Dagur - 25.01.1958, Side 8

Dagur - 25.01.1958, Side 8
8 Bagub Laugardaginn 25. janúar 1958 Enginn hluthali skyldur aS hlulabréf sín í 0. A. Gísli Konráðsson framkvæmda- stjóri Útgerðarfélags KEA er fjórði maður á lista Framsóknar- manna við í höndfarandi kosn- ingar. Gísli er starfsmaður mikill og fær í bezta lagi, svo sem fyrir- tæki þau, er hann stjórnar, bera með sér og bera honum bezta vitnið. Blaðið beindi til hans nokkrum spurningum, sem hér fara á eftir. Hvað viltu segja um útvegs- málin? Útgerð héðan frá Akureyri hefur nú um nokkur ár verið all- mikil. Fyrir utan togarana hafa upp á síðkastið verið gerð héðan út 9 fiskiskip. Af þessum skipum hefur nú eitt vei'ið selt burt og þar að auki togarinn Jörundur. Er það að vísu leitt, að svo skyldi fara, en vonir standa til að þau skip verði bætt áður en langt líð- ur. — Á næsta sumri bætist hér í bátaflotann veglegt skip, ca. 230 rúmlesta, eign Leós Sigurðssonar, og auk þess hefur Útgerðarfélag KEA nú í athugun byggingu á ca. 200 smálesta skipi hér á Akur- eyri. Ef úr því yrði mundu þessi tvö skip verða myndarleg viðbót við skipaeign Akureyringa. — Hvort skarð Jörundar verður fyllt, mun ekki liggja fyrir enn. Góður útgcrðarstaður? Ekkert bendir til þess að út- gerð héðan sé ekki jafn vænleg og annars staðar á landinu. Að vísu hefur megnið af þorskafla bátanna hér verið unninn utan Akureyrar. En Krossanesverk- smiðjan hefur notið góðs af síld- arafla þeirra. Að því þarf þó að vinna, að Akureyrarskipin öll leggi síldaraflann fyrst og fremst upp í Krossanesi nú, ekki sízt fyi'ir þá sök, að verksmiðjan hef- ur nú misst Jörund, eitt af sínum beztu skipum. — Það er athygl- isvert, að Akureyrarskip eru ávallt með þeim hæstu á síld- veiðum og berjast jafnvel um efstu sætin. — Togveiðar að vor- inu fyrir Norðurlandi hafa og gefið góða raun á síðustu árum og á sl. ári er t. d. Snæfell með meira aflaverðmæti en nokkru sinni fyrr. — Ræður þar nokkru um smásíldarveiði sú, sem varð hér á Pollinum í desember. Má segja að það hafi verið náma, sem illa nýttist fyrir þá sök, að hent- ug veiðarfæri vantiði. — Að því mun verða unnið fyrir næstu smásíldarvertíð, að heppilegr tæki verði fyrir hendi til veið- anna, en þó er ekki síður mikil- vægt, og þarf nauðsynlega að at- huga, um möguleika á betri nýt- ingu aflans. Er það mjög illt að sjá slíka vöru, sem smásíldin er, fara nær eingöngu í mjöl- og lýs- isvinnslu. — Kemur þá til bæði frysting til útflutnings og niður- suða. Bátaútgerð héðan ætti að hafa mikla framtíðarmöguleika. Skipasmíði? Skilyrði eru hin beztu fyrir bátasmíðar þrjár skipasmíða- stöðvar stai'fandi, sem gætu af- kastað miklu í þeim efnum. — Skipasmíðastöð KEA hefur á sl. ári skilað frá sér þrem nýjum bátum. Hún er nú með nýtt verkstæðishús í byggingu og hyggst að auka rekstur sinn. Sá stóri annmarki er þó á, að inn- lendir bátar eru mun dýrari en bátar þeir, sem byggðir eru er- lendis, og hafa stjórnarvöldin því farið inn á þá braut, að leyfa innflutning í stað þess að skapa innlendum skipasmíðastöðvum skilyrði til þess að vera sam- keppnishæfar og spara þar með margar milljónir árlega í erlend- um gjaldeyri, sem fer til greiðslu á vinnulaunum erlendra manna. En sjái stjórnarvöldin að sér og breyti um stefnu, er ekki vafi á því, að skipasmíðaiðnaður rís upp í stórum stíl hér á Akureyri. Málefni Ú. A.? Það hljóta allir að harma, hvernig málum er þar komið, hverju sem þar verður um kennt. Sögusagnir hafa mjög verið á kreiki um óheiðarlegai' athafnir sumra starfsmanna félagsins. Hafa þær sögur aukizt og marg- faldast á ferðum sínum, svo að ótrúlegt er. — Þykir mér það mikill ljóður á ráði Akureyringa, að rækta með sér slíkan gróður. Þyrfti að ná til þeirra manna, sem til hans hafa sáð og gera þá ábyrga gjörða sinna, svo að hið rétta komi í ljós. Annars er auðvelþ að eyði- leggja, þótt sakir séu engar, ef nógu margar rógtungur hjálpast að: Ennfremur hefur það mjög orð- ið til ógagns að blanda stjórn- máladeilum í mál Ú. A. Lít eg svo á, að þar verði engum einum stjórnmálaflokki um kennt. Or- lög félagsins eru svo þýðingar- mikil fyrir bæjarfélagið, að um þau hefðu stjórnmálaflokkarnir átt að fjalla einir. í stað þess! hefur nú skapast sú úlfúð um málefni félagsins, að ósýnt er hvað af kann að hljótast. Ný framkvæmdastjórn? Hvað sem öðru líður, þá hefur þáð alltaf verið skoðun mín, að bezta lausn ó því máli, eins og nú er komið, væri sú, ef takast láta al hendi mætti að fá Guðmund Jörunds- son að félaginu. Um kosti Guð- mundar til þessa starfs tel eg óþarft að ræða. Hvað segirðu um hlutabréfa- ránið? Er því t. d. haldið fram, að ræna eigi hluthafa bi’éfum sínum, sem er hin mesta firra. Að mínu áliti cr enginn einasti hluthafi skyldur að láta af liendi hlutabréf sitt gegn eigin vilja. Slíkt mundi ekki samræmast landslögum. Um þetta er óþarfi að deila, svo ljóst ætti það að vera öllum, sem það vilja vita. Hin margumtalaða útkoma á skreið félagsins, sem rannsókn- arnefndin telur vera ca. 300 smál. lélegri en við var búizt, held eg að ætti að athugast betur, á þann hátt að gera samanburð á hrá- efnismagni og fullverkaðri skreið fi'á fyrstu byrjun skreiðarverk- unarinnar. — Er hugsanlegt, að heildai'niðurstaða yrði önnui' en sú, sem nefndin komst að, með því að fara ekki lengra aftur en til ársins 1955. Fávíslegri spurningu svarað íslendinyur hefur eytt miklu rúrni á undanföí'num mánuðum í það að endurprenta sömu grein- ina með mismunandi orðalagi um útsvarsmál samvinnufélaga og svokölluð „skattfríðindi". — Ein firran, sem blaðið hefur haldið fram, er sú, að ef starfsemi SÍS á Akureyri væri rekin af hlutafé- lagi, myndi útsvar þess nema mörgum hundruðum þúsunda og vera heil gullnáma fyrir bæjar- sjóð. í haust taldi blaðið veltuút- svarið eitt mundi nema um kr. 300.000.00, en í síðasta blaði um 240.000.00 krónur, svo að eitthvað virðist nú útreikningurinn á reiki. Dagur benti á það, nú fyrir skömmu, að öll þessi skrif um út- svör SÍS hér, væri einber þvætt- ingur, sem enga stoð ætti í veru- leikanum, og hefur því ekki ver- ið hnekkt. íslendingur hefur heldur ekki getað rökstutt niðurstöður sínar og hinar breytilegu tölur. En hann spyr eins og álfur út úr hól, hvort ekki sé sjálfsagt að breyta SÍS í hlutafélag. Oft hafa Sjálfstæðismenn talað af mikilíi einfeldni um samvinnu mál, en aldrei á borð við þetta. En nú rann loks Ijós upp fyrir sjónum íslendings. Með þessu eygir hann möguleika fyrir auð- uga flokksbræður sína, til að ná tangarhaldi á SÍS, eins og tekizt hefur í Eimskipafélagi íslands. — Ingólfur Kristinsson. Erlingur Davíðsson. Hallur Sigurbjörnsson. „Loforð og efndir" heitir leiðar- inn í síðasta íslendingi, og einhver sá vandræðalegasti, sem þar hefur sest lengi, og er þá mikið sagt. Þar segir að stjórnmálaflokkarnir séu nú vanir því að lofa kjósendunum gulli og grænum skógum, en til beggja vona geti brugðið um efnd- irnar. Framsóknarflokkurinn hafi engu lofað fyrir síðustu bæjarstjórn- arkosningar, og út af fvrir sig sé þetta klókt, þvi sti, sem éngu loji, Imfi eltkcrl að svikja. Þetta á að vera einskonar afsök- un íslendings á kosningaloforð- um hans, sem hann birtir fyrir hverjar kosningar og svíkur eftir hvcrjar kósningar, og ekki leynir Hjörtur Gíslason. Ármann Dalmannsson. Sigurður O. Björnsson. sér öfund hans á þeitn flokk sem lofa minnu, en efna það þess bet- ur. Ritstjórinn hefur líklega heyrt einhvern vera að hlæja að feitletr- uðum stefnuyfirlýsingum í blaði hans og er strax farinn að búa menn undir svikin, því til beggja vona geti brugðið um efndirnar. Síðan leiatst blaðið við að telja upp þau mál, sem Sjálfstæðisflokk- urinn hafi lofað síðast. en segir svo að auðvitað hafi hann ekki verið þess megnugur að gera mikið af, nema í félagi við aðra flokka. Nú vita allir, sem vita vilja og eitt- hvað hafa fylgst’méð í bæjarmálum mi síðustu dagana, að vinstri flokk- (Framhald á 7. síðu.) „Um efndirnar bregður ti3 beggja vona" segir „íslendingur44! xl — B-listinn er listi Framsóknarmanna .1------------------------------------'J

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.