þá
er eftir sá möguleiki næstur, að
Framsókn og Sjálfstæðið komi
sér saman um stjórn og kann það
vel að fara svo að slíkt takist, því
að báðir flokkar kunna vel til
verzlunar.“
Líklega éiga lesendur að ráða
af þessum síðustu ummælum, að
Alþýðuflokkinn skorti mjög
kunnáttu í verzlun og munu það
þykja nýstíþ'legar upplýsingar.
í þessari Alþýðumannsgrein
kemur greinilega í ljós, hvers
vegna blaðið vill ekki að Alþýðu-
flokkurinn taki þátt i stjprnarsam
starfi með lýðræðisflpkknum. Á
einum stað i greininni segir svo:
„Alþýðuflokkurinn hefir beð
ið ósigur í kosningunum, þegar
á allt er litið, og fengið heim
færðan sanninn, að barnaskap-
ur er fyrir fáliðaðan alþýðu-
flokk að taka þátt í stjórn með
Júlí var sólrík-
astur á Akureyri
í veðurskýrslum fyrir liðið
sumar er m. a. greint frá því,
að mcðalhiti sumarsins hér á
Akureyri hafi verið 10,1 stig
miðað við 9,05 stiga meðalhita
sl. 30 ár. Alilr mánuðir sum-
ai'sins hafa vcrið ofan við
meðalhita, mest september
með 9,3 stig á nióti 6,8 stiga
mcðalhita 30 sl. ár. Meðalúr-
koma hér í, sumar var miklu
minni en undanfarin 30 ár, eða
24 mm. miðað við 35 nmi. á
mcðalúrkomu sl. 30 ár. í
Reykjavík var úrkoman í
sumar þrisvar sinnum meiri
en hér á Akureyri. Sólar-
stundafjöldinn hér á Akureyri
hefir í sumar verið mikið fyr-
ir ofan það, sem venja er. — í
júlímánuði einum 50 klst.
meira en meðallag.
tveimur mannsterkari íhalds-
flokkum.“ Og enn segir svo:
„Alþýðuflokkurinn hlýtur því
að draga þá ályktun af úrslitum
kosninganna, að honum beri
ekki að taka neina ábyrgð á
stjórn landsins fyrst um
sinn...."
Ekki þarf fleiri tilvitnanir til þess
að sýna, hvernig þeim er innan-
brjósts, Alþýðuflokksbroddunum
hér, hvernig svo sem heilsufarið
er suður við Faxaflóa. Kapparnir
hér nyrðra vilja fá einangrun og
frið til þess að græða sár sín, en
ekki taka þátt í því, sem þeim
láðist í stjórnartíð Stefáns Jó-
hanns, að reka heilbrigða um-
bótastefnu í landinu með tilstyrk
Framsóknarflokksins. Sú leið var
jafnan opin, en Alþýðuflokkur-
inn hafnaði henni og fylkti liði
með íhaldinu í ríkisstjórn og
Fjárhagsráði þegar á hólminn
kom. Afleiðing þess kom í ljós í
kosningunum, og það er réttilega
tekið fram hjá Alþýðumanninum,
að það er hættulegur leikur fyrir
lítinn flokk að ganga í fóstbræðra
lag við fjölmennan sérhagsmuna-
flokk. En í stað þess að viður-
kenna villu sína, læra af reynsl-
unni og vinna að heilbrigðri um-
bótastefnu, vilja „alþýðu“-for-
ingjarnir hér nú draga sig í hlé
og engan þátt eiga í því að leið-
rétta þær miklu misfellur, sem
orðið hafa í stjórnartíð Stefáns
Jóhanns með tilstyrk Alþýðu-
flokksýis. Mannlegt erþað e. t. v.,
en stórmannlegt ekki.
„Jörundur44 vekur
mikla athygli
erlendis
Ekkert skip, sem smíðað
hefir verið fyrir Islendinga,
virðist vekja jafn mikla at-
hygli erlendis og togarinn
„Jörundur“, eign Guðmundar
Jörundssonar, útgerðarmanns
hér í bæ. Bera erlend — sér-
staklega brezk — blöð vott um
þetta. Nýlega birti t. d. hið
víðlesna og ágæta brezka blað
Ulustrated London News, sem
margir hér þekkja, heilsíðu-
mynd af skipinu og ýtarlega
lýsingu á byggingu þess og
útbúnaði.
Verðlaunagripir
Golfklúbbs Akureyrar
Mjnningarspjöld Sjúkrahúss
Akureyrar og Elliheimilis-
sjóðs Akureyrar fást jafnan í
bókabúðuni bæjarins.
Myndin er af verðlaunabikurum
þeim, sem Golfklúbbur Akureyr-
ar veitir sigurvegaranum í firma-
keppni klúbbsins. Stærri bikar-
inn er farandgripur, en minni
bikarinn vinnst til eignar. Nánari
frásögn í íþróttaþætti á bls. 6.
Togaraeigendur í Grimsby mót-
mæla aukinni íisksölu íslendinga
brezkum markaði
Eru andvígir nýja togaraláninu
Á aðalfundi eins af hinum innar að styðja íslendinga til
meiri háttar tógarafélögum í
Grimsby um sl. mánaðamót
kom fram hörð gagnrýni á
brezku stjórnina fyrir afstöðu
hennar til íslendinga. Er frá
þessu greint í brezkum blöð-
um, m. a. Fishing News í Ab-
erdeen.
Sámkvæmt frásögn blaðs-
ins taldi forstjóri fyrirtækis-
ins Trawlers Ltd. mikla hættu
á atvinnuleysi innan brezka
togaraútvegsins vegna þeirrar
ráðstöfunar brezku stjórnar-
Verzlunarólagið nýja:
Fyrst komu frostin - svo frostvökvinn
á bílana - Snjórinn verður líka senni-
lega á undan skóhlífunum
Heimskulegar stjórnarráðstafanir sóa gjaldeyri
Nú eftir helgina var fyrst hægt
að fá keyptan frostvökva á bíla,
enda þótt frpst hafi verið hér í
landi annað veifið nú um margra
vikna skeið. Jafnan fer svo, þeg-
ar frost ganga í garð og enginn er
til frostvökvinn, að fleiri og færri
bílar stórskcmmast og verður að
kosta upp á þá dýrri viðgerð og
dýrum varahlutum, sem kosta
erlendan gjaldeyri.
Ástæðan til þess að frostvökv-
inn er svona seint á ferðinni nú
e reinfaldlega sú, að dregið er að
veita innflutningsleyfin svo lengi,
að innflytjendur geta ekki haft
varninginn tiltækan þegar á hon-
um þarf að halda. Úr því að leyfin
voru veitt á annað borð — og
erfitt mun reynast að halda flutn-
ingakerfi landsins gangandi öðru-
visi — átti auðvitað að gera það
svo snemma að varan væri til
þegar hennar þurfti með. í stað
þess draga nefndirnar og ráðin
allt úr hömlu og ráðslagið yerður
beinlínis til þess að eyðileggja
verðmæti og sóa gjaldeyri.
Skóhlífar og snjór.
Nú er kominn nóvember en
enginn snjór er enn í byggð og er
það óvenjulegt mjög. Eðlilegt
væri að hér væri nú allt hvítt af
*
snjó. Ef svo væri, mundi fjöldi
manna eiga í stökustu vandræð-
um með fótabúnað sinn. Skóhlíf-
ar, til varnai' skóm og fótum í
þessu snjóalandi, fást ekki og
haía ekki fcngist um langan ald-
ur. Þegar menn fara að ösla snjó
og bleytu á venjulegum skóm og
ekki betri tegundum en hér fást
að jafnaði, verður það til þess að
skórnir .endast miklu skemur en
ella. Það þýðir að landsmenn
þurfa oftar að kaupa skó og
þeirri þörf verður að fullnægja
með meiri innflutningi. Nú er
sagt að skóhlífar séu væntanlegar
í verzlanir einhvern tíman í vet-
ur, en enginn virðist vita hvenær.
Væntanlega verður snjórinn á
undan skóhlífunum og það þýðir
eyðslu á verðmætum og aukinn
kostnað fyrir almenning. Og
ástæðan er hin sama og fyrr. —
Verzlunarólagið nýja, sem þróast
hefir hér undir verndarhendi
Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu-
flokksins og heimskulegar ráð-
stafanir nefndanna og ráðanna. —
Þannig mætti raunar lengi telja
dæmin.
þess að byggja nýja togara í
Bretlandi og stuðla þannig að
aukinni fisksölu þeirra til
Bretlands. Þessi togaraeigandi
lét m. a. svo um mælt:
„Það hafa orðið mikil von-
brigði að uppgötva, að brezka
ríkisstjórnin hefir, að því er
virðist, veitt samþykki sitt tii
þess, að íslenzka ríkisstjórnin
fengi lán í Bretlandi til þess
að byggja fleiri skip, sem.
hljóta að landa meiri hlutan-
um af afla sínum á brezkum
markaði. íslendingar hafa svo
að segja engan heimamarkað
fyrir fisk. Brezkir togaraeig-
endur voru ekki spurðir ráða
í þessu máli, en þessi stefna
gæti auðveldlega leitt til at-
vinnuleysis í brezka fiskiðn-
aðinum."
Því var enn fremur haldið
fram á fundi þessa togarafé-
lags, að verðfall á fiski í Bret-
landi í sumar hafi að nokkru
leyti stafáð af of miklum inn-
flutningi á fiski og aðallega
fiski úr íslenzkum togurum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn.
sem brezkir togaraeigendur
gagnrýna togarabyggingar ís-
lendinga í Bretlandi. Sömu
sjónarmið hafa einnig komið
fram í ummælum forráða-
manna brezka togaraeigenda-
sambandsins. Hefir stundum
andað kalt til íslendinga og ís-
lenzkra fiskveiða frá brezkum
útgerðarmönnum, og mun
ílgstum íslendingum þykja
slíkt tal ómaklegt margrg.
hluta vegna.
Gengur úr flokknum
Hermann Guðmundsson, fyrrv.
alþm., formaður Verkamannafél.
Hlifar í Hafnarfirði, sagði sig ný-
lega úr kommúnistaflokknum. —
Hann var frambjóðandi komm-
únista í Hafnarfirði i næstsíðustu.
kosningum og uppbótarþingmað-
Framsóknarflokkurinn jók fylgi
sitt uni 17,16% frá 1946
Eins og áður er kunnugt hefir Framsóknarflokkurinn unnið
glæsilegan sigur í þessum kosningum og málefnabarátta hans
þar mcð hlotið viðurkenningu þjóðarUmar. Iilutfallslega hafa
flokkarnir aukið atkvæðamagn sitt frá kosningunum 1946, sem
hér scgir:
Framsóknarfl. jók atkvæðamagn sitt um 17,16%
Alþýðufl. jók atkvæðamagn sitt urn 0,20%
Sósíalistar juku atkvæðamag nsitt urn 7,89%
Sjálfstæðisfl. jók atkvæðamagn sitt um 8,02%
Frainsóknarflpkkui'inn einn hefir bætt við sig fylgi, sé mið-
að við það, hvað kjósendum í landinu hefir fjölgað ó þcssum
síðustu bremur árum.