Dagur - 07.11.1951, Side 8
8
Bagub
Miðvikudaginn 7. nóvcmber 1951
Auðvett að gera ágæla og frygga
höfn í Raufarhöfn
Verulegar framkvæmdir síldarsaltenda - Nýtt
verzlunarhús Kaupfélagsins
Fyrirhugað að stofea sérstakí presta
kal! fyrir Hríseyjar- og Stærra-
Árskógs-sóknir
Frá héraösíundi Eyjaíjarðarprófastdæmis
í fyrri viku
Raufarhöfn hefur nú um skeið
verið mesta síldarmóttökuhöfn
landsins. Liggur staðurinn ágæt-
lega við síldarmiðunum unuan
Norðausturlandi og hefur mjög
eflst hin síðari ár. Dagur fékk
nýlega fréttapistil frá þessum
norðlenzka athafnastað og fer
hann hér á eftir.
Heyafli sæmilegur.
Spretta nú í sumar varð mjög
léleg og þurrkar ekki fyrr en nú
í haust, að heyin náðust. loks
sæmilega þurr og af sumum tún-
blettunum fékks alls ekkert og
er þetta annað sumarið í röð, að
heyfengur af , heimablettunum
hefur brugðist. En nokkrir þorps
búar eiga í félagi tún vestur í
Leirhöfn og hefur það bæði þessi
sumur orðið þorpsbúum þó
nokkur hjálp, því að útkoma á
því túni hefur orðið sæmileg.
Þrátt fyrir þetta er nú búið að fá
hey, svo að útlit er fyrir, að engin
vandræði verði á komandi vetri
og er það að þakka fyrirhyggju
þorpsbúa sjálfra, að fá hey að,
hvar sem hægt hefur verið, og
svo hefur hreppsnefndin einnig
útvegað hey, sem mun koma í
góðar þarfir handa þeim, sem út-
undan hafa orðið með að ná sjálf-
ir í hey.
Þorskafli brást.
Aðalatvinna Raufarhafnarbúa
er við síldarverksmiðjuna og við
síldarsöltun og hefur þessi at-
vinna komið sér alveg sérstaklega
vel nú í sumar, því að þorskafli
hefur brugðist að mestu. Þó kom
í vor gott aflahlaup á svonefnda
Hólsvík og fékkst út úr því um
130 skippund af góðum fiski á ör-
fáum sólarhringum og nú nýlega
fengust sjötíu skippund á fjórum
dögum og þó er ekki komið á
land á þessu ári í allt af þorski
nema tæp 300 skippund og er það
óvenujulega lítið, því að hér við
Sléttuna hafa verið hin beztu
fiskimið.
Framkvæmdir síldarsaltenda.
27. þús. tunnur af síld voi'u
saltaðar á fimm síldarplönum.
Utan um þetta hefur skapast
mjög mikil atvinna, því að í vor
var vinna við að fullgera síldar-
plan hjá Óskari Halldórssyni og
annað hjá Valtý Þorsteinssyni og
nú í haust er Óskar að byggja
stórt timburhús á steyptum
grunni, sem er bæði geymsla og
íbúð fyrir síldarfólk, því að fjöldi
aðkomufólks hefur unnið við
söltunina og síldarplönin.
Loks er kaupfélagið að láta
byggja stórt verzlunarhús og er
við það mikil atvinna. í fyrsta
sinn í sumar var saltað hér á
vegum hreppsins í félagi við
kaupfélagið.
Síldarlýsið er nærri allt farið
héðan ,og mest part saltsíldin, en
aftur á móti er síldarmjölið nærri
allt hér enn nema það, sem selt
hefur verið hér innanlands.
Loks á í voi' komanda að
byggja bæði hús og síldarplan fyr
ir h.f. Hafsilfur, framkvæmda-
stjóri Vilhjálmur Jónsson. Komu
þau m.b. Helgá frá»Reykjavík og
m.b. Björn Jónsson frá Reykja-
vík með timburfarma frá Svíþjóð,
sem er eign h.f. -Hafsilfur og
nota á til . fyrirhugaðra fram-
kvæmda á næsta vori.
Hafnarbætur.
Hér við innsiglinguna var í
sumar byggður lítill viti, sem er
um leið innsiglingarmerki og ætti
það að vera mjög til öryggis við
innsiglinguna, sem er þröng og
fremur vandrötuð, en höfnin sjálf
er fyrirtak frá náttúrunnar
hendi, en þarf ýmissa lagfæringa
við, svo að hún sé fyrsta flokks
höfn, því að hið svonefnda Litla-
sund, sem hefur smátt og smátt
myndast og stækkað, þarf að
lokast, því að inn um það berst
sandur, sem höfnin óðum
grynnist af. Einnig þyrfti að
moka "upp úr höfrrinni, og það
gerði Óskar Halldórsson nú í
sumar af sinni bryggju, en allt of
lítið enn. Svo þyrfti að moka al-
veg upp gömlu höfnina, sem er
fram undan og austan við það
sem mokað var í sumar. Einnig
þyrfti að setja góðar festur í höfn
ina, svo að stór skip geti haft sig
frá bryggju og legið út á þó að
gerði ósjó og skipið væri statt á
Raufarhöfn. Einnig þyrfti að
setja ljósbauu á Hólmabökuna og
fleira þyrfti að lagfæra. En þetta
allt mundi fljótt borga sig, því að
þá yrði hér ágæt höfn og hennar
væri full þörf hér á norðaustur-
horni landsins.
Fyrir helgina kom hingað til
bæjarins brezkur verkalýðsmála-
fulltrúi, hr. Allan R. Tennyson og
í fylgd með honum hr. Bryan
Holt frá brezka sendiráðinu í
Reykjavík.
Hr. Tennyson hefur verið
starfsmaður brezka verkalýðs-
málaráðuneytisins i 20 ár, og
starfaði hann síðast sem sendi-
sveitarráðunautur í verkalýðs-
málum við sendisveit Breta í
Mexíkó. Til íslands kom hann til
þess að kynna sér verkalýðs- og
félagsmál og starfsemi samvinnu-
hreyfingarinnar.
Skoðaði sainvinnufyrirtækin.
Hr. Tennyson skýrði blaðinu
frá því, að í tíð samsteypustjórn-
arinnar, hafi verið byrjað á því,
að senda sérstakan ráðunaut
þessara erinda til Washington í
tilraunaskyni. Þótti það gefast
svo vel, að ákveðið var að halda
áfram á svipaðri braut og í dag
hafa Bretar 22 slíka fulltrúa við
sendisveitir sínar, en starí þeirra
uær yfir um 50 lönd. T. d. nær
starf verkalýðsmálafulltrúans við
brezku sendisveitina í Stokk-
hólmi yfii' bæði Svíþjóð og Nor-
eg. Tilgangurinn með því að hafa
slíka ráðunauta við sendisveit-
irnar er að afla upplýsinga á
10 ára telpa gabbaði
aðdáenclur klessu-
málverkanna!
Á „Septembersýningunn"
dönsku nú í liaust, þar sem
helztu klessumálarar Ðana
sýndu verk sín, gerðizt at-
burður, sem í frásögur er fær-
andi: 10 ára telpa, Jette Koch,
veðjaði 25 aurum við ömmu
sína um það, hvort myndir
hennar yrðu tcknar, cf hún
sendi þær dómnefndinni, sem
valdi verk á sýninguna. Jette
sendi 6 myndir, 3 voru teknar.
Gagnrýnendur klessulistar-
innar fóru lofsamlegum orð-
um um myndirnar í bJöðunum1
og útskýrðu litaval hennar og
„composition“ efíir kúnstar-
innar reglum. Ein myndin
seldist fyrir 100 d. la'ónur. —
Eftir að sýningin hafði staðið
yfir nokkra hríð komst upp
um 25 aura veðmálið og höf-
undinn .Jette var himinlifandi,
því að hún fékk ekki aðeins 25
aurana, heldur líka 100 krón-
ur og mynd af sér í blöðunum.
En „Iistfræðingarnir“ urðu
hálf skömmustulegir á svip-
inn.
Gullbrúðkaiip í dag
í dag eiga gullbrúðkaup sæmd-
arhjónin Kristín Sigfúsdóttir
skáldkona og Páhni Jóhannes-
son verkamaður hér í bæ,
Munkaþverárstræti 16.
sviði verkalýðs- og félagsmála í
viðkomandi landi, svo að sendi-
herrarnir geti fengið um þau mál
sem gleggstar upplýsingar. Hér í
bæ ræddi hr. Tennyson við
framkvæmdastjóra Kaupfélags
Eyfirðinga og skoðaði verzlanir
þess og verksmiðjur SÍS, Gefjuni
og Iðunn.
Markverð kvikmynd
J
• úr hafdjúpunum
Á undanfömum árum hefur
Ólafur Ólafsson kristniboði sýnt
hér tvær mjög athyglisverðar o^
fallegar kvikmyndir, sem auk
þess að veita mönnum fróðleik
um lífið í náttúrunni og leyndar-
dóma himinhvolfanna, hafa vakið
til umhugsunar um tilveru
stjórnandi skapara. Á laugar-
dagskvöldið kemur sýnir Ólafur
þriðju kvikmyndina af þessari
gerð í Zíon ,og fjallar hún m. a.
um rannsóknir vísindanna á
hljóðum, sem fiskarnir gefa frá
sér og kunnugt varð um í kaf-
bátaleit með nákvæmum mæli-
tækjum á stríðsárunum. Þessi
kvikmynd er tekin af leiðangri,
sem sérstaklega rannsakaði þessi
mál og eru myndirnar flestar
teknar neðansjávar. Hér er
mynd, sem er í senn föguc og
hefur minnisverðan boðskap að
flytja. Öllum er heimill aðgangur
í Zíon meðan húsrúm leyfir.
Héraðsfundur Eyjafjarðarpró-
fastsdæniis var haldinn á Akur-
eyri íimmíudaginn 25. okt. Sátu
hann, auk prófasts, séra Friðriks
J. Rafnars, 4 sóknarprestar og 15
safnaðarfulltrúar.
í ársskýrslu prófasts kom
'þetta m. a. fram:
Skýrsla prófasts.
Á árinu 1950 voru 360 messur
fluttar í prófastsdæminu, er það
13 fleiri en árið á undan og svarar
til 45 messum á prest. Er það
hærri hlutfallstala en yfir landið
í heild. Altarisgestir voru 477, og
er það nokkru lægra en árið á
undan. í prófastsdæminu voru
við síðustu áramót 15932. Nemur
fólksfjölgun á árinu 511, og af
þeirri tölu koma 433 á Akureyr-
arprestakall eitt. Á síðastl. 10 ár-
um hafa þessar breytingar orðið
á fólksfjölda prestakallanna inn-
an prófastsdæmisins:
Grundarþing, fækkun 55. —
Akureyrarprestak., fjölgun 2214.
— Möðruvallakl.prestak., fækk-
un 90. — Vallaprestak., fjölgun
12. — Ólafsfjarðarpr.k., fjölgun
79. — Siglufjarðarpr.k., fjölgun
107. — Grímseyjarpr.k., fækkun
32.
Að lokinni skýrslu prófasts var
gengið til dagskrár og afgreidd
venjuleg héraðsfundarmáþkirkju
reikningar, umsóknir um hækk-
un kirkjugjalda' o. fl., og var þá
komið að' aðalmálinu, sem fyrir
fundinum lá til umsagnar og
álitsgerðar, en það var hið nýja
frumvarp til laga um skipun
prestakalla.
Reiíaði prófastur málið og
skýrði frá þeirri breytingu sem
orðið hefði á skipun prestakalla í
landinu síðan 1840. Gat hann um
fækkun þá, sem á prestsembætt-
um hefðu orðið, með lagasetn-
ingunum 1880 og 1907, alls 77. Nú
hefði ný, stjórnskipuð nefnd gert
nýtt frumvai-p um skipun presta-
kalla í landinu. Væru gerðar þar
allmiklar breytingar, lagt til að
sum prestaköll væru lögð niður,
þar sem fólki hefði fækkað mjög,
og vegabætur og brúargerðir
réttlættu að leggja þau undir
nágrannaprestakall eða skipta
þeim og fjölgun á öðrum stöðum,
svo sem Reykjavík. Yrðu þá lög-
leg prestsembætti í landinu 114.
Eitt nýmæli flytur frv. þetta. Það
er um svokölluð kennslupresta-
köll. Ætlast er til að prestar í 10
prestaköllum séu líka kennarar,
bar sem fámenni og sóknarfjöldi
leyfir.
Prestakall I Hrísey.
Aðalbreytingin, sem snertir
Eyjafjarðarprófestsdæmi er að
Vallaprestakalli í Svarfaðardal
skuli skipt í 2 prestaköll, Valla-
og Hríseyjai'prestaköll. Eftir síð-
asta manntal yrðu hin nýju
prestaköll þannig:
Vallaprestakall (Urða-, Tjarn-
ar-, Upsa og Vallasóknir) með
prestsetri á Völlum, með 1205
manns.
Hríseyjarprestakall (Hríseyj-
ar- og Stærra-Árskógssóknir)
'með prestsetri í Hrísey, með 655
manns.
Urðu um þetta mál fjörugar
umræður. Að lokum flutti séra
Sigurður Stefánsson svohljóðandi
tillögu, sem samþykkt var með
öllum atkvæðum:
„Héraðsfundur Eyjafjarðar-
prófastsdæmis, haldinn á Akur-
eyri 25. okt. 1951, lýsir ánægju
sinni yfir störfum prestakalla-
skipunarnefndar og framkomn-
um tillögum hennar um skipun
prestakalla í Eyjafjarðarprófasts-
dæmi. Telur fundurinn að stofn-
un nýs prestakalls, með núver-
andi Hríseyjar- og Stærra-Ár-
skógssóknum; sé mjög æskileg,
en lítur þó svo á, að hlutaðeig-
andi söfnuðum ætti að gefast
kostur á að segja álit sitt um
staðsetningu prestsetursins í hinu
nýja prestakalli.
Sömuleiðis telur fundurinn að
upptaka Glæsibæjarsóknar að
nýju í Möðruvallaklausturs-
prestakall sé eðlileg, enda þeirri
sókn ennþá þjónað frá Möðru-
völlum, þó að hún, lögum sam-
kvæmt, skyldi ganga undir Ak-
ureyri vorið 1941, er Bægisár-
prestakall hið forna var lagt nið-
ur.“
Þá var kosin nefnd til undir-
búnings kirkjudegi á næsta sumri
fyrir Eyjafjarðarprófastsdæmi. í
nefndina voru kosnir undir for-
sæti prófasts: Séra Benjamín
Kristjánsson, séra Sigurður Stef-
ánsson, Jakob Tryggvason organ-
isti og Jón Rögnvaldsson safnað-
arfulltrúi.
Að fundarlokum sátu prestar
og fulltrúar kaffiboð að Hótel
KEA í boði prófasts.
SafnaðarfuIItrúi í 45 ár.
Þess er vert að geta, að. einn
safnaðarfulltrúi, Gísli Jónsson á
Hofi í Svarfaðardal, hefur verið
í 45 ár fulltrúi Vallasafnaðar, og
sótt alla héraðsfundi prófasts-
dæmisins í þessi 45 ár, nema einn,
1922. Það mun undantekning, ef
ekki dæmalaust, að sami maður-
inn sé safnaðarfulltrúi sóknar
sinnar, og hafi sótt 44 héraðs-
fundi, auk þess að Gísli hefur
verið sóknarnefndarmaður, og
lengst af oddviti nefndarinnar, í
öll þessi ár.
Kind í Ðimmuborgum
alian fyrravetur
Hjá Kaupfélagi Þingeyinga í
Húsavík hófst slátrun 19. sept. og
var lokið 12. okt. AIls var slátrað
tæpum 17 þús. fjár.
Dilkarnir reyndust hér lélegir
til frálags og var meðalþungi
allra dilkskrokka ekki nema 13,97
kg. Þyngstu meðalvigt dilka hafði
Páll Guðmundsson bóndi í Salt-
vík, 19,51 kíló, og 3 dilkskrokka
átti hann, sem vigtuðu 25,5 kíló.
Þyngstan dilkskrokk átti Emil
Guðmundsson oddviti í Flatey,
26 kíló.
Farnar eru héðan 97 smálestir
af dilkakjöti til Ameríku.
Gekk af í Dimmuborgum.
Um sl. mánaðamót fannst vet-
urgömul kind, sem gengið hafði
af í fyrravetur í skógargirðingu
við Dimmuborgir í Mývatnssveit.
Var henni slátrað og vigtaði
skrokkurinn af henni 36 klíó.
Eigandi var Valdimar Halldórs-
son bóndi á Kálfaströnd.
Ekki er með öllu vitað, hvort
þarna hafi fallið kindur í fyrra-
vetur eða ekki.
Brezkur verkalýðsfulltrúi íiýlega
í heimsókn hér
Kynnir sér meðal annars starf samvinnufélaganna