Dagur - 25.01.1958, Síða 4

Dagur - 25.01.1958, Síða 4
4 DAGUR I Laugardaginn 25. janúar 1958 DAGUR Ritstjóri: ERLINGUR DAVÍÐS50N Afgreiðsla, auglýsingar og innheimta: Þorkell Björnsson Skrifstofa í Hafnarstræti 90 — Sími 1166 Árgangurinn kostar kr. 75.00 Blaðið kemur út á miðvikudögum og laugardögum, þegar efni standa til Gjalddagi er 1. júlí Prentverk Odds Björnssonar h.f. Beinir skattar og samvinniifélög í BLÖÐUM Sjálfstæðismanna er því oftlega haldið fram, að samvinnufélögin njóti óeðlilegra „frfðinda" að því er varðar greiðslu beinna skatta. Sjaldnast er það þó skýrgreint, í hverju „fríðindin" eru fólgin, en ætla verður samt, eftir skrifunum að dæma, að gerð sé krafa um, að samvinnufélög lúti sömu regl- um í þessu efni og hlutafélög. Virðast fyrirsvarsmenn þessarar skoðunar telja, að ekki beri þar á milli annað en félagsformið eitt. Við nánari athugun verð- ur þó Ijóst, að hér er ekki um nein formsatriði að ræða. Astæðurnar, sem lágu til grundvallar fyrir reglunum unt skattgreiðslu félaganna í samvinnu- lögunum frá árinu 1921 hafa sama. gildi í dag, eins og þær höfðu þá, og byggjast þær á hinum gagngera eðlismuni milli hlutafélaga og samvinnufélaga. Mun- ur þessi kemur bæði frani í ólíkum marknj'iðum og ólíku skipulagi þeirra, en hér skiptir það fyrrnefnda þó nteira máli. Markmið hlutafélags cr söínun á- góða, til dæmis sclur verzlun í formi hlutafélags vörur til að hagnast á þeim félagsins vegna. Al tur á móti er markmið kaupfélags fyrst og fremst það, að útvega félagsmönnum sínum vörur á kostnaðarvcrði eða fyrir sannvirði, eins og það er stundum kallað. Til ])ess að framkvæma þctta hefur sú lcið vcrið valin, að ákveða útsölúverð varanna hærra heldur cn kostnaðarverðið, og skipta síðan tekjuafganginum milli félags'mannanna, eftir viðskiptamagni hvers þeirra um sig. Aðaltilgangur kaupfélagsins er þann- ig ekki sá, að safna eigin fé og ágóða, heldur er hann sá einn, að spara félagsmönnunum útgjöld. Hér hefur verið minnzt á aðalatriðin í markmið- um beggja þessara félaga. Það, sem hér bcr á milli er það, hvort leggja skuli beina skatta á þann reikn- ingslega hagnað, scm myndast hjá kaupfélagi af vörusölunni til félagsmanna þeirra. Af þeim fáu at- riðum, sem hér hafa vcrið nefnd, má þó vera öllum Ijóst, að lagning beinna skatta á kaupfélag horfjr allt öðruvísi við en álagning sömu skatta á hluta- félag. Þeim reikningslega hagnaði, sent verður til vegna viðskiptanna við félagsmenn fylgir sú kvöð, að hann skal bæði samkvæmt markmiði félagsins og lagareglum, deilast út til félagsmannanna. Honum verður því á engan hátt jafnað til ágóða hlutafélags. Ef lagðir eru á hann beinir skattar, tekjuskattur og útsvar, þá er raunverulega ekki um að ræða álagn- jngu á kaupfélagið, heldur á félagsmennina. Við sl/kar aðstæður yrði félagið nánast innheimtuaðili fyrir ríki og sveitarfélög. — Slík skattaálagning sem þessi, er bæði órökrétt og brýtur eínnig í bág við almennar regliir tckjuskatts- og útsvarslaga. Á það var áðan bent, að tilgangur kaupfélaganna væri sá, að spara félagsmönnunum útgjöld með því að útvega þeim vörur nteð kostnaðarverði. í áður- nefndum lögum er ekki gert ráð fyrir, að mönnum sé reiknað sem tekjur það fjárhagslega hagræði, scm þeim kann að hlotnast við það að komast að betri kaupum á vörum eða öðrum verðmætum en almennt gerist. Væri sú regla upp tekin að því er varðar fé- lagsmcnn kaupfélaganna, þá væru þeir augljóslega sýnu vcrr scttir skattalega en menn almennt. Bílasími B-listans er 1244 Framíarirnðr í Glerárþorpi eftir sameininguna við Akureyri Nú standa fyrir dyrum bæjar- stjórnarkosningar á Akureyri og nú eiga Glerárþorpsbúar að fá að kjósa. Við síðustu kosningar voru þeir sviftir kosningarétti með því að draga sameininguna, sem þó var ákveðin og undirbúin, fram yfir kosningar. Sagt var að norð- anvindurinn hefði þá staðið ein- hvern veginn svo illa í bólið hinna pólitísku flokka bæjarins, eins eða fleiri, að ekki þótti ráð- legt, að hleypa þorpsbúum að kjörborðinu, svona í hasti, það gæti ruglað útreikningana. Þeir gætu bara beðið rólegir eitt kjör- tímabil. En nú verður skriðan ekki stöðvuð, og nú eru líka útsendar- ar hinna fjögurra pólitísku flokka bæjarins sagðir komnir á kreik út fyrir ána á mannaveiðar, þar sem þeir, hver fyrir sig, útskýra fyrir' lýðnum ágæti sinnar stefnu skrár og hafa víst þegar allir flokkarnir krækt sér í 1—2 þorpsbúa á hvern lista sér til brautargengis. Er það vel farið, og sýnir meðal annars kurteisi foringjanna, en auðvitað hafa þeir gætt þess, að hafa þá í hæfi- legri fjarlægð frá foringjunum og þeirra valdasta liði á listunum. — „Fyrst fólk, svo mtarósar.“ Þá er að minnast á framfarirn- ar hjá okkur á þessu kjörtímabili, sem nú er á enda. Einhverjir hér virtust hafa þá trú, að þegar þorpið gengi í bæjarfélagið mundi verða gert hér margt til bóta. En hvað hefur verið gert? Jú, í fyrra var spýtt til okkar nokkru vatni innan af Eyrinni til viðbótar því, sem okkar gamla leiðsla flutti, og var það virðing- arvert, en sá kostnaður er tekinn með stórhækkuðum vatnsskött- um. Svo hefur eitthvað verið lagt af skólapleiðslum niðri í þorpinu, en enginn veit til, að einn einasti metri af hýjum vegi hafi verið lagður hér. Þetta eru nú allar framfarirnar undir stjórn hinna háttvirtu og vísu bæjarfulltrúa þarna innra. Það veitti þó sannarlega ekki af, meðal annars, að hresst verði eitthvað upp á Ásveginn (þ. e. veginn frá barnaskólanum að bænum Ási), en við þann veg býr margt fólk, og eigi það að hafa nokkurt verulegt gagn af stræt- isvagninum, þarf að gera þennan veg færan. Vonandi geta okkar ágætu fulltrúaefni úr þorpinu látið hér til sín taka (nú á heppi- legum tíma) og hrundið þessu og fleiri umbótamálum áfram. En svo kemur sú stóra spurn- ing: Er hægt að gera nokkuð fyr- ir þessa menn þarna ytra? Greiða þeir nokkuð að marki í bæjar- sjóðinn? Skal nú reynt að svara þessu lítillega. A síðastliðnum þrem árum munu þorpsbúar, ásamt fáeinum sveitabæjum, hafa greitt í útsvör nokkuð á þriðju milljón króna, og fyrir „sameininguna“ um 300 þúsund krónur. Þetta sýnist nú allálitleg upphæð frá litlu þorpi. En hvaða útgjöld hefur svo bærinn haft vegna þess? Eftir ágizkun verða þau þessi: Auk þess sem áður er gctið hér að framan, þ. e. kostnaður við skólp leiðslurnar, verða stærstu út- gjöldin skólahald hér og lýð- tryggingar. Osennilegt er, að þessi úttgjöld samanlögð fari yfir hálfa milljón í þessi þrjú ár og verður þá álitleg fúlga eftir handa bæjarsjóðnum til ýmissa þai'fa, eða um ein og hólf milljón. Og svo fær bæjarsjóður að sjálf- sögðu þar að auki talsvert fé í lóða- og erfðafestugjöldum. Væri það nú svo ósanngjarnt, að af þessum nettótekjum hefði gengið svo sem einn þriðji til framkvæmda í þorpinu? Vitanlega hefur bærinn í mörg horn að líta og mörg verkefni bíða úrlausnar á næstunni. Það munu sennilega flestir hugsandi menn hér óska okkar góða og fallega bæ gæfu og gengis í nú- tíð og framtíð og fúslega leggja fram sinn hlutfallslega skerf til ýmissa framkvæmda hans, en þeir hljóta þá einnig að krefjast þess, að fá sinn sanngjarna hluta af tekjunum til nauðsynlegra framkvæmda hér, en séu ekki eingöngu hafðir að féþúfu. 21. janúar 1958. Þorpsbúi. Myndasögur „íslendings44 í íslendingi eru margar og góðar myndir, sérstaklega í síðustu blöð- unum. Til dæmis er mynd a£ Jakobi Frímannssyni í hverju blaði á fremstu síðu, og honum aðeins valinn mismunandi félagsskapur til tilbreytingar. Aftur á móti cru myndir af foringjum íhaldsins, faldarinnan í síðustu blöðum nema af Jónasi Rafnar. Honum er tillt upp neðst á fremstu síðu, við hlið- ina á húsi með brotnum rúðum. Dagur vill vekja athygli Islendings á því, bvort ekki hefði farið betur á að hafa myndina af bæjarstjóra- cfni sínu við hliðina á myndinni af hlutabréfi Ú. A. Bæði cr nafn íhaldsins allmikið tengt við Ú. A., og livað verðgildið sncrlir, er munurinn ekki tiltakanlega mikill. 'Nýr forstjóri Evrópu- skrifstofu S. Þ. Forstjóri Evrópuskrifstofu Sam- einuðu þjóðanna i Friðarliöllinni í Genf, Adrian Pelt, sem er Hollend- ingur, lætur af störfum í lok þessa árs sökum aldurs. í hans stað liefur Dag Hannnar- skjöld, aðalforstjóri, skipað ítalskan mann, Pier Paspuale Spinelli Hinn nýji forstjóri liefur lengi starfað í utanríkisþjónustu ítala. Hvar á cg að kjósa? í BÆJARSTJÓRNARKOSNINGUNUM á morgun verður kosið á tveimur stöðum í bænum: í Gagnfrœða- skólanum og Oddcyrarslióhmum. Kjördeildir verða þrjár á Iivorum kjörstað. Við undanfarnar kosningar licfur kjördeildum verið raðað cftir stafrófsröð nafna kjósenda, en nú verður það stafrófsröð gatna, sem ræður skiptingu í kjördeildir, og er heimilisfang kjós- andans þar miðað við febrúar 1957. Til leiðbeiningar kjósendum fer hér á eftir skipt- ing í kjördeildir á morgun: í GAGNFRÆÐASKÓLANN I. kjördeild: Aðalstræti, Ásabyggð, Ásvegur, Austurbyggð, Bjark- arstígur, Bjarmastígur, Byggðavegur, Bæjarstræti, Engi- mýri, Eyrarlandsvegur, Fagrastræti, Gilsbakkavegur, Goðabyggð, Grænamýri, Helga magra stræti. II. kjördeild: Hafnarstræti, Hamarstígur, Hlíðargata, Holtagata, Hrafnagilsstræti, Kambsmýri, Laugargata, Lækjargata, Lögbergsgata; Matthíasargata. III. kjördeild: Munkaþverárstræti, Mýravegur, Möðruvallastræti, Naiist, Oddagata, Oddeyrargata, Páls Briems-gata, Ráð- hússtígur, Rauðamýri, Skólastígur, Sni'ðgata, Spítala- vegur, Vesturgata, Víðimýri, Vökuvellir, Þingvalla- stræti, Þórunnarstræti. í BARNASKÓLANN Á ODDEYRI IV. kjördeild: Býlin, Glerárþorp, Brekkugata, Eiðsvallagata, Eyrar- vegur, Fagrahlíð. V. kjördeild: Fjólugata, Fróðasund, Geislagata, Glerárgata, Gler- áreyrar, Gránufélagsgata, Grenivellir, Grundargata, Grænagata, Hjalteyrargata, Hólabraut, Hríseyjargata, Hvannavellir, Klapparstígur, Klettaborg, Langahlíð, Laxagata, Lundargata, Lyngholt, Lögmannshlið. VI. Íijördeild: Norðurgata, Ráðhústorg, Ránargata, Reynivellir, Skipagata, Sólvellir, Steinholt, Stórholt, Strandgata, Túngata, Víðivellir, Ægisgata. Öll býlin utanbæjar eiga kjörsókn í Oddeyrarskól- anum nema Naust og Vökuvellir. Leggið ykkur fast á minni á hvaða kjörstað og í livaða kjördeild þið eigið að kjósa. Þó að brátt sé áratugur liðinn frá frelsisstríði fsra- elsnianna, þá erúcnn í nágrannalöndunum um 922 þús. flóttamenn, sem áður áttu heima í Gyðinga- landi. Um helmingur þeirra cr í ílóttamannabúð- um á vegum Samcinuðu þjóðanna.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.