Dagur - 27.09.1958, Side 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 1. október.
XLI. árg.
Akureyri, laugardaginn 27. september 1958
47. tbl.
Fjölmennasta samkoma Akureyringa aá Glerárrétt
Á níunda þúsund f jár á
f jalli. - Réttardagurinn
er enn þá ævintýri
Hér norðanlands hafa menn
notið góðviðris í göngum og rétt-
um og ekkert slys hent, svo að
frétzt hafi. A nokkrum stöðum
hefur þó þoka tafið fyrir og lík-
legt að nokkrum fjallafálum hafi
tekizt að láta hana skýla sér á
meðan gangnamenn fóru hjá. —
Haustlitirnir eru fremur seint á
ferð að þessu sinni, sérstaklega
hið efra. Frammi í daladrögum
virðist jafnvel nokkur grózka
þessa daga. Lambagrasið og
blóðbergið blómstra þar sem
ókafast og grasið vex. Lyng og
víðigróður hafa aftur á móti
skipt litum. Gulvíðitopparnir
lýsa upp hinn dökka flöt, sem
lyngbreiðurnar mynda. Lita-
brigðin eru óendanlega mörg og
hvert öðru fegurra í skyni haust-
sólarinnar.
Ufanríkisráðherra lýsir s
Bretum á þingi S.Þ.
Krafðist þ ess að hernaðaraðgerðum yrði hætt
Guðmundur í. Guðmundsson'
utanríkisráðherra flutti ræðu á
allsherjarþingi SÞ í fyrradag og
bar fram þá kröfu, að öllum
hernaðaraðgei'ðum á skipaleiðum
við ísland yrði hætt þegar í stað.
Hann kvað slíkar aðferðir sem
þær, er Bretar beita nú við fs-
land, aldrei hafa verið hafðar í
frammi við nokkurt ríki, sem
fært hefði út fiskveiðitakmörkin
með einhliða yfirlýsingu og á
sama hátt og hér væri gert. „Geti
hvorki laganefndin eða alls-
herjarþingið fundið lausn, er
heldur ekki líklegt að sérnefnd
eða ráðstefna geti það.“
Ráðherrann vísaði til þess að
eitt stórveldið, Sovétríkin, hefði
fyrir löngu tekið sér 12 mílna
landhelgi, „þó hafa Bretar ekki
talið það nauðsynlegt að senda
herskip inn á skipaleiðir við
Sovétríkin til að vernda hin svo-
kölluðú réttindi samkv. alþjóða-
lögum. Þetta er sönnun þess, að
með aðgerðum sínum við ísland
styðja Bretar ekki alþjóðalög,
heldur reyna öllu fremur að
halda lífi í eldgamalli pólitík,
með því að gera kröfu til nátt-
úruauðæfa, sem með réttu er
eign hinnar íslerizku þjóðar.“
Ennfremur sagði hann: „Þessi
afstaða Breta mun ekki knésetja
hina íslenzku þjóð. Þvert á móti.
íslendingar standa sameinaðir og
í
einhuga um 12 mílna fiskveiði-
lögsöguna."
Selwyn Lloyd utanríkisráð-
herra Breta ræddi um deiluna á
miðunum við ísland. Hann lagði
til að málinu yrði skotið til al-
þjóðadómstólsins í Haag.
TOGARARNIR
Kaldbakur er ó heimleið með
fullfermi af karfa af Nýfundna-
landsmiður og er á þriðja degi
heimsiglingar. *
Harðbakur hóf veiðar á sömu
miðum í gær.
Sléttbakur kemur á mánu-
dagsmorguninn, einnig frá hin-
um nýju miðum við Nýfundna-
land.
Svalbakur er á veiðum.
Karfaveiðin hefur gengið vel
og batnandi síðustu daga og fisk-
urinn vænni. 235 manns vinna
nú hjá U. A. á sjó og landi. Hætt
er við að hörgull verði á vinnu-
karfti þegar skólarnir byrja.
Ragnar Guðmundsson
réttarstjóri.
Lagðhvítt féð, sem unað hefur
við kjarngróður og fullt næði
sumarlangt, íítur upp og hlustar.
í fjarska heyrist hundgá. Ærnar
vita af gamalli reynslu, að þá er
ekki til setunnar boðið og halda
af stað til byggða eftir krókótt-
um götuslóðum. Fjárgöturnar
liggja jafnan tæpt á klettabrún-
um og framan í bröttum skriðum
og er þessi vegagerð mjög í sam-
ræmi við eðli sauðkindarinnar,
sem er fjalladýr að upplagi og
velur sér jafnan leiðir á tæpustu
nöf.
Göngui' og réttir eru ennþá eitt
sérstæðasta ævintýri ársins og
©hefur alltaf á sér hinn sama blæ,
þótt flest annað breytist í búnað-
arháttum. Akureyringar eiga
ekki stór afréttarlönd fyrir sauð-
fé. Glerárdalur, Súlumýrar og
fjallið ofan kaupstaðarins eru
sumarlönd sauðfjárins og er ærið
þröngt í haga. Bæjarbúar munu
hafa átt á níunda þúsund fjár á
fjalli í sumar, en aðeins nokkur
hundruð kindur hafa haft sum-
(arhaga annars staðar. (Fr. á 7. s.)
Söngafraæli Einars
Kristjánssonar
Á miðvikudaginn átti Einar
Kristjánsson óperusöngvari 25
ára söngafmæli. Hann hefur
sungið 100 óperuhlutverk, þar af
25 hjá Konunglegu óperunni í
Höfn.
Sumir bafa gaman af
mislitu.
Ungir og gamlir ciga erindi Ferhyrnt fé er sjaldgæft,
Hefurðu séð Móru
Hún færir bónda sínum kaffisopa
í réttirnar.