Dagur - 23.04.1958, Blaðsíða 1

Dagur - 23.04.1958, Blaðsíða 1
Fylgizt með því, sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. Dagu DAGUR kemur næst út laugardag- inn 26. apríl. XLI. árg. Akureyri, miðvikudaginn 23. apríl 1958 22. tbl. Þetta er fyrsti bíllinn, sem hingað kemur fljúgandi í heilu lagi. Er það Volkswagen, en flugvélin er Gljáfaxi. — (Ljósmynd: L. H.). Eyfirzkar konur mótmæla Vilja ekki að Kristneshæli verði lagt niður í bráð Frá hlufhafalundi UfgerSarfél. Ak. h.f. I Hlutaféð allt gertapað og skuldirnar nærri 61 milljón króna Tillaga um sakamálarannsókn vegna birgða- rýrnunar felld með 955 atkvæðum gegn 225 Almennur hluthafafundur Útgerðarfélags Akureyringa li.f. var haldinn í Samkomuhúsinu sl. miðvikudagskvöld, og stóð fundurinn frá kl. 8.30 til kl. 1 um nóttina. Var fjölmenni á Fimmtudaginn 17. apríl sl. var aðalfundur Héraðssambands ey- firzkra kvenna haldinn að félags- heimilinu Freyvangi. Sóttu fund- inn margar konur úr héraðinu. Hófst fundurinn með guðsþjón- ustu, er sóknarpresturinn, séra Benjamín Kristjánsson, flutti, og vor'u þar rædd ýmis mál er sam- bandið hefur með höndum. Meðal annars komu þar fram eindregin andmæli gegn því að leggja niður berklahælið í Kristnesi, og var um það mál gerð svohljóðandi ályktun: „Aðalfundur eyfirzkra kvenna 1958 skorar eindregið á heil- brigðisyfirvöld landsinns að leggja ekki að svo stöddu niður Á bændaklúbbsfundi í fyrrakvöld hafði Ólafur Jónsson framsögu um nautgriparækt og Garðar Halldórsson og Ketill Guðjónsson sögðu fréttir af Bún- aðarþingi. Síðasti klúbbfundurinn, sem haldinn verður í bráð verður 5. maí. Þá munu dýralæknarnir halda framsöguræður. Heiðar ekki opnaðar Samkvæmt upplýsingum vega- gerðarinnar hér mun Oxnadals- heiði ekki verða opnuð í þessum mánuði. Ekki heldur Vaðlaheiði. Snjóþungt er á þeim báðum, en nauðsynlegt er þó að ryðja af vegunum, svo að þeir geti þorn- að. Dalvíkur-, Svalbarðsstrand- ar- og Laugalandsvegur hafa verið bannaðir þungum bílum, 6 tonna og þyngri. Vegir innanbæjar þurfa skjótra aðgerða við. Ber nauðsyn að hefla þá og laga og malbikið er mjög illa farið eftir veturinn. berklahælið í Kristnesi. Fundur- inn álítur, að ekki sé tímabært að leggja hælið niður vegna þess, að reynsla er alls ekki fengin fyrir því að berklasjúklingum hafi fækkað svo, að tryggt sé að eitt hæli sé nægilegt. Fundurinn álítur ennfremur, að þar sem hælinu var í fyrstu komið upp fyrir atbeina Norðlendinga og að stórum hluta fyrir fé, sem norð- Ienzkir einstaklingar og félög gáfu og söfnúðu, til þess að norð- Ienzkir berklasjúklingar þyrftu ekki að sækja um langan veg til Reykjavíkur til hælisvistar og gætu einnig haft nánara samband við ættingja og vini, þá megi ekki leggja það niður fyrr cn öruggt sé, að betur hafi verið unnið á berklaveikinni en enn er orðið, og enginn vafi sé á því, að allir nýir berklasjúklingar komist þegar í stað á hæli.“ Stjórn Héraðssamb. skipa: Sig- ríður Einarsdóttir á Eyrar- landi, formaður, Jónína Björns- dóttir á Syðra-Laugalandi, rit- ari, og' Kristbjörg Kristjánsdóttir á Jódísarstöðum, gjaldkeri. Árni Jónsson tenorsöngvari, sem nýlega hefur getið sér hið bezta orð í Reykjavík og víðar sunnanlands fyrir söng sinn, hélt söngskemmtun í Nýja-Bíó á Ak- ureyri sl. miðvikudag á vegum Tónlistarfélagsins, og endurtók hana á fimmtudaginn. Hrisið var troðfullt bæði kvöldin og söngv- aranum mjög vel tekið. Undirleik annaðist ungfrú Guðrún Krist- insdóttir af þeirri leikni og ör- yggi, sem ekki verður um deilt. Árni Jónsson hefur bjartan og Slökkviliðið kallað út Á sunnudaginn kom upp eldur í Spítalavegi 21 hér í bæ. Kvikn- að hafði í í kyndiklefa. Slökkvi- liðið kom þegar á vettvang og kæfði eldinn. Skemmdir urðu nokkrar af reyk. Á laugardaginn var beðið um aðstoð slökkviliðs Akureyrar frá Fornhaga í Hörgárdal, en var afturkallað. Þar hafði elds orðið vart eftir hádegið og mun hafa kviknað út frá múrpípu eða reykröri. — Heimamenn og nágrannar slökktu eldinn með snarræði. — Skemmdir urðu nokkrar, mest af vatni og reyk. FRÁ BÆJARSTJÓRN: Vantaði tvö atkvæði Eins og skýrt var frá í seinasta tbl. Dags, fékkst tillaga frá 5 bæjarfulltrúum, um að krefjast opinberrar rannsóknar vegna mikillar rýrnunar á saltfiski og skreið hjá Utgerðarfgélagi Akur- eyrinnga h.f., ekki rædd eða tek- in á dagskrá, vegna þess, að bæj- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við atkvæðagreiðslu, og fékkst þannig ekki sá aukni meirihluti (2/3), sem til þess þarf, samkv. fundarsköpum bæj- arstjórnar, að mál sé tekið á dag- skrá. 6 bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með því að taka tillög- una á dagskrá, en 5 greiddu ekki atkvæði. — Gert er ráð fyrir að tillagan komi síðar fyrir bæjar- stjórnina með auglýstri dagskrá. DAGUR kemur næst út laugardaginn 26. apríl. Auglýsingum sé skil- að fyrir liádegi á föstudag. blæfagran tenor og beitir rödd sinni af kunnáttu og smekkvísi. Hann varð fyrir því óhappi, að kvefast lítillega og naut hann sín því miður en ella, sérstak- lega fyrra kvöldið. Þrátt fyrir það var koma hans góð og söng- urinn til óblandinnar ánægju. Söngvarinn mun halda áfram námi, en hann hefur notið þekktra söngkennara í Svíþjóð og ítalíu síðustu 5 árin. Má mikils af honum vænta í framtíðinni. fundinum. Stjórn félagsins boðaði til fund- ai'ins, og var tilefni hans tillaga, sem meii'i hluti stjói'nar Ú. A. hafði samþykkt að bera fram á slíkum almennum hluthafafundi. Tillagan hljóðaði þannig: „Meiri hluti stjórnar Utgerð- arfélags Akureyringa h.f. leggur til, að almennur hlut- lxafafundur í Útge rðarfélagi Akureyringa hf. fari þess á leit við bæjarstjórn Ak- ureyrar, að Akureyrarbær taki að sér rekstur félagsins. Jafn- framt gefur fundurinn stjóm Útgerðarfélags Akureyringa h.f. fullt umboð til að ganga frá samningum við bæjarstjórn um framtíðarrckstur útgerðarinn- ar.“ Helgi Pálsson, formaður stjó'rn- ar Ú. A., mælti fyrir tillögunni og gei-ði nokkra grein fyrir hag Út- gerðarfélagsins eins og hann nú er og eins og hann var miðað við síðustu áramót. Samkvæmt yfirliti Helga Páls- sonar eru skuldir Útgerðai'fé- lagsins við síðustu áramót alls ca. 60 millj. og 800 þús. krónur. Hann nefndi ekki, hve hátt eignir félagsins væi’u metnar, en sagði, að félagið ætti ekki fyrir skuldum. Ennfremur sagði Helgi Pálsson, að allt hlutafé væri tapað, en taldi, að ætlun meii'ihluta stjóx-n- arinnar væri sá, að félagið héldi áfram að vera til að foimi, og væri hugsunin með tillögunni sú, að semja á þeim grundvelli við bæjai'stjói'nina um yfirtöku á rekstrinum, þ. e. a. s. að semja um það, að rekstui'inn yrði ekki hreinn bæjarrekstur með algjörri eignayfirfæi'slu frá Ú. A. til bæj- ai'sjóðs, heldur yrði urn að í’æða eins konar bráðabirgða rekstrar- form, sem mætti una við, þar til betur áraði fyrir útgei'ðina, þannig að félagið gæti þá sjálft tekið að sér reksturinn. Helgi Pálsson sagði ennfremur, að samkvæmt hans áliti væi'i um tvær leiðir að gera út úr ógöng- um félagsins: 1. Sú, sem þegar hefur verið lýst. 2. Að lýsa yfir gjaldþroti. Taldi hann að sú leið kæmi harðar niður á bæjarfélaginu, með því að þá myndi gengið að öllum skuldum, sem bærinn er í ábyrgð fyrir, eða 12 millj. kr. Andmæli Alberts Sölvasonar. Albert Sölvason, stjórnai'með- limur Ú. A., sem var einn af til- lögumönnum, andmælti þeim skilningi Helga Pálssonar, að ætlun tillögunnar væri að halda áfram félagsrekstrinum. Taldi hann ekkert slíkt felast í tillög- unni eða að baki hennar og kvaðst sjá það nú við nánari yf- ii-vegun, að tillagan væri of óljóst orðuð, og bar hann fram nýja til- lögu, þar sem lagt var til, að hinn almenni hluthafafundur samþykkti að slíta félaginu og kjósa skilanefnd og fara þess á leit, að bæjarfélagið tæki við eignum og skuldum Útgerðarfé- lagsins. Sveinn Bjai'nason, fyrrum framfæi'slufulltrúi, andmælti til- lögu stjóx-nai'innar og kvað hana óljósa að orðalagi og í henni fæl- ist það raunverulega, að félagið hætti starfsemi sinni, þar sem það afsalaði sér með þessu yfir- ráðum yfir eignum sínum til bæjarins. Þá taldi hann, að þar sem hagur félagsins væi’i svo bágui’, sem foi’maður hefði lýst, væri það lagalega skylt til þess að gefa sig upp til gjaldþrota- skipta. Lagði hann síðan fi-am fi'estunartillögu í málinu. Þoi’steinn Jónatansson, ritstjóx'i Verkamannsins, bar fi-am við- aukatillögu við tillögu stjórnar- innai-, sem var í því fólgin, að stjórn Ú. A. skyldi m. a. heimilt að semja við Akureýrai'bæ um endanlega yfirtöku á eignum og skuldum félagsins. Afdrif tillagnanna. Fundarstjói-i, Sverrir Ragnars, tók síðan áðurnefndar tillögur til athugunar og atkvæðagreiðslu. Úrskurðaði hann tillögu Al- berts Sölvasonar á þann veg, að hún fæi-i í bága við 18. gr. félags- samþykktarinnar, þar sem hún fæli í sér félagsslit, en um með- fei'ð slíkra tillagna skal fara sem um lagabreytingar. Kom hún því ekki til umræðu né heldur var hún borin undir atkvæði. Hin sömu ui’ðu afdrif tillögu Þoi’steins Jónatanssonar og á sömu försendu. F restunartillaga Sveins Bjai’na- sonar var felld með 2591 atkvæði, með voru 114, auðir seðlar 12. Tillaga stjórnarinnar samþykkt. Tillaga stjórnarinnar var sam- þykkt með 2896 atkv. gegn 121. Auðir seðlar 4. Hefur stjói-n félagsins þar með fengið, að því er vii’ðist, mjög víðtækt umboð til þess að semja við Akui'eyrarbæ um framtíðar- reksturinn. Hér skal að sinni lát- ið ósagt um, á hvaða grundvelii verður samið og hver skilningur bæjarfulltrúa er á þessu máli. — Mun það lcoma í Ijós síðar, og (Framhald á 7. síðu.) Árni Jónsson tenorsönpari Söng í nýja-Bíó á Akureyri með undirleik Guðrúnar Ivristinsdóttur

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.