Dagur - 18.02.1959, Blaðsíða 1

Dagur - 18.02.1959, Blaðsíða 1
XLII. árg. Akureyri, miðvikudaginn 18. febrúar 1959 9. tbl. logarinn JúSí frá Hafnarf. fýndur Lenti í of\iðri á Nýfundnalandsmiðum - Leitað árangurslaust frá 10 þ. m. - Ahöfnin var 30 r manns, allt Islendingar Togarinn Júlí, eign Bæjarút- gerðar Hafnarfjarðar, hélt á Ný- fuiulnalandsmið 31. jan. sl. Skip- stjóri var Þórður Pétursson, Rcykjavík, og ■ áliöfn alls 30 manns. Togarinn lióf veiðar á Ritubanka, ásamt fleiri íslenzk- um togurum föstud. G. febrúar. Á laugardaginn var komið hið versta veður og hættu togararnir veiðum þá um kvöldið. Síðast heyrðist til Júlí á sunnudagskvöldið. Leit var Jseg- ar hafin á skipum og flugvélum og stóð hún yfir fr^i á síðustu lselgi og bar ekki árangur. Þykir nú fullvíst að togarinn hafi farizt með allri áhöfn. Leitarsvæðið var Flugvél stórskemmist Douglasflugvél Flugfélags Is- lands, sem stödd var í Vest- mannaeyjum og komst ekki það- an vegna veðurs, skemmdist verulega, sérstaklega stýrisút- búnaður hennar. Bar það við sl. föstudagsnótt. Á sunnudagsnóttina var enn meira rok. Slitnaði vélin upp og fauk tvær lengdir sínar, kom niður á vænginn og braut hann. Sænski snjóbíllinn Snjóbíll þeirra félaga, Lén- liarðar Ilelgasonar og Friðriks Blöndals, sem Slysavarnadeild kvenna á Akureyri, KEA, hreppsfélög og fleiri aðilar hafa lagt fé til, er nú að koma hing- að til bæjarins. Mun hann vera um borð í „Tungufossi“, sem sigla mun úr Reykjavíkurhöfn í kvöld og stefna liingað norð- íhaldið biður um gott veður Allir muna hvernig íhaldið skrifaði um landhelgismálið fram að 1. sept. sl. haust. Ilins vegar veit enginn hversu mik- inn þátt það átti í þeirri ákvörðun Breta að beita fs- lendinga vopnuðu ofbeldi innan fiskveiðilögsögunnar. — Sé sá þáttur íhaldsins minni en búast mætti við, er það því að þakka að skrif þess hafa verið talin ómerk. En nú biður ihaldið um gott veður — biður þess, að ekki sé minnzt á skrif „stærsta málgagns fslendinga og jafn- framt málgagns stærsta stjórn málaflokksins. . . .“, finnst það veikja málstað þjóðarinnar (samanber síðasta tölublaðs ,,fslendings“-!) 70 þús. ferinílur. Flugvélar frá Nýfundnalandi, Kanada og fs- landi tóku Jiátt í leitinni og fjöldi skipa. Skipshöfnin var að mestu leyti frá Hafnarfirði og Rvík. — Meðal liáscta var einn Akureyr- ingur, Björn Þorsteinsson, Rán- argötu 24, ungur maður, ókvænt- ur. Hið sviplega slys liefur vakið þjóðarsorg. Með svonefndum bjargráðalögum frá síðastl. vori urðu þáttaskil á afkomumöguleikum útflutningsframléiðslunnar og trúin á afkomu sjávarútvegsins glæddist, sagði Jakob Frí- mannsson lramkvæmdastj. KEA á félagsráðsfundi sl. mánud. Félagsráðsfundur KEA var haldinn að Hótel KEA sl. mánu- dag. Fundinn sóttu 29 fulltrúar úr 16 félagsdeildum. Fundarstjóri var kosinn Einar Jónasson bóndi að Laugalandi, en fundarritarar þeir Ármann Dalmannsson, skógarvörður, Akureyri, og Daníel Pálmason, bóndi, Núpu- felli. Úr skýrslu framkvæmdastjóra. Jakob Frímannsson flutti að vanda glögga skýrslu um starf- semi Kaupfélags Eyfirðinga á liðnu ári. Hann mælti meðal annars: „Ekki verður unnt nú, frekar en venja er til á þessum tírna árs, að birta hér endanlega rekstrarreikninga kaupfélags- ins, og biður það aðalíundar, sem væntanlega verður hald- inn í júní-mánuði n.k. — Það Reykvíkingar al'henda snjóbílinn. ("Ljósmynd: Kr. Hallgrímsson.). Flugbjörgunarsveit Akureyrar lékk snjó- bil og annan útbúnað Úlfar jakobsson, gjaldkeri Flugbjörgunarsveitar Revkja- víkur, afhenti þessi kærkomnu tæki á sunnudaginn, að við- stödduin fréttamönnum bæjarins og áhugamönnum úr Flug- björgunarsveit Akureyrar, þeirra á meðal Kristni Jónssyni, form. sveitarinnar, og leitarstjóranum, Tryggva Þorsteinssyni, sem veittu bílnum og sjúkratækjunum viðtöku. hana reynt um skeið, sérstaklega í sambandi við flugslysin tvö á Oxnadalsheiði og Vaðlaheiði, sem skemmst er að minnast. Lof og last fvlgir þesstun störfum, og of mikið af hinu síðarnefnda, því að flestir gleyma að þakka sttirfin og það ör- yggi, sem flugbjörgunarsveitin veit- ir með því að vcra alltaf reiðubúin þegar slys eða aðrir válegir hlutir bera að höndum. Félagar Flugbjörgunarsveitarinn- ar vinna algerlega kauplaust og er félagsskapur áhugamanna einvörð- ungu. Sveitirnar hafa ekki önnur fjárráð en þau, sem skapast af gjöf- um góðra manna og kvenna og lít- ils háttar styrk frá ríkinu. I öðrum löndum annast herinn hliðstæð björgunarstiirf. Félagar Flugbjörg- unarsveitanna, bæði liér og annars staðar, leggja stundum líf sitt í hættu á erfiðum ferðalögum, fórna tíma og fjármunum af þegnskap. Þetta ber að þakka, og flugbjörg- unarsveitirnar þarf að styrkja fjár- hagslega. Flugbjörgunarsveit Akureyrar á margs konar nauðsynlegan útbúnað til ferðalaga og sjúkra- og leitar- tæki. En á sunnudaginn komu góð- ir gestir frá Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur færandi hendi. Þeir færðu sveitinni hér á Akureyri góð- an snjóbíl, sem hér verður stað- settur og í umsjá Braga Svanlaugs- Framhald d 7. siðu. Jakob Fríniannsson framkvæmdastjóri. Flúgbjörgunarsveit Akureyrar var stofnuð árið 1952 af 60 ábugamönn- um hér í bænum. Mjög liefur á Næsti Bændalílíibbsf. verður haldinn í samkomu- húsinu á Svalbarðsstriind mánudaginn 23. febrúar n.k. og hefst kl. 9 síðdegis. —Fundar- efni: Ileilbrigði búpeningsins og fjósaskoðunin. — Framsögu flytja: Gudmund Knutzen dýralæknir og Ágúst Þorleifs- son dýralæknir. Verzlun og framleiðslð jukusl verulega er nú orðin nokkuð föst venja að halda félagsráðsfund í fe- brúarmánuði, og liggja þá venjulega fyrir nokkuð ábyggi- legar skýrslur um lieildar- sölu hverrar deildar, ásamt framleiðslu verksmiðja og af- urðavinnslustöðva. Vörusaia og framleiðsla árs- ins 1958 hefur verið nokkru meiri en eg hafði gert ráð fyrir í ársbyrjun. Eins og flesta rek- ur minni til, ríkti mjög mikil óvissa í verzlun allri og fram- leiðslu fyrri hluta ársíns. En með ráðstöfunum ríkisstjórn- arinnar 15. maí sk, hinum svo- kölluðu „bjargráðum", má segja, að Jiáttaskil verði á af- komumöguleikum útflutnings- framleiðslu landsmanna. Eftir það fer verulega að bera á aukinni trú á afkomu sjávar- útvegsins, ekki sízt þar sem afli togaranna glæddist veru- lega um svipað leyti, og lifnar Jiá um leið yfir allri verzlun, sem nær einnig til sölu á inn- lendum iðnvarningi og land- búnaðarframleiðslu. — Má því tvímælalaust þakka nefndum ráðstöfunum að verulegu leyti vaxandi viðskipti og fram- leiðslu ársins 1958. Þegar þessi auknu viðskipti eru gefin upp Framhald d 7. siðu. Fjórkelfd kýr á Öndólfssföðum í Reykjadal í S.-Þingeyjarsýslu Fyrir skömmu vildi það til á Ondólfástöðum í Reykjadal á ný- býli þeirra bræðra Árna og Stef- áns Jónssona, að ung kýr eignað- ist 4 kálfa og mun það sjaldgæft, ef ekki einsdæmi. Árni bóndi kom í fjósið er kussa var að bera, ■ og mátulega til að taka á móti fjórða kálfin- urn, en hinir voru í flórnum. Allir kálfarnir voru dauðir, 3 kvígur og 1 naut og bornir hálf- um mánuði fyrir tímann. Kýrin var tvíkelfd í fyrra, þá að fyrsta kálfi. Samtals vigtuðu kálfarnir 75 kg. Kúnni heilsast allvel eftir þennan óvenjulega burð. En frjó- semi hennar er talin óþarflega mikil, sem von er.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.