Dagur - 20.08.1958, Qupperneq 7
Miðvikudaginn 20. ágúst 1958
D A G U R
7
- Héraðshátíð Framsóknarmanna
(Framhald af 1. síðu.)
atkvæðisrétti sínum samkvæmt
því.
Tveir meginþættir
stjórnmálanna.
Bankastjórinn sagði meðal ann-
ars: „Segja má að stjórnmálin
skiptist í tvo meginþætti: Hin
andlegu og menningarlegu við-
horf annars vegar og hins vegar
hin efnahagslegu viðhorf.
Sem betur fer búum við hér á
landi við andlegt og menningar
legt frelsi. Við„höfum fullt frelsi
til skoðana, til menntunar, /ið
höfum ritfrelsi og frelsi til að
velja á milli flokka í frjálsum
kosningum. Þetta er verðmæti út
af fyrir sig, sem við skulum var-
ast að skoða sem algerlega sjálf-
sagðan hlut, sem aldrei geti orðið
frá okkur tekinn. Við þurfum
ekki annað en hugsa til þeirra
atburða, sem nýlega hafa gerzt í
Ungverjalandi og er reyndar
alltaf að gerast í hinum komm-
únistisku ríkjum, þar sem menn
eru án dóms og laga líflátnir
vegna skoðana á stjórnmálum,
þar sem enginn má hafa aðra
stjórnmálaskoðun en hinn eini
flokkur, sem leyfður er —
kommúnistaflokkurinn. Við, sem
ekki þekkjum annað af eigin
reynd en fullkomið, andlegt
frelsi, eigum bágt með að gera
okkur í hugarlund þá áþján og
þær sálarlegu kvalir, sem fólk
hlýtur að líða í hinum kommún-
istisku löndum. En því miður er
allt of stór hluti heimsins ofur-
seldur þessu skipulagi. Það verð-
um við alltaf að hafa í huga, að
við verðum alltaf að standa vörð
um okkar andlega frelsi. Við get-
um verið þakklát fyrir þennan
arf forfeðra okkar og hann skul-
um við ekki vanmeta. Við meg-
um aldrei skoða andlegt frelsi
svo sjálfsagt, að við sjáum
ekki ástæðu til að vera á verði.
Um hinn aðalþátt stjórnmál-
anna — efnahagsmálin, er að
ýmsu leyti á annan veg farið. Hér
greinir menn mjög á um stefnur
og mikið af rúmi blaðanna fer í
umræður um þau. Sumir vilja
skefjalaust frelsi einstaklinganna
í öllum atvinnugreinum til að
raka saman fé með þeirri afleið-
ingu að aðrir, sem miður mega
sín, búa við örbyrgð. Þessi stefna
er stundum skreytt slagorðum
þegar mikið liggur við, eins og t.
d. — frelsi — framtak. Aðrir vilja
ekkert nema algeran ríkisrekstur.
— sosialiseringu, — þar sem ein-
staklingunum er fyrirmunað að
bera úr býtum samkvæmt dugn-
aði og fyí'irhyggj usemi — þar
sem einstaklingunum er fyrir-
munað að njóta sín.
Það, sem við Framsóknarmenn
teljum réttast I þessum efnum,
er, að hafa í heiðri frelsi einstakl-
ingsins, þó með þeirri takmörk-
un að tryggt sé, að ekki sé gengið
á þá, sem minnimáttar eru í
þjóðfélaginu. Við teljum að
byggja verði á samvinnustefn-
unni, þar sem hver einstaklingur
hefur frelsi til að njóta sín og
reyna sig, án þess að troða skó-
inn niður af nágrannanum. Sú
stefna stuðlar að því, að dugnað-
ur, orka og framtak einstaklings-
ins nýtur sín vel og hagsmunir
heildarinnar einnig.“
Hefur ekki efni á að deila liart.
Ræðumaður vék síðan að efna-
hagsmálunum og landhelgismál-
unum og taldi stjórnarandstöð-
una ekki hafa efni á, að deila hart
á núverandi ríkisstjórn, vegna
þess að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði alls engar tillögur gert í
þeim málum, en reyndi af megni
að spilla árangri efnahagslöggjaf-
arinnar og héldi svo á málum í
landhelgisdeilunni að erlendir
andstæðingar okkar í þeim mál-
um teldu sér hag í því að endur-
prenta greinar úr Morgunblað-
inu, máli sínu til stuðnings.
Því næst benti bankastjórinn á,
að það væri í rauninni ekki ríkis-
stjórnin eða Alþingi, sem fyrst og
fremst réðu framvindunni í efna-
hagsmálum, heldur væri hún öllu
fremur í höndum samtaka laun-
þega og einstakra atvinnuvega.
Þess vegna fyrst og fremst væri
svo nauðsynlegt að almenningur
hefði glögga yfirsýn um þessi
mál. Ræðumaðui' lýsti svo þróun
þessara mála síðustu árin og var-
aði við skefjalausri kröfupóli-
tík, því að. hættulegt væri að taka
of mikið út á framtíðina.
- Eftirprentanir
málverka
(Framhald af 5. síðu.)
stjórnir félagsheimila að gera
kaup á listaverkum fyrir lítið
gjald með það fyrir augum að
skreyta salarkynni félagsheimil-
anna, gestum til augnayndis og
menntunar.
Þegar er búið að gera eftir-
prentanir eftir verkum 8 ís-
lenzkra málara, en þeir eru: Þór-
arinn B. Þorláksson, Ásgrímur
Jónsson, Jóhannes Kjarval, Jón
Stefánsson, Jón Engilberts,
Gunnlaugur Scheving og Svavar
Guðnason. Myndirnar kosta 400
—650 kr., svo sem áður er sagt,
óinnrammaðar.
Ingvar Gíslason.
Barnavagn til sölu
og sýnis í Kornvöruhúsi
K.E.A.
- Átök innan SÞ
(Framhald af 5. síðu.)
Bang-Jensen of heitt í dönsku
utanríkisþjónustunni, segir blað-
ið.
í danska blaðinu Information
skrifar einn ritstjóranna, Erik
Seidenfaden m. a. þetta um
skrárnar með ungversku vitna-
nöfnunum:
„Er-B. J. á sínum tíma neitaði
að afhenda nafnaskrárnar,varþað
ekki sökum þess að hann óttaðist,
að þær ef til vill-kynnu að lenda
í röngum höndum, heldur óttað-
ist hann, að þær væru heimtaðar
í því skyni að afhenda þær röng-
um aðilum. — Þótt ótrúlegt
kunni að virðast, óttaðist Bang-
Jensen þetta sökum langvarandi
gruns síns um það, að innan
skrifstofuliðs SÞ og jafnvel inn-
an Ungverjalands-nefndarinnar
leyndust menn, sem reyndu að
njósna og spilla fyrir starfi
nefndarinnar.
Bang-Jensen hafði skýrt SÞ
frá þessum grun sínum í fleiri
bréfum, meðan hann vann í
Ungvei'jalandsnefndinni. — Hann
drap meðal annars á innbrot í
skrifstoíu hans, bæði hjá SÞ, og
eins í Genf í hótelherbergi hans,
meðan nefndin starfaði þar og
saínaði upplýsingum hjá ung-
verskum flóttamönnum í Norð-
urálfu.
Einnig var þar drepið á til-
raunir ýmsra háttsettra þjón-
ustumanna SÞ að láta gera
breytingar á skýrslu Ungverja-
landsnefndarinnar á þann hátt að
strika út mikilvæg, raunveruleg
atriði, sem sönnuðu rússnesku
innrásina, og sumpart skjóta inn
röngum upplýsingum, sem eftir á
gætu veitt kommúnistum tæki-
færi til að gera skýrslu SÞ
hlægilega, eða a. m. k. miður
áreiðanlega.“
Þannig horfir þá mál þetta við
á alþjóðavettvangi. Ætti nú að
reynast auðveldara að átta sig á
þeim iausafi'éttum, er öðru hvoru
berast blöðunum og eru oft mjög
sundurleitar. v.
Sjötugur
Páll I. Jóhannsson, Glerárgötu
3 á Akureyri, er 70 ára í dag. —
Hann stundar nú blaðaútburð og
innheimtu, er hinn hraustasti og
manna léttastur á fæti og mjög
duglegui' við störf sín öll.
Dagur þakkar honum vel unn-
in störf við afgreiðslu blaðsins á
Akureyri og sendir honum beztu
afmælisóskir.
Kirkjan. Messað í Akureyrar-
kirkju kl. 10.30 f. h. á sunnudag-
inn kemur. Sálmar: 26 — 43 —
317 — 413 — 97. — Við guðs-
þjónustuna verður þýzkur prest-
ur, pastor Hans J. Bahr, og flyt-
ur ávarp. Eru Þjóðverjar á Ak-
ureyri og í nærliggjandi sveitum
velkomnir. — P. S.
Minningargjöf. Egill Guttorms-
son, stórkaupm. í Reykjavík, og
kona hans, hafa nýlega gefið
kirkjunni á Möðruvöllum í Hörg-
árdal kr. 5000.00 — fimm þús. —
til minningar um foreldra Egils,
hjónin Guttorm Einarsson og
Elínu Gunnlaugsdóttur, og í til-
efni af aldarafmæli Guttorms 14.
marz sl. — Með þökkum móttek-
ið og skráð í Minningabók kirkj-
unnar. Sigurður Stefánsson.
Ferðafélagið þakkar. Kári Sig-
urjónsson, formaður Ferðafélags
Akureyrar hefur beðið blaðið að
færa þeim, sem unnu við sælu-
hússbygginguna í Herðubi'eiðar-
lindum, gáfu peninga eða studdu
málið á annan hátt, kærar þakkir.
Um síðustu helgi fór enn hópur
austur, og var þá lokið við að
gera húsið fokhelt og settur hef-
ur verið á það tjörupappi. Ferða-
menn eru beðnir að ganga vel um
austur þar og valda ekki spjöllum
á sæluhúsinu.
Ferðafélag Akureyrar fer í
sæluhús sitt að Laugarfelli um
næstu helgi. Upplýsingar gefur
Jón D. Ármannsson, sími 1464.
Frá knattspymuráði. Firma-
keppni í knattspyrnu hefst 19.
sept. n.k. Þátttakendur snúi sér
til Hjartar Eiríkssonar, Gefjun,
sem geíur nánari upplýsingar.
Þessa daga er verið að gera við
kantinn á bryggjunni. þar sem
slysið varð í sumar. Það er þörf
lagfæring.
Farin hefur verið herferð gegn
rottunum í bænum og sjást þær
nú ekki um hábjartan dag á göt-
um bæjarins.
Framhalds stofnfundur Bind-
indisfélags ökumanna (B. F. Ö.)
verður haldinn föstudaginn 22. þ.
m. í Rotarysal Hótel KEA kl. 9
e. h. — Á fundinum mætir erind-
reki Sambands B. F. Ö.
Drykkjuskapur er töluvei'ður í
bænum, bæði hjá bæjarbúum og
aðkomufólki. Um síðustu helgi
gistu sunnlenzkir íþróttamenn í
„Steininum“, ásamt innfæddum.
HERBERGI
vantar tvo reglusama skóla-
pilta í vetur.
Uppl. i sima 1879.
ÞÝZKA, TÉIÍKNESKA
höfum við til í eftir-
töldum stærðum:
6x30, 8x30, 7x50 og 12x60.
Allir með nætur-
glerjum.
Sendum í póstkröfu.
Járn- og gtervörudeild
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Ingibjörg
Öfeigsdóttir skrifstofumær og
Kolbeinn Pétursson stúdent.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Jóna Pála
Björnsdóttir, Melum við Akur-
eyri, og Gísli Sigfreðsson, lög-
fræðinemi, frá Lögmannshlíð við
Akureyri.
Iljónavígslur í Vallaprestakalli.
Hinn 12. ágúst sl. voru gefin sam-
an í hjónaband í Vallakirkju af
séra Stefáni Snævarr: Árdís
Fanney Sigvaldadóttir frá Hofs-
árkoti í Svarfaðardal og Jón Ár-
mann Árnason frá Húsavík. —
Heimili þeirra verður Ásgarðs-
vegur 16, Húsavík. — Sama dag
voru gefin saman í Tjarnarkirkju
af séra Stefáni Snævarr: Halldór
Hafstað frá Vík í Skagafirði og
Solveig kennari Arnórsdóttir
Sigurjónssonar ritstjóra. — Enn-
fremur: André Enard og Val-
gerður Birna Hafstað frá Vík í
Skagafirði, systir Halldórs. —
Heimili þeirra hjóna verður í
París.
Jónas Sigurðsson bóndi á Guð-
rúnarstöðum í Saurbæjarhreppi
varð sjötugur sl. mánudag, 18. ág.
Sigurður Sumarliðason, Odd-
eyrargötu 6 á Akureyri, andaðist
14. þ. m. Hann var fyrrum bóndi
í Bitrugerði í Glæsibæjarhreppi.
Ferðamaður var hann á yngri ár-
um og vár fyrsti maður, sem
gekk á Herðubreið. í fjölda mörg
ár var hann fylgdarmaður er-
lendra ferðamanna í byggðum og
á öræfum. Á yngri árum var Sig-
urður 10 ár í Ameríku og talaði
vel ensku. Hann átti heima hér á
Akureyri síðan 1931 og var 95
ára þegar hann lézt.
Templarar. Fyrirhuguð ei' sam-
eiginleg berjaferð stúknanna n.k.
sunnudag, 24. þ. m. Væntanlegir
þátttakehdur tilkynni þátttöku
sína fyrir föstudagskvöld að Hó-
tel Varðborg, sími 1481.
Litla stúlkan, sem missti hend-
ina. H. A. (gamalt áheit) kr. 50.
TEYGJA
BENDLAR
TÖLUR,
mikið úrval.
HÁRSPENNUR
SKÁBÖND
NÁLAR,
alls konar.
og ótal margt fleira.
Vefnaðarvörudeild
ÞRlHJÓL
fyrir börn,
nýkomin.
Hjólunum má breyta í tví-
hjól með lítilli fyrirhöfn.
Verzl. Eyjafjörður li.f.