Dagur - 11.12.1958, Síða 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur næst út laugar-
daginn 13. desember.
XLI. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 11. desember 1958
62. tbl.
Tillögur Sjálfslæðisfl. í kjördæmamálinu
Sigurvegararnir í skákkeppni UMSE, 4 aðalmenn og 3 varamenn.
Frá vinstri: Ingimar Friðfinnsson, Ari Friðfinnsson, Sturla Eiðsson,
Ármann Biíason, Friðfinnur Friðfinnsson, Búi Guðmundsson og
Guðmundur Eiðsson. — (Ljósmynd: V. G.).
Skákmóti U.M.S. E. lokið
Ungmennafélag Skriðuiirepps varð sigursælast
Undanfarnar vikur hefur stað-
ið yfir skákkeppni innan Ung-
mennasambands Eyjafjarðar og
hófst það 30. október.
Tefldar voru 9 umferðir og fór
keppnin fram í sveitunum til
skiptis. Tíu 4 manna sveitir tóku
þátt í þessari keppni. Mótstjóri
var Albert Sigurðsson.
Ungmennafélögin tóku ágæta
vel ó mó_ti keppendunum og voru
þessi skákkvöld mjög ánægjuleg.
Keppendur voru á ýmsum
aldri, allt frá fermingu og að
sextugsaldri. Keppt var um hið
fagra skákborð, sem Jón Stef-
ónsson á Dalvík gaf til þessa og
nú var keppt um í þi-iðja sinn.
Ungmennafél. Svarfdæla varð
eigurvegari í fyrsta sinn. Næsta
ár UMF Skriðuhrepps og einnig
nú, í nýafstaðinni keppni.
Sveit. TJMF SkriðuhrepDS var
skipuð þessum mönnum: Guðm.
Eiðsson, Ármann Búason, Ari
Friðfinnsson og Ingimar Frið-
finnsson. Sveitin hlaut 3OV2
vinning af 36 mögulegum.
Um 50 manns tóku þátt í
þessari íþróttagrein.
Urslitin í hinu nýafstaðna
skákmóti UMSE urðu sem hér
segir:
1. Sveit UMF Skriðuhrepps
30% vinning.
2. A-sveit UMF Svarfdæla
28V2 vinning.
3. UMF Möðruvallasóknar 22Va
vinning.
Ákureyrarfogarar
Kaldbakur fiskar á heimamið-
um fyrir Þýzkalandsmarkað.
Svalbakur seldi í Cauxhaven
180 tonn fyrir 146 þús. mörk.
Harðbakur er á heimleið af
Ritumiður með fullfermi af
karfa. Kemur væntanlega á
sunnudaginn.
Slélbakur er á heimamiðum og
mun leggaj afla sinn upp hér á
Akureyri.
4. Ársól og Árroðinn 19 Vi v.
5. UMF Saurbæjarhr. og Dal-
búinn 17 vinninga.
6. UMF Framtíðin 16 vinninga.
7. B-sveit UMF Svarfdæla 13%
vinning.
8. UMF Æskan 11% vinning.
9. —10. UMF Dagsbrún 10
9.10. UMF Öxndæla 10% v.
9.—10. UMF Dagsbrún 10% v.
Verðlaun hlutu þeir, sem
hæsta vinningatölu höfðu á
hverju borði.
Á 1. borði Guðm. Eiðsson
88,8% vinninga.
Á 2. borði Ármann Búason
83,3% vinninga.
Á 3. borði Bergur Lárusson
87,5% vinninga.
Á 4. borði Jón Stefánsson
77,7% vinninga.
Unglingaverðlaun hlaut Jó-
hann Páll Árnason.
Nú hafa ungmennafélagar í
sýslunni keppt við Akureyringa
á 50 borðum. Lauk þeirri keppni
með sigri Ak 30:20.
íslenzkir froskmenn
Á laugardaginn útskrifuðust
tveir nýjir froskmenn er höfðu
lært hjá Guðmundi Guðjónssyni,
sem fyrstur íslendinga lærði
ficskmannsköfun árið 1953 úti í
Danmörku. Námið stóð yfir í
mánaðartíma og lauk með köfun
úti í Faxaflóa. Sjálfur kafaði
Guðmundur þar 41 meter, og er
það mesta dýpi, sem froskmaður
hefur farið. Síðan fóru nemend-
urnir og köfuðu 12 metra. Nýju
froskmennirnir heita Sveinbjörn
Finnsson og ÞrösturSigtryggsson
og eru báðir stýrimenn hjá
Landhelgisgæzlunni.
Gömlu kjördæmin verði lögð niður
Eins og áður hefur verið
sagt frá, sneri formaður Sjálf-
stæðisflokksins sér til Alþýðu-
bandalagsins og Alþýðuflokksins
síðastl. föstudag og óskaði eftir
að þessir flokkar tilnefndu full-
trúa, er ræddu um kjördæma-
málið á breiðum grundvelli við
fulltrúa frá Sjálfstæðisflokknum.
Viðræður hófust svo milli þess-
ara flokka um helgina og hafa
haldið áfram látlaust síðan.
Á fundum þessum hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn lagt fram til-
lögur, sem eru í aðalatriðum á
þessa leið:
Vöntun á byggingarefni í Evrópu
1 næstum öllum löndum Vest-
ur-Evrópu var nægilegt bygg-
ingarefni fyrir hendi árið 1957 til
óhindraðra framkvæmda á fyrir-
ætluðum byggingum. En vöntun
á byggingarefnum tafði fyrir
byggingaráætlunum í Austur-
og Suður- Evrópulöndunum. —
Frá Glerárskóla
Hinn 3. des. sl. var foreldra-
fundur í Glerárskóla. Kennsla
féll niður frá hádegi og voru
kennarar til viðtals frá klukkan
1. Þrótt fyrir óhagstætt veðui',
mættu allmargar mæður ogstóðu
viðræður til kl. hálf sex. Voru
allir ánægðir yfir að hafa átt þess
kost að hittast og ræða málefni
skólans. Kennarar Glerárskóla
eru þakklátir þeim, sem komu,
og telja þeir það mikils virði fyr-
ir starf skólans, að slík samtöl
fari fram og hafa því í huga að
boða síðar á vetrinum til annaars
foreldradags.
Fyrsta vetrarveðrið á Norðurlandi
Samgöngur enn greiðar á f jölförnustu leiðunum
Á sunnudagskvöldið tók að
snjóa og kom nokkurt föl víða á
Norðurlandi þá um nóttina og
næstu daga. Var það vonum
seinna að vetur konungur kveddi
dyra með snjó og frosti. í gær
bætti enn á og var þá komið 12—
14 síiga frost í innsveitum, en
minna við sjóinn.
Allar leiðir á landi voru opnar
í gær, nema Siglul'jarðarska'rð.
Leiðin Rvík—Akureyri var snjó-
laus að kalla fyrri partinn í gær.
og mjög greiðfær, en lítils háttar
snjór var þó á Oxnadalsheiðinni
og í Oxnadal framanverðum.
Vaðlaheiði var fær í gær, en
nókkurn snjó hafði sett að
Fnjóskárbrú og í Vaðlaheiðina
austanverða.
Fram á síðustu helgi var jörð
þýð og snjólaus með öllu.
Verðhækkun byggingarkostnaðar
hélt áfram í næstum öllum þeim
löndum, sem skýrsla ECE nær
yfir. í flestum landanna hækk-
uðu vinnulaunin tiltölulega
meira en verð á efni, en í mörg-
um fylgdi samtímis aukin fram-
leiðsla í kjölfar launahækkan-
anna.
Skýrsla sú, sem hér hefur ver-
ið vitnað í um þróun húsnæðis-
bygginga í Evrópu 1957, er byggð
á hagfræðilegu efni, sem sum-
part er almennt aðgengilegt en
sumpart látið í té af stjórnum
hinna einstöku landa sérstaklega
til afnota í Quarterly Bulletin of
Höusing and Building Statistics
for Europe“. Ennfr. hafa rík-
isstjórnirnar gefið viðbótarupp-
lýsingar í skrifum til skrifstofu
ECE með sérstöku tilliti til
samningu skýslunnar.
Álfadans
íþróttafélagið Þór hefur ákveð-
ið að halda álfadans 4. janúar. —
Félagið vill fara þess á leit við
þá bæjarbúa, sem vilja losna við
timbur, pappakassa eða annað
gott í brennu, að snúa sér til
Víkings Björnssonar, sem mun
sjá um, að þetta eldsneyti verði
sótt til þeirra.
Framsóknarhúsið í Reykjavík.
Öll núverandi kjördæmi verði
lögð niðujr, nema Reykjavík. í
stað núverandi kjördæma utan
Iíeykjavíkur komi sjö kjördæmi,
svo að alls verði kjördæmin átta
og verða þingmenn þar kjörnir
hlutfallskosningum. Kjördæmin
ciga að vera þessi:
Reykjavík 12 eða 15 þinmenn.
Reykjaneskjördæmi (í stað Gull
bringu- og Kjósarsýslu og
Hafnarfjarðar) 5 þingmenn.
Vesturlandskjördæmi (í stað
Borgarfjarðarsýslu, Mýrasýslu,
Snæfellsnessýslu ogDalasýslu)
5 þingmenn.
Vestfjarðarkjördæmi (í stað
Barðastrandarsýslu, ísafjarð-
ar og Strandasýslu) 5 þing-
menn.
Norðurlandskjördæmi vestanvert
(í stað Húnavatnssýslna, Skaga
fjarðarsýslu, Siglufjarðar) 5
þingmenn.
Norðurlandskjördæmi vestanvert
(í stað Eyjafjarðarsýslu, Ak-
ureyrar, Þingeyjarsýslna) 6
þingmenn.
Austurlandskjördæmi (í stað
Múlasýslna, Seyðisfjarðar og
Austur-Skaftafellssýslu) 5
þingmenn.
Suðurlandskjördæmi (í stað
Vestur-Skaftafellssýslu, Rang-
árvallasýslu, Árnessýslu, Vest-
mannaeyja) 6 þingmenn.
Samkvæmt þessu á að kjósa í
þessum kjördæmum 49 eða 52
þingmenn. Tala þeirra á að fara
eftir því, hvort þingmannatala
Reykjavíkur verður ákveðin 12
eða 15. Auk þess eiga að vera 8
eða 11 uppbótarmenn og mun
tala þeirra fara eftir því, hvað
mai'gir þingmenn Reykjavíkur
vei'ða. Alls eiga þingmenn að
verða 60 eða 8 fleiri en nú.
Þótt formlegar umræður hefj-
ist ekki um þetta mál milli áður-
nefndra flokka fyrr en nú, hafa
leynilegar viðræður lengi átt sér
stað milli fulltrúa frá Sjálfstæð-
isflokknum og stjórnarandstæð-
ingum í Alþýðubandalaginu og
Alþýðuflokknum. Er ekki ósenni
legt, að það hafi átt sinn þátt í
stjórnarslitunum,
Það, sem fyrst vekur athygli
í cambandi við þessar tillögur,
er hið algera blygðunarleysi
Sjálfstæðisflokksins, að leggja
til, eð öll hin gömlu kjördæmi
verði lögð niður, því að megin-
þcrri þess fólks, sem kaus
haim þar í seinustu kosning-
um, mun vissulega hafa gert
það í allt annarri trú en þeirri,
að þeir væru að fela honuni
umbcð til að leggja kjördæmi
þeirra niður. Oft hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn farið aftan að
kjósendum sínum, en þó aldrei
jafn blygðunarlaust og nú.
(Tírninn.)