Dagur - 12.08.1959, Side 1

Dagur - 12.08.1959, Side 1
Fylgizt með því sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. Dagu DAGUR kemur naest út miðviku- daginn 19. ágúst. XLII. árg. Akureyri, miðvikudaginn 12. ágúst 1959 42. tbl. Heildarsölfun á Sigluf. 111768 tn. Siglufirði 11. ágúst. Síldarverk- smiðjur ríkisins á Siglufirði hafa tekið á móti 258.390 málum síld- ar, fram að 10. þ .m. SR á Rauf- arhöfn 99.665 málum og Síldar- verksmiðjan Rauðka á Siglufirði 77 þúsund málum. Heildarsöltun frá Djúpuvík til Reyðarfjarðar, að báðum stöðun- um meðtöldum er 193.734 tunnur. Þær söltunarstöðvar á Siglu- firði, sem saltað hafa meira en 7 þúsund tunnur eru: Sunna 9118 tunnur, Síldarsöltunarstöð Óla Hinriksen 7932, Söltunarstöðin Nöf 7925 og Pólstjarnan 7008 tunnur. Heildarsöltun á Siglu- firði er 111.768 tunnur. Fjálsíþróftamót Norðurlands á Akureyri dagana 15. og 16. þ.m Dagana 15. og 16. ágúst verður Norðurlandsmót í frjálsum íþrótt um háð hér á Akureyri. Það hefst kl. 2 e. h. með setningar- ræðu Ármanns Dalmannssonar, form. í. B. A., síðan fer fram keppni í 100 metra og 1500 metra hlaupi, hástökki, langstökki, kúluvarpi, 110 m. grindahlaupi og 4x100 m. boðhlaupi. Konur keppa í 100 m. hlaupi, kúluvarpi og langstökki. Kl. 8 verður svo keppt í stang- arstökki, 400 m. hlaupi og spjót- kasti. Síðari mótsdagur. Síðari daginn hefst keppni kl. 4 og keppt í 200 m., 800 m. og 3000 m. hlaupum, kringlukasti, þrístökki, 400 m. grindahlaupi og 1000 m. boðhlaupi. Konur keppa í hástökki, kringlu kasti og 4x100 m. boðhlaupi. Á bamaleikvelli á Akureyri. (Ljósmynd E. D.) Bíll flaug á húsgafl og braut hann Merkur áfangi í flugmálunum ®Fyrsti flugturnmn sem íslendingar byggja var tekinn í notkun á Ákureyrarflugvelli í gærdag Ný fiskimið við ísland Siglufirði 11. ágúst. Sá atburður gerðist hér um kl. 9 í gærkveldi, að fólksbifreið ók fram af 6—8 metra háum bakka við Suður- götu, mjög bröttum. Bifreiðin mun hafa verið á mikilli ferð því að hún bókstaflega flaug þar fram af og hafnaði á gafli húss eins er þar stendur fyrir neðan. „Stuðari“ bílsins braut húsgafl- inn, sem er úr timbri og það sem ótrúlegt er, vegsummerkin á hús inu voru alllangt frá jörð — var þetta því ósvikið bílflug. Sá, sem bifreiðinni ók, er Reyk víkingur, en stúlkur tvær, sem voru með honum er þessi atburð ur varð, eru báðar frá Akureyri. Skúlagarður í Keldu- hverfi vígður Síðastliðinn sunnudag var fé- lags- og skólaheimilið Skúlagarð ur í Kelduhverfi, sem risið hefur að Krossdal þar í sveit, vígt við hátíðlega athöfn. — Vígsluhátíð- in hófst kl. 2 síðdegis. Ræður fluttu m. a. formaður bygginga- nefndar, Björn Þórarinsson í Kílakoti, Helgi Elíasson, fræðslu- málastjóri, og Stefán Jónsson, námsstjóri. Við þetta tækifæri afhjúpaði Árni Óla, ritstjóri, fulltrúi Þing- eyingafélagsins í Reykjavík, minnismerki um Skúla Magnús- son, landfógeta, sem stendur úti fyrir hinu nýja félagsheimili. — Guðmundur Einarsson frá Mið- dal hefur gert minnismerkið, en það er í líki arnar á háum stuðli. Héraðsbúar fjölmenntu til Skúlagarðs þennan dag, og þang- að komu einnig margir burt- fluttir Keldhverfingar og aðrir gestir. Skarst önnur á handlegg en hin handleggsbrqtnaði. Bílstjórinn -slapp ómeiddur. Um sama leyti datt tveggja ára telpa út um glugga á þriðju hæð í húsi einu hér í bæ. Fallið var um 6 metrar en gras undir glugg anum. Barnið hlaut ekki meiðsli, að því er séð verður. Fiskiskipið „Nylon” frá Ála- sundi hefur fundið ný og auðug fiskimið hér við land og fékk þar fullfermi á tæpum tveimur vik- um af löngu, keilu og lúðu, um 45000 kg alls: Eru mið þessi hér fyrir sunnan land á allmiklu svæði frá 12 mílna línunni og 40—50 sjómílur til hafs. Kveðst skipstjóri hafa vitað um veiði- svæði þetta í nokkur ár, en það hafi ekki verið fyrr en í sumar, að 5—6 Sunnmærabátar hafi komið þangað og aflað vel. 63 mál íyrir Allsherjarþing S. Þ. Allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna keniur saman í 14. sinn hinn 15. sept. í Aðalstöðvum samtakanna í New York. Meðal þeirra stórmála, sem tekin verða til meðferðar, eru málamiðlun S. I>. í Alsfr-striðinu, aðild Kína að samtökunum, og kytt- jtáttavandamálið í Suður-Afríku. A dagskrá þingsins, eins og hún liggur fyrir nú, eru 63 mál. Auk hinna venjulegu mála, sem fjallað er um á hverju þingi, verður rætt um möguleikann á því að attka meðlimatölu Öryggjsráðsins og Efnahags- og félagsmálaráðsins. I>á verður rætt um fjö'Igun í Alþjóða- dómstólnum. Öll Jtessi ntál voru cinnig rxdd á síðasta þingi. I>á eru á dagskrá Jringsins umræð- ur um bann við tilraunum með kjarnavopn. Af skýrslum sem lagðar verða frarn má nefna skýrslu um nýtingu kjarnorkunnar og geimsins, skýrsl- ttr um efnahagsþróunitta í vanþró- uðum löndum, þróunina á gæzlu- verndarsvæðum samtakanna, gæzlu- lið S. I>. (m. á. kostnaðinn við ]<að) og starf S. I>. meðal flóttamanna. Allsherjar Jnngið verður sett af formanni sendinefndarinnar frá Ltbanon. Kristinn Jónsson, forstjóri Flugfélags íslands á Akureyri, bauð fréttamönnum til kaffidrykkju í gær í tilefni rnerks áfanga í flugþjónustunni. Hitm nýi flugturn á Akureyrarflugvelli var þann dag tekinn í notkun. Er það merkur viðburður, þar sem þetta er fyrsti flugturninn, sem íslendingar byggja og taka til notkunar. Öll flugumferðastjórn hér er nú flutt í hin nýju húsakynni, þótt byggingu sé enn ekki lokið. Nýr radar, fullkomnari en sá, er áður var, hefur verið settur upp. Frá hinum nýja flugturni var í gærmorgun fyrsta lending- arheimild veitt. Vinnuskilyrði hafa batnað ótrúlega mikið og flugöryggið að sama skapi. Þúsund lendingar á ári. Á Akureyrarflugvelli eru sennilega um 1000 lendingar á ári og tala farþega, sem fara um, flugvöllinn, um eða yfir 20 þús- und. Auðséð er því, hve mikils virði hin nýja framkvæmd er fyrir flugið hér um slóðir. Merkur áfangi. En þótt merkum áfanga sé fagnað eru mörg verkefni óleyst á Akureyrarflugvelli. Sjáifur er Síldaraflmn orðinn 843 mál og funnur um s. I. helgi Afli í síðustu viku 78 þús. mál og tn. - Mikil reknetaveiði í Húnaflóa. - Fanney lóðaði mikla síld út af Skallarifi í Húnaflóa. í hinni vikulegu skýrslu Fiski- inn þá, á sama tíma, var 443.861 félags fslands segir svo: Á mið- nætti sl. laugardag var síldarafl- inn kominn upp í 834.669 mál og tunnur eða nær tvöfalt magn mið að við síðastliðið ár. Heiidar afl- mál og tunnur. í bræðslu eru komin 625 þús. mál, í salt 194 þús. tunnur upp- saltaðar og í frystingu 15 þús. uppmældar tunnur (hundruðum sleppt). AFLAHÆSTU SKIPIN: Víð- ir II., Garði, 13.752 mál og tunn- ur, Faxaborg, Hafnarfirði, 12.415 Snæfell, Akureyri, 11.272, Jón Kjartansson, Eskifirði, 11.133 og Guðmundur Þórðarson, Reykja- vík, 10.744 mál og tunnur. Önn- ur skip hafa innan við 10 þús. Skrá yfír síldveiðarnar er birt annars staðar í blaðinu í dag. flugturninn ófullgerður og gler- turninn sjálfur eftir með meiru, flugbrautina þarf að malbika og lengja og byggngar fyrir hina al- mennu farþegaafgreiðslu þarf að reisa. Ekki skyggir þetta þó á neinn hátt á þá áfanga, sem náðst hafa á því 10 ára bili, sem liðið er síðan framkvæmdir hófust við flugvöllinn. Nokkrir forráðamenn flug- málanna voru viðstaddir, meðal annarra settur flugmálastjóri, Gunnar Sigurðsson, og gáfu þeir ágætar upplýsingar um einstök atriði varðandi flugþjónustuna almennt og framkvæmd þá, sem hér um ræðir. Fimmtíu þúsund eigin- menn lilaupa að heiman Brezk stjórnarvöld hafa nú hleypt af stað heilum hóp lög- reglumanna til smalamennsku um land allt með það fyrir aug- um að heimta af fjalli a. m. k. einhvern hluta þoirra 50 þús- unda eiginmanna, sem hlaupið hafa frá konum sínum og börn- um og snúið baki við öllum skyldum við heimili sin. Verst er að lögreglumenn fá litla aðstoð kvenna þeirra, sem heima sitja, jafnvel þótt mörgum þeirra sé kunnugt, hvar bændur þeirra ali manninn og haldi til. Þær fá sem sé ríkisstyrk, meðan ekki er kunnugt, hvar eiginmað- urinn er niður kominn. Telja konurnar því styrk þennan viss- ari og notadrýgri pening heldur en óvissa greiðslu frá stroknum eiginmanni.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.