Dagur - 15.01.1958, Page 1

Dagur - 15.01.1958, Page 1
Fylgist með því, sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. DAGUR kemur næst út laugar- daginn 18. janúar. XLI. árg. Akureyri, miðvikudaginn 15. janúar 1958 3. tbl. Úr hraðfrystihúsi Útgerðarfélags Akureyringa sl. sumar Ör skýrslu rannsóknarnelndar Ú. A. Birgðir reynast að verðgildi 6,4 milljónum króna minni en skýrslur framkvæmdastjórnarinnar sögðn Samvinnumál og bæiarmál Viðtal við Jakob Frímannsson kaupfélagsstjóra Blaðið sneri sér til efsta manns á framboðslista Framsókn- arflokksins á Akureyri við næstu bæjarstjómarkosningar, Jakobs Frímannssonar kaupfélagsstjóra, og lagði fyrir hann nokkrar spurningar um samvinnuinál og bæjarmál. En Jak- ob Frímannsson hefur, sem kunnugt er, lengi verið fulltrúi Framsóknarmanna í bæjarstjórn, bæjarráði og í fjölmörgum triinaðarstöðum fyrir flokkinn og hafa tillögur hans jafnan þótt þungar á metunum. — Fer viðtalið hér á eftir: Samkvæmt samþykkt síðasta aðalfundar Utgerðarfélags Akur- eyringa h.f., var stjórn félagsins falið að skipa 3ja manna nefnd til þess að athuga rekstur félagsins tvö síðustu ái', og þá aðallega með hliðsjón af hinum mikla tap- rekstri. Eftirtaldii' menn voru af hálfu stjórnarinnar fengnir til þessa starfs, sbr. fundargerð stjórnarinnar 30. okt. síðastl.: Halldór Jónsson, Reykjavík, formaður nefndarinnar. Baldvin Þ. Kristjánsson, Rvík. Tryggvi Helgason, Akureyri. Það, sem nefndarmönnum þótt.i nauðsynlegt að leggja aðal- áherzlu á að kynna sér til þessar- ar athugunar, má í stuttu máli draga fram þannig: 1) Samanburð á aflamagni allra þessara skipa árin 1955 og 1956. 2) Samanburð á rekstursreikn- ingum annarra togaraútgerða. — Hafði nefndin aflað sér til þess reikninga eftirtalinna skipa: Regnbogavist á sunnudaginn Framsóknarfélögin á Akur- eyri hafa fyrstu regnbogavist- ina á sunnudaginn kemur að Hótel KEA kl. 8.30 e. h. Vist- inni stjórnar frú Ilelga Jóns- dóttir. Stutt ávarp veröur flult og dansað á eftir, bæði gömlu og nýju dansarnir, og mun Jón Kristinsson, rakarameistari, stjórna dansinum, — Hið nýja spil er, að sögn, mjög auðlært, og þó fjölbreyttara en Fram- sóknarvistin. — Allir eru vel- komnir. a) Siglufjarðarskipanna, Haf- liða og Elliða. ísafjarðarskipanna, ísborgar og Sólborgar. Reksturs- reikninga Bæjarútgerðar Reykja víkur, og voru þar tilteknir eim- togararnir Ingólfur Arnarson, Þorsteinn Ingólfsson, Skúli Magnússon og Pétur Halldórsson. Taldi nefndin, að hér væri um tiltölulega góðan samanburðar- grundvöll að ræða, þar sem í þessum hópi eru eimtogarar, bæði af eldri og yngri gerð, eins og er á Akureyri. 3) Að kynna sér útkomu á salt- fiskverkunarstöð Ú. A., innkeypt aflamagn, seldar afurðii' og nið- urstöður birgðareiknings stöðv- arinnar. 4) Hliðstæðar athuganir varð- andi fiskherzlustöð Ú. A. Var það sameiginlegt álit nefndarmanna og stjórnar Ú. A , að til þess að hraða störfum væi'i eðlilegt að nefndin beitti séi' nær eingöngu að rekstursárunum 1955, 1956 og eftir því sem þurfa þætti 1957. Um aflamagn. Nefndin hafði þann háttinn á að telja eina lest saltfisks jafn- gilda 2 lestum ísfisks, en saltfiski landaðan erlendis breyti hún þó í l'eikningum sínum í ísfisk með tölunni 2,22. Þegar öllum afla skipanna er þannig breytt í ísað- an fisk, verður meðalafli saman- burðarskipanna 8 4.979 lestir ár- ið 1955 nióti 4.280 lesta meðal- afla Akureyrartogaranna. Fer hæsta samanburðarskipið það ár í 6.004 lesta afla móti 4.562 lesta hæstum afla Akureyrtogara. Lægsta samanburðarskipið er með 4.003 lesta afla á móti 3.825 lesta afla lægsta Akureyrartog- arans, Sléttbaks, en hann var all- lengi í viðgerð á árinu. Árið 1956 verður þessi saman: burður hins vegar hagstæðari Akureyrarskipunum. Þá var með alafli samanburðarskipanna 4.422 lestir, móti 4.791 lest Akureyrar- togaranna. Enn er hæsta skip úr hópi samanburðarskipanna nokkru hærra en hæsti togari hér (5.921 lest : 5.417 lesturn), en Akureyrarskipin eru nú drjúgum jafnari. Aflaverðmæti. Samkvæmt tölum rekstursreikn inganna er hins vegar aflaverð- mæti Akureyrarskipanna meira að meðaltali bæði 1955 og 1956, eða 1955 5. 6millj. ki'. á móti 5.0 millj. kr. og 1956 5.8 millj. kr. móti 5.0 millj. kr. (Framhald á 5. síðu.) F ramsóknarmenn! Munið áður auglýstan fund í kvöld að Hótel KEA. Ræðu- mcnn: Jakob Frímannsson, Guðmundur Guðlaugsson og Stefán Reykjalín. Ennfremur talar Ásgcir Valdcmarsson um skipulagsmál bæjarins o. fl. D AGUR kemur næst út laugardaginn 18. janúar. — Auglýsingar þurfa að berast fyrir hádegi á föstudag. Hvernig hefur starfsemi Kaup- félags Eyfirðinga gengið á sl. ári? Sala KEA árið 1957 var svipuð og árið áður og félagið hafði einnig nokkrar framkvæmdir eins og undanfarin ár. Hverjar eru helztar nýjungar í verzlunarmálunum? Kj‘örbúðirnar, svarar kaupfé- lagsstjórinn. Bæjarbúum hefui' fallið mjög vel að skipta við fyrstu kjörbúðina í bænum, kjör búðina við Ráðhústorg. Síðan hefur verið leitað fast á um sams konar verzlanii' í öðrum bæjai'- hlutum. Seint á síðastliðnu ári breytt- um við útibúi okkai' í Hafnar- stræti 20 í kjörbúð og við höfum hug á að breyta fleiri eldri úti- búum á svipaðan liátt eins fljótt og við verður komið. Almenn ingur virðist þess mjög fýsandi að þannig sé breytt um verzlun- arform. Til dæmis jókst salan ótrúlega mikið í Hafnarstræti 20, eftii' að kjörbúðin tók til starfa. Hvaða útibúi verður breytt næst? Útibúinu í Glerái'þorpi. Við höfum sótt um fjárfestingarleyfi til byggingar verzlunai' þar í 3 ár án árangurs, en vonum að úr muni rætast, því að ekki má dragast að koma upp fullkomi- inni og góðri verzlun utan við ána. Hvaða framkvæmdir viltu helzt r.efna í sambandi við KEA? Kaupfélagið er nú til dæmis að stækka húsakost sinn við skipa- smíðastöðina á Oddeyri. Eg hef mikla trú á því, að skipasmíða- stöðin eigi mikla framtíð fyrir höndum. Skip og bátar frá stöð- inni eru viðurkennd meðal sjó- manna og útgerðarmanna. Ef hér væri hægt að auka skipasmíð- arnar verulega, og hníga mörg rök að því, að það geti orðið og sé hagkvæmt, þá skapar það fjölda manns atvinnu, fram yfir það sem nú er. KEA mun hafa fleiri fram- kvæmdir með höndum á Odd- eyri? Já, vegna hinnar miklu fjölg- unar sauðfjár í héraðinu og stór- aukinna sauðfjárafui'ða, hefur oi'ðið að stækka frystihúsið veru- lega. í sambandi við þá stækkun verður komið upp frystihólfa- geymslu, sem áætluð er svo stór, að allir félagsmenn geti fengið þar frystihólf er þess óska. Svo hefur SÍS, bætir kaupfé- lagsstjórinn við, stórbyggingu í smíðum við Gefjun. Er það ull- argeymsla og eitt af stærri hús- urn í bænum. Á hún að taka meginhlutann af ullarfralmeiðsl- unni. En eins og flestir vita starf- rækir SÍS einu fullkomnu ullar- þvottastöðina, sem til er á land- inu. Veitir hún fjölda manns at- vinnu allt árið. Um aðrar verk- smiðjui' Sambandsins má fullyrða að þær eru flestar í örum vexti, því að eftirspurn eftir iðnaðar- vörum frá þeim fer stöðugt vax- andi með aukinni kynningu á þeim meðal neytenda í landinu. Hve margir eru fastráðnir starfsmenn KEA? Þeir eru nokkuð á fjórða hundraði, en auk þeirra vinnur fjöldi manns við hvers konar störf viðkomandi rekstri félags- ins, bæði hér á Akureyri og ann- ars staðai'. Hjá SÍS á Akureyri vinn á 5. hundrað manns. Og Jakob Frímannsson bætir því við og leggur á það áherzlu, að samvinnumenn á Akureyri hafi jafnan haldið því fram, að iðnaðurinn veitti öruggasta af- komu einstaklinganna og styddi | verulega að velgengni bæjarfé- (Framhald á 7. síðu.) r xS - B-listinn er listi Framsóknarmanna ------------------------ —

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.