Dagur - 17.12.1955, Blaðsíða 1
16 SÍÐUR OG JÓLALESBÓK
Fylgizt með því, sem gerist
hér í kringum okkur. —
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 21. desember.
XXXVIIL árg.
Akureyri, laugardaginn 17. deseinber 1955
59. tbl.
Búið. er um vörutnar í innpökkunardsild, en ekki séstaklega fyrir
hvern viðskiptamann.
Leyfi til j) ess loksins fengið hjá ríkisstjórninni.
Brýnt liagsmunamál íslendinga
Ríkisstjórnin hefur nii veitt
Sambandi ísl. samvinnufélaga
og Olíufélaginu h.f. í samein-
ingu heimild til þess að kaupa
eða láta smíða stórt olíuflutn-
ingaskip, sem flutt geti olíu
frá útlöndum til íslands. Hef-
ur þetta um skeið verið eitt
brýnasta liagsmunamál ís-
lendinga að eignast slíkt skip,
þar sem slíkir olíuflutningar
eru orðnir geysimiklir, og fer
mikill gjaldeyrir úr landi til
slíkra flutninga. Samvinnu-
menn hafa um skeið haft mik-
inn hug á að eignast slíkt
skip.
Allt frá árinu 1953 hafa SÍS og
Olíufélagið h.f. unnið að því sam-
eiginlega að fá leyfi íslenzkra
stjórnarvalda til þess að byggja
eða kaupa 18—20 þúsund lesta
olíuflutningaskip.
Rikisstjórnin hefur nú veitt
heimiid til kaupa á þessu stóra
skipi, og þar sem leyfi þetta hefur
nú fengizt mun á næstunni verða
unnið að því að undirbúa skipa-
Söliibúðir
Sölubúðir bæjarins verða
opnar til kl. 10 e. h. næst-
komandi þriðjudag. — A
Þorláksmessu lil kl. 12 á
miðnætti og á aðfangadag
til kl. 1 e. h.
kaup þessi eða byggingu nýs skips,
að þvi er segir í fréttatiikynningu,
sem blaðinu barst frá SÍS.
Vegna mikilla anna flestra
skipasmíðastöðva má gera ráð fyr-
ir, að afgreiðslutími slíks skips sé
2—3 ár frá því að byggingarsamn-
ingar eru undirritaðir.
Jólagjafir að vestan
í dag eru hin svokölluðu
Litlu jól í Barnaskólanum
liér á Akureyri. Eru þá stof-
urnar skreyttar og allt í há-
tíðabúningi. Börnin. senda
hvert öðru jólakort og
sungin eru jólalög og
sálmar. Þessi siður skólans
er gamall or; vinsæll. —
Að þessu sinni koma jóla-
gjafir til skólabamanna frá
Rauða Krossinum vestan
hafs, fyrir milligöngu
Rauða Krossins hér á landi.
Ern þetta pakkar með ýms-
um smálilutum. En pakk-
arnir voru ekki nógu marg-
ir fyrir börnin, og því var
horfiö að því ráði, að láta
yngri börnin njóta þeirra.
Fá öll börnin í 1., 2. og 3.
Saumastofa Ceijunar vinnur þýðing-
armikið starf. - Gefjunardtókarnir
viðurkenndir. - Stórbætt aðstaða
til viðskipta
Saumastofan flytur í ný
húsakynni.
Á miðju síðastliðnu sumri flutti
Saumastofa Gefjunar í ný húsa-
kynni. Fór hún úr húsnæði KEA,
þar sem hún hafði starfað í aldar-
fjórðung, í Ráðhústorg 7, þar sem
áður var útibú Landsbankans á
Akureyri. Er þar mikið húsrúm og
staðurinn hinn ákjósanlegasti.
! Vaxandi viðskipti.
Vegna sívaxandi viðskipta og til
bekk þessar jólagjafir. Það'að koma meira a móti viðskipta-
er barnadéild Rauða Kross-j vinunum> Þurfti fullkomna sölu-
ins vestra, sem safnað hefur
í pakkana og fylgja nöfn
barnanna og heimilisfang Lík Fl’ÍðjÓllS ióllílllllCS-
skólanna, sem þau em í. —
sonar fmidið
Á fimmtudaginn fannst lík Frið-
jóns Jóhannessonar við Oddeyrar-
tanga. En Friðjón hvarf frá heim-
ili sínu hér á Akureyri 17. nóv. sl.
Var hans leitað mjög mikið, en
án árangurs. Meðal annars og al-
veg sérstaklega í sjónum við
bryggjurnar á Oddeyri, vegna þess,
fyrst og fremst, að sporhundur
Flugbjörgunarsveitarinnar, rakti
slóð hans þangað.
jólaleyfi þingmanna
17. des. til 5. jan.
Þar sem nú er ljóst orðið að
Alþingi getur ekki lokið störfum
fyrir áramót, hefur forsætisráð-
herra nú borið fram tillögu um að
fundum þingsins verði frestað frá
17. des., enda verði það kvatt sam-
an aftur eigi síðar en 5. jan. 1956.
Jólatréð á Ráðhástorgi
Fallegt jólatré, vinargjöf frá Rariders, var sett á Ráhústorg. Myndin er tekin, er verið var setja það upp.
búð, í sambandi við Saumastof-
una.
Saumastofan, sem á undan-
gengnum aldarfjórðungi hefur sent
frá sér um 100 þús. sett af fatnaði,
og veitt 35—40 manns atvinnu um
fjölda ára, framleiðir nú fatnað
alls konar fyrir 2 milljónir króna
árlega.
Þýðingarmikið starf.
Saumastofan hefur unnið jöfn-
um höndum fyrir bæjarbúa og
nærsveitarmenn og ennfremur fyr-
ir kaupfélög landsins. Má öllum
vera ljóst af því er nú hefur verið
sagt, að þetta fyrirtæki Sambands
íslenzkra samvinnufélaga hefur
unnið merkilegt starf fyrir bæ og
byggðarlag og reyndar þjóðfélagið
allt.
Gefjunardúkar sterkir og
fallegir.
Síðan í sumar hefur verzlunin
verið undirbúin og er hún á fyrstu
hæð og er opnuð í dag. Eru þar
líka geymslur og afgreiðsla. Á
annarri hæð er rúmgóður vinnu-
salur. Húsakynni eru öll hin vist-
legustu og vinnuskilyrði góð.
Með opnun hinnar nýju verzlun-
ar munu viðskiptin beinast enn
meira að þessu fyrirtæki. Gefjun-
ardúkarnir hafa þegar hlotið þá
viðurkenningu, að vera fyllilega
samkeppnisfærir við hliðstæða,
erlenda framleiðslu. Eru þeir bæði
sterkir og margir mjög smekklegir.
Ný lýsing.
Sett verður upp, á framhlið
byggingarinnar, ný gerð af Neon-
ljósum. Verða þau góð auglýsing
og prýða auk þess Ráðhústorg.
Fyrsta millilandaflug-
vél á Akureyrar-
flugvelii
1 gærkveldi, er blaðið vai að
fara í pressuna, settist fyrsta milli-
landaflugvélin á Akureyrarflug-
vö!l. Var það Sólfaxi. — Með hon-
um komu ýmsir forráða- og trún-
aðarmenn flugmála, meðal annars
Ingólfur Jónsson flugmálaráðh.
Úr Kjörbáð KEA