Dagur - 06.12.1958, Blaðsíða 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUK
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 10. desember
XLI. árg.
Akureyri, laugardaginn 6. desember 1958
60. tbl.
Hermann Jónasson lorsætisráðherra baðst lausnar lyrir sig og
Samkomulag í efnahagsmáluni náðist ekki
á milli stjórnarflokkanna þriggja
Skódeild KEÁ fiutt s nýtt húsnæði
Opnar verzlun sína, sem er mjög nýtízkuleg, í
Hafnarstræti 95, fyrstu hæð
Deildarstjóri er Aðalsieinn Jósepsson
ADALSTEINN JÓSEPSSON
deildarstjóri.
í dag flytur Skódeild Kaupfél.
Eyfir'ðinga á Akureyri verzlun
sina í annað húsnasði, Hafnarstr.
95 (Goðafoss), fyrstu hæð, og
opnar þar í dag. Þar hefur með
nokkrum breytingum fengizt
sæmilega rúmgott verzlunar-
pláss, sem er mjög haganlega og
smekklega búið.
Óvissa ríkir m stjórn landsins
Allt er enn í óvissu um stjórn
landsins. Forseti Islands, herra
Ásgeir Ásgeirsson, mun kalla
ráðherrana og formenn stjórn-
málaflokkanna á sinn fund eft-
ir helgina til viðræðna um
myndun nýrrar stjórnar. En
ráðuneyti Hermanns Jónasson-
ar fer með völd þar til annað
verður ákveðið. — Á þessu
stigi málsins verður cngu spáð
um myndun nýrrar ríkis-
stjórnar. Alþingi gctur sjálft
myndað meirihluta um nýja
stjórn. Forsetinn getur skipað
embættismannastjórn, ef Al-
þingi getur ekki sjálft leyst
stjórnarkrcppuna, og liugsan-
legt er ennfremur að núver-
andi stjórn fari með stjórn
landsins til vors, eða fram að
nýjum kosningum. Mjög ólík-
legt er að nokkur sfjórnmála-
flokkur óski eftir vetrarkosn-
ingum. Næstu daga munu
þessi mál cf til vill skýrast.
Geislavirkni eyksl yfir Svíþjóð
Fréttaskeyti frá Svíþjóð skýra
frá, að úrkomumælingar í nóv-
ember hafi leitt í ljós, að rúss-
nesku vetnis- og kjarnorku-
sprengingarnar muni valda mik-
illi geislavirkni í lofti. Tvennar
þessara mælinga sýndu nærri
jafnmikið geislamagn því, sem
mest hefur mælzt í Kírúna,
(námasvæðið mikla í Norður-
Svíþjóð). Geislavirkt efni í hó-
loftum hefur aukizt við tilraunir
liússa í Norður-íshafi (á Nóvaja
Semlja). Muni því geislamagn
háloftanna haldast um langa hríð
hærra en áður og um 20—30% af
fyrri aukningu. Einnig eru rann-
sökuð rykkorn, sem eru sérlega
næm fyrir geislavirkni, og verð-
ur rannsóknum þessum haldið
áfram sökum liklegrar hættu af
þessu fyrirbrigði. Verður að taka
fullt tillit til hættu sem af því
stafar, að svona mikið geisla-
magn samansafnast á takmörk-
uðu svæði í nágrenni Svíþjóðar.
Þótt aðal verzlunar- og skrif-
stofuhús KEA væri byggt a£
framsýni og stórhug hefur vöxt-
ur félagsins þó orðið meiri en
hinir bjartsýnustu gerðu sér
vonir um. Hinar mörgu verzlun-
ardeildir hafa þegar of þröngan
stakk hvað húsnæði snertir.
Meðal þeirra eru vefnaðarvöru-
deild og skódeild. Þrer voru
fyrrum ein deild, en síðan að-
skildar og bjuggu þó báðar of
þröngt. Nú, þegar skódeildin
færir sig um set, kemur hið fyrra
húsnæði hennar til góðra nota
fyrir vefnaðarvörudeildina. —
Hin nýja verzlun skódeildar-
innar bætir mjög aðstöðu við-
skiptavinanna frá því sem áður
var. Þar er t. d. sérstakur stað-
ur fyrir karla og annar fyrir
konur til að máta skófatnaðinn.
í þessari nýju verzlun eru allar
fáanlegar tegundir af skóm, inn-
lendum og erlendum, og er hið
vistlega húsrúm notað til að
sýna vöruna, en ekki til að
geyma hana í lokuðum skóköss
um, eins og víða er venja ennþá.
Teikningar annaðist Teikni-
stofa KEA undir stjórn Guðlaugs
Friðþjófssonar, um innréttingu
sá Húsgagnaverkstæði Olafs
Ágústss. & Co, málingu annaðist
Jón A. Jónsson og ljósateikning-
ar og raflögn annaðist Raflagna-
deild KEA undir stjórn Ingva
Hjörleifssonar.
Deildarstjóri Skódeildarinnar
er Aðalsteinn Jósepsson, ungur
og duglegur verzlunarmaður, er
tók við því starfi fyrir hálfu öðru
ári af Valdimar Baldvinssyni.
Á ríkisráðsfundi í fyrradag
baðst Hermann Jónasson for-
sætisráðherra lausnar fyrir sig
og ráðuneyti sitt. Á fundi Sam-
einaðs þings sama dag gerði for-
sætisráðherra grein fyrir lausn-
arbeiðni sinni með svofelldum
orðum:
i
„Eg hef á ríkisráðsfundi í
dag beðizt lausnar fyrir mig |
og ráðuneyti mitt. Forseti ís- ^
lands hefur heðið ráðuneytið
að gegna störfum fyrst um
sinn, og hafa ráðherrarnir að
venju orðið við þeirri beiðni.
Fyrir lá að hinn 1. desem-
ber átti að taka gildi ný kaup-
greiðsluvísitala, senr fól í sér
17 stiga hækkun. Til þess að
korna í veg fyrir nýja verð-
bólguöldu, sem af þessu hlaut
að rísa, óskaði eg þess við
samráðherra mína, að ríkis-
stjórnin beitti sér fyrir setn-
ingu laga um frestun á fram-
kvæmdum hinnar nýju vísi-
tölu til loka mánaðarins, —
enda yrðu þessi fyrrgreindu
17 vísitölustig j)á greidd eftir
á fyrir desember, nerna sam-
komulag yrði um annað.
Frestur sem fengist með
lagasetningunni skyldi notað-
ur til þess að ráðriim gæfist til
samkomulagsumleitana.
Leitað var umsagnar AI-
þýðusam bandsjrings um laga-
setningu þessa, samkvæmt
skilyrði sem sett var fram um
])að í ríkisstjórninni.
Alþýðusambandsþing neit-
aði fyrir sitt leyti beiðni
minni um frestun. Boðaði eg
})á ráðherrafund að morgni
laugardags 29. nóvember, en
]>ar náðist ekki samkomulag
um stuðning við frumvarpið.
Af þessu leiddi að hin nýja
kaupgreiðsluvísitala kom til
framkvæmda um mánaðamót-
in og ný verðbólgualda er þar
með skollin yfir.
Við Jretta er svo því að
bæta, að í ríkisstjórninni er
ekki samstaða um nein lirræði
í þessuin málum, sein að
mínu áliti geti stöðvað hina
háskalegu verðbólguþróun,
sem verðúr óviðráðanleg, ef
ekki næst samkomulag um
þær raunhæfu ráðstafanir,
sem lýst var yfir að gera þyrfti
þcgar efnahagsmálafrumvarp
ríkisstjórnarinnar var lagt
íyrir Alþingi á síðasta vori.“
TILLÖGUR FRAM-
SÓKNARFLOKKSINS.
Eins og kemur fram í þeirri
greinargerð forsætisráðherra,
sem birt er hér á undan, er or-
sök stjórnarslitanna sú, að ekki
náðist samkomulag um að koma
í veg fyrir vísitöluhækkunina nú
um mánaðamótin, en hún mun
að óbreytum ástæðum hafa stór-
fellda verðbólgu í för með sér og
kippa grundvellinum undan
rekstri atvinnuveganna.
Fyrir nokkru síðan fluttu ráð-
herrar Framsóknarfl. í ríkis-
stjórninni tillögur, scm fólu í sér
færa leið til þess að afstýra þess-
ari hækkun, á þeim grundvelli,
að kaupmáttur launa héldist
óbreyttur frá því, sem var í okt.
1958 eða febrúar 1958, þegar hin
IIERMANN JONASSON.
svokallaða stöðvunarstefna var
enn í giltfi- í þessum tillögum
fólst m. a., að launþegar og
bændur gæfu eftir noltkur vísi-
tölustig. Þegar Framsóknar-
flokkurinn fékk ekki þessar til-
Iögur sínar samþykktar í ríkis-
stjórninni, fór hann þess á leit,
að vísitöluhækkuninni yrði frest
að um einn mánuð, en þó þannig,
að hún yrði borguð fyrir þennan
tíma, ef samkomulag næðist ekki
um annað. Frestun þessi var
hyggð á því að ná samkomulagi
um frambúðarlausn.
Fyrir þessari frestun fékkst
ekki nægur stuðningur í ríkis-
stjórninni, nema hann yrði einn-
ig samþykktur af þingi Alþýðu-
sambandsins, en þar var honum
hafnað og vísitöluhækkunin
gekk því í gildi um nánaðamótin.
(Framhald af 8. síðu.)
Emil Jónsson endur-
kjörinn
Á nýloknu þingi Alþýðu-
flokksins var Emil Jónsson
kjörinn formaður flokksins, en
Guðm. í. Guðmundsson vara-
formaður, Gylfi Þ. Gísason
rilari flokksins, báðir endur-
kjörnir.