Dagur - 22.11.1958, Síða 1

Dagur - 22.11.1958, Síða 1
Fylgist með því, sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. Dagur DAGUR kemur næst út miðviku- daginn 26. nóvember. XLI. árg. Akureyri, laugardaginn 22. nóvember 1958 57. tbl. Á lieimleið úr réttum Nýja friðunin ber 90% árangur Mjög tíðkast nú að íé er flutt á stórum vögnuni, sem tengdir eru dráttarvélum. Hér cru Hjaltastaðabændur á hcimlcið frá Silfrastöð- um. Myndin cr tekin í haust. — ("Ljósmynd: E. D.). Þráft fyrir vopnað ofbeldi Breta, en veika vörn íslenzkr ® ar landhelgisgæzlu á miðunum, ber reglugerðin um 12 sjómílna fiskveiðitakmörkin mjög góðan árangur Um miðjan mánuðinn var nýtt samkomu- og veitingahús, Fram- sóknarhsúið, opnað í Reykjavík. Verður það jafnframt flokks- heimili Framsóknarmanna og miðstöð flokksstarfsins í höfuð- borginni. Það stendur við Frí- kirkjuveg. Framsóknarhúsið er falleg Fiskifélag fslands hefur sent frá sér skýrslu um fiskaflann á fyrstu níu mánuðum þessa árs, frá áramótum til septemberloka. Var heildaraflinn á þessum tíma 423.138 lestir, síldaraflinn þar með talinn. Er þetta meiri afli en í fyrra, en þá var heildar- aflinn yfir sama tímabil 376.669 lestir. Síldaraflinn nam í ár rúm- Fundur að Breiðumýri Á laugardaginn var efndi Bún- aðarsamband S.-Þing. til fundar að Breiðumýri í Reykjadal. For- maður sambandsins, Hermóður Guðmundsson, bóndi í Árnesi, se'tti fundinn með stuttu ávarpi. Aðalræðumenn og málshefj- endur voru ráðunautarnir Olafur Jónsson og Erik Eylands. Ræða Olafs fjallaði um nautgriparækt, en Eriks um landbúnaðarvélar og var báðum vel tekið og urðu umræður allgjörugar á eftir og fjöldi fyrirspurna komu fram, serm frummælendur svöruðu í hinum almennu umræðum. — Karlakói inn Þrymur í Húsavík kemur hingað til Akureyrar á morgun, sunnudag, og syngur í Nýja-Bíó klukkan 2 e. h. Karla- kór Akureyrar mun heilsa gest- bygging og stendur í hjarta borg- arinnar. Það er eitt bezt búna og vistlegasta veitingahús í bænum, og ef að líkum lætur, verður það eftirsóttur skemmtistaður. Samband ungra Framsóknar- manna og Félag ungra Fram- sóknarmanna í Reykjavík, hafa tekið húsið á leigu til eins árs. um 94 þús. lestum, en í fyrra tíma. Af öðrum fiski, sem nemur samtals um 329 þús. lestum, er langmest af þorski, eða rúmar 221 þús. lestir. Karfaaflinn kem- ur næst og- er rúmar 63 þús. lestir. Af þessum 423 þús. lestum, sem veiðzt hafa það sem af er þessu ári, eru rúmar 277 þús. lestir bátafiskur, en 146 þús. lestir togarafiskur. Langmest af þorskaflanum hef- ur farið til frystingar eða 202.861 lest. Til söltunar fóru 73.190 lest- ir, til herzlu rúmar 39 þús. lestir, afgangurinn í ís til neyzlu, til mjölvinnslu og til niðursuðu. Til samanburðar má geta þess, að í fyrra fóru á sama tíma rúmar 154 þús. lestir til frystingar og tæpar 72 þús. lestir til söltunar. Af síldaraflanum hafa 44 þús. lestir farið til söltunar, 41 þús. í bræðslu og tæpar 9 þús. til fryst- ingar .Á sama tíma í fyrra fóru um 74,500 lestir i bræðslu, 23,500 til söltunar og 7,500 til frystingar. unum með einu lagi á undan söng Þingeyinganna. — Kristinn Hallsson hefur þjálfað Þrym að undanförnu. Á heimleiðinni mun kórinn syngja að Laugum. f september og október í fyrra var vitað um togara að veiðum í 264 skipti innan við 12 mílur hér við land. Þótt íslendingum sé þungt í huga vegna landhelgisveiða brezkra togara undir herskipa- vernd og ofbeldis þeirra í margri mynd, ættu menn að varast að líta svo á, að útfærsla fiskveiði- takmarkanna hefði til einskis orðið af þessum sökum, eða meðan landhelgisveiðar Breta halda áfram. Sannleikurinn er sá, að örugg- lega má telja, að síðan 1. septem- ber sé um 90% friðun að ræða innan tólf mílna markanna, eða með öðrum orðum, að stækkunin bafi þegar náð tilgangi sínum að níu tíundu hlutum. Er þetta í sjálfu sér hin merkilegasta stað- reynd, þegar um svo umdeilda ráðstöfun cr að ræða, og megum við því vcl við una — að Bretum slepptum. Samkvæmt upplýsingum frá landhelgisgæzlunni vissi hún um togara að veiðum í 264 skipti á svæðinu milli 4 og 12 mílna markanna hér við land í septem- ber og október í fyrra, en þegar taldir eru þeir 10—20 brezkir togarar, flesta daga síðustu vik- ur, sem hér hafa verið í land- helgi undir herskipavernd á tak- mörkuðum svæðum, sézt að það er aðeins lítið brot af því sem áður var. Aflamagnið, sem ‘togárarnir veiða nú, er þó vafalaust ekki einu sinni tíundi hluti af því, sem verið hefur, svo að friðun er enn meiri en tala skipanna gefur til kynna. Auk þess eru togarárnir nú á mjög afmörkuðum svæðum, en voru dreifðir áður, svo að fiskur inn hefur þess vegna miklu greiðari gang á grunnið en áður var. Þótt Bretar haldi áfram uppteknum hætti, er óhætt að fullyrða, - að reynsla síðustu tíu vikna hefur sannað þeim og öðr- um, að ekki er hægt að stunda veiðar undir herskipavernd. í kvöld, Iaugardag, lialda Fram- sóknarmenn árshátíð sína í Al- þýðuhúsinu. Hefst hún kl. 8.30. Ingvar Gíslason setur sam- komuna og auk ræðu Halldórs Sigurðssonar skemmtir Hjálmar Gíslason gamanleikari og Jóhann Nú í vikunni brunnu fjárhús og hlaða Björns bónda Jónssonar í Felli í Sléttuhlíð í Skagafirði. Hvassviðri var á og varð engu bjargáð nema 6 hrútum, sem í fjárhúsunum voru, en ær og líf- lömb voru úti. Þarna brann HALLDÓR SIGURÐSSON alþingismaður. Konráðsson syngur, undirleik annast Árni Ingimundarson. — Ennfremur er Bingó-happdrætti og að lokum er stiginn dans. — Aðgöngumiðar fást kcyptir með- an húsrúm Ievfir á skrifstofu fiokksins og við innganginn. méstallur heyforði bóndans, um 500 hestburðir. Fjárhúsin og hlaðan brunnu til ösku. Þau voru úr torfi og grjóti með timbur- stöfnum og þök járnvarin. Þótt fólk kæmi fljótt af næstu bæjum réðist ekkert við eldinn. Þó tókst að bjarga 100 hestburðum af heyi, sem var úti og hlaðið upp við hlöðuna. Björn bóndi stendur nú uppi nær heylaus og algerlega húsa- laus fyrir fé sitt. Enn er óráðið, hvort hann neyðist til að lóga fé sínu nú þeg’ar. Líklegt er þó, að sveitungar hans rétti honum hjálparhönd svo sem þeir geta og reyni að koma í veg fyrir niður- skurð. Allir Akureyrartogar- arnir á veiðum Kaldbakur er á heimleið af hinum nýju Fylkismiðum. Ætl- unin var að hann sigldi með afl- ann til Þýzkalands, en óvíst að af því verði og kemur hann þá hingað um miðja næstu viku. Svalbakur er á heimamiðum og veiðir fyrir Þýzkalandsmarkað. Harðbakur er á karfaveiðum og kemur hingað væntanlega eft- ir miðja næstu viku. Sléttbakur er á heimamiðum og leggur afla sinn upp hér. Hundur, sem leitar uppi sprengjur Myndin sýnir sænskan hermann hjá UNEF. Hann er að lcggja af stað með hundinn til að leita að sprengjum. — Ilundurinn er einn af fjórum, sem þjálfaðir voru í Norður- Svíþjóð til þessa starfs vegna óvenju mikillar þefvísi og vitsmuna, og sendir til Gaza. Heildaraflinn 423 þúsund lestir fyrsiu níu mánuði ársins Þrytmir syngur hér á sunnudaginn Söngsfjórar eru þeir Friðrik A. Friðriksson prófasfur og Sigurður Sigurjónsson - Einsöngvari Krisfinn Halls- son óperusöngvari - Undirleikari séra Örn Friðriksson . er i Halldór Sigurðsson, alþingismaður, flytur ræðu Mörg skemmtiatriði, m. a. Bingo-liappdrætti Ársháfíð Framsóknarféi Bruni að Felli í Slétfuhlíð í Skagaf. Fjárhús og lilaða brann til kaldra kola

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.