Dagur - 28.02.1959, Blaðsíða 1

Dagur - 28.02.1959, Blaðsíða 1
Fylgizt með því sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. DAGUR kemur næst út miðviku- daginn 4. marz. XLII. árg. Akureyri, laugardaginn 28. febrúar 1959 11. tbl. Kísilleirnáman í Mývatni stærst í Evrópu að dómi sérfræðinga Á sl. :íri bauð ríkisstjórn Vestur-® I'ýzkalands aðstoð við rannsókn á náttúruauðæfum íslands. Var hún þegin. Uni árangur segir svo í frétt frá Rannsóknnrráði ríkisins: Aðstoðinni var einkum varið til rannsókna á perlusteini (biksteini) í Loðmundnrfirði og kísilleir á botni Mývatns og umhverfis Laxá í Aðaldal. Einnig voru ránnsakaðar leir.tegundir ýmsar í Onundarfirði og brúnkol í Súgandafirði. Að rannsóknum starfaði þýz.kur ríkisjarðfræðingur. prófcssor Kon- rád Ricbter. Hann dvaldist hér um sjö vikna skeið ásamt aðstoðar- manni. Einnig kom hingað til lands þýzkur sérfræðingur í vinnsju kísil- leirs, Heinz Trenne verkfræðingur. Rannsóknarráð ríkisins annaðist rannsóknirnar fyrir hönd íslenzkra stjórnarvalda, og störfuðu þcir Tóm as Tryggvason jarðfrxðingur og Baldur Líndal verkfræðingur með þýzku sérfræðingunum. Nú hefur borizt fyrsta greinar- gerð frá hinum þýzku sérfræðing- um. Af ýmsu athyglisverðu, sem þar kemur fram, má. nefna þær niður- Stöður þeirra, að kísilleirnáman í Mývatni sé sú stærsta í Evrópu og leirinn góður. Þó of snemmt sé að fullyrða nokkuð um framleiðslu- kostnað og sölumöguleika, þá telja þeir sjálfsagt að slíkt sé kannað lil hlítar. Einnig lízt þeim allvel á leirinn í Aðaldal, en náman er minni og leirinn ekki góður. Sömuleiðis hefur rannsókn leitt í ljós, að í Loðmundarfirði er tals- vert meira magn af perlusteini en áður var álitið. Gleymir bæjarstjórn...? Þegar kosið var um opnun áfengisverzlunarinnar, sællar minningar, samþykkti bæjar- stjórn, að öllum ágóða skyldi varið „til heilbrigðis- og menn- ingarmála“. Á fjárhagsáætlun þeirri, er bæjarstjórn hefur nú afgreitt, verður ekki séð, að lieilbrigðis- og mcnningarmálin fái neinar „ekstra blóðgjafir“ samkvæmt nefndri samþykkt bæjarstjórnar. Engin ástæða er til að vefengja það, að bæjarstjórn efni loforð sín. En hvers vegna fáum við ekki að sjá það svart á hvítu, eða hef- ur bæjarstjórnin gleymt? Rök Ásgeirs Fáir hafa skýrt það öllu betur í stuttu máli en núverandi forseti íslands, Ásgeir Ásgeirsson, hvaða þýðingu sýslu- og kaupstaðakjör- dæmin hafa og hverjir eru yfir- burðir þeirra yfir annað kosninga- fyrirkomulag. Hann gerði þetta á þingi 1933. Höfuðrök hans voru þessi: 1. Sýsluskiptingin hefur þróazt í þsúund ár og hvílir bæði á sögulegum og náttúrlegum rökum. Sýslufélögin og bæj- arfélögin eru sjálfstæðar Leikendur og starfsfólk. MenntaskólaSeikurinn 1959 frumsýndur næsfk. sunnudag Á sunnudaginn kemur verður Menntaskólaleikurinn „í blíðu og stríðu“ frumsýndur í Samkomu- húsinu. Leikurinn er eftir brezka höfundinn Arthur W'atkyn og þýddúr af ncmcndum skólans. Jóhann Pálsson leikari frá Reykjavík hefur rcft þennan nýja sjónleik með skólafóikinu. Alls eru 12 leikendur og flestir alger- ir nýliðar í leiklistinni. „í blíðu og stríðu“ er gaman- leikur, eins og skólafólk velur sér tíðast til flutnings, og er sennilegt að marga fýsi að sjá hversu því tekst á leiksviðinu. Útsvörin tæpar 19 millj. Fjárliagsáætlun Akureyrar- kaupstaðar var endanlega sam- þykkt á bæjarstjárnarfundi sí'ð- stl. þriðjudag. Útsvörin verða 18.800.900.00 kr. Nánar verður sagt frá fjárliags- áætiuninni í næsta blaði. Þannig Iítur aðalsalurinn á Hótel KEA út eftir breytinguna. Endurbófum á Hótel KEA að verða lokið r Ásgeirssonar Ferðamenn hafa átt í stöðugum vandræðum hér í vetur, síðan hótelinu var lokað fjárhagseiningar og menn- ingareiningar, sem eru orðn- ar samvanar til starfs. Það verða ekki búin til með lög- um önnur héruð, sein eru bétur fallin til þess að vera kjördæmi. 2. Einmenningskjördæmin tryS&ja héruðunum örugg- ustu málaflutningsmenn, sem hafa þekkingu á högum þeirra og sérstakar skyldur, fremur en landskjörnir eða stórkjördæmakosnir þing- menn myndu hafa. 3. Einmenningskjördæmin eru hemill á ofurvald flokkanna, því að þeir geta þá ekki náð eins miklum tökum á fram- l)oðum og í stórum kjör- dæmum, eða ef Iandið allt væri eitt kjördlæmi. Framhald á 7. siðu. Hé>tel KEA á Akureyri ltefur ver- ið lokað að mestu leyti í vetur síðan seint í haust vegna gagngerðra endurbóta, sem þar er verið að géra. Þótt miðhluti vetrar hafi oft verið kallaður „dáuður tími“ fyrir hótel- rekstur hér í bænum, kom það fljótt Nýtt sement Sementsverksmiðúan framleið- ir á næstunni nýtt fljótharðnandi sement, sem sumir nefna hraðse- ment. Það er nokkru dýrara en venjulegt sement, en nær sama styrkleika á 3—4 sólarhringum en annað sement á 3—4 vikum. Á sl. ári framleiddi verksmiðj- an 110 þús. smálestir ,en lands- menn notuðu um 90 þús. smá- lestir. Afgrciðslusími Dags og Tímans á Akureyri er 1166. Lögþing Færeyinga samþykkir nýja 12 mílna fiskveiðilögsögu Bretar einir mega veiða innan við Lögþing Fæfeyja samþykkti síð- astliðinn þriðjudag samkomulag ríkisstjórna Danmerkur og Bret- lands um fiskveiðitakmörk við Fær- eyjar. Var frumvarp þar að lútandi samþvkkt mcð 18 atkvæðum í Lög- þiUginu. — Þingmenn Þjóðveldis- flokksins greiddu atkvæði á móti, cn ftilltrúar Fólkaflokksins sátu hjá Samkvæmt liinu nýja samkomu- lagi, sent birt var samtímis í Kaup- mannalniin, Þórshöfn og Lornlon á þrið'judag, verðúr' f iskiveiðilögsagan við Eæreyjar 12 sjómílur, eu hrezk- um togurum leyft að veiða inn að scx sjómílna lakmörknm, en tog- veiðar annarra þjóða þannaðar á því svæði. Færeysk togveiðiskip fá að veiða innan fiskveiðitakmark- anna eftir vissum reglum. Talsmaður utanríkisráðuneytis- ins í London sagði, að Bretar hefðu fallizt á sex mílna takmörkin af því, að Færeyingar væru háðari fiskveið- um en aðrar þjóðir, og áúk þcss viidi brezka stjórnin sýna að húu óskaði eftir samkomulagi um fisk- vciðar í Norðurhöfum. Fulltrúar togaraeigenda eru hins vegar óánægðiy með samkomulagið. Sir Earndale Philipps, formaður brezkra togaraeigenda, lét svo um mælt, að þctta samkpmulag væri gert af ríkisstjórnurn viðkomandi aðila, og togaraeigendur ættu þar engan þátt í. í ljós, að þegar þessu hóteli var lokað, urðu hin margvíslegustu vandræði, bæði viðvíkjandi ferða- mönnum og hinúm fjölmörgu fé- lögum í bænum, sem þurfa á hús- næði að halda fyrir hvers konar fundi og samkomur. Síðastliðinn laugardag var við- gerð á hótelinu svo langt komið, að Starfsmannafélag KEA hélt þar hið árlega þorrablót sitt í aðalsaln- um á efri hæðinni. Sá hlúti bygg- ingarinnar er að mestu leyti tilhú- inn og svo að sjá, sem þarna séu ný húsakynni, svo gagngerðum stakkaskiptum hefur salurinn tekið. Fr hann mjög vistlegur. Líklegt má telja, að hótelið verði að fullu opn- að eftir 3—4 vikur hér frá. Orð og athafnir Þegar Alþingi hafði lagt blessuun sína yfir 6 milljón krónu kjaraskerðingu bænd- anna og 12—15 milljóna mis- rétti milli framleiðenda og neytenda með ni'ðurgreiðslur til neytenda langt niður fyrir framleiðsluverð. Samtals 18— 21 inillj. með tilstyrk íhalds og krata og nægilega margra komma, ver'öur Morgunblað- inu hugsað til kjósendanna í sveitum. Þá birtir það m. a. þetta í forystugrein: „Mestu máli skiptir nú, að tekið verði á crfiðleikum bændastéttar- innar af sanngirni og framsýni. íslenzkir bændur mega treysta því, að þess meiri sem áhrif Sjálfstæðisflokksins verða á stjórn landsins, þess raunhæfari skilningi mun hagsmunamál þeirra eiga að mæta“!i Hvernig líkar ykkur smjaðrið, bændur góðir? Finnst ykkur samræmi x orðum og athöfnum?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.