Dagur - 17.06.1959, Qupperneq 6
6
D A G U R
Miðvikudaginn 17. júní 1959
Hrekkjalóimirinn Troy
HUGH TROY er kunnur
bandarískur teiknari, listmál-
ari og rithöfundur, en fræg-
astur er hann þó fyrir hrekki
sína. Verður hér sagt frá
nokkrum þeirra.
BERFÆTTUR.
Er hann var í háskóla náði
hann eitt sinn í háar gúmmískó-
hlífar af einum prófessornum,
sem jafnan var mjög utan við
sig. Hann málaði þær þannig, að
þær líktust mjög nöktum manns-
fótum, og því næst þakti hann
þær með sóti, svo að þær fengu
aftur sinn upprunalega lit.
Næst þegar prófessorinn not-
aði skóhlífarnar, þvoði regnið
sótið af, svo að hann virtist
ganga berfættur.
Er Troy hafði lokið háskóla-
námi, flutti hann til New York,
ákveðinn í því að komast áfram
á listabrautinni. Það tókst vel, en
mikill tími fór í ails konar
hrekki.
f HÖNDUM LÖGREGLUNNAR.
Troy og 'vinur hans keyptu sér
eitt sinn bekk, líkan þeim, sem
hafðir eru í skemmtigörðum. —
Þeir félagar laumuðust með
hann inn í einn helzta skemmti-
garð borgarinnar og settust á
hann. Svo biðu þeir, þangað til
þeir sáu fyrsta lögregluþjóninn
koma labbandi, en þá tóku þeir
bekkinn upp á milli sín og héldu
af stað með hann út úr garðin-
um. Þeir voru auðvitað teknir
fastir, en á lögreglustöðinni þótt-
ist Troy vera stórhneykslaður,
vitnaði í lög um eignarrétt og al-
menn mannréttindi, og sýndi svo
skilríki fyrir því, að þeir ættu
þennan bekk og engir aðrir.
Þetta endurtóku þeir í ýmsum
skemmtigörðum borgarinnar,
þangað til illska lögreglunnar
var orðin svo mikil, að þeir
þorðu ekki annað en hætta þess-
um leík'.
ÖFLUN VASAPENINGA.
Troy var í skautafélagi, og eitt
sinn datt honum gott ráð í hug
til þess að auka við vasapeninga
sína. Hann fékk sér vindlakassa,
gerði dálitla rifu á annan gaflinn,
málaði kassann vel og vandlega
og festi hann svo á vegginn rétt
við dyrnar á skautaklúbbnum.
Ofan við kassann festi hann
miða, sem á stóð: „PLEASE
HELP!“ Engar skýringar voru
þarna á því, hverjum ætti að
hjálpa. Þótt undarlegt megi virð-
ast, þá urðu margir til þess að
smeygja peningi í kassann, og
Troy tæmdi hann svo með vissu
millibili.
GATIÐ.
Er Troy var í háskólanum, var
hann í arkitektadeildinni. Einn
prófessorinn hans var sífellt að
kvarta yfir því, að loftið í skóla-
stofunni, þar sem hann kenndi,
væri handónýtt. Hann var sí-
heimtandi af yfirstjórn skóláns,
að loftið væri styrkt áður en það
dytti ofan á hausinn á honum og
nemendum hans.
Eitt kvöld laumaðist Troy inn
í skólastofuna og nokkrir félagar
hans með honum. Þeir höfðu
meðferðis stiga meðal annars. —
Troy fór upp í stigann og málaði
stóran, svartan blett neðan í loft-
ið og gerði hann sem allra lík-
astan gati. Á gólfið fyrir neðan
settu þeir því næst hrúgu af
braki og rusli og fóru svo óséðir
út.
Er prófessorinn kom inn í
skólastofuna morguninn eftir,
leit hann sem snöggvast skelfdur
á ruslið og „gatið“, og æddi svo
út hneykslaður og reiður í leit að
umsjónarmanni hússins og ráða-
mönnum skólans. Nú var það
komið fram, sem hann hafði allt-
af búizt við, og hann skyldi nú
tala með tveim hrútshornum við
þessa bölvaða hálfvita, sem aldr-
ei tækju tillit til neins, sem þeim
væri sagt.
Um leið og prófessorinn var
kominn úr augsýn, þustu Troy
og félagar hans inn í skólastof-
una. Þeir nudduðu burt „gatið“
í skyndi og fluttu ruslið burt. —
Ekki leið á löngu, þar tii prófes-
sorinn kom aftur í fylgd með
ýmsum fyrirmennum skólans.
Er þeir komu inn í stofuna, var
þar ekkert óvenjulegt að sjá.
Sagt er, að orðbragð prófessors-
ins við þetta tækifæri hafi verið
stórkostlegt og eftirminnilegt.
HEFND.
Eitt sinn móðgaðist Troy við
kvikmyndahússeiganda nokkurn
og ákvað að ná sér niðri á hon-
um.
Hann fór í þetta kvikmynda-
hús eitt kvöld og hafði með sér í
lokuðu íláti nokkra tugi af lif-
andi mölflugum. Er sýning var
hafin, opnaði Troy ílátið, og möl-
flugurnar flugu út í sal — og
auðvitað leituðu þær í geislann
og flögruðu þar, svo að sýningin
þetta kvöld fór að mestu út um
þúfur.
N ASH YRNIN GURINN.
Þegar Troy var í Cornellhá-
skóla, kom hann einu sinni heim
til listamanns nokkurs og sá þar
bréfakörfu, sem var steypt ná-
kvæmlega eins og nashyrnings-
fótur. Honutn datt strax gott ráð
í hug, fékk- lánaða bréfakörfuna
og beið svo eftir hentugum veð-
urskilyrðum.
Kvöld nokkurt seint þakti ný-
fallinn snjór jörðina, og þá fór
Troy út með nashyrningsfótinn
og vinur hans með honum. Þeir
fylltu hann með járnarusli- til
þess að þyngja hann, því næst
bundu þeir um hann band, héldu
hvor í sinn enda, strengdu á því
á milli sín, svo að fóturinn hélzt
á lofti, en þeir voru hvor um sig
í svo sem 10—12 m. fjarlægð. Svo
létu þeir fótinn síga til jarðar
með vissu millibili. Þeir voru að
gera nashyrningsspor í snjóinn.
Morguninn eftir var uppi fótur
og fit. Margir höfðu fundið ákaf-
lega undarlegt spor í snjónum.
Kallað var á þá prófessora, sem
bezt voru að sér í dýrafræði.
„Hamingjan góða!“ kölluðu þeir.
„Þetta eru spor eftir nashyrn-
ing!“ (Framhald 7. síðu.)
ATVINNA!
Oss vantar kvenm,ann, sem
getur búið til flatbrauð
heirna hjá sér fyrir búðina.
KJÖTBÚÐ K.E.A.
Tveggja ára trillubátur
19 feta langur, með 5—6 ha.
Sólóvél og skiptiskrúfu og
gír, í ágætu lagi, til sölu.
Sigurður B. Jónsson,
Brekkugötu 3.
Sími 2438.
Stúlka óskast
til að taka að sér heimili í
Skagafirði yfir júlí og ágúst.
Gott kaup.
Uppl. i síma 1748.
TIL SOLU
karlmannsreiðhjól, nýlegt
og vel með farið.
Uppl. í sima 1472.
Polycolor
komið.
Verzlunin Ásbyrgi
Hinir margeftirspurðu
HVÍTU JAKKAR
komnir aftur.
VERZL. DRÍFA
SÍMI 1521
NÝKOMIN
BÓMULLAR-
PEYSUSETT
fyrir telpur.
VERZL. DRÍFA
SÍMI 1521
Stofa og eldhús
til leigu nú þegar.
SÍMI 2351.
Kaupamaður óskast
sem fyrst og til 15. septem-
ber. Þarf , að vera vanur
dráttarvélavinnu.
Afgr. vísar á.
Fundið
Armband með nafninu
Hjörtur fannst á nyrðri
Torfunefsbryggjunni fyrir
ca. 10 dögum. — Afhendist
gegn greiðslu auglýsingar-
innar á afgreiðslu Dags.
Húsmæður!
Grófi sykurinn, sem er sætumeiri og drýgri,
er mjög hentugur til sultugerðar.
Kr. 4.50 kg.
Hringið, allt sent heim.
VERZLUNIN EYJAFJÖRÐUR H.F.
Ferðatöskur
Innkaupatöskur
Tjöld - Tjaldbotnar
Svefnpokar
Yindsængnr
Bakpokar
Ferðafatnaður
alls konar.
Athugið úrvalið áður en þér farið í
sumarfríið.
Nylonsokkar! Perlonsókkar!
Saumlausir sokkar
margar tegundir.
Crepe-sokkar
þykkir, þunnir.
Sokkar með saum
þykkir, þunnir.
VEFNAÐARVORUDEILD