Dagur - 07.08.1958, Side 1
Fylgist mcð því, sem gerist
licr í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur nœst út miðviku-
daginn 13. ágúst 1958.
XLI. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 7. ágúst 1958
39. tbl.
Nýr bátur frá Skipasmíðastöð K.E.A.
Fyrir nokkru afhcnti Skipasmíðastöð KEA nýjum eigendum,bræðr-
iimim Sigmari og Gunnari Jóhannssonum í Hrísey, 8—9 tonna bát,
sem meðfylgjandi mynd sýnir. — Báturinn heitir Farsæll og þykir
mjög álitlegur. Um traustleika og vandaðan frágang efast enginn
hjá Skipasmíðastöð KEA á meðan Tryggvi Gunnarsson skipasmiður
stjórnar því fyrirtæki. — í bátnum er 44 hestafla Kelvinvél, sem
Ólafur Einarsson setti niður. — (Ljósmynd: E. D.).
Jónasarhálíðin í Úxnadal var Ijölmenn
Dauðaslys við
Svínavatnsstíflu
Síðastliðinn mánudag varð
dauðaslys við Svínavatnsstíflu.
Þar var verið að sprengja klöpp
og lenti steinn úr sprengingunni
á nærstöddum manni, sem beið
bana af. Maður þessi hét Gunnar
Hjálmarsson frá Hjarðarfelli.
Selur í Eyjaf jarðará
'í síðustu viku sáu stangveiði-
menn sel í Eyjafjarðará, skammt
frá Stokkahlöðum. Sent var eftir
byssu, en þegar skytta kom á
vettvang var selurinn horfinn og
hefur ekki spurzt til hans síðan.
Frá aðalfundi Útgerðarfél. Akureyringa
Rekstur hraðfrystihússins gengur vel
Aðalfundur Útgerðarfélags Ak-
ureyringa h.f. var haldinn kl. 8.30
e. h. 5. ágúst 1958.
Formaður félagsins kvaddi til
fundarstjórnar Braga Sigurjóns-
son, ritstjóra.
Því næst las formaður skýrslu
stjórnarinnar og gat þar um m. a.
afla skipanna á sl. éri, sem orðið
hafði mun minni en árið áður,
eða 13.300 tonn í stað 18.300
tonna árið áður.
Þá gerði formaður grein fyrir
verkun aflans, og taldi eitt merk-
asta framfaraskref í rekstri fé-
lagsins, að á árinu hefði vinnsla
hafizt í frystihúsi þess. Jafnframt
gat hann þess, að rekstur frysti-
hússins hefði gengið að óskum,
og að með tilkomu þess væri
rekstrargrundvöllur félagsins
tryggari en áður.
Ennfremur skýrði formaður frá
því, að félagið hefði lent í nokkr-
um fjárhagsörðugleikum á árinu,
en nú gæti hann jafnframt upp-
lýst, að með hagkvæmum lánum
hjá Landsbanka íslands og samn-
ingum við lánardrottna hefði fé-
lagið nú getað staðið við allar
skuldbindingar sínar á lánum og
lausaskuldum.
Þá voru endurskoðaðir reikn-
ingar félagsins lesnir upp og
samþykktir samhljóða.
Niðurstöðutölur reikninganna
eru:
Kr.
Relcsturshalli 1957 9.343.552.39
Þar af fyrningaafskr. 2.269.139.87
Kr.
Eignir bókfært verð 42.174.634.03
Fyrningaafskriftir
frá upphafi 6.710.785.76
Tap án fyrninga frá
upphafi 17.882.741.93
Skuldir félagsins
pr. 31/12 1957 kr. 66.768.161.72
Eftir tillögu bæjarstjórnar voru
eftirtaldir menn samþykktir í
aðalstjórn og varastjórn:
Albert Sölvason,
Helgi Pálsson,
Jakob Frímannsson,
Kristján Kristjánsson,
Tryggvi Helgason.
Varamenn:
Jón M. Árnason,
Jónas G. Rafnar,
Gísli Konráðsson,
Gunnar H. Kristjánsson,
Jóhannes Jósefsson.
Sömuleiðis voru endurskoðend-
ur kjörnir eftir tillögu bæjar-
stjórnar, þeir:
Ragnar Steinbergsson,
Þórir Deníelsson.
(Framhald á 8. síðu.)
Ullarverð og meðferð ullar
Ullarmóttaka stendur nú yfir
hjá Kaupfélagi Eyfirðinga og
hefur kaupfélagsstjórinn beðið
blaðið að geta þess að óskað sé
eftir að framleiðendur komi með
ullina sem allra fyrst. — Eins og
undanfarin ár er tekið á móti
ullinni í kartöflugeymslunni við
Skipagötu. Er það brýnt fyrir
bændum að leggja sem mest af
ullinni inn í heilum reifum. Sama
Bændadagur að
Húnaveri
Sunnudaginn 3. ágúst var
bændadagur haldinn að Húna-
veri. Er það fyrsti bændadagur
þar í sýslunni. Búnaðarsamband-
ið gekkst fyrir bændadeginum. —
Fyrst var messu hlýtt hjá séra
Birgi Snæbjörnssyni og síðan
setzt að kaffidrykkju. Meðan set-
ið var að veitingum fluttu ræður
þeir Sigurður Nordal prófessor,
séra Gunnar Árnason frá Skútu-
stöðum og Pálmi Einai-sson land-
námsstjói'i. Síðan var dans stig-
inn. Um 170 manns sóttu mót
þetta og þótti það takast mjög
vel.
verð fæst þó fyrir hálf reifi, séu
þau klofin að endilöngu eftir
hryggnum.
Ullarverð á eiiendum markaði
er nú lægra en mörg undanfarin
ár, en að því er unnið af SÍS við
Fi'amleiðsluráð, að gjaldeyi'is-
fríðindi á andvirði útfluttrar ull-
ar verði látin koma ullinni til
góða, en ekki notuð til verð-
bóta á útflutt kindakjöt. Ef þetta
nær fram að ganga mun ullar-
verð til bænda hækka allverulega
þrátt fyrir lækkun á erlendum
markaði.
Aðalræðuiia flutti Davíð Stefánsson
skáld frá Fagraskógi
Sunnudaginn 22. júlí liéldu eyfirzk ungmennafélög og
Skógræktarfélag sýslunnar hátíð til minningar um Jónas
Hallgrímsson frá Hrauni í Öxnadal.í tilefni af 150 ára læð-
ingarafmæli hans.
Jónasai'hátíðin í Öxnadal var
hugmynd Davíðs Stefánssonar og
ungmennafélögin framkvæmdu
hana á myndarlegan hátt með
aðstoð Skógræktarfélags sýsl-
unnar, og er það þeim til sóma.
Mannfjöldi safnaðist hvaðan-
æfa og hlýddi fyrst á prófastinn
á Möðruvöllum, séra Sigui’ð
DAVÍÐ STEFÁNSSON
flytur ræðu á Jónasarhátíðinni.
(Ljósmynd: E. D.).
Stefánsson, flytja bæn og minn-
ast skáldsins í stuttri ræðu, en
sálmar voru sungnir bæði á und-
an og eftir undir stjórn Áskels
Jónssonar. — Aðalræðuna flutti
Davíð Stefánsson skáld frá Fagra
skógi, mikla í-æðu og skörulega
um „listaskáldið góða“.
Samkoman fór fi'am úti, sunn-
an við samkomuhúsið að Þverá.
Þar var skreyttur ræðupallur. —
Nokkrum föðmum neðan niðaði
áin, en brattar hlíðar og hnjúka-
fjöllin til beggja hliða bergmál-
uðu ræðui' og söng. Yfir hvelfdist
blár himinn.
En þegar skáldið frá Fagraskógi
reifaði málið fyi-st í viðtali við
Um helgina 9. og 10. ágúst
verður háð hið árlega meistara-
mót fyrir Norðurland í fi'jálsum
íþróttum. Mótið fer fi'am á Akur-
eyi'i.
Búizt er við mikilli þátttöku að
þessu sinni og er væntanlegum
keppendum á það bent, að til-
kynna þátttöku sína í tæka tíð og
til réttra aðila. Keppni hefst á
laugai'dag kl. 2 e. h. og verður þá
keppt í 100 m. og 1500 m. hlaupi
og ennfx’emur 1000 boðhlaupi.
Einnig í þi'ístökki, kringlukasti
og hástökki kai'la og kvenna og
80 m. hlaupi kvenna.
Á sunnudaginn hefst svo
keppnin fyrir hádegi með 110 m.
gi'indahlaupi og langstökki kai'la
og kvenna. Eftir hádegi sama dag
verður keppt í 400 m., 3000 m.,
4x100 m., stangai’stökki, spjót-
kasti, kúluvai-pi og kringlukasti
kvenna. — Ungmennasamband
Eyjafjarðar sér um mótið. Mót-
stjóri verður Ingimar Jónsson,
blaðið Dag á Akureyri, sagði
hann meðal annars þetta um
Jónas Hallgrímsson:
„Mcð ljóðum sínum vakti
hann fagurskyggni og stórhug
fólltsins, sem illæri og andleg
fátækt höfðu öldum saman
sljófgað. Hann skerpti vitund
þess og sýn, efldi sjálfstraust
þess og réttmætar frelsiskröf-
ur. Þannig glæddi hann falinn
og fölskvalausan eld, sem áður
skorti lífsmagn til þess að ylja
þjóðinni og veita henni sálu-
bót. En nú birtist henni fegurð
landsins; í eyrum henni
hljómaði íslenzk tunga í allri
sinni dýrð, en var þó sama
málið og bændafólkið talaði,
frelsishvötin, sem áður var
bæld af innlendumvanmættiog
erlendum yfirráðum magnaðist
og dafnaðist. Þjóðernistilfinn-
ingin, sem Islendirigum var frá
upphafi í blóð borin, hafði
vaknað við fagran söng. Fólkið
reis upp af koddanum og gekk
út á hlaðið, leit til fjalla og
hafs, skimaði í allar áttir. Öll
þjóðin sá að sól skein á tinda.
Það var dagur á lofti og vor í
. blænum. Það var unaður að
skynja guð í náttúrunni. Það
var unaður að eiga sér ættjörð,
berjast fyrir frelsi herinar og
ræktun, tala íslenzku — og lifa.
svo máttugir voru ljóðtöfrar
Jónasar Hallgrímssonar.......
Við skulum halda Jónasarhátíð
í vor í Öxnadal......“.
Að ræðu Davíðs lokinni, sem
allir veittu óskipta athygli, söng
Jóhann Koni’áðsson og leikararn-
ir Þorsteinn Ö. Stephensen,
Bjöi'g Baldvinsdóttir og Matt-
hildur Sveinsdóttir lásu upp úr
veikum Jónasar.
Þá afhenti Brynjólfur Sveins-
son, hreppstjóri í Efstalandskoti,
Minningarlundi Jónasar, svo-
nefndan Jónasai'lund, Ungmenna
félagi Öxndæla til varðveizlu. —
Minningarlundurinn er í landi
Steinsstaða, örskammt frá sam-
komuhúsinu og þar hefur trjám
verið plantað og útsýnisskífa sett
upp. Kári bóndi Þorsteinsson frá
Þverá tók á móti gjöfinni. — Að
í'æðum loknum í sambandi við
Jónasai’lund, fór fi'am keppni í
handknattleik og síðan var dans
stiginn í stóru tjaldi.
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 13. ágúst.