Dagur - 08.10.1958, Blaðsíða 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringutn okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 15. október.
XLI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 8. október 1958
49. tbl.
Biluð ílugvél á Akureyrarflugvelli
Nýja sjúkrailugvélin bjargar mannslífum
ALÞINGI
Forseti Islands liefur tilkynnt
að reglulegt Alþingi 1958
verði kvatt saman til fundar
á föstudaginn kemur, að til-
lögu forsætisráðherra. — Þing-
setning fer fram þann dag að
aflokinni guðsþjónustu í dóm-
kirkjunni, sem hefst kl. 13.30.
í röklutrbyrjun í fyrrakvöld nauðlenti katalínuflugbátur Flugfé-
lagsins, TF—ISK, á Akureyrarflugvelli. Vélin var í áætlunarflugi.
og kom frá Siglufirði. Hún Iaskaðist lítils háttar í lendingunni þar
og rann sjór í vélina. Hóf hún sig þá þegar til flugs og hélt hingað.
En þá var nefhjól vélarinnar fast og gekk ekki niður. Hún lenti þó'
án óhappa og sakaði engan mann er í vélinni var. Flugstjóri vai'
Ilaukur Hlíðberg og farþegar aðeins tveir, Sigursveinn D. Krist-
insson frá Ólafsfirði og kona hans. Myndin sýnir vélina á Akur-
eyrarflugvelli. — (Ljósmynd: E. Sigurgeirsson.)
Tónleikar Þórunnar
Píanótónleikar ungfrú Þór-
unnar Jóhannsdóttur voru tón-
listarunnendum mikið gleðiefni.
Nú er Þórunn ekki undrabarn
lengur, heldur ung en þroskuð
listakona, sem býr yfir furðu-
legri tækni jafnframt hinni
þroskuðu músikgáfu.
Tónleikunum 31. september
sl. var ágætlega tekið.
Hrúfasýningarnar í Eyjafjarðarsýslu
Greinileg framför frá síðustu aðalsýningum 1954
Hrútasýningar voru haldnar
liér í sýsiunni vikuna 21.—27.
sept. sl. — Dr. Halldór Pálsson
ráðunautur mætti á þeim öllum
og var aðaldómari, en honum til
aðstoðai' héraðsráðunauturinn,
Ingi Gai'ðar Sigurðsson.
Alls voru sýndir 643 hrútar
veturgamlir og eldri, en 605 á
aðalsýningunum 1954 á þessu
sama svæði. Sýningarnar fóru
fram í öllum hreppum sýslunnar
og Akureyri.
232 fyrstu verðlaun.
Að þessu sinni hlutu 232 hrút-
ar. fyrstu verðlaun, á móti 169
árið 1954. Onothæfir reyndust nú
94, en áður 135.
Hrútarnir voru jafnbeztir í
Öxnadal. Þar hlutu tveir þriðju
fyrstu verðlaun. En lakastir voi-u
þeir í Hrafnagilshreppi og var
hlutfallstalan þar því sem næst
einn fyrstu verðlaunahrútui' á
móti hverjum 5 sýndum.
Afkvæmasýningar voru í 5
hreppum sýslunnar, þar sem
hverjum hrút fylgdu 22 afkvæmi.
Gráni Olafs Olafssonar í Garðs-
horni í Kræklingahlíð hlaut 1.
verðlaun, Sómi og Prúður Gunn-
ars Jónssonar, Tjörnum í Saur-
bæjarhi-eppi, hlutu 2. verðlaun,
og Jökull, eigandi sauðfjárrækt-
arfélagið Vísir í Arnarneshreppi,
hlaut 3. verðlaun.
Tvær ær voru sýndar með af-
kvæmum sínum: Spíra frá Hellu
á Árskógsströnd, eigandi Jó-
hannes Kristjánsson, og Hrefna
Jóns Jónssonar frá Böggvisstöð-
um í Svarfaðardal. Hlaut sú
fyrrnefnda 1. verðlaun, en hin 3.
Níu beztu hrútarnir á sýningunni í Öxnadal. (Ljósm.: Ingi G. Sig.).
Síðan hin nýja sjúkraflugvél Norðlendinga tók
til starfa seinni partinn í júlí í sumar, hafa átta
sjúkraflug verið farin og mannslífum bjargað
Blaðið hitti Jóhann Helgason
flugmann að máli um helgina og
ræddi við hann um stund um
hina nýju starfsemi í sambandi
við sjúkraflugvélina. Samkvæmt
upplýsingum hans hefur Ólafs-
fjörður sérstaklega notið sjúkra-
flugvélarinnar, en þaðan er langt
og seinfarið bæði á sjó og landi
með sjúklinga, sem koma þarf í
sjúkrahús. Annars hafa sjúkra-
flugin verið á þessa staði aðra:
Grímsey, Egilsstaði, Raufarhöfn
og Hólmavík, mismörg á hvern
stað. Auk þess hafa verið farin
mörg önnur leiguflug til ýmissa
staða á Norðurlandi. Samkvæmt
upplýsingum annars staðar frá,
mun flugmaðurinn og hinn nýi
farkostur þegar hafa bjargað
mannslífum, og er það sannar-
lega gleðilegt og verður ekki
metið til fjár. Hins vegar fela
slíkir atburðir í sér ríkulegt end-
urgjald þeim til handa, sem unnu
að því á einn og annan hátt að
sjúkraflugvél var hingað keypt
og héðan starfrækt.
Blöð og útvarp hafa ekki með
myndum eða frásögnum fært
hinn unga flugmann okkar inn á
svið auglýsingaljómans, svo sem
áður var gert um hliðstæða starf
semi, enda er þess ekki óskað eða
á því nein þörf. Norðlendingar
vita að sjúkraflugvélin bíður til—
búin þegar kallað er. Og það er
táknrænt, að á þeim stutta tíma,
sem liðinn er frá því að hún kom,
hefur það sýnt sig hvað hún er
nauðsynleg, og þó er hásumar-
tíminn auðveldastur til ferðalaga
og flutninga á annan hátt.
Snjóskíðin eru væntanleg inn-
an skamms og gerir það sjúkra-
flugið mun þýðingarmeira og
ekki bundið flugvöllum þegar
snjór leggst yfir jörð.
veður og mikil atvinna
Sem dæmi um hina einstölui
veðurblíðu síðan í september-
byrjun, má nefna að kartöflu-
grasið stendur víða algrænt
ennþá og kartöflur hafa verið
að vaxa fram að þessu. Berin,
sem víða spruttu með ágætum
í suinar, sérstaldega bláber,
eru enn óskemmd og var
berjafólk á ferð um síðustu
helgi og tíndi ágæt ber. Frost-
mætur hafa ekki ltomið enn,
svo að heitið geti. Þoka hlífði
stórum svæðum, þegar kaldast
var. Heyskaparlok urðu góð.
Bygginga- og jarðaræktar-
framkvæmdir í sveitum hafa
ekki tafizt af völdum illra
veðra, svo sem oft er þó á
þessum tíma. Göngur og réttir
voru hinar ánægjulegustu og
hin langa sláturtíð, sem víðast
er orðin vegna fjölgunar sauð-
fjárins, hefur verið hagstæðari
en oftast áður vegna veður-
blíðu, og féð er mjög vel á sig
kornið. Hér á Akureyri hefur
verið mikil atvinna. Bygginga-
framkvæmdir mjög miklar. hjá
U. A. hafa á þriðja hundrað
manns unnið undanfarnar
vikur, hjá Vatnsveitu Akur-
eyrar stór vinnuflokkur og
sumar verksmiðjur samvinnu-
manna hafa margsinnis auglýst
(Framhald af 2. síðu.)
Yfir 100 brezkir landhelgisbrjótar kærðir síðan 1. sept. síðastliðinn
Fjögur herskip, með samtals 1200 manna áhöfii, vernda enn þá veiðiþjófnað brezku togaranna
Klængur frá Ingvörum bar af
jafnöldrum sínum í Svarfaðardal.
(Ljósm.: Ingi G. Sig.).
Þegar blaðið talaði við Land-
helgisgæzluna kl. tæplega 3 í gær
voru 14 brezkir togarar að veið-
um í landhelgi út af Barða og
nokkrir togarar utan línu. Á
norðursvæðinu voru 5 landhelg-
isbrjótar. Við Langanes var eng-
inn, en nokkrir langt norður í
hafi.
í fyrradag kl. 19 voru 12
brezkir togarar út af Vestfjörð-
um, einn norður af Straumnesi
en 2 komu þar til viðbótar litlu
síðar. María Júlía reyndi að taka
landhelgisbrjót út af Gletting.
En sá greip til flóttans og kallaði
ákaft á aðstoð. Stefndi hann til
hafs, svo hart sem hann mátti og
skildu leiðir eftir nokkurn elt-
ingaleik.
Samtals munu 105 bi'ezkir land
helgisbrjótar liggja undir kæru,
sumir mörgum kærum.
Fjögur brezk herskip vernda
veiðar hinna erlendu togara inn-
an landhelginnar og mun áhöfn
þeirra vera um 1200 manns. Eru
þau dreifð um veiðisvæðin.
Einnig eru birgðaskip í förum.
Á íslenzku varðskipunum er
rétt um 100 manna áhöfn sam-
anlagt.
Sem stendur eru 30 brezkir
togarar við veiðar hér við land.
Þeir koma og fara, afla mjög lítið®
hér, svona 5—800 kit, en selja
vel, því að fiskverðið er orðið
hátt í Bretlandi. Þessir togarar
eru um 3 vikur í ferðinni.
íslenzkir togarar stunda nær
allir veiðar á fjarlægum stöðum,
flestir á hinum nýju Fylkismið-
um og afla mjög vel.
Mótmælaorðsendingar ganga á
víxl milli ríkisstjórna Breta og
íslands út af landhelgismálinu.
Bretar hafa, með mjög röngum
fréttaburði, óvirt íslendinga í
sambandi við mannúðarmál. —
Gerir það hlut þeirra enn verri,
ef hægt væri.
Verkamenn á Akureyri
fá Dagshrúnarkaup
Hinn 1. þessa mánaðar voru
undirritaðir nýir kaup- og kjara-
samningar milli Verkamannafé-
lags Akureyrarkaupstaðar og at-
vinnurekenda.
Eru hinir nýju samningar að
mestu óbreyttir frá fyrri samn-
ingum nema hvað grunntaxtar
hækka um 9—9.5%, svo sem
grunnkaup Dagsbrúnarverka-
manna hækkaði fyrir skönnnu
við nýja samninga.
Lítilsháttar tilfærsla varð á
einstaka vinnu milli taxtaflokka.