Dagur - 20.08.1958, Page 5
Miðvikudaginn 20. ágúst 1958
D A G U R
5
nnan Sameinuðu þjóðann
Dag Hammarskjöld gegn Bang-Jensen að tjaldabaki
Löng saga í stuttu máli
ikið um eftirprentanir málverka
Ný prenttækni ryður málverkum meistaranna braut inn-á
hvers manns heimili og auðveldar listkynningu í dreifbýlinu.
í íslenzkum blöðum hafa að-
eins birzt stutt og sundurlaus
skeyti um deilu nokkra á vett-
vangi SÞ á milli framkvæmda-
stjórans, Dag Hammarskjölds og
starfsmanns í skrifstofuliðinu,
Danans Povl Bang-Jensens. Var
honum vikið frá starfi um stund-
arsakir í desember sl. og hefur
nú nýskeð verið formlega sagt
upp starfi sínu hjá SÞ, eftir all-
langa deilu, og að því er virðist
að tilefnislausu. Er þetta þegar
talsverð saga og eigi ómerkileg,
og verður hún nú rakin hér í
stuttu máli.
Povl Bang-Jensen var meiri
háttar starfsmaður í skrifstofuliði
SÞ, og var hann formaður nefnd-
ar þeirrar, sem þing SÞ skipaði
til að rannsaka Ungverjalands-
málið eftir frelsisbyltinguna 1956
og íhlutun Rússa að því tilefni.
Hafði nefnd þessi tal af fjölda
ungverskra flóttamanna, bæði
vestan hafs og einnig í Norður-
álfu. Veittu þeir auðvitað margar
og mikilvægar upplýsingar í máli
þessu, en þó aðeins gegn því skil-
yrði, að nöfn þeirra yrðu ekki
birt opinberlega, sökum áhætt-
unnar, bæði heima fyrir í Ung-
verjalandi, og einnig þar sem þeir
nú voru komnir á flótta sínum.
Var þeim heitið þessu, og skyldi
engum öðrum kunnug nöfn
þeirra en nefndarformanninum,
Bang-Jensen, og hét hann að
halda þeim leyndum. Enda var
þetta á hans ábyrgð.
Seinna, er aðalritari, eða fram-
kvæmdastjóri SÞ, Dag Hammar-
skjöld, krafðist þess að fá af-
hentar nafnaskrár ungversku
nefndarinnar, með nöfnum ung-
versku vitnanna, neitaði Bang-
Jensen að afhenda þær, af fram-
annefndum ástæðum. Enda taldi
hann, að Hammarskjöld hefði
samþykkt þessa ráðstöfun í upp-
hafi. Var síðan skipuð rann-
sóknarnefnd á Ungverjalands-
nefndina, og komst hún að þeirri
niðurstöðu, að rétt væri að halda
ieyndum nöfnunum, og úrslit
urðu síðan þau, að nafnaskrán-
um var brennt, og þar með hefði
mátt ætla, að sagan væri öll.
Við þetta virðist Hammarskjöld
framkvæmdastjóri ekki hafa
viljað sætta sig. Mun hann hafa
talið þetta móðgun við sig og
virðingarskort og uppreist gegn
valdi sínu, og afleiðingin varð sú,
að Bang-Jensen var vikið frá
störfum „um stundarsakir*1 í
desember sl. Og eftir langt mála-
stapp og vitnaleiðslur sendi
Hammarskjöld Bang-Jensen
reglulegt uppsagnarbréf í byrjun
júlímánaðar sl. Sjálfur hafði
Bang-Jensen hvað eftir annað
beðið um að fá afrit af vitna-
leiðslunum gegn sér, svo að hann
gæti borið hönd fyrir höfuð sér,
en beiðni hans var hafnað í hvert
sinn.
Þegar eftir uppsögnina kveðst
Bang-Jensen hafa fengið fjölda
bréfa og skeyta með samúðar-
kveðjum víðs vegar utan úr
heimi. Lýsir hann því yfir, að
hann muni berjast fyrir rétti sín-
um einbeittur og hiklaus.
Síðan hefur verið allheitt hjá
SÞ að tjaldabaki. Einn þing-
manna SÞ krafðist þess, að birt
væri bréf Hammarskjölds, þar
sem hann segir upp einum fasta-
starfsmanni SÞ, Bang-Jensen. —
Og Hammarskjöld var einnig
beðinn að láta birta öll máls-
skjölin sökum vafa þess, er léki á
um ýmis undirstöðuatriði í mál-
inu gegn Bang-Jensen.
í uppsagnarbréfi Hammar-
skjölds til Bang-Jensen, sem er
12 þéttskrifaðar arkir og 5000 orð
alls, rekur Hammarskjöld gang
málsins allrækilega, frá því er
það var hafið gegn Bang-Jensen
19. febrúar sl. í bréfi sínu segir
Hammarskjöld, að Bang-Jensen
sé sagt upp sökum þess, að starf
hans hjá SÞ myndi héðan af ekki
vera í samræmi við æskilega
þjónustu á vettvangi SÞ.
Furðuleg frétt birtist í danska
ríkisútvarpinu um það, að upp-
sögn Bang-Jensens væri ekki
neitt tengd nafnaskrám ung-
vei-sku vitnanna, heldur hefði
þetta komið til mála löngu áður,
m. a. væri Bang-Jensen sakaður
um að hafa lagt hönd á brezkan
sendifulltrúa. Þetta segir Bang-
Jensen að sé hreinn uppspuni og
ósannindi frá upphafi til enda, og
hann skírskotar til þess lyga-
áróðurs, sem nokkrir háttsettir
þjónustumenn SÞ hafi stofnað til
efth' að Bang-Jensen var vikið
frá starfi um hríð. Hann krefst
þess m. a. að upplýst verði,
hvaðan danska ríkisútvarpið hafi
fengið fréttir þessar, og væntir
þess að öll atriði verði birt.
Augljóst virðist að Hammar-
skjöld, aðalframkvæmdastjóri,
hafi eigi lokið sókn sinni gegn
Bang-Jensen með þessu 5000-
orða uppsagnarbréfi sínu. Virðist
svo sem bréfið hafi verið birt
samkvæmt amerískri og danskri
áskorun SÞ. Upplýst er einnig úr
annarri átt, að auk kæru Hamm-
arskjölds í tilefni af ungversku
nafnaskránum, beri hann Bang-
Jensen einnig á brýn, að hann
hafi borið fram ástæðulausar
ásakanir á samstarfsmenn sína
hjá SÞ, neitað að hlýða yfirboð-
urum sínum, og ýmis önnur af-
brot.
Bang-Jensen heldur því óhikað
fram, að hann hafi heitið ung-
versku vitnunum því, að nöfn
þeirra skyldu ekki verða neinum
öðrum kunn en honum einum, og
að Hammarskjöld hafi verið
þessu samþykkur. Nú neitar
Hammarskjöld þessu og kveðst
aldrei hafa veitt nefndinni þetta
vald. Hann segir m. a. í uppsag'n-
arbréfi sínu til Bang-Jensens á
þessa leið:
„Siðferðileg vafamál og hik,
sem þér kunnið að hafa haft við
að hlýða skipunum mínum, geta
ekki afsakað það, að þér, sem
starfsmaður ritaraskrifstofunnar
neitið að hlýða skipunum aðal-
framkvæmdastj órans viðvíkj andi
opinberum skjölum. — Og hai'ið
þér talið opinbera skyldu yðar til
að virða vald mitt ósamræman-
legt einkaskoðun yðar og sið-
ferðilegri Sannfæringu, áttuð þér
þegar að sækja um lausn frá
störfum yðar.“
Þessu svarar Bang-Jensen með
því að bjóðast til að sanna, að
aðalframkvæmdastjórinn, Dag'
Hammarskjöld, leggi fram ósönn
ummæli með ásettu ráði. Bang-
Jensen hafði andmælt því, að
uppsagnarbréfið væri lagt fram
og birt, án þess að bréf hans
sjálfs til Hammarskjölds, 60—70
arkir, væri einnig birt. En aðal-
framkvæmdastjóranum hefði
verið leyft að strika þar út ýmis
atriði, sem snerti innra viðhorf í
SÞ. Nú hefur Bang-Jensen orðið
að bii'ta bréf sitt sjálfur, og ber
það með sér, að margt af því sem
Hammarskjöld hefur sagt, stang-
ast illa á við raunveruleika, sem
aðalframkvæmdastjóranum var
vel kunnugt um.
Mál Bang-Jensen verður
sennilega tekið fyrir á þingi
Bandaríkjanna. í Danmörku ríkir
mikil gremja yfir áðui'nefndri
útvarpsfrétt, og hefur útvarps-
stjórnin danska boðið Bang-
Jensen að tala í útvarp og skýra
sinn málsstað.
Þannig horfir mál þetta við
sem stendur, og má óefað búast
við, að því haldi áfram á næst-
unni. Hafa sum erland blöð farið
allhörðum orðum um framkomu
Hammarskjölds og telja hann
hafa reynst óhæfur til að gegna
sínu ábyrgðarmikla embætti, og
hafi hann nú minnkað stórlega í
viðskiptunum við Bang-Jensen.
En ekki skal nánara að þessu
vikið að sinni.
Povl Bang-Jensen.
Hver er þá þessi Povl Bang-
Jensen, sem hér er um að ræða?
Þessi danski starfsmaður SÞ er
ekki neinn nýliði eða grænhöfði.
Á þeim árum er Hitler var að
skapa og skipuleggja þýzka
árásarveldið, hjálpaði Bang-Jen-
sen m. a. ýmsum, sem í háska
voru staddir, út úr Þýzkalandi.
Og í erlendu blaði er nýskeð
minnst á, að á stríðsárunum hafi
Bang-Jensen verið bezti aðstoð-
armaður danska sendiherrans,
Kaufmanns, í Washington. En sá
sendiherra hafi af fremsta megni
kappkostað að halda uppi a. m. k.
einhverju af heiðri Danmerkur,
meðan stjórnmálamennirnir
skriðu enn fyrir Hitler, (þ. e.
fram til 1943, er loks slitn-
aði algerlega upp úr milli opin-
berra stjórnarvalda Danmerkur
og Hitler-Þýzkalands). Dönskum
þjónustumönnum með grugguga
þjóðernis-samvizku geðjaðist
miður að frelsisunnendum um
þær mundir, og að lokum varð
(Framhald á 7. síðu.)
Eití hið cftirtektarverðasta við
ísleiizka nicnningu í clag cru verk
okkar mörgu, ágætu myndlistar-
nianna. Það væri þó rangt að
lialda því fram, að við höfum
cnga myndlist frá liðnum öldum,
því enn geymast mörg athyglis-
verð vcrlc, scm sanna listrænan
hæfileika margra íslendinga, sem
þó fengu aldrei til fulls notið sín
sakir lítillar menntunar á því
sviði, auk þess sem þeir bjuggu
við næsta frumstæða hætti til
listsköpunar og litla uppörvun til
þeirra hluta. Listgáfa þjóðarinn-
ar birtist því allajaína í öðru en
myndlist, bókmcnntirnar skipa
þar hinn virðulega sess.
En í upphafi þessarar aldar,
sem í flestu er hinn mikli fram-
faratími íslenzku þjóðarinnar eft-
ir aldalanga kyrrstöðu, fara
nokkrir ungir menn að gefa sig
fyrir alvöru að myndlist, sigla til
náms hjá frægum meisturum og
kynnast af eigin raun því bezta í
myndlist fortíðar og nútíðar. —
Tveir af okkar fyrstu og fremstu
listamönnum, Einar Jónsson og
Ásgrímur Jónsson, hafa ritað
ævisögur sínar, og eru þær bæk-
ur mörgum kunnar. Getur varla
hjá því farið, að þeir, sem bækur
þessar lesa, fyllist hrifning og
undrun yfir dugnaði og elju þess-
arra tveggja íslenzku sveita-
drengja, sem ekkert áttu að far-
areyri annað en trú á hæfileika
sína, viljastyrk og fyrirbænir
góðra foreldra. í kjölfar þessara
manna koma síðan ótal fleiri
miklir hæfileikamenn, sem auðg-
að hafa íslenzka menningu og
fært út svið hennar frá hinum
þrönga farvegi, sem hún óneit-
anlega rann í áður um aldir. —
Þessir 2 áðurnefndu listamenn,
Þórarinn B. Þorláksson, Jóhann-
es Kjarval og svo margir fleiri
ónefndir listbræður þeirra hafa
gerzt slíkir landnámsmenn og
andans víkingar í ríki íslenzkrar
menningar, að þeirra verður
getið í íslandssögu um ókomnar
aldir og árþúsundir, ef þá verður
enn til siðs að rita þá sögu.
Verk fjölmargra íslenzkra lista-
manna eru nú taldar slíkar ger-
semar, að þau seljast á tugþús*
undii' króna og fjáðir menn t-lja
fé sínu ekki betur varið á tímum
fallandi peningagengis, en aðfesta
það í þeim sístæðu verðmætum,
sem listaverk eru. Eftirspurnin
eftir hinum beztu myndum er svo
mikil, að ókleift er öðrum en
auðugum mönnum að fara út í þá
hörðu samkeppni, sem ríkir um
kaup á góðum málverkum og
höggmyndum. Allur almenning-
ur fer hrapallega á mis við góða
myndlist og lýtur oft að lágu í
þeim efnum. Myndir beztú mál-
aranna hrúgast upj) á ríkis-
mannaheimilum og söfnum í
Reykjavík og eru lokuð bók öll-
um þorra manna, sem verða að
láta sér nægja listsnauð verk alls
konar fúskara, sem standa að
álíka framleiðslu í myndlist og
sorpritahöfundar á bókmennta-
sviðinu.
En tækniþróunin hefur leyst úr
læðingi þau miklu vandkvæði,
sem áðui' voru á því að koma
listaverkum út á meðal fólks. —
Með nýjustu prenttækni er ger-
legt að búa til eftirprentanir
m^lverka með svo góðum ár-
angri, að eftirprentunin gefur
ekki eftir frummyndinni að því
er tekur til upprunaleika mvnd-
arinnai' og skýrleika litanna. Er
nú mikið gert að því erlendis að
endurprenta þannig málverk
frægustu listamanna og eru þau
til sölu í listaverzlunum um all-
an heim. Nokkuð hefur borizt af
slíkum myndum hingað til lands,
og hafa þær verið seldar í Reykja
vík, en lítið hafa þær enn borizt
út um land. Hins vegar eru til
sölu í Blómabúð KEA á Akur-
eyri afbragðsfallegar eftirprent-
anir 8 frægra íslenzkra málara,
gerðar samkvæmt hinni nýju
tækni. Eru myndir þessar svo
ferskar og litfagrar, að engum
gæti til hugar komið, að þarna sé
um eftirmyndir að ræða. Ragnar
Jónsson, bókaútgefandi í Reykja-
vík, hefur látið gera þessar
myndir í Sviss og Hollandi, og er
ætlun hans með starfsemi þessari
að kynna verk íslenzkra málara
utanlands og innan og gefa þann-
ig almenningi kost á að sjá og
reyna sjálfur, hve mikinn auð
fegurðar og listar við eigum í
verkum hinna hinna góðu mál-
ara. Er hér um að ræða stór-
merkilegt menningarstarf, sem
áreiðanlega á eftir að bera góðan
ávöxt í bættum listsmekk og
skynsamlegra listmati almenn-
ings en hingað til hefur verið. —
Eftirprentanir þessar eru seldar á
hóflegu verði, 400—650 krónur,
eða álíka upphæð og menn greiða
fyrir verk eftir fúskara, sem eru
að breiða út listsnauðar lands-
lagsmyndir eftir sig og stillt er út
í annan hvern búðarglugga eins
og nauðsynjavarningi. — Færi
vel á því, að þeir, sem eru að
byggja upp heimili sín, ekki sízt
þeir, sem nú eru að reisa sér þak
yfir höfuðið með ærinni fyrir-
höfn, litu inn í Blómabúð KEA
og kynntu sér þá fegurð, sem þar
getur að líta í hinum ágætu eft-
irprentunum beztu listamanna
okkar. Með þeim gætu þeir auðg-
að heimili sín að fegurð og
ánægju og opnað augu sjálfra sín
fyrir dásemdum góðrar myndlist-
ar. Tækifæi'ið er þegar komið til
þess að útbreiða góða myndlist
og koma henni inn á hvers
manns heimili. Mikill fegurðar-
auki væri að þessum myndum í
hinum nýju og reisulegu sveita-
bæjum, og er ekki að efa, að
bændur nota sér þetta tækifæri,
sem kaupfélagið býður til þess að
miðla þeim góðri list. Því miður
hefur allt of lítið verið gert að
því að fara um landið, einkum
hinar dreifðu byggðir, með úrval
góðra málverka til sýnis almenn-
ingi. Hin nýja prenttækni gerir
listkynninguna auðveldari, og er
hér m. a. gullið tækifæri fyrir
(Framhald á 7. síðu.)