Dagur - 16.11.1949, Side 1
F orustugreinin:
Yfirráð Moskvumanna í
Sósíalistaflokknum.
Fimmta síðan:
Minningarorð uni Sigurð
skólameitsara eftir Þor-
stein M. Jónsson.
AXXII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 16. nóvember 1949
48. tbl.
Tveir þriðjuhlutar
kaffibirgðanna yoru
í Reykjavík
Fyrra þriðjudagskvöld aug-
lýsti skömmtunarstjórinn af-
nám skaffisölubannsins, sem
þá hafði staðið í nokkra daga
og tílkynnti niðurstöður birgða
könnunar á kaffi í landinu. í
Ijós kom, að birgðir í landinu
voru 33 tonn, þar af í hinum
kaffilausa bæ, Reykjavík,
21,500 kg. Af því magni áfti
einn heildsali 17.280 kg., eða
rösklega liehning af öllum
kaffibirgðum landsins. Morg-
unblaðið hafði haldið því fram
að kaupfélögin og fyyirtæki
þeirra mundu liggja með
kaffibirgðir og kaffiskorturinn
stafaði af því, að Sambandið
hefði hlotið óeðlilega mikinn
skerf kaffiinnflutningsins. —
Birgðakönnun skömmtunar-
stjóra hefir nú upplýst sann-
leikann í málinu. Þjóðin veit
og nú, að Sambandið hcfir
ckki fengið að flytja inn nerna
ub 30% af kaffimagni því, cr
landið þarfnast, en heildsal-
arnir hafa 70% kvóta.
Svalbakur44 seldi
í Bretlandi
Fyrra mánudag seldi Akureyr-
artogarinn Svalbakur rösklega
4100 kit af fiski í Grimsby fyrir
11570 sterlingspund. Er þetta
fyrsta sala Akureyrartogara í
Bretlandi nú um langa hríð og
hefir tekizt ágætlega.
Fjölraenn Framsóknar-
whist á sunnudags-
kvöldið
F. U. F. efndi til Framsóknar-
whistar að Hótel KEA á sunnu-
dagskvöldið. Á slaginu kl. 9, þeg-
ar whistin átti að hefjast voru
komnir fleilri en gátu spilað. —
Voru báðir salirnir þétskipaðir
og spilað á 43 borðum, eða 172
sem spiluðu. Á eftir var síðan
stiginn dans til kl. 1.
Vinsældir Framsóknarwhistar-
anna fara mjög vaxandi hér í
bænum. Rétt er að minna fólk á
að hafa með sér spil og blýanta.
yiðskiptanefnd synjar
um innflutning
heimilistaekja
Akureyrarbæ hefir nýlega bor-
izt svar frá Viðskiptanefnd við
beiðni um að fá að flytja inn
heimilisvélar, aðallega þvottavél-
ar og eldavélar frá Bandaríkjun-
um og Bretlandi. Viðskipta-
nefndin synjaði umsókninni al-
gerlega.
Ríkisúfvarpið mun sækja um fjárfesfingarleyfi fyrir endurvarps-
Forseti íslands krefsf þingræðis-
sfjórnar fyrir mánaðamót
Alþingi sett s. 1. mánudag
stöð hér á næsfa ári
Stækkun endurvarpsstöðvarinnar á Eiðum og
endurvarpsstöð á Akureyri mundi verja landið
fyrir erlendum truflunum
Útvarpsstjórinn, Jónas Þorbergsson, var gestkoniandi hér í bæn-
um í sl. viku og notaði Dagur tækifærið til þess að ná tali af honum
ög leita frétta af framkvæmdum útvarpsins og þá eink'um horfum
um byggingu endurvarpsstöðvar þeirrar hér á Akureyri, sem leyft
var að reist yrði á alþjóðaútvarpsráðstefnu nú fyrir nokkrum árum.
Alþingi var sett sl. mánudag
við hátíðlega athöfn. Allir alþing-
ismenn voru þá mættir til þings.
Þingsctningarathöfnin hófst með
guðsþjónustu og prédikaði séra
Bjarni Jónsson, vígslubiskup. Að
lokinni guðsþjónustu gengu þing-
rnenn í Neðrideildarsal og litlu
síðar forseti íslands, er Ias for-
setabréf um setningu Alþingis
hinn 14. nóvcmber.
Lýsti forseti því næst setningu
þingsins og flutti^síðan ávarp til
alþingismanna. Var allri þessari
athöfn útvarpað, og má óhikað
telja, að ræða forseta hafi vakið
óskipta athygli þjóðarinnar og á-
nægju. Forsetinn ræddi ýtarlega
um myndun ríkisstjórna í þing-
ræðislandi og benti á skaðsemi
þess fyrir þjóðina, að búa við
langvarandi stjórnarkreppur.
Skipar stjórn eftir 30. nóv.
I ræðu sinni sagði forsetinn m.
a. á þessa leið: „Eg skil stjórnar-
skrá vora svo, að er mikið liggur
við — og það liagur mikið við nú
— þá sé það bæði réttur og
skylda forseta, að reyna að skipa
ráðuneyti, innan þings eða utan,
þó það hafi ekki fyrifram trvggð-
an meiri hluta þings.“ — Síðar í
ræðu sinni sagði forsetmn: ,1
samræmi við það, sem eg hei'i
sagt, tel eg rétt að skýra hinu háa
Alþingi frá því á þessum f /rsta
fundi þess, að ef svo skyldi fara,
mót von minni ,að ekki hafi tek-
izt að tryggja nýju ráðuneyti
nægan stuðning fyrir 30. þ. m., þó
helzt fyrr, mun eg líta svo á, að
ekki beri að fresta því lengur, að
eg geri tilraun til þess að skipa
nýtt ráðuneyti, sem Alþingi get-
ur þá hafnað eða sætt sig við —
enda eru þá liðnar fjórar vikur
Félagsfiindiir F U F
í kvöld
Félag ungra Framsóknarmanna
heldur almennan félagsfund að
Gildaskála KEA í kvöld kl. 8.30.
Fundarefni: Inntaka nýrra fé-
laga. Stjórnmálanámskeið. Fram-
sögumaður Tómas Árnason.
Stjórnmálaviðhorf ið. F r amsögu -
maður Sveinn Skorri. Frjálsar
umræður. Önnur mál.
Ungt Framsóknarfólk hér í
bænum er hvatt til þess að sækja
fundinn og taka með nýja félaga.
Fjölmennið!
frá því fráfarandi í-áðuneyti fékk
lausn frá störfum og frá því er eg
mæltist til þess við formenn þing
flokkanna að hefja undirbúning
stjórnarmyndunar — og meira en
mánuður frá því kunn voru úrslit
kosninganna og meira en tvær
vikur frá því að Alþingi kom
saman til fundar.“
Eldur í Hótel
Talsverðar skemmdir
Rétt fyrir hádegi á mánudag-
inn kom upp eldur í miðstöðvar-
klefa í kjallara Hótel Norður-
lands hér í bæ. Miðstöð hússins er
olíukynnt og er þess getið til að
öryggisútbúnaður hafi bilað
vegna rafmagnstruflana, er vart
varð við rétt áður og of mikil olía
hafi runnið inn á ketilinn, en þá
hafi myndast gas er síðan kvikn-
aði í. — Slökkvilið bæjarins kom
fljótlega á vettvang og tók
slökkvistarfið nálega klukku-
stund. Mikinn reyk lagði um allt
hótelið og olli hann skemmdum,
einkum í eldhúsi, einnig urðu
skemmdir á matvælum og öðru í
kjallara. Starfsemi hótelsins mun
stöðvast í bili vegna þessa at-
burðar.
Jólapakkar lianda
íslendingum
erlendis
Viðskiptamálaráðuneytið hefir
ákveðið að leyfa að senda jóla-
pakka til íslendinga og venzla-
menna erlendis. í pökkunum má
aðeins vera: Óskömmtuð íslenzk
matvæli, óskammtaðar prjóna-
vörur úr ísl. úll, íslenzkir minja-
gripir. Hver pakki má ekki vera
þyngri en 5 kg. Leyfi verður að-
eins veitt fyrir einum pakka til
hvers manns. Pakkarnir verða
tollskoðaðir og kyrrsettir ef í'
þeim reynist vera annað en heim-
ilað er. Greina þarf nafn og heirn
ilisfang móttakanda, innjhald
pakkans og nafn og heimilisfang
sendanda. Leyfi þarf ekki fyfir:
bókagjöfum. Leyfi til þess að
senda pakka eru afgreidd í Við-,
skiptamálaráðun., Reykjavík, og
þurfa umsóknir utan af landi að
stílast til þess.
Varasendir fyrir Reykjavík og
nýr sendir fyrir Eiða á næsta ári.
Samkvæmt frásögn útvarps-
stjóra hefur Ríkisútvarpið þegar
fest kaup á 20 kw. sendir, sem
vera á varasendir fyrir aðalút-
varpsstöðina í Reykjavík, og enn-
fremur keypt 5 kw. sendir fyrir
Eiða, en 1 kw. endurvarpsstöðin
þar verður flutt til Hornafjarðar
og notuð fyrir suðausturland,
sem harðast verður úti af völd-
um erlendra útvarpstruflana. —
Eins og kunnugt er var fyrsti út-
varpssendirinn hér 16 kw. að
styrkleika og með honum hóf rík-
isútvarpið starfsemi sína árið
1930. Þessi sendir var stækkaður
í 100 kw. 1938. Reiknað er með
því að útvarpssendistöðvar endist
í 10 ár án endurnýjunar. Eru því
senn liðin 20 ár síðan 16 kw.
sendirinn var settur upp og hefir
sífellt vofað yfir að stöðvun yrði
á útvarpssendingum vegna þess
hve gamall hann er orðinn og úr
sér genginn. Hinn nýji 20 kw.
sendir, sem útvarpið hefir nú
keypt, kemur í stað gamla 16 kw.
sendisins, sem tekinn verður úr
notkun og endurbyggður.
Auknar truflanir eftir
15. marz næstkomandi.
Á útvarpsráðstefnu þeirri, sem
fyrr getur, var úthlutað bylgju-
lengdum og orkumagni til stöðva
hinna ýmsu landa og koma þær
ákvarðanir til framkvæmda eftir
15. marz næstk. ísland tók þátt í
þessari ráðstefnu, en neitaði að
skrifa undir samninginn, ásamt
10 öðrum þjóðum, sérstaklega af
því, að sænskri útvarpsstöð var
leyft að nota sömu bylgjulengd
og Reykjavík. Taldi útvarpsstjóri
að truflanir af völdum erlendra
stöðva mundu fara í vöxt hér
eftir 15. marz og hraðaði útvarp-
ið því eftir föngum byggingu
hinna nýju endurvarpsstöðva, á
Eigum og í Hornafirði og hér á
Akureyri, en alþjóðaleyfi er fyrir
starfrækslu þeirra allra.
Lán hjá Marconi-félaginu.
Útvafpið hefir þegaf fengið:
fjárfestingarleyfi til að koma upp
20 kw. sendinum í Reykjavík, 5
kw. sendinum nýja á Eiðum og
fyrir endurbyggingu núverandi'
Eiiðastöðvar í Hornafirði. En leyfi
til kaupa á nýju stöðvunum var
bundið því skilyrði, að útvarpið
fengi gjaldeyrislán erlendis, og
fékkst það hjá Marconifélaginu
með hagstæðu mkjörum, 5 ára lán
með 3% vöxtum, afborgunarlaust
fyrsta árið. Er þess vænzt, að
þessar stöðvai báðar verði upp-
settar á næsta ári.
Endurvarpsstöð á Akureyri.
Til þess að fullkomna hringinn
og girða landið til varnar erlend-
um útvarpstruflunum, vill út-
varpið koma upp 5 kw. endur-
varpsstöð hér á Akureyri og hef-
ir alþjóðaleyfi til þess að byggja
slíka stöð. Mun útvarpið nú inn-
an skamms sækja um fjárfesting-
arleyfi til íslenzkra yfirvalda fyr-
ir þessum framkvæmdum og velt-
ur að sjálfsögðu á mestu nú, að
það fáist. Afgreiðslutími á slíkri
stöð frá verksmiðjunum erlendis
getur orðið allt að 18 mánuðum.
Fáist nauðsynleg leyfi á næsta
ári ætti slík stöð að geta komizt
upp hér árið 1951. Mundi það
gjörbreyta aðstöðu manna á öllu
Norðurlandi til þess að hlýða á
dagskrá Ríkisútvarpsins og jafn-
framt opna möguleika til sjálf-
stæðrar útvarpsstarfsemi hér. Má
(Framhald á 8. síðu).
Framsóknar-
félögin starfrækja
skrifstofn í vetur
Framsóknarflokkurinn mun
íramvegis hafa opna skrifstofu i
Hafnarstræti 93 (Jerúsalem) 4.
hæð á þessum tíma:
Þriðjudaga kl. 9 —10.30.
Miðvikud. kl. 5.30— 6.30.
FÖstudaga kl. 5.30— 6.30.
Símanúmer er 254.
Þrjú flokksfélög eru nú starf-
andi hér í bænum og hafa þau öll
aðalaðsetur á skrifstofunm. ,
Félagsmenn og aðrir, sem
styðja flokkinn, eru hvattir til
að líta inn á skristofuna. Sérstak-
lega er Framsóknarfólk, sem ný-
flutt er í bæinn hvatt til þess að
líta inn.