Dagur - 07.11.1951, Blaðsíða 7
Miðvikudagimi 7. nóvember 1951
D A G U R
7
Málmhúðun
t
Getum tekið til húðunar ýmis konar gripi.
Höíum:
KRÓM-húðun
NICKEL-húðun
7 KOPAR-húðun
ZINK-húðun
TIN-húðun.
Málmhúðun KEA, Akureyri.
Sími 1659.
Pelikan-pennarnir
eru komnir
Bókaverzlun Axels Kristjánssonar h.f.
Vænfanlegt úr næsfu helgi
Epli, ítölsk og dönsk
Vínber
Citrónur
Gráfíkjur
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeildin og utibú.
Samfesfingar
(bláir) frá Heklu
ÚR B Æ O G BYGGÐ
Vinnubuxur, bláar, brúnar
Vinnujakkar, bláir, brúnir
Vefnaðarvörudeild
Sængurveraefni
— hvít og mislit
Lakaefni, léreft og stout
Koddaveraléreft
Vefnaðarvörudeild.
Messað kl. 2 e. h. n.k. sunnu-
dag í Akureyrarkirkju. — P. S.
Kirkjan. MessaS verður í Lög-
mannshlíð sunnudaginn 11. nóv.
kl. 2 e. h. Safnaðarfundur.
„Gangleri“, tímarit Guðspeki-
félags íslands, 2. hefti þ. árg., er
nýlega kominn. Flytur sem jafn-
an fyrr margar mjög athyglis-
verðar greinar, m. a. „Af sjónar-
hól“, hugleiðingar eftir ritstj.,
Grétar O. Fells. Hann ritar einn-
ig greinarnar: Af jörðu skaltu
aftur upp rísa, Laun hófsins, og
Halldór Jónsson frá Eiðum
sjötugur. Ljáðu mér vængi eftir
Ingibjörgu Þorgilsdóttur, Júdas
frá Karíot eftir séra Pétur Magn-
ússon og Guðspekihreyfingin 75
ára eftir Þorvald Árnason. Þá
eru nokkrar þýddar greinar. Ut-
sölumaður Ganglera hér á Akur-
eyri er Sigurgeir Jónsson söng-
kennari, Spítalaveg 15.
Leiðrétting. Nöfn piltanna, sem
byggðu göngubrúna á Eyjafjarð-
ará eru: Olafur og Rafn Jónssyn-
ir frá Hólum og Kristján Ósk-
arsson frá Hólakoti. Nafn eins
piltsins misritaðist í fyrstu frá-
sögninni af brúarsmíðinni.
I Morgunbl. sl. föstudag, er það
talíð lítið gleðiefni foreldra í
Reykjavík, að skólastjóri
stærsta barnaskóla borgarinn-
ar hafi verið valinn af konnn-
únistaflokknum til Rússlands-
ferðar, vafalaust í viðurkenn-
ingarsltyni fyrir dyggan stuðn-
ing við útbreiðslu „fagnaðar-
erindis“ Síalíns. Er blað
ákaflega hneykslað á því, að
alræmdur, kommúnistískur
áróðursmaður skuli sitja á
skólastjórastól stærsta barna-
skóla borgarinnar, og eru það
engin undur. En hneykslunin
kemur seint og ádcilan hittir
ekki í mark. Arnfinnur Jóns-
son var skipaður skólastjóri af
Brynj. Bjarnasyni, en Brynjólf
ur var gerður að menntamála-
ráðherra af Ólafi Thors. Mbl.
gleymdi að geta þessarar for-
sögu.
Áheit á Strandarkirkju. Kr.
100.00 frá K. S. — 100.00 frá
ónefndum. — Mótt. á afgr. Dags.
Áheit á slysavamadeildina
„Keðjan“. Kr. 50.00 frá manni,
sem er áhugasamur um slysa-
varnir. Með þökkum móttekið.
K. G. S.
Barnastúkan „Saklcysið“ nr. 3
heldur fund í Skjaldborg næstk.
sunnudag kl. 1 e. h. Fundarefni:
Inntaka nýrra félaga. Upplestur.
2 smáleikir. — Komið öll á fund.
Verið stundvís! Nýir félagar allt-
af velkomnir.
Geymdu ekki til morguns, s«n
þú getur gert í dag. Komdu á
samkomuna að Sjónarhæð kl.
8.30 í kvöld. Samkomur á hverju
kvöldi þessa viku. Sæmundur G.
Jóhannesson.
Sjónarhæð. Sunnudagaskóli kl.
1 og almenn samkoma kl. 5. Allir
velkomnir.
Zion. Samkomur næstu viku.
Sunnudag kl. 10.30 f. h. sunnu-
dagaskóli. Kl. 1 e. h. di-engja-
fundur (yngri deild). Kl. 2 e. h.
drengjafundur (eldri deild). Kl.
8.30 e. h.: Almenn samkoma.
Allir velkomnir. Ól. Ólafss. talar.
Þriðjudag kl. 5.30 fundur fyrir
telpur 7—13 ára. Miðvikudag kl.
8.30 e. h.: Biblíulestur. Fimmtu-
dag kl. 8.30 e. h. fundur fyrir
ungár stúlkur.
Silfurbrúðkaup áttu 1. vetrar-
dag Sigurlaug Péíursdóttir og
Stefán Hólm Kristjánsson, Að-
alstræti 16, Akureyri.
Ársritið , jllín“ er korriið út. Er
fjölbreytt að efni að vanda. Verð
aðeins 10 kr., 160 blaðsíður. Fæst
hjá bóksölum.
Hjúskapur. Hinn 3. þ. m. voru
gefin saman í hjónaband- af séra
Friðrik J. Rafnar ungfrú Hrönn
Björnsdóttir frá Dalvík og Mika-
el Jóhannesson, stúdent, Akur-
eyri. Heimili þeirra verður að
Eyrarlandsveg 20, Akureyri.
í síðasta cintaki Kominform-
blaðsins hér á staðnum, er
greint nokkuð ýtarlega frá
brezku kosningunum 25. f. m.
Eitt skorti þó alveg í frásögn-
ina: lýsingu á því, hverjar mót-
tökur brezki kommúnista-
flokkurinn hlaut hjá kjósend-
um. Allir frambjóðendur
flokksins féllu, sem kunnugt
er, og það með þeim ósköpum,
að glata tryggingafé sínu. —
Konnnúnistar týndu 25% af
því fylgi, er þeir höfðu í sömu
kjördæmum 1950. Hún er
fljótfarin leiðin til grafar fyrir
brezka kommúnistaflokkinn.
Áheit á kirkjuna á Mýrum,
Dýrafirði, kr. 25.00 frá S. Þ.'Mót-
tekið á afgr. Dags.
Barnastúkan Samúð nr. 102
heldur fund í Skjaldborg sunnu-
daginn 11. nóv. næstk. kl. 10 f. h.
Inntaka nýrra félaga. — Upplest-
ur. — Leikþáttur. — Söngur.
Áheit á Strandarkirkju. 20.00
kr. Móttekið á afgr. Dags.
Æskulýðs-
félag Akureyr-
arkirkju. —
Yngsta deild.
Fundur kl. 11
f. h. Miðdeild
kl. 8.30 e. h.
sunnudaginn.
í kapellunni á
Hjúskapur. Þann 1. þ. m. voru
gefin saman í hjónaband hér á
Akureyri hjónaefnin Eiríkur
Valdimarsson bóndi í Vallanesi
í Hólmi og Sigríður Jónsdóttir
frá Molastöðum í Fljótum. Séra
Björn Stefánsson frá Auðkúlu
gaf brúðhjónin saman.
Gjöf til Æskulýðsfélagsins. —
Kr. 100.00 frá N. N. Betzu þakkir.
P. S.
Stúkan Brynja nr. 99 heldur
skemmtifund í Skjaldborg n.k.
mánudag, 12 .nóv., kl. 8.3 Oe. h.
Til skemmtunar: Framsóknarvist
og dans. Félagar, mætið stund-
víslega. Takið með ykkur gesti.
Áheit á Strandarkirkju. Kr.
100.00 frá S. G. Mótt. á afgr.
Dags.
Kvenfél. „Hlíf“ hefur ákveðið
að hafa vinnufund að Túngötu 2
miðvikudaginn 7. þ. m. kl. 9 e. h.
Félagskonur eru beðnar að hafa
með sér kaffi. Mætið stundvís-
lega. — Nefndin.
Til Sólheimadrengsins. Áheit
kr. 50.00 frá M. S. Mótt. á afgr.
Dags.
□ RUN.: 5911177 — Frl.: Atg.:
Sextugur varð sl. mánudag
Gunnlaugur Júlíusson bóndi að
Garðshorni í Svarfaðardal.
Sjötug varð í gær frú Kristín
Gíslason, Hafnarstræti 20 hér í
bæ. Hún dvelur nú á hjúkrunar-
deild elli- og hjúkrunarheimilis-
ins Grund í Reykjavík.
Hjálpræðisherinn, Strandg. 19B.
Föstaudag 9. nóv. kl. 8.30 e. h.:
Almenn samkoma. — Sunnudag
kl. 11 f. h.: Helgunarsamkoma.
Kl. 8.30 e .h.: Fagnaðarsamkoma
fyrir hinn nýja yfirforingja
Hjálpræðishersins á íslandi og
Færeyjum, major Albert Bárnes.
— Mánudag kl. 4 e. h.: Heimila-
sambandið. Major Bárnes talar.
Mánudag kl. 8.30 e. h.: Æsku-
lýðsfélagið. Söngur og hljóðfæra-
sláttur. Allir velkomnir.
Til nýja sjúkrahússins. Gjöf frá
L. Þ. kr. 300.00. — Gjöf frá Sig-
ríði Kolbeinsdóttur kr. 100.00. —
Gjöf- frá tveim systrum, til minn-
ingar um Hrefnu Hallgrímsdótt-
ur, kr. 200.00. — Gjöf frá N. N.
kr. 500.00. — Gjöf frá Hólmfríði
Jónsdóttur, til minningar um
sonarson hennar, Þórarinn Jóns-
son, Fjólugötu 15, kr. 1000.00. —
Gjöf frá útistarfsmönnum Raf-
veitunnar, ágóði af knattspyrnu-
kappleik, innheimt af skrifstofu-
stúlkum R. A., kr. 362.25 —
Áheit frá A. G. kr. 100.00. —
Áheit frá G. S. kr. 100.00. —
Áheit frá Solveigu Hallgríms-
dóttur kr. 100.00. — Gjöf frá
Kvenfélaginu Tilraun, Svarfað-
ardal, kr. 10.000.00. — Gjöf frá
sjúklingi kr. 500.00. — Með þökk-
um móttekið G. Karl Pétursson.
Sjónleikurinn „Gift eða ógift“
verður sýndur næstk. fimmtu-
dagskvöld. — Aðgöngumiða má
panta í síma 1088 daginn fyrir
leikdag milli kl. 1—2.
Ðansleik heldur Skógræktar-
félag Tjarnargerðis að Þverá
laugard. 10. nóv. kl. 10 e. h. —
Haukur og Kalli spila. — Veit-
ingar á staðnum. — Vinnufundur
að Lóni 13. nóv. kl. 8.30 e. h.
Fíladelfía. Samkomur í Lund-
argötu 12: Sunnudaga og fimmtu
dag kl. 8.30 e. h. — Allir vel-
komnir. — Sunnudagaskóli hvern
sunnudag kl. 1.30 e. h. — Öll börn
velkomin.
Frá Barnaverndar-
félagi Akureyrar
Á barnaverndardagin nsöfnuð-
ust alls kr. 10700. Þar af var
kostnaður fyrir bækur og merki
kr. 1550. Urðu því nettótekjur
dagsins kr. 9150. Á þessu sést, að
fjöldi bæjarbúa sýndu málefni
félagsins velvild og skilning. —
Félagið sendir öllum þeim, sem á
einn eða annan hátt réttu því
hjálparhönd á barnaverndardag-
inn, innilegar þakkir.
Stjómin.
HROSSAK JÖT
Kaupið hrossakjöt meðan á slátrun stendur.
Þér getið valið úr hrossum á öllum aldri, sem
slátrað er daglega. — Vér söltum fyrir þá, sem
þess óska, og sendum heim.
Þetta verða ódýrustu kjötkaupin í haust.
Kjötbúö
Sími 1714.