Dagur - 29.11.1951, Side 6
6
D A G U R
Fimmtudaginn 29. nóvember 1951
Þorp í álögum
Saga eftir Julia Trnitt Yenni
14. DAGUR.
(Framhald).
nema eðlilegt, að menn færi aS
gruna hitt og þetta og hugsa allt
mögulegt.
í Ármóti var Rósa Silvernail
eina manneskjan, sem ógerlegt
reyndist aS fá til þess að ræða um
bókina og efni hennar.
—o—
Eva Larch skildi við litla
manninn snotra, kvaddi hann
vinsamlega við dyrnar, en hún
hafði ekki hugmynd um, hvort
hann hét Hampton, Barceley eða
eitthvað allt annað. Hann hafði
endilega viljað koma inn, hann
hafði ætlazt til að sér yrði boðið,
en henni hafði ekki dottið slíkt í
hug, þó að hún væri annars gest-
risin, henni hafði meira að segja
tekizt með lægni að láta manninn
fara með þeirri tilfinningu, að
hann hefði eiginlega engan tíma
til þess að tefja, hann hefði allt
annað að gera.
Hún horfði á hann hverfa út
um dymar, svo sneri hún sér við
og gekk upp stigann. Langur
spegill í gylltum ramma var á
veggnum á móti. Hún var djúpt
hugsandi, og allt í einu, án þess
áð hún vissi af, blasti við henni
stúlka hinum megin. Henni
fannst það vera einhver ókunnug,
einhver ung stúlka, jafnvel henn-
ar eigin móðir eða Lydía frænka
á löngu liðnum árum, þegar þær
höfðu gengið þennan sama stiga,
þegar hún og Vronnie voru
krakkar og húsið nýbyggt og
fullt af lífi.
Hún horfði örskamma stund á
sína eigin mynd, eins og á vofu,
svo hristi hún höfuðið, lyfti
höndunum til þess að taka af sér
litla hattinn og strauk fingrunum
gegnum hárið. Hún reyndi að
brosa, áður en hún gekk inn á
litla herbergið.
Jónatan Bricker sat í stólnum
sínum undir glugganum, eins og
hún vissi, og hann hálfreis upp,
en hún hraðaði sér til hans, setti
báða hendur á axlir honum og
ýtt honum aftur í stólinn. Hann
sat um stund þögull og starði á
gólfið.
Eva sagði: „Þykir þér það
miður?“
Hann svaraði ekki, en seildist
aftur fyi'ir sig og greip aðra hönd
hennar. Hún stóð þannig langa
stund fyrir aftan hann, en svo
settist hún í hinn -stólinn við
gluggann.
„Jónatan," sagði hún, blítt og
rólega, „þú — þig hlýtur að hafa
grunað það, — fólk hefur vitað
það — alltaf — í raun og veru
hefur þetta ekkert leyndarmál
verið, Lucy vissi það, og eg vissi,
að hún vissi það.“
„Eg veit það.“ Hann stóð upp
og starði út um gluggann, bakið
var bogið, eins og það hefði
þunga byrði að bera. „Eg veit
ekki eiginlega, hvers vegna þetta
ætti að breyta svo miklu. En það
er samt eitthvað, eg veit ekki
hvað. Á meðan hægt er að---------“
„Eg veit. Á meðan hægt er að
látast ekki vita að allir viti.“
„Já, líklega er það það.“
„Lastu hana?“
„Já, en það erum ekki við, sem
komum þar við sögu ,ekki frekar
við en einhverjir aðrar persón-
ur, einhverjar allt aðrar. Það er
bara....“
Hann sneri sér við og leit á
hana, og öll sú friðsæla ham-
ingja, sem þau höfðu átt saman
í þessu herbergi í mörg ár, var
horfin, og þau vissu það bæði.
„Hið raunverulega líf er dá-
lítið öðruvísi en sögubækurnar
segja frá því,“ sagði hann. „Ef
allt ætti að fara eins og í sögun-
um, þá þyrftum við ekki að gera
annað en að kasta öllu öðru frá
okkur og hverfa eitthvað burt
saman. Þannig er þessi hnútur
venjulega leystur í flestum
skáldsögum.“
„Já,“ sagði Eva, og hún hugs-
aði óttaslegin: Eg get það ekki.
Eg hef aldrei hugsað um það áð-
ur, en eg veit, að eg get það ekki.
En Jónatan sagði hljómlausum
rómi: „Við höfum ekki aðskilinn
fjárhag, hún á allt að hálfu við
mig. Og svo yrði eg að hætta í
bankanum. Svo eru lögin þannig,
að það yrði líklega ekki mikið
éfti'r af mínum hluta að lokum,
ef hún kærði sig um.“ Hann
brosti vandræðalega. „Og við er-
um eldri en við vorum einu sinni,
Eva mín.“
Evu tókst að bi'osa til hans
hlýju brosi. „Það er allt í lagi,
Jon.“
„Líklega væri heppilegast, að
eg kæmi ekki fyrst um sinn,
þangað til þetta er liðið hjá —
og.... “ Hann roðnaði og leit
undan.
Hún vissi, að honum fannst
hann tala eins og lítilmenni, og
hún flýtti sér að reyna að eyða
þeirri tilfinningu. „Láttu þér ekki
einu sinni detta annað í hug. Þú
getur ekkert annað gert, eins og
á stendur.“ — Hún sagði nokk-
ur mild og róandi orð, til
þess að reyna að eyða sektartil-
finningunni og koma huga hans í
jafnvægi aftur. Hjarta hennar
varð þungt af sorg, er hún hugs-
aði til þess ,að héðan í frá yrði
það ekki hún, heldur Lucy, sem
hefði tækifæri til þess að hugga
hann, laga hálsbindið hans o. s.
frv. Nú myndi Lucy, grimm og
bitur, dvelja í návist hans öllum
stundum, og gjallandi hlátur
hennar myndi sí og æ kveða við
eyrum hans.
Hann fór. Eva horfði á eftir
honum, en sneri sér svo við og
gekk aftur inn í herbergið. Hún
sat í langan tíma og reyndi að
Ljósaperur
15, 25, 40, 60, 75. 100,
150 og 200 wolta.
Járn- og glervörudeildin
Sænsk vöfflujárn
Eld-straujárnasett
Hnífar í kjötkvarnir
Járn- og gleruörudeild.
Barnavagnar
Kerrur
Járn- og glervörudeildin
Barnaspaðar
Járn- og glervörudeildin
SKÆRI
Járn- og glervörudeildin
v
SAGIR
Járn- og glervörudeildin
Jaffa-
appelsínusafi
Matarolía
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild
og útibú.
SARDÍNUR
í olíu og tómat.
Kr. 3.00 dósin.
Kaupfélag Eyfirðinga
Ný lenduvörudeild
og útibú.
horfast í augu við það, sem kom-
ið hafði fyrir, hún reyndi að
komast að einhverri niðurstöðu
um það, hvað hún gæti nú gert.
(Framhald).
Jarðarför móður minnar,
MARGRÉTAR HELGADÓTTUR,
sem andaðist að heimili sínu, Rauðumýri 11, þann 26. þ. m., fer
fram frá Munkaþverárkirkju þriðjudaginn 4. des. kl. 1 e. li.
Fyrir hönd aðstandenda.
Gunnar E. Aðalsteinsson.
Jarðarför
GUÐRÚNAR JÓNASDÓTTUR,
Sámsstöðum, sem andaðist 22. þ. m., fer fram að Munkaþverá
föstudaginn 30. þ. m. kl. 1 e. h.
Garðar Halldórsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
SIGURÐAR HRÓLFSSONAR skipstjóra frá Jökulsá.
Vandamenn.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
MARGRÉAR GUÐMUNDSDÓTTUR.
Aðstandendur.
Til sölu
eru hlutabréf (lielzt ölj) í starfandi verzl-
unarfyrirtæki í bænum. Þeir, sem hafa
áhuga fyrir þessu og óska frekari upplýs-
inga, póstleggi nafn sitt í umslag merkt:
Upplýsingar 26, Akureyri.
Takið eftir!
Getum þvegið allan þvott, sem hægt er að
ganga frá í þurrkrúllu. Einnig blautþvott
(þveginn og undinn). Afgreiðsla í þvottahús-
inu Fróðasundi 4, opin alla virka daga frá 28.
þ. m., kl. 10—12 og 17—18. Laugardaga frá kl.
10—12. Uppl. í síma 1689 milli kl. 12—13.
Virðingarfyllst,
Erik Kondrup. G. Berg.
Þilplötur — Gaboonplötur
19 og 22 mm
fást í
Byggingavöruverzlun
Tómasar Björnssonar h.f.
Akureyri — Sírni 1489
HUSGOGN
BORÐSTOFUSETT, úr eik og birki.
Einstök BORÐSTOFU&ETT og STÓLAR,
SKRIFBORÐ, eik og birki.
SVEFNHERBERGISSETT, úr birki.
Húsgagnavinnustofa Ólafs Ágústssonar &: Co.