Dagur - 04.02.1959, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 4. febríiar 1959
D AGUR
(þróffahreyfingin á Akureyri
Tvennt er nauðsynlegt, segir Ármann Dalmannsson, form: I.B.A., reglu-
semi og ástundun við æfingar og afneitun tóbaks og áfengis
Allir þekkja sundlaugina,
íþróttavöllinn, íþróttahúsið, snjó
inn í Hlíðarfjalli og skautasvellin
á Pollinum. íþróttaæskan í þess-
um bæ þekkir líka KA og Þór og
fieiri íþróttafélög. En þegar ung-
ur maður er spurður að því,
hvernig íþróttahreyfingin er fé-
lagslega byggð upp, verða svörin
meira og minna óljós. Af þeirri
ástæðu eru hér rifjuð upp nokk-
ur atriði, hripuð. á blað heima í
litlu skrifstofunni hans Ármanns.
Dalmannssonar í Aðalstræti 62.
Þar er notalegt að vera. Þægileg-
ur kaffiilmurinn berst inn í stof-
una til okkar, og hið gamalkunna
rokkhljóð lætur vel í eyra. Til að
forða hugsanlegum misskilningi
var ekki verið að „rokka", heldur
var húsfreyjan að spinna á rokk
á meðan suðan var að koma upp
á katlinum.
ÍÞRÓTTABANDALÖGIN.
„íþróttabandalögin í landinu eru
einkum stofnuð vegna íþróttafé-
laganna, sem gerði þau nauðsyn-
leg. íþróttabandalag Akureyrar,
skammstafað IBA, var eitt þess-
ara bandalaga, stofnað 1944. Um-
dæmi þess er Akureyrarkaup-
staður, og í þessu bandalagi eru
1370 félagar. Það var stofnað 22.
desember 1944. í bandalaginu
eru:
Golfklúbbur Akureyrar,
Iþróttafélag MA,
íþróttafélagið Þór,
Knattspyrnufélag Akureyrar,
Rróðrarfélag ÆFAK og
Skautafélag Akureyrar.
Samband þessara félaga, eða
ÍBA, hefur 1370 félaga. — Inn-
an bandalagsins eru líka 5 sérráð
og eiga hin einstöku félög innan
ÍBA fulltrúa í stjórn þess og
sijórnum félaganna.
Sérráðin eru:
Handknattleiksráð,
i Frjálsíþróttaráð,
Knattspyrnuráð,
Skíðaráð,
Sundráð.
Hvert ráð fjallar um sína eigin
sérgrein og hefur á hendi fram-
kvæmdir varðandi þá íþrótta-
grein.
Ársþing ÍBA er æðsta ráð
íþróttastarfseminnar á bandalags
svæðinu. Það kýs árlega formann
sambandsins, samþykkir fjár-
hagsáætlun þess og mótaskrá og
leggur önnur helztu drög að
íþróttastarfseminni á árinu. — í
stjórn ÍBA eiga sæti, auk for-
manns, einn fulltrúi frá hverju
félagi og eru þeir kosnir af fé-
lögunum sjálfum. Atkvæðisrétt á
þingum þess eiga aðeins kjörnir
fulltrúar frá félögumi og sérráð-
um bandalagsins.
HIN EINSTÖKU FÉLÖG.
Golfklúbbur Akureyrar.
Golfklúbbur Akureyrar er
myndaður um eina íþrótt, golf-
íþróttina. Á vegum félagsins
eru æfingar, kennsla og kapp-
leikir í þessari íþrótt. — Félagar
eru 55. Formaður er Jóhann Þor-
kelsson.
Félagið tekur jafnan þátt í
landsmótum og á núverandi
golfmeistará íslands, Magnús
Guðmundsson, og einnig sigur-
vegara í öldungadeildinni, Haf-
liða Guðmundsson. í sumar
sendi það tvo félaga til keppni á
alþjóðamót í Skotlandi. — Golf-
klúbbur Akureyrar var stofnað-
ur 19. ágúst 1935.
íþróttafélag MA (Menntaskóians
á Akureyri).
Formaður íþróttafélags MA er
Pétur Bjarnason. Félagið var
stofnað 18. febrúar 1937. Félags-
menn eru um 250 talsins. Þetta
félag hefur tekið mikinn þátt í
íþróttalífi bæjarins á undanförn-
um árum, bæði vetraríþróttum
og vormótum. Starfstími þess er
að sjálfsögðu miðaður við skóla-
timann ár hvert. í félaginu hafa
verið margir góðir íþróttamenn.
Má þar til dæmis nefna Vilhjálm
Einarsson.
fþróttafélagið Þór.
íþróttafélagið Þór er elzta
iþróttafélag í bænum, stofnað 6.
júní 1915. Formaður þess er Jens
Sumarliðason. Félagar eru 475.
Þetta félag er annað af tveim
öflugustu íþróttafélögum í bæn
um og hefur fjölþætta íþrótta-
starfsomi. Síðustu árin hefur það
staðið fyrir myndarlegum brenn-
um og álfadansi um áramótin,
síðast nú i vetur og voru þá
sýndir þjóðdansar frá ýmsum
löndum undir stjórn Þóreyjar
Guðmundsdóttur.
Knattspyrnufélag Akureyrar.
Knattspyrnufélag Akureyrar,
skammstafað KA, er stofnað 8.
janúar 1928. Félagar eru 470 og
fjölgar ört. Formaður þess er
Hermann Sigtryggsson. KA er
annað þeirra tveggja íþróttafé-
laga, sem hefur mesta og fjöl-
breyttasta íþróttastarfsemi í
bænum. Það hefur, eins og
íþróttafélagið Þór, tekið þátt í
mörgum lands- og héraðsmótum
og átt góðum íþróttamönnum á
að skipa. KA fór mjög fjölmennt
í keppnisferð til Suðurlands 1957,
er þótti takast með ágætum.
Róðrarfélag ÆFAK.
Róðrarfélag ÆFAK er deild
innan Æskulýðsfélags Akureyr-
arkirkju. Formaður hennar er
Gísli Lórenzson. Félagar eru 20.
Stofnað 8. janúar 1956. — Félag
þetta leggur eingöngu stund á
róðraríþrótt. Það tók þátt í fs-
*#S##N##N##
OASt/í
ARMANN DALMANNSSON
cr formaður ÍBA og hefur
vcrið það frá stofnun þess
1944. Hann er borgfirzkur
bóndasonur og hefur lagt
gjörfa hönd á margt, verið
bóndi, formaður á fiskibát,
togarasjómaður á þeim tíma,
scm eilum karfa var mokað í
sjóinn og Halamið voru ný-
fundin, ráðsmaður í Gróðr-
arstöðinni á Akureyri um
fjölda árs, formaður Búnaðar-
félags Eyjafjarðar og Akur-
eyrardcildar KEA og nú
skógarvörður. íþróttakennari
var hann um skeið, meðal
annars viö MA og hjá UMSE,
enda einn af •nemendum Niels
Buch í Öllerup í Danmórku
og hinn vaskasti maður. —
Armann hefur góðfúslega orð-
ið við þeirra ósk blaðsins, að
gefa því upplýsingar um
íþróttahreyfinguna á Akur-
eyri, er hér er stuðst við í
meginatriðum.
¦ >#s#s##s##N#>##s#«s#\#s#s#s##*f
r#*##*M**M
i.
íþróttamenn á Akureyri hafa haldið yfir 150 íþróttamót
sl. ár, þar af 5 íslandsmót: f golfi, sundi, frjálsum íþróttum,
handknattleik og knattspyrnu í II. deild. — Hér voru einnig
haldin Norðurlandsmót í skíðaíþrótt, knattspyrnu og frjálsum
íþróttum. — Hingað kom hinn heimsfrægi Da Silva og sýndi
þrístökk. — Sjö manns syntu yfir Oddeyrarál.
Akureyringar eiga nokkra fslandsmeistara: Magnús Guð-
mundsson í golfi, bruni og þríkeppni, Björn Baldursson í
skautahlaupi, Róðrarfélag Æskulýðsfélags Akureyrarkirkju í
róðri og Helgu Haraldsdóttur í kringlukasti kvenna.
>#N#s#s#^#^#N#>#vr#N#^s#s##\#s#v##N#s#^sr#s##>#*#^###^#>#sr#1#s#^j
s##sj
landsmóti í þeirri grein í Reykja-
vík í sumar og sigraði sveit
Róðrarklúbbs Reykjavíkur með
yfirburðum. Róðrarfélagið á tvo
kappróðrarbáta og eru það einu
kappróðrarbátarnir sem til eru á
Akureyri.
Skautafélag Akureyrar.
Skautafélag Akureyrar var
stofnað 1. janúar 1937. Það telur
100 félaga. Formaður þess er Jón
D. Ármannsson. Félagið leggur
einkum stund á skautaíþróttina,
en sinnir þó á síðari'árum fleiri
íþróttagreinum. Þetta félag hefur
haldið uppi skautaíþróttinni á
hverjum vetri, eftir því sem veð-
ur hefur leyft, haldið mót og tek-
ið þátt í landsmótum, bæði hérog
í Reykjavík, og á núverandi fs-
landsmeistara í skautahlaupi,
Björn Baldursson. Félagar í
Skautaféiaginu hafa annazt við-
hald á skautasvæðinu á íþrótta-
vellinum fyrir hönd ÍBA og
haldið uppi kennslu.
íþróttahúsið.
Efri hæð íþróttahúss Akureyr-
ar er félagsheimili ÍBA. Þar er
vigtlegt. fundarherbergi og enn-
Sérráð íþróttabandalags Akureyrar eru þessi:
Handknattleiksráð.
Form. Handknattleiksráðs er
Jón Steinbergsson. Það ráð hafði
á hendi fram-
kvæmd Hand-
knattleiksmóts ís-
lands í sumar. —
Handknattleikur-
inn er ein þeirra
íþróttagreina, sem
mest hefur vaxið þátttaka í hér
á landi á síðustu árum. —
Kvennaflokkur fór frá Akureyri
í keppnisferð til Færeyja fyrir
tveim árum, sem þótti takast
mjög vel, og færeyskar hand-
knattleiksstúlkur endurguldu
heimsóknina sumarið 1957.
Knattspyrnuráð.
Formaður Knattspyrnuráðs er
Höskuldur Markússon. Eins og
áður er sagt,
hefur það haft
erlendan þjálf-
ara og er mikil
starfsemi á veg-
um þess. Knatt-
spyrnuráð Ak-
ureyrar hefur á síðustu árum
annazt þátttöku í knattsp.mótum
íslands, ýmist fyrstu eða annarri
deild. Síðasta sumar annaðist
það, ásamt fleiru, framkvæmd
íslandsmóts 2. deildar fyrir
Norður- og Vesturland, er hald
ið var hér í bænum.
Skíðaráð.
Formaður Skíðaráðsins er
Svavar Ottesen. Ráðið hefur að
mestu á hendi
starfsemi í sam-
bandi við skíða-
íþróttina og sér
um skíðamót. —
Meðal annars
hefur það staðið
fyrir Skíðamóti íslands þegar
það hefur verið haldið hér, og
séð um þátttöku í flestum lands-
mótum í þessari íþrótt og oft átt
mjög góðum mönnum á að skipa
og eignazt nokkra íslandsm.
Sundráð.
Formaður Sundráðs er ísak
Guðmann. — Talið er að sund-
íþróttinni hafi
hnignað mjög á
Akureyri. En síðan
sundlaugin nýja
var byggð hefur
orðið mikil framför.
Á síðasta sumri fór
Sundmeistaramót íslands fram
hér, að viðstöddum forsetahjón-
unum og sá Sundráðið um það
mót. Hin nýja sundlaug hefur
mjög bætt aðstöðuna til suridiðk-
ana. Sundmótum hefur fjölgað,
árangur batnað að mun og þátt-
taka orðið almennari.
er Haraldur
annars hefur
Frjálsíþróttaráð.
Foimiaður þess
Sigurðsson. Meðal
þetta sérráð séð i
um þann hluta
meistaramóts ís-
lands í frjálsum
íþróttum, sem
fram hefur farið
hér á Akureyri.
Frjálsar íþrótt-
ir hafa átt vaxandi vinsældum að
fagna að undanförnu.
fremur tvö herbergi, sem KA og
Þór hafa, hvert fyrir sig.
í íþróttahúsinu hafa félögin og
sérráðin sína íþróttastarfsemi. —
Þar eru tveir fimleikasalir, sem
eru fullnotaðir af skólum bæj-
ins, frá því að þeir hefjast á
hverju hausti, me'ginhluta dags-
ins, eða til kl. 5—7 e. h. daglega.
Eftir þann tíma er húsið fullnot-
að af félögum og íþróttaflokkum
til kl. 10 að kveldi. Fimleikar,
knattleikir, frjálsar iþróttir, þjóð
dansar o. fl. eru æfðir á þessum
stað og böð mikið notuð.
Kennsluskýrslur félaga og sér-
ráða sýna, að kennslukostnaður
þeirra hefur á síðasta ári verið
165 þús. krónur, að meðtalinni
sjálfboðavinnu íþróttakennara.
Tvö síðustu ár hefur knatt-
spyrnuráð haft erlendan þjálfara
um lengri tíma. Einnig hefur
Skíðaráð haft þjálfara, en að
öðru leyti hafa iþróttakennarar
bæjarins annast íþróttakennsl-
una^
Sérráðin hafa annazt íþrótta-
kennsluna, hvert í sinni grein.
Góð og batnandi aðstaða.
Skilyrði til íþrótta eru betri á
Akureyri en nokkru sinni fyrr og
eru þó ekki fullnægjandi. íþrótta
völlurinn er ekki fullgerður, en
væntanlega hefst bygging bún-
ingsklefa við hann í vor, sem
næsti áfangi. — Uppi í Hlíðar-
fjalli er stór skíðaskáli (oft
nefndur Skíðahótel) í smíðum.
Ætti hann að bæta mjög aðstöðu
skíðamanna í framtíðinni.,
Þrátt fyrir hið góða íþróttahús,
fullnægir það engan veginn þörf
skólanna og félaganna lengur til
daglegra æfinga. En það er gott
fyrir íþróttahreyfinguna í þess-
um bæ, að búa við mjög góða
íþróttaaðstöðu, en eiga þó mörg
verkefni óleyst.
Næsta ársþing ÍBA.
Næsta ársþing ÍBA mun fara
fram í marz. í stjórn þess eru,
auk formannsins, Armanns Dal-
mannssonar, Stefán Árnason,
fyrir Golfklúbbinn, Hermann
Sigtryggsson fyrir Knattspyrnu-
fél. Ak., Pétur Bjarnason, fyrir
íþróttafélag MA, Gísli Lórenzson,
fyrir Róðrarfélagið, Björn Bald-
ursson, fyrir SkautafélagiS, og
Magnús Jónsson, fyrir íþróttaféL
Þór. Framhald á 7. sid'u.