Dagur - 14.01.1950, Qupperneq 7
Laugardaginn 14. janúar 1950
D AGUR
7
Ólafur Tryggvi Ólafsson 75 ára
UR BÆ OG BYGGÐ
Hinn 1. des. sl. varð Ólafur
Tr. Ólafsson, Spítalastíg 15
hér í bænum, 75 ára. Þó að
seint sé, finn eg mér skylt að
minnast þessa góða og merka
v i n a r míns og samverka-
manns á þessum tímamótum,
þó ekki væri nema til þess að
þakka honum langa og trygga
vináttu frá því að eg man
eftir honum fyrst og snurðu-
laust samstarf mörg hin síð-
ustu ár.
Ólafur Tryggvi Ólafsson er
fæddur að Borgarhóli í Öng-
ulstaðahreppi 1. des. 1874. Var
hann í karllegg kominn af
merkum eyfirzkum bænda-
ættum. Var faðir hans Ólafur
Ólafsson, bónda í Árgerði,
Stefánssonar, bónda í Stóra-
dal, ólafssonar, bónda á Rif-
— Erlend tíðindi
(Framhald af 4. síðu).
yfirbragð kommúnismans, sem
er andstyggilegast í augum lýð-
ræðissinna. Það er heimskulegt
og árangurslaust að reyna að
gera lítið úr pólitískri hugsjón,
sem á það sameiginlegt með öðr-
um að ætla að yfirfæra eignarrétt
framleiðslutækjanna til almanna-
valdsins, enda þótt hún sé sér-
stæð að því leyti, að þessum ár-
angri verði aðeins náð með blóð-
ugri byltingu, og að eftirfari
þessarar byltingar verði tímabil
einræðisstjórnar, gem grundvall-
ast á ógnarstjórn, og trúir því að
framtíð sósíalismans verði aldrei
örugg, fyrr en kapítalisminn er
þurrkaður út af jörðunni.
Árið 1947 birti unglingamál-
gagnið „Komsomol Pravda“ grein
um Leninismann, og þar var að
finna eftirfarandi ummæli:
„Ást á hinu sósíalíska föður-
landi er án alls efa bundin vax-
andi hatri á öllum heimsvalda-
sinnum og afturhaldsseggjum um
víða veröld. Hatur á óvinum sósí-
alismans er óaoskiljanlegur hluti
sósíalískra hugsjóna og hugsjóna
Leninismans. Hvað er afturhalds-
söm borgaraleg hugsjónastefna?
Svarið er stutt: Lítið á herskara
þá, er Hitler kom sér upp. Þar er
borgaraleg hugsjónastefna. —
Hverja hefur þessi stefna þjálfað
og hverja þjálfar hún í dag? —
Fólk, sem ekki hefur snefil af
heiðarleika, fólk, sem líkist villi-
dýrum, heilar hjarðir af barbör-
um, glæpamenn.“
Þarna er það! Það erum vér,
lýðræðissinnar á Vesturlöndum,
sem Komsomol Pravda lýsir
þannig fyrir hinum ungu og lítt
þroskuðu lesendum sínum. Lenin
hafði rétt fyrir sér, er hann sagði,
að sósíalisminn krefðist þess að
fórnað væri tveimur kynslóðum,
því að það unga fólk, sem alið er
upp í þessari siðfræði og kennt er
að hata allt það, sem frjálsir
menn telja óaðskiljanlega hluta
frjálsrar tilveru, er glatað heimi
mannlegs frelsis, alveg eins og sú
kynslóð er glötuð mannkyninu,
sem var upprætt til þess að
tryggja stjórnarkerfi bolsévíkka
þá aðstöðu, sem það hefur í
dag....“ Fleiri þætti úr bók Be-
dell Smith verða raktir hér í
blaðinu síðar.
kelsstöðum, Magnússonar. —
Ætt móður hans er mér því
miður ókunn. Ólafur ólst upp
með foreldrum sínum á Borg-
arhóli og síðan í Hólshúsum.
Uppkominn fór hann á Hóla-
skóla og útskrifaðist þaðan.
Eftir það var hann um nokkur
ár til heimilis hjá Júlíusi
bróður sínum • að Hólshúsum
og'stundaði þá jarðabætur
hjá bændum og vegagjörð og
var um skeið organisti við
Grundarkirkju. Skömmu eftjir
aldamótin fluttist hann til
Akureyrar og gerðist þá fljót-
lega starfsmaður Kaupfélags
Eyfirðinga og hefir verið það
síðan.
Hinn 16. maí 1904 giftist
hann Magneu Jakobínu Magn
úsdóttur, hinni mestu fríð-
leiks- og ágætiskonu í hví-
vetna. Hún var að mestu leyti
uppalin hjá Júlíusi bróður
hans í Hólshúsum. Hún and-
aðist hér á Akureyri 18. marz
1940. Þau hjón eignuðust þrjú
börn, er upp komust: Þóri,
stýrimann, sem fórst með
„Goðafossi“ á stríðsárunum,
Kjartan, bæjarpóst, og Jó-
hönnu, húsfreyju hér á Akur-
eyri.
Ólafur Tryggvi hefir komið
næsta víða við um dagana, þó
að mér sé ekki kunnugt um,
að hann hafi nokkurn tíma
dvalið langvistum utan Norð-
lendingafjórðungs. Hann átti
ekki- kost a annárri menntun
í uppvexti sínum en þá tíðk-
aðist. En tvennt vildi honum
til láns. Annað var góðir með-
fæddir hæfileikar og mátuleg
framsækni; hitt var, að hann
ólst upp á sérstöku menning-
arheimili, þar sem hann varð
fyrir varanlegum áhrifum frá
bróður sínum og mágkonu.
Sönghneigð og fróðleiksfýsn
var honum í blóð borin, og
lífið gaf honum tækifæri til
að hlúa að þeim hugðarefnum
sínum. Eins og fyrr er getið,
var hann um skeið á unga
aldri organleikari við Grund-
arkirkju, hinn fyrsti af þeim.
Eftir að hann fluttist hingað
til Akureyrar, gerðist hann
starfandi meðlimur horna-
flokksins og var hans stoð og
styrkur um langt skeið. Hann
var líka einn af fyrstu stofn-
endum karlakórsins „Geysis“
og starfaði í honum alllengi.
Minntust núverandi meðlimir
þessara tveggja menningarfé-
laga þess á afmæli hans, og
vottuðu Ólafi þakkir og virð-
ingu með heimsóknum og
gjöfum.
Síðustu árin allmörg hefir
Ólafur verið meðhjálpari við
Akureyrarkirkju. Alla ævi
sína hefir hann verið tryggur
kirkjuvinur, og þeir sunnu-
dagar í lífi hans hafa áreiðan-
lega verið fáir, sem hann hefir
ekki sótt guðshús, ef að tök
hafa verið á. Hann er innilega-
trúhneigður maður og fylgist
þar af áhuga með og á sína
barnatrú ófölnaða. Við prest-
arnir hér á Akureyri, sem
njótum hjálpar hans og að-
stoðar við hverja guðsþjón-
arskuld við hann fyrir sam-
vizkusemi hans, árvekni í
starfinu og snyrtimennsku.
Þar fylgir hugur máli. Og þó
að aldurinn sé orðinn þetta
- Fokdreifar
(Framhald af 4. síðu).
húsinu valinn staður spölkorn
framan við kirkjuna, rétt eiris og
Darna væri bæjarstjórnin á Ak-
ureyri að verki. En þessi bygg-
ingastarfsemi öll verður hin
sögulegasta og málið allt nægi-
legt vítamín til þess að hrista
hina pólitísku deyfð af borgur-
unum. Ekki kann eg að rekja alla
þá sögu, en hápunktur myndar-
innar er, þegar menntamálaráð-
herrann kemur frá París til þess
að vígja húsið með tilhlýðilegri
viðhöfn. Þykir þá sumum bæjar-
mönnum það ekki nægileg vígsla,
að hann svipti fána frá fordyri
hússins, og krefjast þess að verk-
leg vígsluathöfn fari fram. Verða
upp úr þessu öllu miklir viðburð-
ir í bænum, og heldur við upp-
reist og blóðsúthellingum.
Rek eg þessa sögu svo ekki
lengur, minni aðeins- kjósendur á
það, að enginn flokkanna hefur
tekið það upp á stefnuskrá sína,
að ljúka við okkar „forargelsens
hus“ hið fyrsta, og horfir því bág-
lega um að þessu nauðsynlega
verki verði lokið bráðlega. En e.
t. v. gætu þessar ábendingar
mínar orðið til þess að vekja deil-
ur um málið, t. d. um það, hver
flokkanna hafi hrundið málinu
það áleiðis, sem komið er, og
hver muni beita sér fyrir því að
verkinu verði lokið. Kannske
einhver þeirra vilji svo smella
kórónunni á mannvirkið með því
að lofa að beita sér fyrir því að
menntamálaráðherrann komi
norður og vígi húsið. Vafalaust
kunna borgararnir hér sig betur
en borgararnir í fj-anska bænum,
og mundi enginn fara fram á
meira en að hann bryti kampa-
vínsflösku á stafni byggingar-
innar!
— Stjórnmálanámskeið
(Framh. af 2. síðu).
og þær veilur í stjórnarforminu,
sem reynslan hefði fært þjóðinni
sönnur á undanfarið.
Að erindinu loknu fluttu þátt-
takendur 3 frumsamdar framsögu
ræður um ólík efni, sem voru
fyrirfram ákveðin. Þrír þátttak-
endur voru skipaðir til andsvara.
Að lokum var svo fundur sett-
ur, fundarstjóri skipaður og fund-
arritari. Voru svo kappræður um
ýms málefni. Var sérlega gætt
réttra fundarskapa í hvívetna,
leiðbeint um ræðuhöld o. s. frv.
Voru umræður ætíð fjörugar.
Varð alloft að skera umræður
niður, vegna tímaleysis.
Sunnud. 11. des. var námskeið-
inu slitið með sameiginlegri kaffi-
drykkju að Hótel KEA. Voru þar
margar ræður haldnar og kom
öllum saman, um, að slík nám-
skeið sem þetta væru bæði fróð-
leg og skemmtileg. Skilyrðið fyrir
því, að ungt fólk gefi sig að stjórn
málum er fyrst og fremst einmitt
það, að kynna sér stjórnmál og
stefnur til þess að ekki sé alveg
rennt blint í sjóinn. Svo og að
æfast í ræðuflutningi og fundar-
sköpum, til þess að verða hæfari
til þátttöku í félagsstarfi.
hár, þá vona eg að við prest-
arnir, kirkjan og söínuðurinn
megi njóta hans sefri lengst,
því að vandfundinn verður sá
maður, sem algerlega fyllir
það skarð, þegar hans missir
við. Eg vona, að Guð gefi hon-
um líf og heilsu sem lengst. ,
F. J. R.
Sjötugur: Hallgrímur Þor-
bergsson, bóndi að Halldói-sstöð-
um í Laxárdal í S.-Þing. varð
sjötugur s. 1. sunnudag.
Fimmtug: Síðastliðinn sunnud.
(8. jan.) varð frú Kristjana Stein-
lói’sdóttir, Aðalstræti 18 hér í bæ
fimmtug.
Hjiiskapur: Ungfrú Valný Eyj-
ólfsdóttir frá Bárðarstöð.um, Loð-
mundarfirði og Þórarinn Loftsson
bókbindari, Akuréyri.
Hjónaefni: Ungfrú Steinunn
Björnsdóttir, Akureyri og Krist-
ján Benediktsson, málaranemi
(frá Jarlsstöðum í Höfðahverfi).
Ungfrú Marta Kristín Stefáns-
dóttir frá Skútustöðum og Sig-
urður Bárðarson, Akureyri.
Ungfrú Björg Steindórsdóttir,
Skriðu, Hörgárdal og Kristján
Sævaldsson frá Sigluvík.
Ungfrú Guðrún Haraldsdóttir
(Guðmundsdóttir, Brekkug. 37)
og stud. jur. Nils Gjesvold, Osló.
Ungfrú Ólöf Helgadóttir, Stafni
Reykjadal og Ki’istjón Jósefsson,
Breiðumýri, Reykjadal.
Ungfrú Árnína Guðnadóttir,
Lundi, Fnjóskadal, og Sigdór
Hallsson, Grænuhlíð, Fnjóskadal.
Ungfrú Sigríður Gísladóttir,
Grímsgerði, Fnjóskadal og Agnar
Þórðarson, Iijalteyri.
Ungfrú Hildur Blöndal, Sauð-
árkróki og Stefán Magnússon
smiður, Akureyri.
Ungfrú Edda Pétursdóttir, Að-
alstræti 18, og Jón Þorsteinsson,
Aðalstræti 24.
Samræmið í kosningapró-
grammi íhaldsins hér og ann-
ars staðar á landinu cr undra-
vert. í „málefnayfirlýsingu“
sinni, í „lslendingi“ sl. mið-
vikudag, leggur Sjálfstæðis-
flokkurinn það til, að bæjar-
st jórnin „fylgi með fullri
festu“ því, að framfylgt sé 3.
gr. húsaleigulaganna. Grein
þessi fjallar um það m. a„ að
heimilt sé að bera þá menn út
úr íbúðum, sem þangað eru
komnir á ólöglegan hátt, b. é.
eru innfluttir í bæina og hafa
ekki leyfi yfirvalda íil setu í
íbúðum. Þetta þykir eitt harð-
asta ákvæði húsaleigulaganm;
og er þyrnir í augum Sjálf-
stæðismanna í Reykjavík. Al-
menningur í landinu er tví-
mælalaust á móti því, að þessu
ómannúðlega lagaákvæði sé
framfylgt, enda hefur það
hvcrgi verið gert til þessa, og
mun engum detta í hug, að
húsnæðisvandamál bæjanna
leysist með þessum hætti. En
það cr til athugunar fyrir bað
fólk, sem flutt hefur í bæinn á
undanförnnm árum, að það er
nú eitt helzta baráttnmál
Sjálfstæðisflokksins, að láta
bcra það út á götuna „með
fullri. fcstu“
Kvenúr
iundið. — Upplýsingar í
Norðurgötu 14.
Áfvinna
Ungur, danskur maður óskar
eftir einhvers konar sveita-
vinnu í vor, helzt garðyrkju.
Útför Jóns Geirssonar læknis
fór fram frá Akureyrarkirkju sl.
fimmtudag að viðstöddu miklu
fjölmenni. Bóðir sóknarprestarn-
ir fluttu ræður í kirkjunni,
kirkjukórinn töng, undir stjórn
Jakobs Tryggvasonar, og Jó-
hann Konráðsson söng einsöng.
Læknar báru kistuna í kirkju, en
Oddfellowar úr kirkju. Stóðu
þar einnig heiðursvörð um kist-
una í kirkjunni. Athöfnin var
mjög hátíðleg og virðuleg. Bæjar-
menn kveðja Jón Geirsson með
lilýhug og söknuði.
Kvennadeild Slysavarnafélags-
lns óskar öllum bæjarbúum árs
og friðar um leið og liún þakkar
góðar gjafir og alla aðra hjálp, ar
starfi hennar hefir verið veitt. Nú
síðustu mánuðina hafa borizt
óvenju margar gjafir og áheit, svo
sem gjöf frá Guðrúnu Guð-
mundsdóttur, Gránufélagsgötu 6
gr. 100.00. Frá Guðrúnu Jóhanns-
dóttur, Sólheimum, Glerárþorpi,
kr. 100.00. Dánargjöf Hildar Jó-
hannesdóttur kr. 200.00 og áheit
frá ónefndum kr. 1000.00. Allar
þessar gjafir vill deildin sérstak-
lega þakka nú
Póstþjónusta. Vegir fslenzku
póstþjórfustunnar eru órannsak-
anlegir á stundum, a. m. k. póst-
hússins í Reykjavík. Fyrir viku
fann hún upp á því snjallræði að
láta mikinn póst hingað í Selfoss.
Sá póstur er ekki kominn hingað
enn, en Esja, sem síðar fó.r úr
Reykjavík en Selfoss, kom með
lítinn sem engan póst. Selfoss
hefur haft viðkomu á mörgum
höfnum á leið sinni hingað og því
ekki vel fallinn til hraðflutninga
pósts. En stundum er eins og
póststofunni í Reykjavík þyki
mest um vert að koma póstinum
af höndum sér án tillits til þess,
hvenær hann kemst í hendur við-
takenda.
Akureyringar! Munið eftir
að gefa fuglunum, bæði í
AndapoIIinum og annars
staðar.
með sérinngangi og snyrt-
ingu. til leigu í Helga-
magrastræti 24.
Upplýsingar gefur
Aðalst. Einarsson,
Kea.
X B X B
Skrifstofa
F ramsóknarf lokks i n s
er opin daglega kl. 10—12,
1—7 og 8—10. — Framsókn-
armenn eru hvattir tíl að
koma á skrifsíofuna og gcfa
upplýsingar, sérstaklcga um'
kjósendur, sem eru fjarver-
andi, svo og annað, sem að
gagni má koma við bæjar-
stjórnarkosningarnar 29. þ. m.
Kjósendur Framsóknar-
flokksins, sem eru á förum úr
bænum og verða fjarverandi á
kjördegi, cru minntir á að
kjósa hjá bæjarfógeta, áður en
þeir fara.
Listi Framsóknarflokksins
er X B-LISTI.
Skrifstofa flokksins er í
Hafnarstræti 93, 4 .hæð. Sími
443.
■ ................."~'~r-