Dagur - 01.07.1959, Blaðsíða 1

Dagur - 01.07.1959, Blaðsíða 1
Fylgizt me'ð því sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. BAGUR kemur næst út miðviku- daginn 8. júlí. _______________________ t XLII. árg Akureyri, miðvikudaginn 1. júlí 1959 38. tbl. ÖAðt//? Rétt utan við fjögurra míliia merkin út af Sel- vogi 27 apríl kl. 7 e. h. tók Snorri Snorrason þessa ágætu Ijósniynd. Ekkert varð mönnum ljósara við útvarpsum- ræðurnar á dögunum, en hverjum beri að þakka forystuna í land- helgismálinu. Fylkjum liði í landhelg- isdeilunni. Framsóknarflokk iirinn vann stóran sigur í Alþingis- i . IíllRPim. _ . kosninsnnnm s.l. simiiiida: URSLIT A AKUREYRIOG IEYJAFJARÐARSÝSLU Úrslitin í Eyjafjarðarsýslu urðu þessi: f Eyjafjarðarsýslu voru 2707 á kjörskrá, atkvæði greiddu 2344 eða 86,3%. Af B-lista, Framsóknar, var kosinn Bernharð Stefánsson, íckk 1252 atkvæði, landslistinn 23, samtals 1275. Aí D-lista var kosinn Magnús Jónsson, fékk 674 atkvæði, landslistinn 19 atkvæði, samtals 693 atkvæði. A-listi,. listi Alþýðuflokksins, fékk 157 atkv., landslistinn 3, samtals 160. G-listi, listi Alþýðubandalagsins, fékk 130 atkvæði, lands- listinn 19, samtals 149 atkvæði. Auðir scðlar 27, ógildir 7, landslisti Þjóðvarnar 32. í kosningunum 1956 hlaut Framsóknarfl. 1289 atkvæði, Sjálfstæðisfl. 823 atkv., Alþýðufl. (landslisti) 24, Alþýðu- bandalag 231 og Þjóðvarnaríl. 91 atkvæði. Á Akureyri voru 4854 á kjörskrá (1956 4640), atkvæði greiddu 4260 eða 87,8% (1956 90,5%). Kosinn var Jónas Rafnar, frambjóðandi Sjálfstæðisflokks- ins, fékk 1473 atkv., Iandslistinn 76, samtals 1549 atkv. Ingvar Gíslason, frambjóðandi Framsóknar, fékk 1255 at- kvæði, Iandslisti 72, samtals 1327 atkv. Björn Jónsson, frambjóðandi Alþýðubandalagsins, fékk 728 atkv., landslistinn 37, samtals 765 atkv. Friðjón Skarphéðinsson, frambjóðandi Alþýðuflokksins, fékk 489 atkv., landslistinn 29, samtals 518 atkv. Auðir seðlar voru 25, ógildir 38, landslisti Þjóftvamar 38. Úrslit kosninganna 1956 voru þessi: Alþýðufl. 1579 (Framsóknarfl. og Alþýðufk). — Sjálfstæð- isfl. 1562. — Alþýðubandalag 829. — Þjóðvarnarfl. 138. í bæjarstjórnarkosningunum 1958 hlaut Sjálfstæðisfl. 1631 atkv., Framsóknarfl. 980 atkv., Alþýðufl. 556 og Alþýðu- bandalag 797 atkv. Sigur Framsóknarmanna er greinilegur cg sérstaklega glæsilegur á Akureyri. Hann eion jók fylgi sit.t verulega, sérstaklega í kaupstöð- um landsins os fékk hærri atkvæðatölu en nokkru sinni Kunnugt er nú orðið um úrslit kcsninganna á öllu landinu og liggja allar tölur Ijósar fvrir. Af þeim tölum má lesa fylgisaukningu Fram- sóknarflokksins svo að segja um allt land. Sjálfstæðisflokkurinn hefur haldið sínu fylgi, en Alþýðubandalagið og Alþýðuflokkurinn hafa tapað verulega. Kosning- ar sýna það tvennt mjög greinilega; að kjördæma- foreytingin mætir hvar- vetna andúð, þótt flokks- böndin hafi hamlað á móti því að sú andúð kæmi nema að litlu leyti í Ijós svo sem vert var. Og ennfreniur sýna kosn ingarnar, að þjóðin hef- ur munað eftir svikum verkalýðsfl. í vinstri stjórninni. Framsóknarfl. fékk 19 þingmenn kjörna að þessu sinni, vann ný þingsæti í Reykjavík, S.-Múlasýslu, V.-Skafta fellssýslu og A.-Húna- vatnssýslu, en tapaði þingsætum í Barða- strandasýslu og V.-ísa- fjarðarsýslu. Alþýðufl. fékk aðeins einn mann kosinn á þing og Alþýðubandalagið að- eins einn, Sjálfstæðis- flokkurinn fékk 20 þing- menn kjörna og Fram- sóknarflokkurinn 19, eins og áður segir. Talið er, að Alþýðufl. fái 5 uppbótarþingmenn og Alþýðubandalagið 6 uppbótarþingm. Hinir flokkarnir fá engin upp- bótarsæti. Fvrir Alþýðu- flokkinn taka sennilega þessir menn sæti sem uppbótarþingmenn: Eggert G. Þorsteinsson, Emil Jónsson, Guðm. í. Guðmundsson, Steindór Steindórsson og Friðjón- Sk ar ph éðinsson. Fyrir Alþýðubanda- lagið: Hannibal Valdi- marsson, Lúðvík Jóseps- son, Karl Guðjónsson, Finnbogi R. Valdimars- son, Björn Jónsson og Gunnar Jóhannsson. Stærsta byltan, sem Sjálfstæðismenn hlutu í þessum kosningum, eða sú, sem hæstum skelli olli, var fali Jóns á Akri fyrir Birni Pálss. bónda að Löngumýri. Þá bættu Framsóknarm. við sig þriðjung fylgis í Reykja- vík, Vilhjálmur Hjálm- arsson felldi Lúðvík Jós- epsson í S.-Múlasýslu og Óskar í Vík gekk með sigur af hólmi í V.-Skafta fellssýslu. Víða vantaði Framsóknarmenn ekki nema herzlumuninn til sigurs. Nýafstaðnar kosning- ar sýndu vaxandi fylgi Framsóknarflokksins svo Ijóst sem verða má.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.