Dagur - 08.07.1959, Blaðsíða 8

Dagur - 08.07.1959, Blaðsíða 8
Miðvikudaginn 8. júlí 1959 Dagub um Efst til vinsíri: Jónas B. Jónsson, skátahöfðingi, neðar er Ilrefna Tynes, æðsti kvenskáti landsins. Skátar leika á liljóðfæri og syngja við verðeldinn. — fLjósmynd: E. D.). Landsmót skáta í Vaglaskógi r r r Forseti íslands herra Asgeir Asgeirsson hefur gerzt verndarí skátahreyfiiigarmiiar - Yfir 400 skátar í Vaglaskógi - Gestir dáðust að tjaldbíið- unum og góðri umgengni - Mótsstjóri var Tryggvi Þorsteinsson skátaforingi á Akureyri íertgisneyzla sænskra mennta- ólanema er ískyggilega mikil ri stúlkur en piltar neyta áfengis - Aðeins ö memitaskólaneinamia eru bindindismenn - en annars 61% sænskrar æsku Liðin eru 35 ár frá stofnun Bandalags íslenzkra skáta og hefur þess verið minnzt með af- mælishófi í höfuðstaðnum. Við það tækifæri gerðist forsetinn, herra Ásgeir Ásgeirsson, vernd- ari skátahreyfingarinnar. Jónas B. Jónsson fræðslustjóri er skátahöfðingi, eða æðsti mað- ur innan skátahreifingarinnar hér á landi. Hrefna Tynes er vara-skátahöfðingi. Tryggvi Þorsteinsson er skáta- foringi á Akureyri. Samtals eru 28 skátafélög hér á landi og skátar um 4500. Landsmótið í Vaglaskógi stóð yfir dagana 3.—7. þ. m. Þar voru mættir yfir 400 skátar, innlendir og erlendir. Skátafélag Akureyr- ar sá um mótið undir stjórn Tryggva Þorsteinssonar, og er það í fyrsta sinn að Skátafélag Akureyrar sér um framkvæmd landsmóts. bezti skóli, sem þekkist. Skipulag hennar er sótt til hersins, en skátahreyfingin vinnur að friði og boðar frið. Hún er óháð stjórn- málum og trúmálum og er öllum opin. Hins vegar krefst hún fullrar þátttöku félagsmanna. Framhald á 7. siðu. TRYGGVI ÞORSTEINSSON skátaforingi á Ak. og mótstjóri. (Ljósmynd: E. D.). iskir menntaskáianemenduT ka ekki hrenniv'msstaup, sé boði. Jafnaldrar þeirra í iðn- og öðrum atvinnugreinum því miklu oftar. Hér er bæði nlta og stúikur að ræða. irnar drekka frekar vín, oé, n færri bindindissinnar með- rra en piltanna. Neyta aðeins hverjum 100 sænskra mennta, itúlkna aldrei áfengis, en 19 ndraði meðal piltanna. Ramisóknir á þessum vettvangi. Yfirstjórn sænskra skóla hefur undanfarið reynt að fá yfirlit yfir drykkjuhneigð nemenda í 'hærri skólum landsins. Teknir voru til rannsóknar á þessum vettvangi 109 skólar með 7000 nemendur 17—18 ára í næstefstu bekkjum menntaskóla ríkis og bæja. Mis- munur reyndist allmikill á skól- um smábæjanna og hinna stærri borga. Eru' t. d. 17 % fleiri bind- indisstúlkur í menntaskólum smá bæjanna en í stórborgunum. Og mismunur á piltum enn meiri. — | Alls reyndust því 61% mennta- ! skólanema, sem aldrei bragða áfengi. Vín og brennivín. Rannsóknir þessar greina á milli brennivínsnautnar og vín- Aðallundur Kauplélags Svalbarðseyrar Félagið minnist einnig 70 ára starfs Tjaldbúðir. Margir gestir skoðuðu tjald- búðir skátanna um helgina. Tjaldbúðahverfi voru 5 og mátti son sjá. hugkvæmni skáta í mörgum myndum við dvalarstaði þeirra, og þar mátti líka sjá góða um- gengni og snyrtimennsku. Skátar reistu háan vita og logaði skært ljós í toppi hans, þeir byggðu líka brú eina mikla og útsýnisturn, og hliðin 'fyrir framan tjaldbúð- irnar voru margvísleg og skemmtileg. Tjaldbúðirnar voru dvalarstað- ir margra þjóða. Tjöldin voru jafn ólík útlits og tungur þær, er talaðar voru. Góður skóli. Þótt hvers konar leikir séu áberandi, þar sem skátar dvelja, er skátahreyfingin talin einn Sjötugasti aðalfundur Kaupfél. Svalbarðseyrar var haldinn í Brúarlundi í Vaglaskógi laugar- daginn 27. júní .Veður var bjart og fagurt. Formaður félagsins, Hermann Guðnason á Hvarfi, setti fundinn og minntist þess, að á þessu ári er kaupfélagið 70 ára, en það var stofnað 17. des. 1889 í Tungu á Svalbarðsströnd. — Fundarstjóri var tilnefndur Jón Kr. Kristjáns- son, Víðivöllum, og fundai'skrif- arar þeir Sigurbjörn Benedikts- Ártúni, og Sigurður Geir- finnsson, Landamóti. — Fundinn sátu 38 kjörnir fulltrúar, auk stjórnar, endurskoðenda og fram kvæmdastjóra. Þá voru allmargir gestir. Skúli Jónasson kaupfélags- stjóri las reikninga félagsins og flutti yfirlit yfir starfsemi félags- ins á liðnu ári. Hafði reksturinn gengið vel og heildarvörusala vaxið um 44% og nam á árinu 13.460.770.92 kr. Sjóðhækkanir námu rösklega 122 þúsund krón- um. Stofnsjóðui' félagsmanna er orðinn rúml. 455 þúsund og sam- eignarsjóðir nema rúml. 814 þús. Félagið lauk á árinu smíði slát- urhúss og endurnýjaður var vélakostur frystihússins. Á órinu var stofnaður menningarsjóður með 20 þúsund króna framlagi. Afskrifaðar voru fasteignir eins og lög heimila. Vörubirgðir voru afskrifaðar um rúmar 530 þús- imd eða 28%. Samþykkt var að verja tekjuafgangi þannig, að greiða 5% af ágóðaskyldri úttekt í stofnsjóð og eftirstöðvum skyldi ráðstafa í menningarsjóð. Fundurinn samþykkti að styrkja Skógræktarfélag Suður- Þingeyinga með 2000.00 kr. framlagi og Héraðssamband Suður-Þingeyinga með kr. 1000.00. Fundurinn samþykkti margar ályktanir, m. a. að skora á stjórn SÍS að láta fara fram athugun á, hvort tiltækt væri að stofnsjóðir félagsmanna hjá kaupfélögunum fengjust verð- tryggðir. Ur stjórn félagsins átti að ganga Halldór Albertsson, Neðri- Dálksstöðum, og var hann end- urkjörinn. Ásamt honum eru í stjórn þeir Stefá:n Tryggvason, Haligilsstöðum, og Hermann Guðnason, Hvarfi, sem er for- maður félagsins. Endurskoðandi var endurkosinn Þórhallur Kristjánsson, Halldórsstöðum. — Fulltrúi á aðalfund SÍS var kjör- inn Skúli Jónasson. nautnar. Eru taldir 23% vínneyt- endur og 61% brennivínsneyt- endur. Almenn rannsókn um landið allt komst að þeirri niður- stöðu, að 61% pilta 15—20 óra brögðuðu ekki brennivín. Af þeim, sem áfengis neyta, drekka flestir brennivín, og af piltum, sem bragða vín, er aðeins einn af hverjum fimm, sem hafn- ar brennivíni, en af vínneytandi stúlkum aðeins ein af hverjum þremur, sem ekki drekkur brennivín. Áfengisneyzla reyndist í öllum stéttum þjóðfélagsins, en mest þó hjá hærri eða betri stéttunum. Vínnautnin er miklu algengari hjá skólastúlkum. Og í öllum stéttum var bindindissemi minni hjá stúlkum en piltum. — Og allt var þetta verst í stórborgunum. Áhrif heimilanna. Það kom einnig í ljós, að langt- um fleiri bindindissinnaðir menntaskólanemar komu frá bindindis-heimilum en hinum, sem höfðu áfengi um hönd. Og flestir bindindis-nemar voru með í einhverjum félagsskap áhuga- samra æskumanna. Hinir miklu sjaldnar. Nemendur vcru einnig látnir svara, hvers vegna þeir væru bindindismenn. Svörin voru á fleiri vegu, m. a.: Sökum þjóðfélagstjóns þess, sem vínnautn veldur. Af heilbrigðis ástæðum. Sökum bindindissemi á heimili þeirra. Sökum trúarskoðana sinna. Sökum kynna sinna af áfeng- issjúklingum (rónum. Skúli Jónasson kaupfélagsstjóri. Geta má þess, að bæði í fund- arlok og fundarbyrjun söng þing heimur ættjarðarlög. í fundarhléi var fundarmönnum boðið að skoða starfsemi Skógræktarinn- ar. Nutu fundarmenn leiðsagnar skógarvarðarins, ísleifs Sumar- liðasonar á Vöglum. Um kvöldið bauð kaupfélagið fólki af félagssvæðinu til skemmtisamkomu í Vaglaskógi, þar sem Jóhann Konráðsson söng og dans var stiginn til kl. 2.00 um nótt. Stjórnaði Sigurður Lúther dansi af sínu alkunna fjöri. Fólkið naut ágætrar skemmtunar og ve'ður var eins og bezt var á kosið. Félagið hefur í tilefni 70 ára afmælisins gefið út ágrip af sögu félagsins. Hallgrímur Sigtryggs- son, fulltrúi hjá SÍS sá um út- gáí'una. Selur málverk eftir máli ítalskur abstraktmálari, Pinto Gallizio, býður verk sín til sölu í metratali í Múnchen. Hann selur „meðalgóð“ málverk á 900 krónur metrann, en í málverkum af „æðri“ gæðaflokki kostar metrinn 2500 krónur. Listgagn- í'ýnendur í Múnchen, frumheim- kynni abstraktmálverksins, telja Gallizio með betri málurum sem þar starfa. Skýfall Á miðvikudaginn varð skýfall hér í miðbænum. Regnið streymdi úr loftinu af slíkum krafti að furðu sætti. Þessi demba stóð þó ekki nerna ör- stutta stund og endaði með hagli. Sólin tók að skína á ný og jörðin angaði. Skýfall þetta náði yfir mjög takmarkað svæði. Norðan Gler- ár rigndi mjög óverulega og í bæjarlandinu sunnanverðu kom aðeins saklaus gróðrarskúr.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.