Dagur - 18.08.1954, Qupperneq 7
Miðvikudaginn 18. ágúst 1954
DAGUR
Afgreiðslusfúlka
Viljum ráða stúlku til afgreiðslustarfa í bókaverzlun
vorri (Bókaverzlun P. O. B.) frá 1. september n. k.
Umsóknir sendist undirrituðum.
Prentverk Odds Björnssonar
Akureyri.
Ó d ý r t:
Plasf-regnkápur
(styttri gerðin)
á aðeins kr. 10.00.
Vefnaðarvórudeild
Gúmmíbátar
Allar stærðir af björgunarbátum úr gúmmí útvegum
við með stuttum fyrirvara.
Gúmmíbátar fyrir trillur fyrirliggjandi.
SLIPPSTÖÐIN h.f.
Stmar 1830 og 1203.
TILKYNNING
um greiðslur örorkubóta og fœðingarslyrkja til danskra,
finnskra, norskra og sœnskra rikisborgara.
Hinn 1. sept. koma til framkvæmda tveir milliríkjasamningar
Norðurlandánna fimm, annar um gagnkvæmi varðandi greiðslur
vegna skertrar starfhæfni og hinn um gagnkvæma mæðráhjálp.
Samkvæmt fyrri samningnum eiga ríkisborgarar hinna samn-
ingslandanna, sem búsettir eru hér á landi, sama rétt til örorku-
bóta og íslenzkir ríkisborgarar, ef þeir hafa dvalið hér á landi
samfleytt fimm næstu árin áður en bótakrafa er borin fram, eða
dvalið hérlendis a. m. k. síðasta árið áður en bóta er leitað og
hafa verið a. m. k. 12 mánuði at dvalartímanum færir um, líkam-
lega og andlega, að inna af höndum venjuleg störf.
Samkvæmt síðari samningnum eiga danskar, finnskar, norskar
og sænskar konur, sem dvelja hér á landi og ala hér börn, sama
rétt til óendurkrafs faðingarstyrks frá Tryggingastofnun ríkisins
og íslenzkar konur hafa samkvæmt lögum um almannatryggingar.
Ennfremur eiga konur þessar jafnan rétt til styrks frá sjúkrasam-
lagi dvalarstaðarins vegna fæðingar í heimahúsum eða dvalar á
fæðingarstofnun og íslenzkar konur hafa samkvæmt sjúkratrygg-
ingakafla alþýðutryggingalaganna.
Samningarnir taka ekki til erlends starfsfólks sendiráða samn-
ingsríkjanna og heldur ekki til öryrkja, sem rétt eiga til bóta fyrir
slys við tryggingaskyld störf.
Þeir ríkisborgarar Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar,
sem samningar þessir taka til og telja sig öðlast rétt til örorku-
bóta eða fæðingarstyrkja 1. september n. k eða síðar., eru hér
með áminntir um að snúa sér til Tryggingastofnunar ríkisins eða
hlutaðeigandi umboðsmanns hennar og (ef um fæðingarstyrk er
að ræða) til sjúkrasamlags dvalarstaðarins.
Þcir íslenzkir ríkisborgarar, sem dveljast í Danmörku, Finn-
landi, Noregi eða Svíþjóð og uppfylla skilyrði samninganna, hafa
sama rétt til greiðslna vegna skertrar starfshæfni og til fæðingar-
styrkja í dvalarlandi sínu og þarlendir ríkisborgarar.
Reykjavík, 15. ágúst 1954.
Tryggingasfofnun ríkisins.
„Ungfrú ísland“ . . .
(framhald af 1. síðu).
Ungfrú María Jónsdóttir hlaut
2. verðlaun, og kom hún því heim
með dragt, skó og tösku, allt góða
gripi. Ungfrú Jóhanna Heiðdal,
Reykjavík hlaut 3. verðlaun, og
þar með vandaða kvenkápu af
beztu gerð. — Nokkuð misjöfnum
augum hefur verið litið á slíkar
fegurðarsamkeppnir og þá, er
fram fór í Tivoli um síðustu helgi,
og má vafalaust halda áfram deil-
um um þaer. Hins vegar getum
við óhikað samglaðzt blómarós-
unum okkar héðan frá Akureyri
og óskað þeim til hamingju með
sigurinn.
- Rafmagnsfram-
kvæmdir í Eyjafirði
(Framhald af 1. síðu).
unum á annan hátt kleift að
standa undir kostnaðinum. Taldi
hann, að deildinni hefði þegar
orðið allverulega ágengt í þessum
efnum.
Hvar verður næst hafizt handa?
Háspennulína var lögð fyrir
nokkrum árum fram Eyjafjörð að
Hrafnagili, og þaðan austur yfir
á, í Laugalandshverfi. að Uppsöl-
um, Klauf og Brúnhúsalaug. Nú
mun líða að því, strax og fjárhag-
ur og aðrar aðstæður leyfa — og
þá væntanlega innan tíðar — að
Rafveitur ríkisins leggi raftaugar
fram í héraðið, báðum megin ár,
og svo út um aðrar sveitir og dali
á þessu svæði, strax og tök eru á
og röðin kemur að hverju býli um
sig. Og alls staðar verður hinum
nýja gesti, rafmagninu, fagnað af
heilum huga, því að hvarvetna
flytur það meira ljós og skilyrði
til aukinna þæginda og menning-
ar inn á heimili manna.
Lítið herbergi
til leigu.
Afgr. vísar á.
ATVINNA
1—2 stúlkur geta fengið at-
vinnu á Saumastofu Gefj-
unar.
Upplýsingar í síma 1305.
Til léigu:
Stofa og eldhús í Oddeyrar-
götu 11. Óska eftir barn-
lausu, eldra fólki.
Einnig vantar mig vetrar-
stúlku.
Rósa Randversdóttir.
Kolaþvottapottur,
notaður, óskast til kaups.
Afgr. vísar á.
Messað í Akureyrarkirkju n.k.
sunnudag kl. 11 f. h. Séra Stefán
Eggertsson messar.
Minningargjöf. Þorlákur A.
Hallgrímsson frá Syðri-Reistará
hefur gefið Möðruvallakirkju í
Hörgárdal kr. 2000.00 til minn-
ingar um konu sína, Önnu Jó-
hannsdóttur, er lézt á Akureyri
13. janúar 1951. Beztu þakkir. —
Sóknarprestur.
IBUÐ
2—4 herbergi og eldhiis óskast
til leigu í haust eða fyrr. 4 full-
orðnir, góð umgengni. — A. v. á.
Fjölbreytt síðsumarsam-
koma Framtíðarinnar um
næstu helgi
Ágóðinn gengur til fyrir-
hugaðs elliheimilis
Kvenfélagið Framtíðin mun að
öllu forfallalausu efna til mjög
fjölbreyttrar útisamkomu á tún-
inu sunnan sundlaugarinnar hér
í bæ, laugardagskvöldið og
sunnudaginn 21. og 22. ágúst. —
Mjög verður vandað til þessarar
samkomu á allan hátt með mörg-
um skemmtiatriðum, bæði á palli
og í tjöldum. Kaffisala mun að
þessu sinni verða í heimavistar-
byggingum Menntaskólans, og
eru salarkynni þar hin vistleg-
ustu.
• Allur ágóði af þessari samkomu
mun að þessu sinni renna til elli-
heimilisbyggingar, sem vonir
standa til, að hægt verði að byrja
.á næstkomandi vor. &vo sem öll-
,um er kunnugt, þá var nýja
sjúkrahúsið um langt skeið aðal-
áhugamál kvenfélagsins, og voru
hin mörgu fjárframlög frá ein-
staklingum og félögum sterkur
þáttur í því, að Fjórðungssjúkra-
húsið er nú tekið til starfa. — Nú
er hið mikla nauðsynjamál, elli-
heimilið, enn óleyst og þarfnast
skjótrar úrlausnar, en sameigin-
leg átök geta lyft Grettistaki. Við
óskum því af alhug, að veðurguð-
inn verði Framtíðarkonum hlið-
hollur, svo að bæjarbúar og aðrir
geti notið þessarar samkomu, sem
konumar hafa lagt sig fram um
að vanda hið bezta til.
Flugeldum verður skotið, —
dansað verður úti. — Hátíða
svæðið upplýst. -1- Aukum sjóð-
inn — byggjum elliheimili — allir
leggi sinn skerf til — hver eftir
sinni getu.
Forráðamenn sundlaugarinnar
við Laugaland á Þelamörk
skora á íbúa næsíu hreppa að
Ijúka 200 m. sundinu sem allra
fyrst. Laugin er opin fimmtud.,
föstud., laugard. og sunnudag.
Til nýja sjúkrahússins. Áheit
frá P, A. kr. 250.00. — Áheit frá
K. K. kr. 500.00. — Gjöf frá Guð-
nýju Sigurðardóttur til minning-
ar um Jón Sigurðsson frá Merki-
gili kr. 11000.00. — Með þökkum
móttekið. G. Karl Pétursson.
Dánardægur. 11. þ. mán. and-
aðist í sjúkrahúsinu hér frú Val-
gerður Albertsdóttir, Hamarstíg
14 hér í bæ, öldruð og merk
sómakona.
* FOKDREIFAR
(Framhald af 4. síðu).
gæti og, að innviðu úr góðri stofu
mætti fá úr einum stað í hérað-
inu, baðstofuhús úr öðrum o. s.
frv. Þótt tínt væri saman úr fleiri
en einum stað, sakar ekki, ef gott
\
Þarna kæmi byggðasafnið svo
að segja í línu með sjúkrahúsinu,
heimavistarhúsi M. A. og sund-
höll bæjarins. Það minnir á, að
Akureyringar eru því ekki óvanir
að eiga byggingar í smíðum
nokkur ár. Gamla bænum (nýja)
má gjarnan reisa í áföngum, eftir
efnum og áhuga. Sennilega er
þegar áætlað um fyrirkomulag
þessa nýja hluta Lystígarðsins, en
varla svo ákveðið, að ekki verði
breytt, ef vel þykir á því fara.
VÆRI EKKI GAMAN að fá,
við tækifæri, að koma gegnum
skóginn, heim á hlað framan við
reisulegar burstir á Eyrarlandi?
Bærinn traustur og sem lifandi, í
fallegu rjóðri, sem þá opnaðist
móti austri og suðri. Myndu ekki
margir fagna því, að fá að koma í
búr og eldhús, inn í bað-
stofu, með uppbúnum rúmum,
kömbum undir sperru, rokkinn
við stokkinn og skruddur í skinni
á hillu á suðurstafni o. s. frv.?
Á heitum dögum gætum við e.
t. v. fengið góða sýfublöndu að
drekka, í stofunni framreitt skyr
og súrmat (úr geymslu í gömlum
stíl, samkv. kenningu dr. Brodda,
sem mér er mjög að skapi). Eig-
um við ekki að biðja um skyrið í
rósóttri „spilkomu“ og með út-
skornum, fljöelsmjúkum horn-
spæni? Heimasætan gengur um
beina í íslenzkum búningi. Uppi
á vegg hanga myndir af Hall-
grími Péturssyni og Kristjáni
kóngi 9. Hvernig lízt þér á, Akur-
eyringur?
29. júlí 1954.
Jónas Jónssón frá Brekknakoti.
/r
OLÍUKYNDITÆKI
Sjálfvirk, handstillt, ætíð fyrirliggjandi, eða útveguð
með stuttum fyrirvara. — Leitið upplýsinga.
JÓN QUÐMUNDSSON,
Símar 1246 og 1336.
Vinnufatnaður:
Höfum ávallt fyrirliggjandi vnnufatnað í
fjölbreyttu úrvali,
V efnaðarvörudeild