Dagur - 12.07.1958, Blaðsíða 1

Dagur - 12.07.1958, Blaðsíða 1
Fylgist með því, sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. Dagur DAGUR kemur næst út fimmtu- daginn 7. ágúst. XLI. árg. Akureyri, laugardaginn 12. júlí 1958 38. tbl. Jónasartófí tlræðumaður á liátíðinsii verður o átefánsson skáíd frá Fagraskógi Ungmennasamband Eyjafjarðar og fleiri gangast fyrir svo- nefndri jonasarhátíð í tilefni 150 ára afmælis „listaskáldsins góoa“ frá Hrauni í Öxnadal. Ákveðið er að hátíð Jtessi verði annan sunnudag, 20. jiilí, og fer hún fram við Jónasarlund og að þinghiisinu að Þverá í Öxnadal. Aðalræðumaður verð- ur Davíð Stefánsson skáld frá Fagraskógi, en hann átti hug- mynd Jressa, svo sem lesendum Dags er kunnugt. Þá munu kórar væntanlega syngja og lúðrasveit leika, svo sem síðar verður auglýst. Búizt er við fjölmenni í Öxnadal Jrennan dag, enda annað ei sæmandi, er Jónasar Hallgrímssonar er minnzt. íhaldið styður allar kröfugöngur á hendur ríkisvaldsins Nokkur atriði úr ræðu Bernharðs Stefánssonar alþingismanns er hann flutti að Árskógi Eins og áður er sagt, fluttu ]>eir Sktili Guðmundsson og Bernharð Stefánsson alþingismenn mjög eftirtektarverðar ræður um stjórnmál á fundum Framsóknarmanna að Árskógi og í Freyvangi. Fer liér á eftir útdráttur úr ræðu Bernharðs Stefánssonar. Uppliaf dýrtíðarinnar. Eftir sögulegt og skemmtilegt yfirlit þjóðmálabaráttunnar í landinu síðustu 4 áratugi, sneri ræðumaður máli sínu að vanda- málum líðandi stundar. Þar bera efnahagsmálin hæst. En til þess að glöggva sig á þeim, þarf að líta nokkuð til baka, allt til nýsköp- unarstjórnarinnar fi’ægu, því að ‘i ? v My&yiiil' ■; s imé Bernharð Stefánsson. með henni urðu þáttaskil. Eins og allir . muna, endaði hún með ósköpum og jafnvel í þeim dæma lausu ógöngum, að lögreglan varð að bjarga þáverandi forsætisráð- herra og utanríkisráðherra hans úr klóm samstarfsmanna sinna til að forða þá líkamsmeiðingum. — Síðast á árinu 1946 tók ríkið ábyrgð á bátafiski og síðan hefur dýrtíðarskrúfan haldið áfram að snúast. Allir í kröfugöngu. Síðan ef eins og fáir hafi viljað bera ábyrgð á sjálfum sér, sagði frummælandi, heldur heimta allt af ríkinu. Og ríkisvaldið hefur r.eyðzt til að halda atvinnuveg- unum á floti með fjárframlögum úr ríkissjóði eða nú Utflutnings- sjóði. Öll þjóðin er í kröfugöngu á hendur ríkinu. En allir þessir (Framhald á 7. síðu.) ■m Ferreira Da Silva. Da Silva og Vilhjáímur Einarsson koma fil Ákureyra Mæta og keppa á íþróttamóti á þriðjudaginn Hinir kunnu íþróttagarpar, Da Silva og Vilhjálmur Einarsson, koma hingað til Akureyrar á þriðjudaginn kemur og keppa í þrístökki á íþróttamóti er KA heldur og fram fer á íþróttavell- inum á Akureyri á þriðjudags- kvöldið. Mótið hefst kl. 8.30 e. h. Einnig verða gerðai' mettil- raunir í 1000 m. hlaupi. Meðal keppenda verða Jón Gíslason og Ingimar Jónsson og keppt verður í 4x100 m. boðhlaupi. Ennfremur verður keppni í handknattleik karla milli Dana, húsettra við Eyjafjörð og KA. Ekki þarf að kynna hinn heims- fræga Brazilíumann, Da Silva, sem reynzt hefur ósigrandi í þrí- stökki síðustu 7 árin ög er heimsmeistari í þ'nrri íþrótta- grein og tvöfaldur Olympíu- meistari. En Vilhjálm hefur eng- inn sigrað nema hinn þeldökki Brazilíumaður. Tæplega þarf að efa að marga fýsi að leggja leið sína út á völl á þriðjudags- kvöldið. - Kirkjan til vinstri. — (Ljósmynd: E. D.). Grenjaðarsfðð opnað Gamli bærinn endurbættur og Byggðasafn r Þingeyinga flutt þangað - A annað hundrað manns voru við athöfnina á miðvikud. A miðvikudaginn var Byggðasafn Þingeyinga opnað í Grenjaðarstaðabænum í S.-Þingeyjarsýslu með viðhöfn. — Stuttu eftir hádegi streymdu bílarnir í hlað. Sunnan undir gamla bænum, í skjóli við Jiykka veggi úr torfi og hraungrýti og nokkur laufmikil birkitré, hlýddu gestir á þætti úr sögu staðarins. Jóhann Skaptason sýslumaður kvaddi sér fyrstur hljóðs, bauð gesti velkomna og tilkynnti að Byggðasai'n Þingeyinga væri opnað almenningi til sýnis. Síðan mælti hann meðal annars á þessa leið: „Það er alþjóð kunnugt, að á síðustu áratugum hefur orðið gjörbreyting á íifnaðar- og at vinnuháttum þjóðarinnar. Feður okkar og mæður bjuggu við svipaða lífshætti sem forfeðurnir í 1000 ár. Nú allt í einu hafa öll gömlu tólin og tækin verið lögð til hliðar og víða varpað á sorp- bauginn, þau hafa týnzt og horf- ið með gömlu torfbæjunum, sem iíka eru að kalla afmáðir. Það er álit margra góðra manna, að þjóðinni sé nauðsyn- legt að þekkja fortíð sína, vita á hvern hátt þjóðin lifði í þessu landi um þúsund ár. Sá vísir til byggðasafns, sem yður gefst kostur á að skoða hér í dag, er einn þráður, sem halda á við tengslum milli fortíðar og JÓHANN SKAPTASON býður gesti velkomna. DR. KRISTJÁN ELDJÁRN segir sögu bæjarins. nútíðar, einn báttur í órofinni menningarþróun þjóðar vorrar. Við gleðjumst yfir því, að tekizt hefur að spinna hann, við vonum, að í framtíðinni verði slíkir þræðir tvinnaðir og þi'innaðir, og að framtíðin verði ofin úr sam- brugðnum menningarþráðum for tíðar og nútíðar. Fyrir hönd sýslunnar flyt eg þalckir öllum þeim, sem hér hafa að verki verið. i Eg flyt þakkir öldungnum Friðfi'nni Sigurðssyni í Rauðu- skriðu, sem fyrstur manna bai'ð- ist fyrir þessu málefni, Bændafé- laginu, sem síðar tók málið á sína arma og flutti það fram til sigurs og afhenti sýslunni safn sitt að gjöf. Eg flyt þakkir öllum þeim (Framhald á 7. síðu.) DAGUR Vegna sumarleyfa í preist- smiðjunni kemur Dagur ekki út fyrr en 7. ágúst.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.