Dagur - 19.06.1958, Side 1
Fylgizt með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 25. júní.
XLI. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 19. júni 1958
34. tbl.
Semenlsverksmiðjan tekin til starla
Verðmæti dagsframleiðslunnar nema 200 þúsJ
kr. - Islenzka sementið verður samkeppnisfært
við erlenda framleiðslu. - Tvær tegundir
.verða framleiddar auk áburðarkalks
Stærsta verksmiðja landsins, Sementsverksmiðjan á Akra-
ncsi, var vígð á laugardaginn var með verðugri viðhöfn. For-
seti Islands, herra Asgeir Asgeirsson, lagði hornstein að verk-
smiðjunni og Gylfi I*. Gíslason kveikti eld í brennsluofnin-
um. Jón Vestdal er formaður verksmiðjustjórnar.
Verksmiðjan á að framleiða 75
þús. tonn af sementi á ári, en
hægt er að auka framleiðsluna
verulega með litlum tilkostnaði
ef með þarf.
Enn eru ekki allar byggingar
fullbúnar, en ekkert er því til
fyrirstöðu að framleiðsla geti
hafizt, er forráðamönnum verk-
smiðjunnar það keppikefli, að
það verði sem fyrst, því að verð-
mæti dagsframleiðslu er 200 þús.
kr. Fyrsta framleiðslan kemur á
markað eftir nokkrar vikur.
Framleiðsla sements.
Sement er mjög margbrotið
efnasamband. Þau sambönd finn-
ast hvergi í náttúrunni.
Undirbúningur að framleiðsl-
unni er mjög umfangsmikill. —
Hráefnin þurfa að innihalda
kalk, kísilsýru, járnsambönd og
aluminiumsambönd.
Kalkið fæst úr skeljasandi, sem
inniheldur 80% af því. Kísilsýra
fæst úr móbergi, sem blandað er
skeljasandi, en aðallega úr lípar-
íti. Járnsamböndin fást úr mó-
bergi og að nokkru úr líparíti.
Innlend hráefni.
Skeljasandinum, sem notður
er til framleiðslunnar, er dælt
upp úr Faxaflóa.
Líparítið er úr Hvalfirði, hefur
verið komið upp mulningsstöð
rétt utan við Bláskeggsá, þaðan
er mulningnum ekið til Akra-
ness.
75 þús. tonna ársframleiðsla.
í þau 75 þús. tonn, sem verk-
smiðjan framleiðir árlega, þarf
120 þús. tonn af skeljasandi og 15
þús. tonn af líparít. Oll efni eru
fullunnin og er því enginn úr-
gangur úr verksmiðjunni, en
nokkuð af kolsýru úr efnunuin
brennur og fer út í reyknum. —
Mala þarf hráefnin i mjög fína
leðju, er það gert í hráefnakvörn,
sem gengur fyrir 1100 ha. mótor.
Úhráefnakvörninni eru 70 tonn
af stálkúlum, sem mala leðjuna
mjmög fínt.
Sement og áburðarkalk.
Auk tveggja tegunda sements
framleiðir hin nýja verksmiðja
áburðarkalk, sem víða vantar í
súran jarðveg. Árangur verður
(Framhald á 7. síðu.)
Síldarverðið
Sjávarútvegsmálaráðuneytið
liefur ákveðið með samkomulagi
við samtök útvegsmanna, sjó-
manna og síldarkaupenda að verð
á nýrri Norðurlandssíld til
bræðslu á þessu sumri verði kr.
110,00 fyrir hvert mál og til sölt-
unar kr. 150,00 fyrir hverja upp-
mælda tunnu.
(Frá sjávarútvegsmálaráðu-
neytinu.)
Formaður SÍS, fundarstjóri, forstjóri og Jónas Haralz. Fjármálaráð-
x herra í ræðustól. — (Ljósmynd: E. D.).
Bifröst í Borgarfirði, félagsheimili og skóli samvinnumanna. — (Ljósmynd: E. D.).
Aðalfundur Sambands ísl. samvinnufél.
Menntaskólanum á Ákureyri slitið
52 stúdentar brautskráðir, 5 með ágætiseinkunn
Gamlir stúdentar færðu skólanum góðar gjafir
Árdegis 17. júní var Mennta-
skólanum á Akureyri slitið við
hátíðlega athöfn á „sal“. Þórarinn
Björnsson skólameistari flutti
skólaslitaræðuna og sagði frá
starfi síðasta skólaárs.
25 ára stúdentar færðu skólan-
,um að gjöf sýningarvél, meðal
annars til nota við náttúru- og
eðlisfræðikennslu. Orð fyrir þeim
hafði Tómas Tryggvason. 10 ára
stúdentar gáfu stjörnukíki, sem
Stefán Karlsson afhenti með
ræðu. Stúdentar frá 1957 gáfu
málverk af bekkjarbræðrum sín-
(Framhald á 7. síðu.)
Háleitar hugsjónir samvinnustefnunnar eru
sem lýsandi vitar framtíðarinnar
Aðalfundi SÍS lauk á föstudaginn, 13. júní sl. Höfðu þá
miklar umræður staðið á þessum tveggja daga aðalfundi. —
Fundurinn var haldinn að Bifröst í Borgarfirði. En þar er
bæði félagsheimili og skóli samvinnumanna, hinn glæsileg-
asti staður að mannaverkum öllum og undrasmíð frá náttúr-
unnar hendi. A þessum fundi ríkti ánægja yfir hinu mikla
starfi samvinnumanna á liðnu ári og þeim árangri, sem þegar
hefur verið náð og áberandi var hin sterka trú á framtíðina,
sem fyrst og fremst byggist á framleiðslumöguleikum þjóðar-
innar til lands og sjávar.
Py
rri
dagur
Stiulentar frá M. A. 1958. — (Ljósmynd: Kr. Hallgrímsson.)
Aðalfundur SÍS hófst fimmtu-
daginn 12. júní. Sigurður Krist-
insson, formaður Sambandsins,
bauð fulltrúa, sem voru um 100
talsinsc, starfsmenn Sambandsins
og aðra fundargesti velkomna og
minntist látinna samvinnumanna,
þeirra Jóns Olafssonar, Páls Her-
mannssonar, Guðmundar Bjarna
sonar og Hauks Snorrasonai', en
fundarmenn risu úr sætum. —
Fundarstjóri var Jörundur
Brynjólfsson, og varamaður hans
Björn Björnsson, en fundarritar-
ar Baldur Baldvinsson og Ár-
mann Dalmannsson.
í Sambandi ísl. samvinnufélaga
eru 56 kaupfélög og félagsmenn
samtals 30753.
Úr skýrslu formanns og
I framkvæmdastjóra.
Sigurðúr Kristinsson og Er-
lendur Einarssin fluttu síðan
starfsskýrslur fyrir liðið ár.
Heildarvelta Sambands ísl.
samvinnufélaga á sl. ári jókst um
53 millj. frá árinu á undan og
stafaði þessi aukning aðallega af
því, að Hamrafellið bættist við
kaupskipaflota samvinnumanna
og vöruverð fór hækkandi á ár-
inu. (Framhald á 5. síðu.)
Þingeyskir bændur
á ferð
Suður-Þingeyingar eru um
þessar mundir í bændaför um
Suðurland. Lögðu þeir af stað 14.
þ. m. og komá væntanlega heim
á morgun. Þátttkendur eru 60.—
Fararstjóri er Ragnar Ásgeirsson.
í dag munu þeir gista Borgar-
fjörð, heimsækja Hvanneyri og
Reykholt o. fl.