Dagur - 11.12.1958, Blaðsíða 7
Fimmtudaginn 11. desember 1958
DAGUK
7
Ýmis fíðindi úr nágrannabyggðum
Sauðárkróki 2. des. 1958.
Einmuna veðurblíða hefur
verið hér að undanförnu, svo að
fátítt er um þetta leyti árs. Mik-
ið hefur þó rignt á köflum og
eru vegir orðnir mjög blautir og
vaðast upp. Götur hér í bænum
eru óvenju leiðar til umferðar
vegna rigninganna.
Laugai'daginn 22. nóvember
gengust Framsóknarfélögin hér í
sýslunni fyrir spilakvöldi. Var
skemmtun þessi mjög vel sótt. —
Ávarp flutti Ágúst Þorvaldsson
alþm. Var því vel tekið, enda hið
ágætasta. Að því loknu hófst
Framsóknarvist, sem spiluð var
af miklu kappi, enda til nokkurs
að vinna, þar sem að þessu sinni
voru veitt þrenn verðlaun í hvor
um flokki. I. verðlaun karla,
Parkerpenna, hlaut Kristján
Sölvason, en I. verðlaun kvenna,
ávaxtasett, hlaut Marta Sig-
tryggsdóttir. Dansað var svo til
kl. 2 um nóttina.
Sunnudaginn 23. nóv. var svo
haldinn fundur í Framsóknarfé-
lagi Sauðárkróks og voru frum-
mælendur þeir Ágúst Þorvalds-
son, alþm., Kristján Karlsson,
skólastjóri, Hólum, og Magnús
Gíslason, Frostastöðum. Fundur
þessi var vel sóttur og hinn
ánægjulegasti og tóku margir til
máls.
Um síðustu helgi var að venju
allmikið um að vera hér, og þó
meira en óður. Iðnaðarmanna-
félag Sauðárkróks gekkst fyrir
skemmtisamkomu um helgina,
en það hefur undanfarin ár séð
um skemmtanahöld 1. . des. Á
laugardag voru gömlu dansarnir
í Bifröst. Á sunnudag söng
Karlakór Akureyrar í Bifröst við
húsfýlli og ágætar undfirtekth'
þeirra er sönginn heyrðu. Er
mjög ánægjulegt að fá svo ágæt-
ar heimsóknir sem þessa. Á
mánud., 1. des., voru skemmtanir
bæði fyrir börn og fullorðna, og
voru þar ýmis atriði til skemmt-
unar við hæfi yngri sem eldri, og
eins og sjálfsagt þykir, dagurinn
endaður með dansleik, sem fjöldi
manns sótti. Sauðárkróksbíó
sýndi og kvikmyndir báða þessa
daga.
Lítill fiskur hefur verið hér til
vinnslu að undanförnu. Bátarnir
fiskað heldur lítið og togarafisk-
ur ekki fengist hér á landi und-
anfarnar vikur. — G. I.
HEÍMA ER BEZT
Desemberheíti þessa þjóðlega
tímarits kom út 1. des, og ér því
eklci á seinni skipunum. Helgi
Konráðsson skrifar um síðustu
jólin heima, Magnús V. Finnboga
son niðurlag greinaflokksins um
Hjörleifshöfða, Einar Kristjáns-
son smásöguna Kjörgripur, Björn
Jóhannsson Sögulegt ferðalag og
ritstjórinn greinina Kötlugos. ■
Þá er þáttur æskunnar í sumsjá
Stefáns Jónssonar, íþróttaþáttur,
framhaldssögurnar, bókaþáttur,
getraunir o. fl. — Káputeikningu
gerði Kristján Kristjánsson.
í lunnum lil sölu. - Verð kr. 3.00 pr. kg.
ÚIGERÐARFÉLAG AKUREYRiNGA H.F.
Höfðinglegar gjafir til
Tjarnarkirkju
Á síðastliðnu sumri bárust
Tjarnarkirkju í Svarfaðardal
höfðinglegar peningagjafir.
Þann 15. júlí heimsóttu kirkj-
una nokkrir afkomendur og
tengdafólk Þórðar heitins Jóns-
s^nar frá Steindyrum. Við það
tækifæri var kirkjunni afhent að
gjöf 5000 krónu ávísun. í bréfi,
sem gjöfinni fylgdi, segja gefend-
urnir:
„Gjöf þessi er gefin í tilefni af
100 ára afmæli föður okkar, til
minningar um hann og móður
okkar, hjónin Lovísu Guðrúnu
Björnsdóttur frá Syðra-Gai'ðs-
horni, og Þórð Kristin Jónsson,
fyrrum bónda að Steindyrum. —
Lovísa Guðrún v.ar fædd áð
Syðsta-Samtúni í Glæsibæjar-
hreppi 1. nóv. 1862. Hún lézt að
Skáldalæk í Svarfaðaraal 9. júní
1906 og hvílir í Vallakirkjugarði.
Þórður Kristinn var fæddur að
Brautarhóli í Svarfaðardal 15.
júlí 1858. Hann lézt á Akureyri
7. okt. 1941 og var jarðsettui' að
Tjörn í Svarfaðardal.
Um leið og við minnumst for-
eldra okkar með virðingU og
þökk, óskum við fæðingarsveit
okkar, Svarfaðardal, og íbúum
hans heilla og blessunar um alla
framtíð.“
Um líkt leyti barst kirkjunni
önnur gjöf, kr. 800.00, frá
Zóphoníasi Júlíussyni á Jarðbrú
og konu hans, Sigríði Gísladótt-
ur, er andaðist snemma á þessu
ári.
Gjafir þessar, ásamt öðrum
smærri, er kirkjunni hafa borizt
á þessu ári, vill sóknarnefnd
Tjarnarkirkju þakka hjartanlega
fyrir hönd safnaðarins.
SjÖTUGUR
alldórsson Sfórutjörnum
Hinn 20. f. m. átti Kristján
Halldórsson, úrsmiður á Stóru-
tjörnum í Ljósavatnsskarði, 70
ára afmæli.
Þennan dag var vor í lofti og
sótti fjölmenni mikið heim að
Stórutjörnum, víða að úr sveit og
héraði, auk ýmissa góðvina frá
Akureyri og Eyjafirði.
Kristján er fæddui' á Stóru-
tjörnum og ólst þar upp hjá for-
eldrum sínum, sem voru gagn-
mei'k hjón. Ungur fór Kristján til
náms á Akureyri og rak þar úr-
smíðaverkstæði um langa stund,
en fluttist fyrir nokkrum árum
þaðan heim á æskuheimilið,
Stórutjarnh', og hefur dvalizt þar
síðan, við smíði ýmislegra list-
muna.
Kvæntur var Kristján Frið-
björgu Vigfúsdóttur frá Gull-
berastöðum í Borgarfirði, val-
kvendi og mikilli glæsikonu, en
varð fyrir þeim harmi að missa
hana eftir stutta sambúð.
Stórutjarnir eru landskunnugt
heimili fyrir listiðnað í mörgum
myndum. Þar búa nú fjórir
bræður og tvær systur. Einn
bróðirinn er úra- og klukku-
smiður, annar járnsmiður, þriðji
trésmiður, fjórði listmálari. Allir
eru bræðurnir skurðhagir, svo að
af ber, og svo er þeim listaeðli í
blóð borið, að mál manna er, að
Frá happdrætti Framsóknarfl.
Allir Akureyringar, sem feng-
ið hafa miða happdrættisins til
sölu, eru vinsamlega beðnir að
gera skil til Ingvars Gíslasonar
fyrir 20. desemher. — Dregið
verður um 10 vinninga þann
23. desember.
Lei^rétting
f síðasta blaði var Sigurður
Sveinbjarnarson, höfundur ljóða
bókarinnar ,,í dagsins önn“,
sagður frá Syðri-Bakka í Hrafna
gilshreppi, átti að vera Syðri-
Bakka í Arnarneshreppi, sem hér
með leiðréttist. Á þessu og fleiri
meingeroum „prentvillupúkans“
eru menn beðnir velvirðingar
Auglýsið í ÐEGÍ
! 11111 ■ I ■ ■ ■ ■ ■ ■ I ■ ■
Bók fyrir
alla röska
stráka.
DOMUR
KÍNVERSKU
GULL-
Eftir P. F. Westerman
| „I.eyndardómur kínversku gullkeranna“ eftir
hinn heiinsfræga unglingabókahöfund P. F.
Westerman, segir frá ævintýrum og mann-
raunum Péturs Annesley í leit að hinum dýr-
mætu ættargripum, kínversku gullkerunum.
Bókin er 135 bls. Verð kr. 55.00.
hver þeirra sem er, gæti stundað
allai' þessar listgreinar ef með
þyrfti og það hafa sumir þeirra
margoft gert.
Systurnar báðar eru þekktar
hannyrðakonur og hafa gertýmsa
hluti'svo vel, að til listmuna má
hiklaust telja. Þriðja systirin er
látin fyi'ir nokkrum árum og átti
hún sinn hlut í listmunasafni
þessa merka heimilis. — Stóru-
tjarnir eru tvímælalaust eitt sér-
stæðasta sveitaheimili á íslandi.
Þai' er heimilisiðnaður fjölþætt-
ari en á nokkrum öðrum sveita-
bæ. Þar er mjög vel hýst. íbúð-
arhúsið stórt og glæsilegt. í
þessu húsi býr að vísu allmargt
fólk, en til viðbótar því hefur
gesturinn það á tilíinningunni, að
hann sé kominn inn í listasafn,
fullt af ótrúlega fagurgerðum
munum, listasafn, gert af ís-
lenzkum höndum á íslenzkum
bóndabæ norður á yztu mörk-
um hins byggilega heims.
Á þessu myndarlega heimili
hefur Kristjáns gætt mjög. Hann
er fyrst og fremst kunnur fyrir
smíði á stand-klukkum, sem
þykja svo mikil snilldarverk, að
sótzt hefur verið eftir þeim til
tækifærisgjafa, ekki einungis
hér um slóðir, heldur einnig til
fjarlægra landa. Auk þess er
hann auðvitað teiknari og list-
málari, þegar á þarf ,að halda
o. s. frv.
Stórutjarnir hafa skapað sér-
stæðan þátt í menningarsögu
Þingeyinga. Kristján hefur haft
forystu á heimilinu fyrir ýmsra
hluta sakir. Hann var elzti bi'óð-
irinn og sá eini er hleypti heim-
draganum að nokkru ráði og má-
ske hefur hann verið gæddur
fjölhæfustu listagáfunum. Flonum
og heimili hans bárust fjölmörg
símskeyti og þakkarorð á af-
mælisdaginn. ■
Milli svignandi borða, ríkulegra
veitinga, var afmælisbarninu og
listamanninum fluttar ræður og
kvæði, en sungið á milli.
Hófinu var slitið seint að
kvöldi og' ómaði þjóðsöngurinn
að lokum út í dimmblátt kvöld-
húmið — bergmál þeirra þakka
og óska, sem bornar voru fram á
Stórutjörnum þennan ánægju-
lega blíðviðrisdag.
B. B.
BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR
I■■■■■■■■■■■11111
KRISTJÁN HALLDÓRSSON,
Stórutjörnum,
E-jötugur.
Traustar varnir ísland á.
Old þó gjarnan bíði hnekki,
lifir kjarninn stofu og strá —
Stórutjarnir gleymast ekki.
Fjallahringur ljúflingsljóð
löngum syngur, hlustar þjóðin.
Kristjáns fiiigur orktu óð,
íslendingar fengu ljóðin.
Hátt skal metinn, varla veill,
Var ei betri snilldar staður.
Fagurt setur, sittu heill!
sjötíu vetra listamaður.
B. B.