Dagur - 30.01.1954, Síða 1
KOSNIN G ASKRIFSTOF A
Framsóknarmanna er op-
in daglega kl. 10—12 f. h.
1—7 e. h. og frá kl. 8.30
á kvöldin
B-LISTINN
er listi Framsóknar-
manna.
XXXVII. árg.
Akureyri, laugardaginn 30. janúar 1954
7. tbl.
KjósiS fulltrúa samvinnumanna í bæjarstjórn á morgun!
Framsóknarmenn,
kjósið snemma!
Samvinnumenn,
snemma!
1. maður B-Iistans
Jakob Frímannsson.
2. maður B-listans
Þorsteinn M. Jónsson.
3. maður B-listans
Guðmundur Guðlaugsson.
4. maður B-Iistans
Ilaukur Snorrason.
5. maður B-listans 6. maður B-listans 7. maður B-Iistans
Stefán Reykjalín. Ríkharð Þórólfsson. Gísli Konráðsson.
8. maður B-listans
Skafti Áskelsson.
(.
Lærdómsríkar umræður um bæjarmál
í útvarpimi í fyrrakvöícl
Útvarpsumræðurnar um bæjarmál, sem fram fóru í fyrrakvöld
voru lærdómsríkar fyrir bæjarmenn. Þær sýndu, að Framsóknar-
flokkurinn hefur á liðnu kjörtímabili haft forustu um markverðqstu
framkvæmdir í bænum og samvinnufélagsskapurinn er síyrkasta
stoð efnahagslegra framfara og atvinnu í bænum.
í heildarmynd útvarpsumræðn-
anna á fimmtudagskvöldið varð
Ijósara en áður, að Þjóðvarnar-
ílokkurinn hér hcfur engin mál
að tala um og enga raunverulega
stefnuskrá í bæjarmálum. Fylgdi
lítill gustqr þáíttöku þeirra í
bæjarmálaumræðunum og fór
svo að Iokum að þeir notuðu ekki
allan tímann til þess að ræða við
kjóscndur um áhugamál sín.
í ræðum tveggja efstu manna
listans kom ekkert nýtt fram.
Þær snerust um ýmis fram-
kvæmdamál í bænum, sem ýmist
eru komin í höfn eða eru á dag-
skrá hinna flokkanna og er eng-
inn styrkur að tilkomu þessa
flokks, enda þarf engan nýjan
flokk til þess að koma þeim í
höfn.
Þriðji maður lista þjóðvarnar-
liða virtist þó eiga erindi í út-
Við annan tón kvað nú hjá
Sjálfstæðismönnum en venja er
í blaði þeirra hér og reyndu þeir
lítt að taka upp þráð blaðsins til
árása á samvinnufélögin eða
halda uppi blekfeingum um starf-
rækslu þeirra og skattgreiðslur.
Það vakti ekki sízt athygli í
umræðunum, að þjóðvarnarmenn
sönnuðu það öllum hlustendum,
að þeir hafa engin mál að tala
um, ekkert nýtt fram að bera og
eyddu ræðutíma sínum í fimbul-
famb um málefni, sem aðrir
flokkar hafa á dagskrá og ekki
eru hóti betur á vegi stödd nema
síður sé fyrir tilkomu þessa
flokksbrots. Kommúnistar voru
nú slappari en þeir hafa nokk-
urn tíma verið áður og er það í
samræmi við vonir þeirra um
úrslit kosninganna. Alþýðuflokk-
urinn reyndi að halda uppi nokk-
urri stjórnarandstöðu, en þó fór
mestur tími tveggja ræðumanna
flokksins til þess að verja þeirra
eigin afstöðu til ýmissa mála í
bæjarstjórn.
Málefnalegav rökræður
Fraivjsóknarmanna.
Jakob Frímannsson, efsti mað-
ur B-listans, rakti í frumræðu
sinni störf bæjarstjórnar og sýndi
íram á,
að fulltrúar Framsóknarflokks
ins hafa liaft forustu um mark-
vcrðustu framkvæmdirnar og
hafa notað aðstöðu súia hjá
ríkisvaldi og peningastofnun-
um til þess að þoka áleiðis
stórmálum, sem ella hefðu
stöðvast í bili a. m. k.
Hann gat þess m. a. að fyrjr for-
göngu Framsóknarmanna var út-
vegað 2 millj. króna lán til
sjúkrahússins þegar við lá að
byggingin stöðvaðist vegna fjár-
skorts. Sjúkrahúsið er nú nær
fullgert og tekið til starfa.
(Framhald á 6. síðu).
(Framhald á 7. síðu).
Kosningaskrifstofðn er í Gilda-
skálanum á morgun - símar 1166
og 1711 - bílaafgreiðsla í Bifrösf
- símar 1244 oa 1798.