Dagur - 13.05.1953, Síða 8
8
Baguk
Miðvikudaginn 13. maí 1953
Sjöfn lækkar verð á hreinlætis-
vörum sínum um 5-12 prósent
Verðlækkimin til neytencla á að verða hin sama
Sápuverksmiðjan Sjöfn hér á
Akureyri hefur nú fyrir nokkrum
dögum lækkað verð á hreinlætis-
vörum, er verksmiðjan framleiðir,
um 5—12% og verða sumar af
vörum verksmiðjunnar, svo sem
þvottaduftið, nú ódýrara en
nokkrar sambærilegar vörur á
markaðinum, en gæðin haldast
óbreytt frá því, sem verið hefur.
Margar vörutegundir.
Af vörutegundum þeim, sem nú
hafa lækkað í verði, má nefna
þvottaduftstegundirnar Geysi og
Perlu, Sólar sápuspæni, bláma-
sápu, handsápurnar Savon de
Paris, Idola, pálmasápu, rósar-
sápu, barnasápu, raksápu, júgur-
smyrs og trélím.
Lægra hráefnaverð.
Ástæðurnar til þess, að Sjöfn
getur nú lækkað verð á vörum
sínum, eru meðal annars, að
verðlag á hráefnum verksmiðj-
Ð AGUR
Dagur kemur aftur út á laugar-
daginn kemur. — Auglýsingar
þurfa að berast fyrir kl. 2 á
föstudag. — Auglýsing í Degi
kemur fyrir augu mikils þorra
Akureyringa og Eyfirðinga,
auk f jölda manns í öðrum hér-
uðum.
unnar hefur fyrir nokkru lækk-
að, en auk þess kemur til ,að
eftir að endurbyggingu verk-
smiðjunnar lauk, hefur afkasta-
getan aukist og framleiðslan
hagkvæmari.
Sápuiðnaður á sér alllanga
sögu hér á Akureyri og var
sápuverksmiðjan stofnuð af KEA
og SÍS sem einn liður í hinum
þýðingarmiklu iðnaðarfram-
kvæmdum samvinnumanna.
Verksmiðjan hefur nýlega ver-
ið endurbyggð og búin nýtízku
vélum til framleiðslunnar og er
hún nú fullkomnasta sápu- og
hreinlætisvöruverksmiðja á land-
inu. Verksmiðjustjóri er Ragnar
Olason efnafræðingur.
25 ÁRA ÞJÓNUSTA.
(Framhald af 1. síðu).
tók við embætti 1. júní. Eru því í
dag liðin 25 ár frá vígslu hans.
Séra Sigurður hefur starfað hér
óslitið síðan, og auk Möðruvalla-
kl.prestakalls hefur hann þjónað
Bægisárprestakalli síðan 1941. —
Séra Sigurður Stefánsson nýtUr
óskiptrar virðingar og vinsælda
sóknarbarna sinna, og allra ann-
arra, sem hafa haft tækifæri til
þess að kynnast þessum ágæta
kennimanni. — Dagur sendir
þessum ágætu kennimönnum
báðum árnaðaróskir og kveðjur á
þessum merku tímamótum í
starfssögu þeirra.
Oddi h.f. og Amaróbúðin
unnu forkeppni firma-
keppnis B. A.
Firmakeppni Bridgefélags Ak.
stendur nú yfir. Er forkeppninni
lokið og hófst aðalkeppnin í gær-
kvöld en lýkur n. k. sunnudag.
Alls tóku 32 firmu þátt í keppn-
inni og komust þessi 16 í úrslit:
A-riðill:
Oddi h.f. (R. Steinbergss.) 107 st.
Litli-Barinn (Á. Helgas.) 98.5 st.
B. S. A. (Þ. Leifsson) 97 st.
Byggingarvöruverzl. Akureyrar
(Árni Ingimundarson) 96.5 st.
Hótel KEA (B. Einars.) 94.5 st.
Nýja-Bíó (R. Skjóldal) 93.5 st.
Fataverksm. Hekla (S. Stef.) 92 st
Tómas Steingrímsson h.f. (M.
Jónsson) 92 st.
B-riðill:
Amaróbúðin (H. Helgas.) 101.5 st
Póstb. Drangur (A. Páls.) 99.5 st.
Atli h.f. (S. Jónss.)97 st.
Útgerðarfél. KEA (H. Hinrikss.)
96 st.
Fatahreinsunin h.f. (B. Ólafss.)
94 st.
Vefnaðarvörud. KEA (H. Ind-
riðason) 94 st.
Kaffibrennsla Ak. (F. Karlsson)
93.5 st.
Brynjólfur Sveinsson h.f. (B.
Árnason) 92 st.
Önnur firmu, er þátt tóku,
voru: Vélsmiðja Steind. Rakara-
stofa Sigtryggs og Jóns, Hafnar-
búðin h.f., Bókaverzlun P.O.B.,
Stefnir s.f., Pétur og Valdimar h.f.
B.S.O. s.f., Efnagerð Akureyr-
ar h.f., Bifreiðaverkstæði Jó-
hannesar Kristjánssonar, Blaða-
salan, Olíufélagið h. f., Sápu-
verksm. Sjöfn, Þórshamar h.f.,
Brauðgerð Kr. Jónssonar h. f.,
Gullsmíðaverkst. Sigtryggs og
Eyjólfs og Litla-Bflastöðin.
Öngulsstaðahreppsbúar
kveðja kennara sinn
r
Arna M. Rögnvaldsson
Öngulsstaðahreppsbúar héldu
kennara sínum, Árna M. Rögn-
avldssyni og fjölskyldu hans,
mjög fjölmennt kveðjusamsæti sl.
jaugardag í barnaskólanum að
Laugalandi. En þau eru nú á för-
um að Árskógarskóla á Árskógs-
strönd, þar sem Árni tekur við
skólastjórn. Forcldrar skólabarna
í hreppnum færðu kennarahjón-
unum góðar gjafir, ennfremur
skólabörnin, kirkjukór Munka-
þverársóknar og saumaklúbbur-
inn.
Samsætinu stjómaði séra
Benjamín Kristjánsson sóknar-
prestur og þakkaði hann í snjallri
ræðu fyrir ágætt starf og óskaði
fjölskyldunni velfarnaðar í hinu
nýja starfi. Bolli Sigtryggsson og
Garðar Halldórsson fluttu einnig
ræður, en Árni þakkaði. Las hann
við það tækifæri frumort kvæði,
sem blaðið fékk góðfúslega leyfi
til að birta.
Kennarahjónin, Árni M. Rögn-
valdsson, og kona hans, frú
Steinunn Davíðsdóttir, hafa
ásamt börnum sínum, búið nær 6
ár í Öngulsstaðahreppi. Hefur
barnskólinn nýi að Laugalandi,
sem er hið vandaðasta skólasetur,
notið mikilla vinsælda undir
stjórn Árna, en hann er einn af
hæfustu mönnum sinnar stéttar.
Betra að sigla á Rín
Þeir, sem sigla á flutningaprömmunUm á Rínarfljóíi, hafa til þcssa átt
óvissa ævi. Þeir eru ýmist í Frakklandi, Þýzkalandi, Hollandi eða
Sviss. Nýlega tók verkamálastofnun Sameinuðu þjóðanna sér fyrir
hendur að bæta kjör þessara manna og veita þeim félagslegt öryggi.
Hafa löndin fimm nú undirritað samning um þetta efni og tryggir
hann flutningamönnunum bætt kjör. Myndin sýnir einn af hiniun
gömlu og traustu flutningamönnum um borð í pramma sínum.
Gróðursetning trjáplantna á þessu
vori hefsí í næstu viku
Skógræktarfélag Eyfirðinga og Ungmennasam-
band Eyjafjarðar bafa samstarf sín á milli
um gróðurseíningarstörfin (
Skógræktarfélag Eyfirðinga og
Ungmennasamband Eyjafjarðar
hef ja samstarf um gróðursetningu
trjáplantna í vor.
Gengið hefur verið frá áætlun
um gróðursetningu á þessu vori,
samkvæmt fyrirhuguðu samstarfi
milli ungmennafélaga og skóg-
ræktarfélaga í héraðinu.
Auk þeirrar gróðursetningar,
sem deildirnar sjá um hver á
sínu félagssvæði, hafa verið áætl-
aðar minnst fjórar samvinnu-
ferðir, allar á laugardögum og
eiga þátttakendur að mæta á
vinnustað kl. 4 síðdegis. Að lok-
inni gróðursetningu munu verða
einhver stutt skemmtiatriði eftir
því sem tími og tækfæri verða tl.
1. ferð verður 23. maí í Vaðla-
skóg austan fjarðarins gegn Ak-
ureyri. Ætlast er til að þá mæti
skógræktar- og ungmennafélagar
af öllu sambandssvæðinu.
2. ferð verður farin 30. maí í
reit Skógræktarfélags Arnarness-
hrepps, að Hvammi, og þá eink-
um ætlast til þátttöku frá Arnar-
nesshr., Áskógsströnd, Hrísey og
Akureyri.
39. ferð verður 6. júní að Mið-
hálsstöðum í Öxnadal, og er þá
ætlast til þátttöku frá Akureyri
og öllum deildum skógræktar- og
ungmennafélaga norðan Akur-
eyrar.
4. ferð verður 13. júní í Leyn-
ingshóla, og þá er gert ráð fyrir
þátttöku ungmenna- og skóg-
ræktarfélaga af öllu sambands-
svæðinu.
Að sjálfsögðu eru allir vel-
komnir í hverja sem er af ferðum
þessum og hvort sem þeir eru
félagsbundnir eða ekki.
Ungmennafélögin í héraðinu,
ásamt skógræktarfélögunum,
ættu að kosta kapps um, að þessi
viðleitni til starfs nái tilætluðum
árangri í Kjarnaskógi.
Stjórn Skógræktarfél. Eyfirð-
inga telur æskilegt, að þátttakan
sé tilkynnt með einhverjum fyr-
irvara, verði því við komið.
Gróðursetning hjá Skógrækt-
arfélagi Akureyrar verður á
þriðjud. og fimmtudögum að
kvöldinu á sama tíma og með
svipuðu fyrirkomulagi og undan-
farin ár. Hefur félagið gert áætl-
un um að gróðursetja 12—15 þús.
plöntur.
Væntir félagið góðrar aðstoðar
bæjarbúa eins og að undanförnu,
bæði til sjálfboðavinnu og flutn-
iriga að og frá vinnustað. Þor-
steinn Þorsteinsson sjúkrasam-
lagsgjaldkeri hefur á hendi fram-
kvæmdastjórn vinnuferðanna
fyrir deildina og mun hann gefa
frekari upplýsingar, ef óskað er.
Menntaskólinn vann
maí-boðhlaupið
Maí-boðhlaupið fór fram sl.
sunnudag kl. 6 síðdcgis á nýju
hlaupabrautinni á íþróttasvæð-
inu. Þátttakandi félög voru: M.
A., K. A. og Þór,' með eina 10
manna sveit hvert.
Niðurröðun spretta var nú 100,
100, 200, 100, 100, 200, 400, 100,
100 200 m. Féll þessi niðurröðun
vel við lengd brautarinnar, 400
metrana, og mjög ánægjulegt fyr-
ir þá áhorfendur, sem stóðu í
brekkunni vestan vallarins, að
fylgjast með keppninni. Áhorf-
endur, sérstaklega börnin, gera
nokkuð að því að fara inn á sjálf-
an íþróttavöllinn, áður en
keppni hefst, en af því hljótast
alltaf nokkur spjöll á vellinum
sjálfum (sérstaklega meðan hann
er blautur), auk þess sem það
tefur framkvæmd hlaupsins.
Úrslit Maí-boðhlaupsins urðu
þau, að Menntaskólinn vann á 3
mínútum 20.9 sek.
Sveit K. A. varð önnur á 3 mín.
25.9 sek. og sveit Þórs þriðja á 3
mín. 26.2 sek.
Svíar teija radár koma að gagni
við lækningu geðsjúkdóma
Sænskir læknar eru byrjaðir að nota radar við lækningu
geðsjúkdóma og árangurinn er sagður „lofa mjög góðu“. Glögg
batamerki sáust á 14 af 20 tilfellum, sem fengu þessa radar-
meðferð á Beckomberga-spítala í grennd við Stokkhólm. Þessi
meðferð er sögð vera algerlega sársaukalaus og kunna sjúkl-
ingarnir henni vel og tekur hún að því leyti fram rafmagns-
„thock“-meðferðinni, sem notuð hefur verið nú um mörg ár.
Notkun radar, scm Iækningaaðferðar við geðsjúkdómum, er
lýst í greinargerð, sem læknarnir Dimberg og Almbord hafa
birt í „Svenska Lákertidningen". Aðferðin byggist á því, að
sýnt þótti, að tengsl væru í milli nokkurra geðsjúkdóma og
truílana í starfsemi hörmóna-kyrtla. Lítið radar-tæki er látið
verka á gagnauga sjúklingsins. Radar-bylgjunum er stefnt að
kyrtli, sem er ekki stærri en matbaun og liggur rétt neðan við
heilann. Þessi meðferð stendur yfir um 20 mín. í senn og er
endurtekin 4—5 sinnum í allt. Starfsemi hormónakyrtlanna
cykst og skerpir starfsemi heilans. Þessar tilraunir í Svíþjóð
hafa staðið yfir síðan í janúar síðastl.