Dagur - 03.09.1958, Síða 1

Dagur - 03.09.1958, Síða 1
Fylgist með því, sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. DAGUR kemur næst út miðviku- daginn 10. september. XLI. árg. Akureyri, miðvikudaginn 3. september 1958 43. tbl. Ilerskipið Russel vemdar brezka landhelgisbrjóta á „úthafinu“ við Dýrafjörð. Brezkir „gentlemen;i sýna „fair play44 á íslandsmiðum Klukkan 8 í gærmorgun stóð varðskipið „Þór“ brezk- an togara að veiðum á Norðfjarðarflóa, skammt utan við gömlu 4 mílna línuna. Þoka var á. Setti varðskipið 6 menn óvopnaða um borð í togarann. Létu togarakarlar ófriðlega, bitu í skjaldarreridur sínar og munduðu bar- eíli, en er íslendingar létu það ekki á sig fá, hættu þeir mótspyrnu. Kom nú brunandi brezka freigátan East- bourne með sína gínandi fallbyssukjafta. Setti hún einn- ig menn um borð í togarann, vopnaða kylfum. Er Is- lendingar neituðu að yfirgefa togarann, baðst Anderson „gentlemanskipper“ á freigátunni þess að mega koma um borð í „Þór“ og ræða við skipstjórann íslenzka, Eirík Kristófersson. Varð það úr. Samtal þeirra var tekið upp á segulband. Lofaði brezki skipherrann að hafa sam- band við London um, hvort beita skyldi ofurefli til þess að fjarlægja íslendingana, en nú liöfðu einnig bætzt við í togarann 3 mcnn frá „Maríu Júlíu“. Um tuttugu mínútum eftir að Andcrson var farinn frá „Þór“, lét hann senda liðsauka um borð í togarann, og voru íslendingar nú vfirbugaðir af ofureflinu. — Reyndu Brctar að setja þá um borð í ísl. varðskip, en ]>ví var hafnað. Voru því íslendingarnir fluttir með valdi yfir í brezka lierskipið. Er þelta gerðist var togai’- inn staddur INNAN VIÐ gömlu landlielgislínuna, en straumur hafði borið hann inn fyrir. Um svipað leyti og þetta gerðist, reyndi „María Júlía“ að láta menn sína ráðast til uppgöngu á annan landhelg- isbrjót, en þá mættu þeim við borðstokkinn froðufell- andi lýður með axir, járnkarla og annað ])víumlíkt að vopni. Létu íslendingar þar undan síga,enda óvopnaðir. Um alla þessa atburði er það eitt að segja, að þcir eru Bretum til minnkunar. Fyrir þetta munu þeir verða að athlægi hér á landi og annars staðar. „Skamma stund verður hönd höggi fegin,“ segir íslenzkt spakmæli, og mun það sannast á Bretum, því að þessi sigur cr nei- kvæður fyrir þá. „Notliing fails like success,“sagði brezk- ur spekingur eitt sinn, og ætti brezka stjórnin að festa sér þau orð vel í minni. Vinni Bretar fleiri slíka sigra á okkur óvopnuðum, ])á er úti um ])á og þeirra málstað. Öll önnur ríki viðurkenna 12 milna landlielgina í verki. Sigur Islands glöggur á fyrsta degi Þegar á fyrsta degi hinnar nýju landhelgi unnu íslendingar minnisstæðan sigur. Allar þjóðir, nema Bretar, sýndu viður- kenningu landhelginnar í verki og liéldu sig utan 12 mílna. Af veiðiflota Breta, sem áttu að vera um 200 togarar, reynd- ust aðeins 11 og hafa allir verið skráðir sem landhelgisbrjót- ar á Vestfjarðamiðum. Stór brezk herskip vörnuðu íslenzkri landlielgisgæzlu með ofbeldi að gegna skyldustörfum sínum. Þannig er vináttan og vernd smáþjóðanna í verki. Fyrstu dagar nýju landhelginnar, með ógnum og beinum hernaðaraðgerðum Breta í íslenzkri landhelgi, þjappa öllum Islendingum fast saman til að standa á óvéfengjanlegum rétti þjóðarinnar til landgrunnsins. „Dagur“ átti þátt í leiguflugi héðan frá Akureyri vestur á miðin 1. sept. með fréttámenli. Heimir Hannesson, sem tók þátt í förinni, segir frá á þessa leið: „Halldór Magnús, Ilalldór — Akureyri, Þingeyri, Horn, Ak- ureyri — flugtak leyft,“ kallaöi Akureyrarradíó, og Cessna- sjúkraflugvél Akureyringa þaut á loft undir öruggri stjórn Jó- hanns flugmanns. — Þetta var síðdegÍE mánudaginn 1. sept- ember. — Hvergi sáust fánar blakta við hún á Akureyri í til- efni dagsins. Dalvíkingar héldu daginn hins vegar hátíðlegan og blakti þar fáni á hverri stöng. Ferðinni var heitið vest- ur fyrir land, þar sem brezka stjórnin „verndar rétt skipa sinna á úthafinu“, eins og það kallað á máli þeirra í London, Hull og Grimsby. í sól og sunnangolu birtust norðlenzku sveitirnar hver af annarri. Og strax var stefnan tekin á Þingeyri. Úti yfir miðjum Húnaflóa var ákveðiS að skreppa sem snöggvast niður á ísafjörð í leit að ljósmyndara. Með hjálp talstöðvarinnar tókst það að lok- um og var þá öllu vel borgið. Á leiðinni út Skutulsfjörðinn kall- aði ísafjarðarradíó þessi aðvör- (Framhald á 2. síðu.) ar saekja um leyli fyrir snjóbíl Kaupfélag Eyfirðinga hefur óskað að leggja til 100 þús. kr. til að létta fjárhagsliliðina. — Fyrsta gjöfin barst frá Kristnes- hæli. — Leitað lil margra aðila í bænum og byggðunum við fjörðinn. — Sesselja komin á stúfana. Vetrarsamgöngur hafa nokkr- um sinnum verið gerðar að um- talsefni hér í blaðinu og bent á nauðsyn betri tækja til mann- og vöruflutninga, þegar snjóar loka leiðum fyrir venjulegar bifreiðir. Síðasti vetur færði mönnum sönnur á það, einu sinni enn, hve illa er ástatt í þeim byggðarlög- um, sem engan snjóbíl hafa. Al- mennur áhugi varð fyrir úrbót- um, sérstaklega í því efni er lýtur að sjúkraflutningum og læknis- hjálp. Ungmennasambandið, Kvenna- deild Slysavarnafélagsins og Rauðakrossdeildin höfðu skiln- ing á málinu, Kaupfélag Eyfirð- (Framhald á 7. síðu.)

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.