Dagur - 10.09.1958, Blaðsíða 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sínii 1166.
Dagur
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 17. september.
XLI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 10. september 1958
44. tbl.
Syntu yfir Oddeyrarál síðastliðinn sunnudag
===^-----------------■■■■....... ini.....iiii^iigiiIlMliiii
Frá vinstri: Ásta Pálsdótir, Björn Þórisson, Rósa Pálsdóttir, Júlíus
Björgvin<son og Súsanna Möller. — Akureyrskt sundfólk skemmtir
sér nú við að jjreyta sund yíir Oddeyrarál. Á sunnudaginn syntu 3
telpur og tveir piltar yfir fjörðinn. Björn Þórisson synti vegalengd-
ina á 16,58 mín, og er það sennilega met í þessu sundi. — Eftirtekt-
arvcrt er, að Ásta Pálsdóttir er aðeins 12 ára, systir hennar, Rósa,
er 13 ára og Súsanna varð 15 ára þennan dag og synti ósmurð. —
Stúlkurnar voru úr KA, en piltarnir úr Þór. — (Ljósmynd: M. G.).
Aðalfundur Stétlarsambands bænda
Samþykkt um laed-
helgismálið
„Bæjarráð Akureyrar lýsir
yfir stuðningi sínum við lit-
færslu íslenzkrar fiskveiði-
landhelgi í 12 mílur og þakkar
öllum, sem að þeirri ráðstöfun
hafa unnið. Jafnframt for-
dæmir bæjarráðið framkomu
Breta og ofbeldisaðgerðir
þeirra í íslenzkri landhelgi. —
Skorar bæjarráðið á alla lands
menn að sýna einhug og festu
í málinu og hvika hvergi frá
rétti Islendinga til 12 mílna
landhelgi.“
Ofbeldi og illur málstaður Breta
Landhelgisdeilan enn efst á baugi - Brezkum
togurum fækkar innan 12 mílna — Þeir toga en
fiska ekki - Enginn islenzkur togari á miðunum
Síðan reglugerðin um 12 mílna
fiskveiðilögsögu gekk í gildi 1.
sept. síðastl. hefur þetta gerzt:
1. sept. Brezk herskip hindra
íslenzk varðskip með valdi að
gegna skyldustörfum sínum. Skip
allra annarra þjóða virða hin
nýju lög og halda sig utan 12
mílnanna. Brezkir togarar fá
fyrirmæli um að brjóta land-
helgina og halda sig í þéttum
hópurn. Guðmundur í. Guð-
mundsson utanríkisráðherra mót
mælir þessum aðgerðum. harð-
Síld út af Horni
Landhelgisgæzlan sá 20 torfur
af síld 20 sjómílur norðaustur af
Horni á mánudaginn. Snæfell frá
Akureyri var nýfarið út á upsa-
veiðar, fékk nót senda á móti sér
og hélt vestur. í gærmorgun var
skipið komið á „síldarmiðin“, en
fann ekki svo mikla síld að það
teldi gerandi að kasta. Samt bíða
menn óþreyjufullir eftir frekari
fréttum af síldargöngum.
lega við ambassador Breta hér á
landi.
2. sept. íslenzk varðskip taka
brezkan togara í landhelgi að
ólöglegum veiðum. Brezkir sjó-
liðar eins herskipsins bera varð-
skipsmenn þá ofurliði, sem settir
voru um borð í landhelgisbrjót-
inn, og flytja þá yfir í herskipið.
Utanríkisráðherra kallar am-
bassador Breta á sinn fund og
mótmælir þessum aðgerðum.
Unglingar í Rvík brutu rúður
í bústað brezka sendiherrans.
3. sept. Utanríkisráðherra
krefst þess að íslendingarnir
sem eru fangar í brezka herskip-
inu, verði látnir dausir og skilað
um borð í togara þann, sem þeir
voru teknir úr. Brezka flota-
málaráðuneytið lýsir yfir áfram-
haldandi aðgerðum til „verndar"
brezkum togurum.
Færeyingar mótmæla aðgerð-
um Breta.
4. sept. Einn fjölmennasti úti-
fundur hér á landi var haldinn í
Rvík. Fulltrúar allra stjórnmála-
flokka fluttu ræður og fordæmdu
ofbeldi Breta og lýstu stuðningi
við ákvörðun íslendinga í land-
helgismálinu. — Varðskipi tekst
naumlega að forðast árekstur við
(Framhald á 7. síðu.)
að Bifröst
VerðlagsgrundvöIIiirimi hækkar, en fullt sam-
komulag ekki fengið. - Hermann Jónasson
landbúnaðarráðherra flutti
avarp
Dagana þriðja og fjórða sept-
ember var aðalfundur Stéttar-
sambands bænda haldinn að
Bifröst í Borgarfirði. Fulltrúar
mættu frá öllum sýslum landsins
og auk þess stjórn sambands-
ins, Framleiðsluráðs, margir
trúnaðarmenn og gestir.
Þessi aðalfundur einkenndist
einkum af þrem málum. Er þar
fyrst að telja verðlagsmál land-
búnaðarins, sem bæði eru um-
fangsmikil og bændum og öðr-
um mikilsverð, þá óþurrkamálin
og aðstoð við þá, sem verst hafa
orðið úti vegna þeirra í sumar og
í þriðja lagi má nefna húsbygg-
ingarmál fyrir bændasamtökin í
landinu.
Jón Sigurðsson, bóndi og al-
Fegursfu garðarnir á Ákureyri
Fegrunarfélagið veitti viðurkenningu að við-
stöddum garðeigendum og fréttamönnum
Fegrunarfélagið boðaði frétta-
menn á sinn fund að Hótel KEA
fyrra sunnudag, ásamt eigendum
fegurstu garða bæjarins.
Formaður þess, Jón Kristjáns-
son, kvaddi sér hljóðs, meðan
setið var að borðum, úthlutaði
skrautrituðum viðurkenningar-
skjölum fyrir beztu skrúðgarð-
ana og ræddi almennt um störf
Fegrunarfélagsins í bænum. —
Enginn garður hlaut verðlaun að
þessu sinni, en viðurkenningu
hlutu:
Bjarmastígur 1: Gerða Hall-
dórsdóttir, Haukur P. Ólafsson.
Oddeyrargata 36: Guðrún
Árnadóttir, Ingimundur Árnason.
Helgamagrastræti 9: Margrét
Guðlaugsdóttir, Jóhann Kröyer.
Byggðavegur 107: Guðrún
Jónsdóttir, Jón Davíðsson.
Byggðav. 109: Ágústa Gunn-
laugsdóttir, Árni Valdimarsson.
Byggðavegur 109: Margrét
Jónsdóttir, Þorsteinn Sigurðsson.
Þrastalundur: Soffía Sigurðar-
dóttir, Grímur Sigurðsson.
Eyrarvegur 13: Sigríður Þor-
gteinsdóttir, Tryggvi Helgason.
Dómnefnd skipuðu: Árni Jóns-
son, Jón Rögnvaldsson og Helgi
Steinarr.
Verkefni Fegrunarfélagsins eru
mörg, og á meðan áhugi
félagsins varir, og vonandi verð-
ur það sem lengst, og bæjarbúar
vilja fegra bæ sinn, munu þau
leysast eitt af öðru.
Hermann Jónasson flytur ávarp.
(Ljósmynd: E. D.).
«
þingismaður á Reynistað var
kosinn fundarstjóri og honum til
aðstoðar Sigurður Snorrason á
Gilsbakka. Fundarritarar Guðm.
Ingi Kristjánsson og séra Gísli
Brynjólfsson.
Frá aðalfundi Stéttarsambands bænda að Bifröst í Borgarfirði. — ('Ljósmynd: E. D.).
Sverrir Gíslason talar um verð-
lagsmálin. (Ljósmynd: E. D.).
Samkomulag hafði ekki náðst.
í upphafi fundarins flutti
jSverrir Gíslason, formaður
Stéttarsambandsins greinargóða
ræðu um vei’ðlagsmálin sérstak-
lega. Sagði hann, að enn hefði
ekki náðst samkomulag um þau í
hinni svoköllúðusexmannanefnd,
sem skipuð er af fulltrúum neyt-
enda og framleiðanda. Heflði
verðlagsgrundvöllurinn staðið
óbreyttur frá því í fyrra, hefði
útgjaldahækkun orðið milli 10 og
11% samkv. útreikningi Hagstof-
unnar. Samningum um nýtt
verðlag landbúnaðarvara, var
sem fyrr segir, ekki lokið, en
veigamestu þættina var orðið
samkomulag um.
Auk verðlagsmálanna ræddí
(Framhald af 7. síðu.)